Morgunblaðið - 03.01.2001, Síða 3

Morgunblaðið - 03.01.2001, Síða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 B 3 Charlton í fyrsta skipti í 47 ár. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sagði eftir leik- inn að hann hefði meiri áhyggjur af Sunderland og Ipswich heldur en Manchester United. „Ef lið tekur ekki reglulega stig á úti- velli verður erfitt að ná sæti í meist- aradeildinni. Í augnablikinu erum við að keppa við lið eins og Sunderland, Ips- wich og Liverpool. Við vorum virkilega óheppnir í leiknum gegn Charlton og hefðum átt skilið í það minnsta eitt stig,“ sagði Wenger. Finninn Jonatan Johansson skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik en Arsenal fékk gullið færi til að jafna metin í síðari hálfleik. Nel- son Vivas tók þá vítaspyrnu en mark- vörður Charlton varði með glæsibrag. Skondið mark Hasselbainks Jimmy Floyd Hasselbaink tryggði Chelsea öll stigin gegn Aston Villa en markið sem réði úrslitum var mjög skondið. David James, markvörður Villa, hugðist sparka frá marki sínu en það vildi ekki betur til að boltinn fór í afturendann á Hasselbaink og lak inn- fyrir marklínuna. Eiður Smári Guð- johnsen misnotaði tvö góð færi í fyrri hálfleik en átti engu að síður góða spretti en var skipt útaf á 87. mínútu fyrir Albert Ferrer. Venables ósáttur Middlesbrough, undir stjórn Terry Venables, heldur áfram að hala inn stig en liðið náði góðu stigi á Elland Road, heimavelli Leeds. Alen Boksic kom gestunum í forystu en Robbie Keane opnaði markareikning sinn hjá Leeds og jafnaði úr vítaspyrnu sem mörgum fannst harður dómur og þá sérstaklega Terry Venables. „Fyrir leikinn hefðum við vel getað sætt okkur við jafntefli en eftir leikinn er ég vonsvikinn. Leeds fékk víti á silf- urfati. Þetta var ekkert víti. Boltinn fór í hné Curtis Fleming og þaðan upp í höndina og það á ekki að dæma víti á slíkt,“ sagði Venables. Óvænt tap hjá Leicester Arnar Gunnlaugsson lék allan tímann í framlínu Leicester sem tapaði óvænt á heimavelli fyrir botnliði Bradford. Arn- ar átti þátt í eina marki Leicester. Hann gaf góða sendingu á Darren Edie sem var felldur innan teigs og úr vítaspyrn- unni skoraði Muzzy Izzett örugglega. Arnar fékk upplagt færi til að jafna metin í 1:1 í upphafi síðari hálfleiks en brást bogalistin. Skin og skúrir hjá Ipswich Það skiptust á skin og skúrir hjá Her- manni Hreiðarssyni og félögum hans í Ipswich. Á laugardag tók Ipswich Tott- enham í bakaríið og sigraði, 3:0, en í fyrradag steinlá liðið fyrir Sunderland, 4:1, eftir að hafa skorað fyrsta markið í leiknum. Hermann lék vel í leiknum gegn Tottenham en náði sér ekki á strik frekar en fleiri samherjar hans gegn Sunderland. „Ég var mjög sáttur við fyrri hálfleik- inn hjá okkur en í þeim síðari tók Sund- erland öll völd á vellinum. Við vorum illa á verðinum og gáfum þeim tvö mörk og það er ekki vænlegt til árangurs á þess- um velli,“ sagði George Burley, stjóri Ipswich. Babbel bjargaði Liverpool Þýski varnarjaxlinn Markus Babbel tryggði Liverpool sigurinn gegn Sout- hampton í fyrradag en hann skoraði sig- urmarkið 5 mínútum fyrir leikslok. „Ef ég hefði ekki verið búinn að nota alla varamennina hefði ég skipt Babbel útaf nokkru áður en hann skoraði markið. Hann virtist þreyttur og ég var alls ekki öruggur á að láta hann hefja leikinn. En Babbel sýndi mikinn karakter. Þrátt fyrir að vera stífur í kálfanum skokkaði hann inn í teiginn og tryggði okkur mik- ilvægan sigur,“ sagði Gerard Houllier. Poom hetja Derby Í níunda skiptið í síðustu þrettán leikjunum tókst leikmönnum Derby að halda marki sínu hreinu og mark Deon Burton á 20. mínútu réði úrslitunum í hörðum fallbaráttuleik gegn Everton. „Mark Poom markvörður okkar vann þennan leik fyrir okkur sem er örugg- lega einn sá lélegsti hjá liðinu á heima- velli í vetur,“ sagði hinn litríki stjóri Derby, Jim Smith, eftir leikinn. Reuters Villa, og fyrir aftan þá er George Boateng. Eiður Smári og samherjar hans í Chelsea fögnuðu sigri, 1:0. ar í öðr- ðaflokki AP Ole Gunnar Solskjær hefur skorað grimmt fyrir Man. Utd. undanfarið. Hér fagnar hann marki sínu gegn West Ham. BJARNI Guðjónsson kom tals- vert við sögu í leikjum Íslend- ingaliðsins Stoke City um helgina. Bjarni tryggði Stoke sigur gegn Bristol City á laug- ardaginn þegar hann skoraði eina mark leiksins sjö mínútum fyrir leikslok og hann var svo aftur á skotskónum í fyrradag þegar hann skoraði fyrra mark Stoke í 2:2 jafnteflisleik gegn Notts County. Mark Bjarna gegn Notts County kom eftir aðeins 80 sek- úndur. Bjarni þrumaði knett- inum af 20 metra færi og var þetta sjöunda mark hans á leik- tíðinni. Notts County, sem er erfitt heim að sækja, náði að komast yfir, 2:1, en tíu mínútum fyrir leikslok jafnaði Andy Cooke metin með sínu fyrsta marki fyrir félagið. Brynjar Björn var kjörinn maður leiksins í staðarblaðinu Sentinel en hann fékk 8 í ein- kunn eins og Bjarni Guðjónsson. Birkir Kristinsson, Brynjar Björn Gunnarsson og Bjarni Guðjónsson voru með allan tím- ann í báðum leikjum Stoke um helgina. Ríkharður Daðason lék síðustu 20 mínúturnar gegn Bristol City og síðasta stund- arfjórðunginn gegn Notts County. Stefán Þór Þórðarson á hins vegar við meiðsli að stríða og lék ekki. Stoke er komið upp í fimmta sæti 2. deildarinnar. Liðið er með 41 stig. Rotherham er með 45 stig í fjórða sæti, Wigan er með 47 stig og á toppnum eru Walsall og Millwall með 48 stig. Bjarni á skotskónum Magdeburg hefur aðeins fatastflugið upp á síðkastið og hafði aðeins náð einu stigi út úr síðustu þremur leikjum þegar liðið tók á móti Essen að viðstöddum 6.900 áhorfendum í íþróttahöllinni glæsi- legu í Magdeburg. Framan af var leikurinn í járnum og eftir rúmar 20 mínútur var staðan jöfn, 6:6. Þá tóku heimamenn öll völd á vellinum og skoruðu 6 mörk í röð án þess að Pat- rekur og félagar næðu að klóra í bakkann. Staðan í hálfleik, 12:6. Í síðari hálfleik var um sömu yfirburði að ræða hjá Magdeburg og um miðj- an síðari hálfleik var munurinn 11 mörk, 21:10. Þrátt fyrir sigurinn er Magdeburg enn í 5. sæti deildarinnar með 29 stig eftir 20 leiki, fjórum stigum á eftir efsta liðinu, Flensburg-Handewitt, sem vann Nettelstedt heima, 32:26. Róbert Julian Duranona var ekki á meðal markaskorara Nettelstedt að þessu sinni. Gamli refurinn, Bogdan Wenta, fékk hins vegar uppreisn æru í leiknum er hann skoraði 5 mörk og fór mikinn í liði Flensburg- ar, en hann var var látinn fara frá Nettelstedt sl. sumar, var sagði orð- inn gamall og lúinn. Róbert Sighvatsson skoraði 3 mörk fyrir Bayer Dormagen er liðið tapaði 27:22 á útivelli fyrir Minden. Var þetta fjórði tapleikur Dorma- gen. Gústaf Bjarnason gerði tvö af mörkum Minden sem nú er í 9. sæti með 21 stig. Dormagen er hins vegar í 18. og þriðja neðsta sæti með 11 stig. Sigurður Bjarnson og samherjar í Wetzlar lágu á heimavelli, 27:21, fyr- ir Lemgo. Sigurður skoraði í tvígang fyrir Wetzlar sem var undir nær all- an leikinn, m.a. 14:10 í hálfleik. Wetzlar er í 13. sæti með 16 stig, en Lemgo hreiðraði um sig með sigr- inum í fjórða sætinu með 30 stig. Heiðmar Felixson var ekki meðal markaskorara Wuppertal sem tap- aði 26:20 fyrir Kiel. Wuppertal er í næst neðsta sæti með 5 stig, einu stigi fleira en Hildesheim sem rekur lestina. Nú verður gert hlé á þýsku úrvals- deildinni vegn heimsmeistarakeppn- innar í handknattleik. Næsta umferð fer fram 10. og 11. febrúar. Stórleikur hjá Ólafi ÓLAFUR Stefánsson átti stór- leik og skoraði 10 mörk þegar Magdeburg lagði Essen á heimavelli, 25:17, á næst síð- asta degi nýliðins árs, en þá var leikin heil umferð í þýsku úr- valsdeildinni í handknattleik. Patrekur Jóhannesson náði sér ekki á strik í liði Essen og skor- aði aðeins eitt mark. Ekkert marka Ólafs var úr vítakasti. Þrír af þekktustu leikmönnumnorska landsliðsins í knatt- pyrnu skrifuðu ekki undir nýjan samning við norska knattspyrnu- sambandið, NFF, áður en frestur sem þeim var gefinn rann út þann 1. janúar. Manchester Utd.-leik- mennirnir Ole Gunnar Solskjær, Ronny Johnsen og Tottenham-leik- maðurinn Steffen Iversen sættu sig ekki við skilmála í samningum sem gerðu NFF m.a. kleift að nota leikmenn landsliðsins í auglýsingar og annað sem tengist styrktarað- ilum sambandsins. NFF sendi frá sér fréttatilkynningu í gær þar sem fram kemur að þeir leikmenn sem ekki hafa gert samkomulag við NFF verði ekki valdir í landsliðið að svo stöddu. Tore Andre Flo (Rangers), Erik Bakke (Leeds), Vegard Heggem (Liverpool) og markvörðurinn Thomas Myhre hafa allir fengið frest til að skrifa undir samninginn en allar líkur eru á því að þeir neiti einnig að skrifa undir og leiki ekki með norska landsliðinu. Vandræði hjá Norðmönnum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.