Vísir - 10.06.1978, Blaðsíða 13

Vísir - 10.06.1978, Blaðsíða 13
VTSIR Laugardagur 10. júnl 1978 13 og smmo YKKUR VINNU Í5 Woodex í ULTRA ÍSS»®w>dj»ui>B Reynslan hefur sannað/ að Woodex Ultra er sér- staklega . endingargott fúavarnarefni við is- lenskar aðstæður, auk þess sem þáð ver viðinn vel gegn veðrun, som ww „Viö þurfum að breyta þessu þjóðfélagi og til þess þarf samtök. í dag berast hinsvegar islenskir listamenn á banaspjótum, þaö logar allt í illdeilum, en þrátt fyrir þaö virðast, eöa þykjast, þeir hafa sömu skoðanir á málun- um. Hér er enginn góöur I augum annars, ensamteruallir aö þvl er viröist góöir listamenn. Þaö sem vantar eru samtök róttækra lista- manna; þeir gætu t.d. unnið saman i einskonar smiöju sem miölaði almenningi afuröum sin- um. Sem dæmi um slika smiðju mætti nefna leikhús. Þar myndu málarar samtakanna sjá um leik- tjöld og biininga, tónlistarmenn um músik og leikhljóö, rithöf- undar um textann, leikararnir túlka og leika textann, og hver og einn, hvar sem hann stæöi miðl- aöi sinni þekkingu i sameiginleg- an sjóö verksins. Allsherjarsam- — Telur þú aö manneskjan sé fær um aö ganga hönd I hönd? ,,Ég tel manneskjunni allt fært, — þetta er bara spurning um vilja. Maður þarf að vita hvað maður vill og hverju maður vill breyta. Þeir sem stjórna hér og hafa stjórnaö, hafa vitað hvað ,,Það getur oft á tiöum veriö erfitt að greina á milli þess hvenær ber að skoða hugtakið meö i-i eða y-i...” — Innblástur, teikning eftir Abner Dean. vinna þessara listamanna með sömu skoðun hlyti aö leiða til öfl- ugrar og farsællegrar útkomu. Ég veit það ekki, maöur er kannski aö setja sig á háan hest, en af hverju er þetta ekki svona? Er þaö kannski þannig, aö hug- sjónirnar eruekki aðalatriðiö? Er hægt fyrir málara að lýsa ná- ungakærleika i mynd um leið og hann afneitar og fordæmir stéttarbróður sinn? Að hlaupa i hring Islendingar vilja hver öörum ekki illtrþeim er att til þess, með núverandi þjóöskipulagi aö hlaupa hver i kapp við annan i hring i kringum það sem þeir sækjast eftir, en forsmá innst inni. Eina leiöin út úr þessum ógöngum, og þá tala ég fyrst og fremst sem tónlistarmaður, væri að ganga hönd i hönd. Mig langar að sameinast öllum, ekki bara svokölluðum listamönnum um samyrkjubú.” þeir vilja og þeim hefur tekist aö hafa sitt fram. Við hin sem erum þeim ósammála og viljum breyta hljótum að geta sameinast um viss grundvallaratriði, sem tengdu okkur saman og gerðu okkur aö afli, þrátt fyrir ágrein- ing i minni málum”. List eða lyst — Hvaða skilning leggur þú i hugtakið „list”? „Þaö er nú ansi erfitt aö skil- greina „list” á einfaldan háttsvo vei sé. Mætur maður sagöi eitt sinn: „List er ámátleg tilraun mannskepnunnar til aö Iikjast Guöi”.Éggetaö mörgu leyti tek- ið undir þetta. Annars held ég aö þetta fari eftir þvi, hver á hlut að máli og hvar hann er staddur. Ég vil nota mina list til þess að reyna aðstuðlaað nýju og betra þjóöfé- lagi, jafnréttisþjóðfélagi. Aðrir nota svo sina i einhverjum allt öðrum tilgangi. Þaö getur lika oft á tiðum verið erfitt að greina á milli hvenær ber að skoða hug- takið með einföldu i-i eöa y-i.” Stjörnumessa — Svo viö vlkjum okkur að öðru. Spilverkið fékk fyrir skömmu verðlaun i vinsadda- kosningu tveggja blaða og var haldin heilmikil hátið, þar sem verðlaunahafar fengu afhentar viðurkenningar. Þú mættir hins vegar ekki á „stjörnumessuna;’ Hver var ástæðan?. „Fyrst og fremst fannst mér þetta ákaflega hlægileg athöfn i sjálfu sér. Og svo hitt, að mér fannst sá boðskapur sem er aö finna á „Sturlu” plötunni sem vann til verðlaunanna, einmitt vera ádeila á svipuð fyrirbæri og Stjörnumessuna. Það má gjarnan koma fram, að þessi ákvörðun min olli engum ágreiningi innan Spilverksins og á engan þátt i þeim breytingum sem á þvi hafa orðið. Ég vil lika að það komi skýrt fram, að mér þykir mjög vænt um þá sem tóku þátt i þess- ari kosningu og ég var að sjálf- sögðu mjög ánægður og hreykinn yfir úrslitunum. En styttur og bikarar skipta engu máli”. tslenskir popparar — Hvað finnst þér um islensku popparana? „Mér finnst þeir hafa staðiö sig frekar illa og við I Spilverkinu er- 'um þar að sjálfsögöu engin und- antekning. Það vantar öflug sam- tök poppara eins og annars stað- ar. Þetta er náttúrulega ýmsu að kenna s.s. hlægilega litlum mark- aði fyrir plöturnar og litlum sem engum möguleikum til þess að leikaopinberlega. Og þaö erstaö- reynd, að eigi menn að geta lifað af spilverkinu, þá verða þeir að gera eitthvað sem selst. Það versta við þetta er, að við seljum oftast nær sjálfa okkur um leið. Mér finnst „Gagn og Gaman” merkileg tilraun til að brjóta is- inn og ég vona að hún fari ekki út um þúfur”. Framtiðin — Hvað hefurðu hugsað þér varðandi framtiðina? „Mig langar til að mennta mig meira i músikinni. Ég er, tæknilega séðviðvaningur, les t.d. ekki nótur. Ég hef einnig mikinn áhuga á leikhúsi og langar til að kynna mér tæknilega hlið þess, sérstaklega i sambandi við tónlist og leikhljóð. Nú kannski mun svo einhver einhvern tima gefa út ljóðarifrildi sem ég hef verið að setja saman i gegnum árin.” — Og þá er komið að hinni klassisku spurningu, — eitthvað að lokum? „Égvil bara segja, að ég vona að þess viðleitni min, i þátið og framtið, verði og hafi verið, ein- hverjum til góðs. Ég er tiibúinn að vinna með hverjum sem er á hvaða sviði sem er, i þágu góðs málsstaðar. —PP Ljóðarifrildi dagurinn ris yfir brún hcimsins eins og tömatur um hádegi skerum við hann i tvennt og drekkum safann að kvöldi erum við fulisödd I úfnu grasinu sem vefur sig um fætur mina liggja þorskhausar á við og dreif eins og steinar i kirkjugarði við egghvassa brún vegarins leggur grasið til atlögu við hugsjónir mannanna ég er litill skeggjaður maður sem hcngir endurminningar .. á milli tveggja heima sinar til þerris Sigurður Bjóla. VER VIDINN FÚA SKRISTJÁNÓ. SKAGFJÓRDHF Sími 241

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.