Tíminn - 06.10.1968, Qupperneq 2
TIMINN
SUNNUDAGUR 6. október 1968.
1938
S.Í.B.S. 30 ára
1968
BERKLA VARNÁDAGUR
Afgreiðslustaðir merkja og blaða í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði
og Seltjarnarnesi:
Vesturbær:
Bræðraborgarstígur 9,
Skrifstofa S.Í.B.S.,
sími 22150.
Fálkagata 28,
Kristín Ólafsdóttir,
sími 11086.
Meistaravellir 25,
Anma JóhanneSdóttir,
sími 14869.
Nesvegur 45,
Kristján Hallgrímsson.
Miðbær:
Grettisgata 26,
Halldóra Ólafsdóttir,
sími 13635.
Austurbær:
Bergþórugata 6 b,
Árni Guðmundsson,
sími 18747.
Langahlíð 17,
Þorbjörg Hannesdóttir,
sími 15803.
Mávahlíð 18,
Dómald Ásmundsson,
sími 23329.
Sjafnargata 7,
Fríða Hermannsdóttir,
sími 13482.
Skúlagata 72,
Hafsteinn Pedersen,
sími 19583.
Vatnsholt 2,
Margrét Brandsdóttir,
sími 81921.
Laugarneshverfi:
Hrísateigur 43,
Guðrún Jóhannesdóttir,
sími 32777.
Rauðilækur 69,
Steinunn Indriðadóttir,
sími 34044.
Háaleitishverfi:
Háaleitisbraut 56,
Hjörtiþór Ágústsson,
sími 33143.
Safamýri 50,
Helga BjargmundSdóttir,
sími 30027.
Skálagerði 5,
Rögnvaldur Sigurðsson,
sími 36594.
Heimar, Kleppsholt og
Vogar:
Kambsvegur 21,
Aðalheiður Pétursdóttir,
sími 33558.
Nökikvavogur 22,
Sigrún Magnúsdóttir,
sími 34877.
Sólheimar 32,
Skarphéðinn Kristjánsson,
sími 34620.
Smáíbúðahverfi:
Akurgerði 25,
Egill Hólm,
sími 35031.
Breiðholtshverfi:
Skriðustekkur 11,
Ásta Garðarsdóttir,
sími 36512.
Árbæjarhverfi:
Árbæjarblettur 7,
Torfi Sigiurðsson,
sími 84043.
Hraunbær 42, 2. hæð,
Elínborg Guðj óns'dóttir,
sími 81523.
Hitavei/.utorg 1,
Erla Hólm,
sími 84067.
Seltjarnarnes:
Eiði,
Halldór Þórhallsson,
sími 13865.
Kópavogur:
Hrauntunga 11,
Andrés Guðmundsson,
sími 40958.
Langabrekka 10,
Salómon Einarsson,
simi 41034.
Vallargerði 29,
Magnús Á. Bjamason,
simi 41095.
Hafnarf jörður:
Austurgata 32,
Hellisgata 18,
Lækjarkinn 14,
Þúfubarð 11.
Langagerði 94,
Borghildur Kjartansdóttir,
sími 32568.
Sölufólk komi kl. 10 árdegis.
Há sölulaun
S.Í.B.S.
mm
-*• JP-innréttingar frá Jáni' Péturssyni, húsgagnaframleiOanda — augtýstar I
sjónvarpl. Stílhreinatj sterkar og val um viðartegundir og harðplast- Fram-
leiðir einnig fataskápa.
A5 afiokinni víðtækri kðnnun teljum vlff, aB staðlaffar hentl ( fiestar 2—5
herbergja fbúffir. eins og þær eru byggðar nú. Kerfi okkar or þannig gert, aB
oftast má án aukakostnaðar, staðfæra innréttinguna þannlg að hún hentl. I
allar Ibúðlr og hús.
Allt þetta
•fc Seljum. staðlaðar eldhús-
innréttlngar, það er fram-
leióum eldhúsinnréttingu og
seljum me5 ollurrt raftækj’um
og vaski. VerS kr. 61 -000.00 -
kr. 68.500,00 og kr. 73 000,00.
* Innifalið í verðinu er eid-
húsinnrétting, 5 cub/f. ís-
skápur, eldasamstæða með
tveim dfnum, grillofni og
bakarofni, lofthreinsari með
kolfilter, sinki - a - matic
uppþvottavél og vaskur, enn-
fremur söluskattur.
Þér getið valið um ínn-
lenda framleiðslu á eldhús-
um og erlenda framleiðslu.
(Tielsa sem er stærstl eldhús-
framleiðandi á meginbndi
Evrópu.)
Einnlg gefum við smlðað
Innréttlngar eftir teikningu
Og óskum kaupa.nda.
ir Þetta er eina tilraunln, að
þv( er bezt verður vltað til
að leysa öll. vandamál .hús-
byggjenda- varðandi eldhúsið.
^ár Fyrir 68.500,00, geta
margir boðið yður eldhúsinn-
réttingu, en ekki er kunnugt
um. að aðrir bjóði yður. eld-
húsinnréttingu, með eldavél-
arsamstæðu, viftu, vaski,
uppþvottavél og ísskáp fyrir
þetta verð- — Allt innijalið
meðal annars söluskaltur kr.
4.800,00.
Söluumboð
fyrlr
JP
•innréttlngar.
Umboös- & heitdverzlun
Kirkjuhvoli - Reykjavlk
Stmar: 21718,42137
ÞÁTTUR KIRKJUNNAR
Morgunstund - Morgunbæn
Á veggnum í stofunni beint
á móti mér, þegar ég skrifa
þessi orð, hangir mynd af
manni og konu, sem komin
eru til starfa út á akurinn
fyrir sólarupprás. Þar bjarmar
af sólaruppkomu yfir kirkju-
turni, sem gægist í fjarska yf-
ir sléttuna.
Þau hafa lagt frá sér verk-
færin og standa beygðu höfði
hvort gagnvart öðru og
spenna greipar í bæn — morg-
unbæn.
Þetta er síðasta gjöfin frá
henni fósturmóður minni til
mín. Og sjálf hefur hún saum-
að þreyttum höndum, sínum
mildu, fórnfúsu, örlátu hönd-
um, hvert nálspor í þessari
mynd, mynd, sem á að minna
mig á það sem mestu varðar
til sigurs í daganna þraut.
■ Hugleiðsla í hljóði morg-
uns áður en dagsönnin hefst
ásamt bæn til Guðs um bless-
un yfir störfum og atvikum
dagsins í meðiæti og mótlæti,
vonum og vonbrigðum, það
vissi hún mamma mín, að yrði
til mestra heilla.
Og þvi ætti ég aldrei að
gleyma, og sízt þegar líður á
dag og lækkar sól ævinnar og
mótgangsöldur bera bát af
leið til sigurhafnar.
Á hverjum morgni heyri ég
fótatak margra, sem ganga á-
leiðis til starfs síns framhjá
glugganum. Og oft verður mér
að hugsa, hvílík hami-ngja það
er, að hafa dagstarf til að
ganga að. Það vitum við, sem
þekktum atvinnuleysi kreppu-
áranna.
Þar er mikið að þakka mor-
gun hvern. En allt á þetta fólk
hver einstaklingur, sínar hugs-
anir, áhyggjur og viðhorf til
dagsins og starfsins. Hvað
mun þessi dagur flytja þeim?
Á þessum hljóða morgni í
djúpri þögn, sem nóttin enn
skilur eftir, myndast bil, sem
engum og öllum tilheyrir, ó-
kannað — óflekkað land morg
unkyrrðarinnar.
En eftir nokkra stund —
nokkrar stundir, glymur gatan
hér og gatan þar af fótataki
og bifreiðagný milljónanna. Og
allir lifa sinn dag.
„Þann signaða dag vér
sjáum enn,
með sólunni af djúpi rísa“,
var sungið hér áður og er enn
stundum sungið. Og til eru dag
ar, sem við horfum til með
fögnuði og tilhlökkun. En
fleiri munu þeir vera, sem
fela sig bak við móðu og mist-
ur áhyggna og angistar. Það
getur verið þannig um einn
sérstakan dag, en einnig gagn-
vart framtíðinni allri.
Og séum við ein um áhyggj-
urnar og kvíðann, ósigrana og
vonbrigðin, sem virðast bíða
úti í skuggum hins ókomna,
sem skyggja á sólris yfir kirkju
turnum framtíðarinnar^ þá níst
ir einstæðingsskapur alla leið
að hjartarótum.
En höfum við varðveitt
trúna á almætti hins góða,
sigur kærleikans, guðstrú hjart
ans, þá vitum við. að dagur-
inn, hver dagur er einnig á
valdi hans sem lífið gaf og
ljósið skóp. Hver dagur er í
raun og veru gjöf frá honum.
hinum mikla, eilífa anda, sem
í öllu og alls staðar býr.
Og inni í geisladýrð sólar-
uppkomunnar yfir helgidómi
tilverunnar birtist hann og
réttir hverju barni og blómi
jarðar sína almáttugu hönd,
og utan úr djúpri þögn morg-
unsins andar blærinn berg-
máli elskandi raddar, sem einu
sinni var rödd dagsins. Og
hún segir: „Láttu Guðs hönd
lciða þig hér“. Eigir þú þessa
hönd í hendi þér. Gangir þú
við hennar kraft og leiðbein-
ingu, þarftu engu að kvíða.
Og svo göngum við fagn-
andi móti ókunnum degi, hönd
í hönd við kraft hins góða
Guðs, föðurins, sem ræður öllu
og ræður vel, og getur jafn-
vel hreytt hinum svörtustu
skuggum mannvonzku og mót-
lætis í sælan sólskinsdag.
Það er eitthvað annað, að
fela sig slikri handleiðslu en
að þurfa eingöngu að reiða sig
á mannlegan mátt og mann-
lega góðvild.
Einskis þarf mannshjartað
fremur en trúarlega hand-
leiðslu hins góða í völundar-
húsi hins daglega lífs.
En eigum við slíkan vin frá
heiimi hins ósýnilega, htvort
mundoim við þá síður fagna
komu hans með orðum og at-
höfn, en ef við ættum slíkan
vin frá heimi hins sýnilega?
Og við getum fagnað hon-
um með „Faðir vor“, eins og
við lærðum það af móðurvör-
um fyrir mörgum þúsundum
morgna.
En við getum líka fagnað
án orða með fagnandi hjart-
slaatti og ljóðri hugleiðsihi
hins þroskaða manns.
Sá, sem gengur á vit dags-
ins, hins komandi dags, með
„Faðir vor“ á vörum og lof-
söng til ljóssins í hjartslætti
sínum, tekur önn og óvissu
lífsins með öðrum og hollari
hætti en hinn, sem klæðir sig
nöldrandi og gengur hikandi
skrefum á móti erfiði hins ó-
kunna, framandi dags.
Allra bíður dag hvern ótelj-
andi smá eða stór vandamál,
vonbrigði, raunir, geðshræring
ar, ákvarðanir, ábyrgð, sárs-
auki ótti og áhyggjur.
,Hjartað heimtar meira en
húsnæði og brauð.“ Það verð-
ur úr mörgum vanda að ráða.
Hvað er þá betra en eiga leið-
sögn frá ljósuppsprettu lífsins
anda og orði Guðs?
Og það orð segir:
„Allt sé hjá yður í kærleika
gjört,“ Vilji Guðs er hið góða,
fagra og fuilkomna“. Þama
skín á tilgang og takmark lífs-
annarinnar hvem dag.
Og við þurfum huggun, ást-
úð, hreinskilni, frelsi, fyrir-
gefningu og hjartafrið á hverj-
um degi. Og þetta eigum við
líka að veita öðrum eftir föng-
um.
Fátt mun fremur opna fjár-
hirzlur og birgðageymslur þess
arar auðlegðar hvern morgun
en ofurlíti bænarstund og hug
leiðsla um, hva? segja skuli
og gera i vandamálum dags-
ins, ofurlítil bænarstund í
kyrrð morgunroðans.
Og um þetta, þessa stund,
þarf raunar enginn að vita.
Það er þitt og hans, sem morg
unljómann, veitir.
Sagt er, að á ferðalögum
Austurlandabúa falli úlfald-
arnir á kné að morgni, til að
taka á sig byrðar dagsins.
Við eigum öll okkar hvers-
Framhald a ois. 15.