Tíminn - 06.10.1968, Page 9
SUNNUDAGUR 6. október 1968.
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. ÞorsteinssO'n. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Auglýs-
ingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur í Eddu-
húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur: Bankastræti 7. Af-
greiðslusími: 12323. Auglýsingasími: 19523. Aðrar skrifstofur,
sími 18300. Áskriftargjald kr. 130,00 á mán. innanlands. —
í lausasölu kr. 8.00 eint. — Prentsmiðjan Edda h. f.
TÍMINN 9
ERLENT YFIRLIT
Sænskir sosialdemokratar boöa
aukin afskipti ríkisvaldsins
Vörnin varð stórsókn
Samband ísl. berklasjúklinga hefur alla tíð verið eitt-
hvert merkilegasta félagsframtak með þjóðinni síðan
það var stofnað fyrir þrem áratugum. Þá var þjóðin hart
leikin af vágesti, sem hjó hvert ár stór skörð í mannafla
hennar, gerði aðra örbjarga og vonlausa, en skildi eftir
djúp sár í annarri hverri fjölskyldu á landinu. Þar
var berklaveikin að verki, og hafði gerzt stórhögg um
hríð. Varnarbaráttan, sem hafin var á fyrstu tugum ald-
arinnar með skiptilegu viðnámi lækna og byggingu
berklahæla, varð fyrst í stað nauðvörn, sem smátt og
smátt bætti vigstöðuna og snéri loks vörn í sókn.
Þegar svo stóð var í landinu fjöldi fólks, sem bar ör-
kuml hins liðna stríðs og kom særður úr því á hverju
ári. Bftir var því starfið að gefa þessu fólki nýja lífs-
von og brynja það til nýrrar sóknar í starfi og lífi.
Þama kom Samiband ísl. berklasjúklinga til sögunnar.
Með stofnun þess var liði fylkt, fyrst og fremst því liði,
sem staðizt hafði sjSkdómsraunina með hjálp lækna og
hæla, en einnig komu til liðs við þá aðrir, og síðan
þjóðin öll að meira eða minna leyti.
Þessi samtök hafa alla tíð verið óvenjulega giftumikill
félagsskapur, og er ekki fjarri að álykta, að veigamesta
forsenda þess sé sú, að þarna stóðu í forystu þeir menn,
sem áttu alveg sérstaka og persónulega lífsreynslu að
baki og vissu öllum betur, hvað gera þurfti.
Bygging Reykjalundar og rekstur er þó ekki
átak þeirra einna, heldur langflestra íslendinga, og
nú er sá sigur unninn yfir berklaveikinni, að nauð-
vörnin frá 1920—30 er orðin að stórsókn, en sú sigur-
gleði má þó ekki slæva varðbergsstöðuna.
Reykjalundur og önnur starfsemi SÍBS hefur vakið
óskipta athygli og aðdáun bæði innan lands og utan, og
nú er svo komið, að þeir, sem upphaflega þurfti að
hjálpa, eru orðnir veitendur.
Berklavarnardagurinn er 1 dag, og enn er leitað til
manna um fjárstuðning. Það, sem safnast, ræður þó nú
orðið ekki úrslitum um starfið- Það er byggt á traustari
grunni, en viðtökur manna verða vitni um þann hug,
sem þjóðin ber til SÍBS, og þann hug er ástæða til að
sýna svo að eftir verði tekið á 30 ára afmæli SÍBS.
Ríkissjóður hefur á síðari árum mjög aukið lántökur
hjá almenningi 1 landinu með kjörum, sem ekki eru í
neinu samræmi við almenn bankakjör. Að sjálfsögðu
geta slíkar lántökur með heimild Alþingis verið rétt-
lætanlegar, en helzt aðeins í ákveðnum, tilteknum til-
gangi, svo sem til ákveðinna framkvæmda. Hins vegar
hefur ríkisstjórnin tekið upp þann hátt að láta Alþingi
samþykkja handa sér lántökuheimild, sem hún geymir
síðan í skúffunni og notar í áföngum eftir því sem henni
líkar, helzt að því er virðist þegar hana vantar aura í
rekstur- Þannig hefur á undanförnum missirum verið
boðin út 70 millj. kr. lán, 50 millj. og nú síðast 25
millj. Á þessum fyrirvaralausu söfnunardögum tekur
ríkið til sín mikið lausaíé, sem að mestu leyti er tekið
út úr bönkunum og raskar stórlega peningamarkaðinum
þá daga, sem þetta gerist. Þannig truflar ríkið stórlega
lánastarf banka, og þau vandræði lenda síðan beint á
atvinnuvegunum í landinu. Á þessum lántökum rík-
isins verður að vera annað skipulag, sem fyrrbyggir
þessa röskun og tryggir að þær jafnist betur á lengri
tíma, auk þess sem samræma þarf lánakjör.
Tekst sameining Miðflokksins og Frjálslynda flokksins?
SÍÐASTLIÐINN laugardag var
endanlega kunnugt um úrslit
þingkosninganna í Svíþjóð, en
þær fóru fram 15. þ. m. Sá hátt
ur er ríkjandi hjá Svíum, að
hægt er að kjósa utankjörstað
ar alveg fram á kjördag, og
senda atkvæðin síðan með
pósti. Þau eru svo talin, þeg
ar þau berast. Oft hafa þessi
póstatkvæði, sem svo eru köll
uð, orðið til að breyta niður
stöðum, sem talning heimaat-
kvæðanna var búin að gefa til
kynna. Þessi atkvæði urðu nú
279 þús. af 4.829 þús. greiddra
atkv. alls. Þau bættu verulega
stöðu íhaldsflokksins og Frjáls
lynda flokksins að þessu sinni.
Að lokinni talningu þessara at
kvæða varð niðurstaðan þessi:
Flokkur Sósíaldemókrata fékk
2.420 þús. atkvæði eða 50.1%
greiddra atkvæða. Hann fékk
125 þingsæti, bætti við sig 12
þingsætum.
Miðflokkurinn (áður Bænda
flokkurinn) fékk 780 þús. at-
kvæði eða 16.1% greiddra at-
kvæða. Hann fékk 39 þing-
menn kjörna, bætti við sig 4
þingsætum.
Frjálslyndi flokkurinn fékk
725 þús. atkvæði eða 15%
greiddra atkvæða. Hann fékk
34 þingsæti, tapaði 9 þing-
sætum.
íhaldsflokkurinn fékk 670
þús. atkv. eða 13.9% greiddra
atkvæða. Hann fékk 32 þing-
sæti, tapaði einu þingsæti.
Kommúnistar fengu 145
þús. atkvæði eða 3% greiddra
atkvæða. Þeir fengu 3 þing
sæti, töpuðu 5.
Kristilegi flokkurinn fékk
72 þús. atkvæði og engan mann
kjörinn.
SÉRSTÆTT er það við kosn
ingar í Svíþjóð, að flokkur get
ur haft fleiri en einn lista í
kjöri. í einu kjördæmi hafði t.
d. Íhaldsflokkurinn og brot úr
Frjálslynda flokknum þrjá
lista í kjöri, sem höfðu valið
sér sameiginlegt heiti „Saml-
ing 68“. Víða höfðu Miðflokk-
urinn og Frjálslyndi flokkur-
inn þannig tvo lista í kjöri und-
ir einu sameiginlegu heiti „mitt
enpartierna" (miðflokkarnir).
Atkvæðatölur lista, sem eru
þannig bornir fram undir einu
sameiginlegu heiti, leggjast sam
an og eru úrslitin reiknuð út
samkvæmt því. Þetta getur auð
veldað .samstarf milli flokka
og flokksbrota, en fyrst og
fremst er þetta þó gert til að
jafna ágreiningsmál, sem rísa
í sambandi við framboð. Próf-
kjörunum verður erfiðlega kom
ið við, þar sem kosið er hlut-
fallskosningu í stórum kjör-
dæmum. Þeirra er líka ekki
þörf, þegar ágreining í sam-
bandi við framboð hjá einhverj
um flokki er hægt að leysa með
tveimur eða fleiri listum. Per-
sónuleg atkvæði ráða svo því,
hverjir ná kosningu af listun-
um.
MJÖG er rætt um, hvað
gerist í sænskum stjórnmálum
an þátt í slgri hans.
að loknum hinum mikla sigri
sósíaldemókrata. Ýmsir foringj
ar þeirra hafa sagt, að kosninga
úrslitin verði þeim hvatning til
að framfylgja hinni róttæku
stefnu sinni. Afskipti ríkisins
af rekstri atvinnuveganna verði
aukin, einkum þó allt eftirlit
með því að reksturinn sé í lagi
og fjiárfestinigUinni skynsamlega
háttað. Þá muni flokkurinn ekki
hika við að grípa til ríkis-
reksturs, ef þess þykir
þurfa. Fyrir kosningarnar lof-
aði flokkurinn að þjóðnýta
lyfjaverzlunina og verður vafa
laust staðið við það.
Af hálfu flokksins hefur ver
ið tilkynnt, að hann muni þeg
ar hefja undirbúning þingkosn
inganna 1970, þegar fyrst verð-
ur kosið samkvæmt nýrri
stjórnarskrá. Erlander hefur til
kynnt, að hann muni láta af
flokksforustunni á þingi flokks
ins, sem haldið verður næsta
ár og þykir líklegast að Palme
menntamálaráðherra verði eft-
irmaður hans, en hann er tal-
inn róttækasti maðurinn í rík-
isstjórninni.
FYRIR kosningarnar var haf
ið náið samstarf milli Mið-
flokksins og Frjálslynda flokks
ins. Flokkarnir höfðu sameigin
lega stefnuskrá og víða sameig
inleg framiboð (tvo lista und-
ir sama heiti). Því var lýst
yfir, að það væri takmark
þeirra að sameinast í einn
flokk. Eftir kosningarnar hafa
forustumenn Frjálslynda flokks
ins lýst sig fylgjandi því, að
haldið verði áfram fyrirætlun
inni um sameiningu flokkanna,
en foringi Miðflokksins, Gunn-
ar Hedlund hefur sagt. að ó-
víst sé hvort það verði fram-
kvæmanlegt fyrir kosningarnar
1970. í flokki hans munu skipt
ar skoðanir um þetta og sjálf
ur mun Hedlund ekki mjög
áhugasamur sameiningarmaður.
Margir telja líklegt, að það
geti flýtt fyrir sameiningu flokk
anna, ef Hedlund lætur af
flokksforustunni á þingi flokks
ins, sem haldið verður næstu
ár. Ýmsir hafa lýst yfir því, að
þeir vilji, að Hedlund haldi
áfram, enda þótt hann verði
þá orðinn sjötugur. Hann nýt-
ur mikils álits, en enginn í
flokknum þykir sjálfsagður eft-
irmaður hans .
Því er haldið fram, að það
hafi spillt fyrir borgaralegu
flokkunum, að talsverðar deil-
ur voru milli miðflokkanna og H
íhaldsflokksins. Þess vegna eru I
uppi raddir um, að nauðsyn-
legt sé að koma á samvinnu i
þessara þriggja flokka. Fylg M
ismenn Miðflokksins taka því i
ekki vel, nema íhaldsflokkur- |
inn breyti áður stefnu sinni. m
ÚRSLIT kosninganna urðu |
mikil vonbrigði fvrir kommún ;
ista, sem höfðu búizt við
aukun fylgi. Talið er, að inn- ■
rás Rússa í Tékkóslóvakíu hafi |
spillt mest fyrir kommúnistum, |
því að afneitanir þeirra hafi »
ekki verið teknar alvarlegar. [j
Eftir kosningarnar hefur fyrv. |
formaður kommúnistaflokksins, i
Hilding Hagberg, ráðist harka 1
lega á núv. formann flokksins, |
C. H. Hermansson, fyrir að j$
hafa tekið strax afstöðu á Ú
móti Rússum. Slíkt hafi sýnt a
tækifærisstefnu, sem ekki hafi jj
verið tekin alvarlega. Réttara 1
hefði verið að Hermannsson ,|
hefði beðið átekta og ekki sagt |
neitt fyrr en málin hefðu §
skýrzt betur. Búizt er við H
hörðum deilum milli þeirra Hag |
bergs og Hermanssons og geti 1
það enn lamað flokkinn. ÞJ>. 8
- - ---------------------------6