Tíminn - 11.09.1968, Blaðsíða 12
málum skyldi vera blandað saman á ráðstefnunni í Amsterdam.
Frá landsleik Dana og fyrrverandi heimsmeisfara, Rúmena. ÞaS
er hinn hæftulegi leikmaður Moser, sem þarna sésf í skotsföðu, en
Jörgen Petersen, „íslandsbaninn" sést elnnig á myndinni. Nú hafa
Danir orðið að aflýsa ieikjum við austantjaldslöndin.
„Það hefur gætt nokkurs mis
skilnings í skrifum um hand-
knattleiksráðstefnuna í Amster
dam“, sagði Axel Einarsson, for
maður HSÍ, í viðtali við íþrótta
síðu TÍMANS. „Við íslenzku
fulltrúarnir á ráðstefnunni vor-
um í mjög erfiðri aðstöðu, þvi
að það var greinilegur vilji
allflestra fulltrúa vestrænu ríkj
anna að eiga engin samskipti við
Rússa og hin árásaríkin. At-
kvæðagreiðslan margumtalaða
hafði í rauninni enga þýðingu.
Hún var aðeins formleg vilja
yfirlýsing þingsins. Hefði verið
samþykkt í atkvæðagreiðslunni
að halda Evrópuhikarkeppni,
hefðu samt sem áður sárafá,
ef nokkui, Vestur-Evrópuríki
tekið þátt í henni. Slík keppni
hefði verið skrípaleikur. Að
athuguðu máli vildum við ekki
samþykkja slíka keppni. Töldum
þá verr farið en heima setið.“
Axel Einarsson hélt áfram:
„Þú getur rétt ímyndað þér
vonbrigði okkar á þessari ráð-
stefnu. Hér var stjórnmálum og
íþróttum blandað saman. Við
íslenzku fulltrúarnir létum þau
orð falla, að við værum slíkum
vinnubrögðum mótfallnir og
helzt.kysum við að málinu yrði
slegið á frest til áramóta. En
okkur var tjáð, að sú leið hefði
verið rædd á stjórnarfundi. en
ekki náðst samkomulag um
hana. f stjórn alþjóðasambarids
ins eiga sæti 13 fulltrúar. Af
þeim lýstu 10 sig samþykka því
að hafa engin samskipti við
innrásaríkin. Aðeins fulltrúar
Ungverjalands og Austur-Þýzka
lands voru á móti, en fulltrúi
Tékka var ekki viðstaddur. Hið
saana var uppi á teningnum í
tækninefnd alþjóðasambandsins.
f henni eiga sæti 7 fulltrúar.
Þar var aðeins fulltrúi Júgóslav
íu á móti, en vinur okkar Kunst
frá Rúmeníu, hafði ekki aðstöðu
til að vera viðstaddur fundinn.
Þegar á allt þetta er litið,var
ljóst fyrir atkvæðagreiðsluna.
að hver svo sem úrslit hénnar
yrðu, þá yrði ekki um eðlileg
samskipti milli austurs og vest
urs í formi Evrópubikarkeppni
og heimsmeistarakeppni að ræð
á næstunni. Atkvæðagreiðslan
fór fram í þrennu lagi* f fyrsta
lagi voru greidd atkvæði um
heimsmeistarakeppni kvenna.
Þar var samþykkt með 13 at-
kvæðum gegn 12 að halda hana
ekki í Rússlandi. í samib. við
HM karla var samþykkt að
fresta undankeppni hennar til
ársloka 1969 og að nýr dráttur
færi fram. Atkvæði féllu 16:9.
Atkvæði urðu jöfn um Evrópu-
bikarkeppnina, 13 atkvæði gegn
13, en atkvæði formannsins réði
úrslitum. í sambandi við þessa
atkvæðagreiðslu skal þess get-
ið, að með austantjaldslöndun
um í þessari atkvæðagreiðslu
stóðu nokkur ríki utan Evrópu,
t. d. Túnis, Alsír og Japan, en
það var auðvitað mjög óraun-
hæft.
Jafnvel þótt við íslenzku full
trúarnir væru á móti því, að
íþróttum og stjórnmálum væri
blandað saman á þennan hátt.
sáum við fram á það, að gagns-
laust væri að styðja Evrópubik
arkeppni, sem austantjaldslönd
in ein, og e. t. v. ísland, tækju
þátt í, jafnvel þótt samskipti
okkar við austantjaldslöndin
hafi alla tíð verið ánægjuleg
og góð.
Þetta er einhver erfiðasta ráð
stefna, sem ég hef setið. f einu
vettvangi hrundi margra mán-
aða vinna við undirbúning leikja
eins og spilaborg. Það var engu
líkara en stórri sprengju hefði
verið varpað. Nú þarf að byrja
upp á nýtt. Ganga frá nýjum
samningum. En það er einlæg
von mín, að eðlileg samskipti
milil vesturs og austurs takist
áður en langt um líður. Þetta
sundrungarástand, sem nú rík-
ir, gerir ekkert annað en eyði
leggja handknattleikinn“, sagði
Axel Einarson að lokum. - alf.
Landslið Islands og Russlands. Russar urðu fyrstir þjoða til að
leika landsleik við ísland í Laugardalshöllinni
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 11. september 1968.
Atkvæðagreiðslan hafði í
rauninni enga þýöingu
— segir Axel Einarsson og harmar um leið, að íþróttum og stjórn-
RANDERS
ARSENAL I
EFSTA SÆT3
Kristján O. Skagfjörð h.f.
Tryggvagötu 4, Reykjavík - Sími 24120
— en ensku meistararnir með þeim neðstu.
Maneh. C. 8 1 3 4 7:14 5
Eftir leikina á langardaginn Q.P.R. 8 0 3 5 7:18 3
var staðan i 1 deild á Englandi
þessi; 2. deild
Oharlton 8 5 2 1 17:12 12
1. deild. C. Palace 8 5 1 2 18:12 11
Arsenal 8 6 2 0 16:6 14 Millvall 7 5 1 1 16:11 11
Leeds Utd. 7 6 1 0 16:6 13 Blackpool 7 3 4 0 8:4 10
West Ham 8 5 2 1 17:7 12 Sheff. Utd. 7 4 1 2 10:8 9
Sheff. Wed. 8 4 3 1 13:8 11 Cardiff 8 4 1 3 14;12 9
Liverpool 8 4 2 2 11:7 10 Middlesbro 8 4 1 3 10:10 9
Chelsea 7 3 3 1 14:8 9 Bolton x 7 3 2 2 12:9 8
Everton 8 3 3 2 11:7 9 Blackburn 7 3 2 2 10:8 8
Sunderland 8 3 3 2 12:10 9 Norwich 8 3 2 3 12:12 8
Manch. Utd. 8 3 2 3 12:15 8 Preston 6 3 1 2 7:4 7
Ipswich 8 3 1 4 12:12 7 Derby C. 7 2 3 2 9:9 7
Newcastle 8 1 5 2 8:9 7 Oxford U. 7 2 3 2 6:6 7
Stoke City 8 3 1 4 6:10 7 Hull City 7 1 4 2 8:9 6
Tottenham 7 2 2 3 15:10 6 Bristol C. 7 1 4 2 7:8 6
Wolves 8 2 2 4 9:10 6 Bury 7 2 2 3 12:14 6
Nottm. For. 7 1 4 2 10:9 6 Huddersf. 8 1 3 3 7:11 6
Southampt. 8 3 0 5 10:13 6 Portsm. 8 1 3 4 7:11 5
W.B.A. 8 2 2 4 12:20 6 Birmingh. . 7 2 0 5 15:19 4
Burnley 8 2 2 4 9:22 6 Aston V. 7 1 2 4 4:10 4
Coventry 6 2 1 3 8:10 5 Fulham 7 1 2 4 2:7 4
Leicester 8 2 1 5 8:12 5 Carlisle 7 0 3 4 3:12 3