Vísir - 18.09.1978, Blaðsíða 4

Vísir - 18.09.1978, Blaðsíða 4
18 c Enska knattspyrnan: Þriðji varamaður skoraði þrennu! Fékk að koma inn á þegar tveir miðherjar voru meiddir hjá Man. City og stal senunni frá nýju stjörnunni hjá Chelsea Liverpool heldur sinu striki I 1. deildinni i Englandi og er nú með 100% útkomu úr sinum leikjum til þessa. Á iaugardaginn fékk LiverpoolCoventry i heimsókn og að viðstöddum 51,130 áhorfendum — besta aðsóknin hjá Liverpooi á timabilinu — sigraði heimaliðið 1:0. Ahorfendaskarinn, sem mættur var tíl aðsjá spennandi leik fékk að sjá leikmenn Liverpool i mikl- um ham. Var greinilegt á öllu, að þeir ætluðu ekki að láta martröð- ina frá þvi á mviövikudaginn, er liðið tapaði fyrir Nottingham Forest i fyrstu umferð Evrópu- keppninnar halda fyrir sér vöku öllu lengur. Það var á 27. minútu leiksins, sem skoski landsliðsmaðurinn Graeme Souness kom knettinum fram hjá Les Sealey markverði Coventry, sem átti frábæran dag, og hreinlega bjargaði liði sinu frá stórtapi. Með þessum sigri náði Liverpool tveggja stiga forystu i deildinni en heilt stóð kemur á hæla þeirra rauöu, sem viröast mjög góðir um þessar mundir Meistarar Nottingham Forest voru ekki ánægöir með að yfir- gefa Old Trafford i Manchester meðaðeins annað stigið — nokkuð sem flest lið gera sig samt ánægð með eftir að hafa mætt Manchester United þar. Meistar- arnir tóku heimaliðið taki fljót- lega i leiknum og Ian Bowyer skoraði gott marksnemma i'hon- um. En það nægöi ekki, og United náði aö jafna fyrir leiksiok. Annar jafntef lisleikur var viðureign Aston Villa og Everton, en þar skoruðu liðin hvort sitt markið. Mickey Walsh, sem Everton keypti frá Blackpool fyrir 300 þúsund steriingspund, skoraði á 36. minutu leiksins, en Tommy Craig, sem áðurlék með Newcastle jafnaði sex mínútum siðar. Var það hans fyrsta mark fyrir Villa. Mikið gekk á i leik Chelsea og Manchester City en þar beindust auguflestraað tveim mönnum — þeim Ron Futcher, sem City keypti á sinum tima frá Luton fyrir 80 þúsund stelingspund og Duncan MacKenzie, sem Chelsea keypti frá Everton á dögunum fyrir margfalda þá upphæð. Létu ekki sjá sig! Fjöldi manns mætti á Vals- völlinn á laugardaginn til að horfa á Val og Keflavik leika þar i „úrvalsdeildinni" i kanttspyrnu sem er keppni leikmanna 30 ára og eldri. Var þetta eini stóri iþróttavið- burðurinn á Reykjavikursvæðinu, sem auglýstur var, og höfðu margir áhuga á honum. enda þarna von á hressilegum leik á milii kappa, sem gert hafa gerð- inn frægan fyrir þessi félög á undanförnum árum. En það var hrein fýluferð, sem farin var, þvi kapparnir gömlu létu aldrei sjá sig og ekkert varð þvi úr ieiknum. Ástæðan var ekki gefin upp, en heyrst hefur að ilia hafi gengið að smala mann- skapnum saman og þvi ákveðið á siðustu stundu að fresta leiknum... —klp- Þetta var fyrsti leikur McKenz- ie með Chelsea en það var Futch. er sem „stal” leiknum frá hon- um, og mun hann trúlega seint gleyma þeim leik. Futchersem er ' þriðjimiðhverjinn Man. City fékk að vera með þar sem miðherjar liðsins númer eitt og tvö Brian Kidd og Roger Palmer voru báðir meiddir. Hann þakkaði boðið með þvi að ' skora þrjúmörk— ,,hat-trick” — fyrir City á örfáum minútum, en leiknum lauk með sigri City 4:1. Annars urðu úrslitin I 1. deild- inni sem hér segir: Arsenal-Bolton Wand. 1:0 Aston Villa-Everton 1:1 Brist.City-Southampt. 3:1 Chelsea-Man. City 1:4 Derby-West Brom. 3:2 Leeds-Tottenham 1:2 Liverpool-Coventry 1:0 Man. Utd.-Notth. Forest 1:1 Middlesbr.-QPR 0:2 Norwich-Birmingh. 4:0 Wdverhamt.-Ipswich 1:3 I 2. deildinni gekk á ýmsu og sáust þar leikir, þar sem mikið var skorað af mörkum — allt að 8 talsins 1 einum þeirra<— og niður i ekki eitt einasta mark. Þar urðu úrslitin þessi: Blackb. R.-Leicester 1:1 Cam br id ge-Charl ton 1:1 Luton Town-Cardiff 7:1 Millwall-Chrystal Pal. 0:3 Notts. County-Orient 1:0 Oldham-Preston 2:0 Sheffield Utd.-Burnley 4:0 Sunderland-Fulham 1:1 West Ham-Bristol R. 2:0 Wrexham-Newcastle 0:0 Leik Stdie og Brighton & Hove var frestað.. —klp— Mánudagur 18. september 1978 vism 3 Eng'.endingar hafa verið ánægðir með hve vel hefur gengið aö skora mörk I knattspyrnunni hjá þeim, það sem af er þessu keppnistimabili. 1 hverri umferð má finna einn eða fleiri „markaleiki” og á meöan svo er, kemur fólkið, þvi að það eru mörkin —- svo og góð knattspyrna — sem það vili sjá.... söluskrá Nýir bílar Skeifunni 11 I síntar: 81510 - 81502 Opid alla daga frá kl« 8.00—10.00 nema sunnudaga

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.