Morgunblaðið - 03.01.2001, Page 1

Morgunblaðið - 03.01.2001, Page 1
2001  MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÓLAFUR STEFÁNSSON ÁTTI STÓRLEIK MEÐ MAGDEBURG / B3 SKAGAMAÐURINN Alexander Högnason fer í næstu viku til þýska 3. deildarliðsins Uerdingen og mun leika með liðinu þegar keppni hefst að nýju í byrjun febrúar. „Þetta leggst mjög vel í mig og væri góð tilbreyting frá undirbúnings- tímabilinu hér heima. Félagi minn hjá ÍA, Gunn- laugur Jónsson, hefur greinilega lagt inn gott orð fyrir mig þarna úti og þjálfari liðsins, sem kemur frá Hollandi, vill fá mig til liðsins sem fyrst. Ég verð til að byrja með í rúmlega 5 vikur og við munum skoða málin eftir þann tíma,“ sagði Alex- ander í samtali við Morgunblaðið í gær. Alexand- er er 32 ára gamall og á tvö ár eftir af samningi sínum við ÍA og verður mættur til leiks á ný með Skagaliðinu í byrjun maí. Alexander Högnason til Uerdingen Einar Einarsson hefur verið ráð-inn nýr þjálfari meistaraflokks Stjörnunnar í handknattleik karla í stað Eyjólfs Bragasonar sem ákvað að segja starfi sínu lausu. Leikmönn- um Garðabæjarliðsins var tilkynnt um þessar breytingar á æfingu félagsins í gærkvöldi en þá stjórnaði Einar sinni fyrstu æfingu. Einar er ekki ókunnugur herbúðum Stjörn- unnar, hvorki sem leikmaður né þjálfari. Hann þjálfaði liðið í tvör ár áður en Eyjólfur tók við starfi hans í sumar og þá hefur Einar leikið í mörg ár með félaginu. Stjörnumönnum hefur gengið illa á yfirstandandi leiktíð og nú þegar hlé hefur verið gert á Íslandsmótinu eru Garðbæingar í 10. sæti eftir þrettán umferðir með 8 stig, fjórum stigum meira en HK sem er í fallsæti. „Það er ljóst að það eru mikil vandamál í liðinu en það er fjarri því að vandamálin séu öll komin vegna þjálfarans. Eyjólfur skynjaði að það væri erfitt að vinna sig út úr þessum erfiðleikum og hann ákvað að taka þá ákvörðun að hætta. Við vonum að Einar geti hrist upp í þessu og komið með ferskt blóð í leik liðsins því það er mikill metnaður í félaginu og það er í raun óþolandi að klúbburinn skuli vera í þessari stöðu. Einar þekkir vel til hjá félaginu og okkur fannst eðli- legt að reyna fá hann til að bjarga því sem bjargað verður. Hans bíður erf- itt verk en meiningin er að nota fríið í deildinni til að berja liðið saman og gera það sem við vitum að liðið á að geta,“ sagði Þorsteinn Gunnarsson, formaður handknattleiksdeildar Stjörnunnar, við Morgunblaðið. Einar tekur við starfi Eyjólfs Landsliðið heldur til Indlands ásunnudaginn kemur og verð- ur flogið til London, þaðan til Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, síðan til Bombay í Indlandi og þaðan suður til Coch- in, sem er við Arabíska hafið. Ferðin mun taka rúman sólar- hring. Atli Eðvaldsson landsliðs- þjálfari hefur þurft að gera breyt- ingar á landsliðshópi sínum. Pétur Hafliði Marteinsson og Marel Baldvinsson, leikmenn með norska liðinu Stabæk, komust ekki til Ind- lands vegna meiðsla og kallaði Atli á þá Hreiðar Bjarnason, Fylki, og Kjartan Antonsson, ÍBV, í hópinn og á gamlársdag var nítjánda leik- manninum bætt í hópinn. Það er Helgi Valur Daníelsson, Fylki. Aðrir leikmenn sem fara til Ind- lands eru Gunnleifur Gunnleifs- son, Keflavík, og Fjalar Þorgeirs- son, Fram, markverðir, Tryggvi Guðmundsson, Tromsö, Sverrir Sverrisson, Fylki, Guðmundur Benediktsson, KR, Gunnlaugur Jónsson, Uerdingen, Ólafur Örn Bjarnason, Grindavík, Indriði Sig- urðsson, Lilleström, Bjarni Þor- steinsson, KR, Þórhallur Örn Hin- riksson, KR, Gylfi Einarsson, Lilleström, Sigþór Júlíusson, KR, Sigurvin Ólafsson, KR, Valur Fannar Gíslason, Fram, Veigar Páll Gunnarsson, Strömgodset og Sævar Þór Gíslason, Fylki. Sextán þjóðir taka þátt í Árþús- undabikarnum og verður leikið í fjórum fjögurra liða riðlum. Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast í 8-liða úrslit. Leikið verður gegn Úrugvæ og Indónesíu kl. 17.30, eða klukkan 12 að íslenskum tíma, og gegn Ind- landi kl. 15, eða kl. 9.30 að íslensk- um tíma. Fyrst leikið gegn Úrugvæ í Indlandi ÍSLENSKA landsliðið í knatt- spyrnu mætir liði Úrugvæ í fyrsta leik sínum í Árþúsunda- bikarnum, Super Soccer Mill- ennium Cup, í knattspyrnu í Indlandi. Leikurinn fer fram í Cochin fimmtudaginn 11. janúar, síðan verður leikið gegn Indlandi 13. janúar og Indónesíu 15. janúar. Komist liðið áfram leikur það í átta liða úrslitum 18. eða 20. janúar. JÓHANNES Harðarson, knattspyrnu- maður frá Akranesi, fór í morgun til Hollands og æfir og leikur með 1. deild- arliðinu MVV frá Maastricht næstu níu dagana. Jóhannes hefur sem kunnugt er samið við hollenska úrvalsdeildarliðið Groningen frá og með 1. júlí. „Ég æfi með liðinu og spila tvo æf- ingaleiki og ef um gagnkvæman áhuga verður að ræða mun ég leika með liðinu til vorsins,“ sagði Jóhannes við Morg- unblaðið í gær. MVV er í 12. sæti 1. deildar en liðið féll úr úrvalsdeildinni síðasta vor. Skagamaðurinn Jóhannes Karl Guð- jónsson lék með liðinu á síðasta tímabili og Gunnar Einarsson KR-ingur spilaði með MVV um skeið. Jóhannes til MVV Morgunblaðið/ Kristinn. Landsliðið í handknattleik hóf í gær undirbúning sinn fyrir lokakeppni HM sem hefst í Frakklandi 23. janúar. Á myndinni eru Sebastian Alexandersson markvörður og Þorbjörn Jensson þjálfari á æfingu á Ásvöllum í Hafnarfirði. Sjá nánar /B4 ÚRVALSDEILDARLIÐ Þórs frá Ak- ureyri í körfuknattleik hefur fengið Bandaríkjamanninn Daniel Maurice Spillers til liðsins en Spillers lék 16 leiki með Þór keppnistímabilið 1999-2000. Að sögn Ágústs Guðmundssonar þjálfara Þórs var samningi við Bandaríkjamann- inn Clifton Bush, sem leikið hafði með Þór í vetur, rift þar sem að leikmaðurinn hafi gefið til kynna að hann vildi fara frá félaginu af persónulegum ástæðum. Spillers lék í vetur í ABA-atvinnu- mannadeildinni í Bandaríkjunum og leikur með Þór gegn liði Skallagríms í Borgarnesi á fimmtudag. Maurice Spill- ers til Þórs

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.