Morgunblaðið - 03.01.2001, Blaðsíða 4
GUÐNI Bergsson lék allan tímann
í vörn Bolton sem sigraði Preston á
útivelli í ensku 1. deildinni, 2:0.
Bjarki Gunnlaugsson lék ekki með
Preston vegna meiðsla.
LÁRUS Orri Sigurðsson kom við
sögu hjá WBA í fyrsta skipti á leik-
tíðinni. Hann lék síðustu fjórar mín-
úturnar þegar WBA vann góðan úti-
sigur á Guðna Bergssyni og félögum
hans í Bolton, 1:0, og Lárus var svo á
varamannabekk WBA þegar liðið
sigraði Barnsley í fyrradag, 1:0.
ÓLAFUR Gottskálksson og Ívar
Ingimarsson léku báðir allan tímann
fyrir Brentford sem sigraði Oxford,
3:0, í 2. deildinni. Brentford er í 12.
sæti deildarinnar.
RAGNHEIÐUR Stephensen skor-
aði eitt mark fyrir Bryne sem tapaði
fyrir Lunner, 26:24, í norsku úrvals-
deildinni í handknattleik um helgina.
Sola, lið þeirra Þórdísar Brynjólfs-
dóttur og Drífu Skúladóttur, sigraði
Gjövik/Vardal, 23:18. Sola er í sjötta
sæti deildarinnar með 11 stig en
Bryne situr á botninum með tvö stig.
OLEG Velykky, markahæsti leik-
maður Evrópukeppninnar í hand-
knattleik á síðasta ári, hefur skrifað
undir þriggja ára samning við Essen
í Þýskalandi. Kemur hann til liðsins
eftir heimsmeistarakeppnina í
Frakklandi og leikur sinn fyrsta leik
með Patreki Jóhannessyni og sam-
herjum gegn Solingen í fyrstu um-
ferð eftir HM. Velykky er 23 ára og
vakti mikla athygli á EM en þýsku
félögunum gekk illa að klófesta pilt
þar sem hann var samningsbundinn
Zaporozhje í heimalandi sínu.
PETER Rost hefur verið ráðinn
þjálfari þýska handknattleiksliðsins
Eisenach. Rost tekur við af Jürgen
Beck sem tók tímabundið við þjálfun
liðsins eftir að Rainer Osman var lát-
inn taka pokann sinn í haust. Rost er
margreyndur handknattleiksmaður
og lék m.a. 216 landsleiki fyrir
A-Þjóðverja og varð ólympíumeist-
ari með landsliði þjóðarinnar í
Moskvu 1980.
KYUNG-Shin Yoon hefur fram-
lengt samning sinn við Gummers-
bach til tveggja ára með mögulegri
framlengingu um eitt ár. Yoon hefur
verið í herbúðum Gummersbach
undanfarin fimm ár og ævinlega ver-
ið meðal markahæstu leikmanna
þýsku deildarinnar í handknattleik.
FRANSKA íþróttablaðið L’Equipe
hefur valið kylfinginn Tiger Woods
meistara meistaranna árið 2000. Er
Woods fyrsti kylfingurinn sem hlýt-
ur þennan heiður en blaðið hefur út-
nefnt íþróttamann ársins frá stofnun
þess árið 1946. Fyrri íþróttamenn
ársins að mati L’Equipe eru m.a.
Mark Spitz, Carl Lewis, Michael
Jordan, Andre Agassi og Ronaldo.
SOL Campbell, fyrirliði Totten-
ham, sagði í morgun að hann ætlaði
sér að vera áfram hjá félaginu eftir
að samningur hans rennur út í sum-
ar. Campbell hefur verið orðaður við
nokkur af sterkustu liðum heims en
hann vill ekki yfirgefa Tottenham.
„Ég vil leika fyrir Tottenham, það er
allt og sumt. Ég er ekki á förum. Ég
hef verið hér svo lengi og það skiptir
öllu fyrir mig að gera vel fyrir félag-
ið. Þegar litið er á Tottenham þá eru
hæfileikarnir ótrúlegir, leikvangur-
inn er yndislegur og það er allt fyrir
hendi,“ sagði Campbell.
ROMARIO var kjörinn besti leik-
maður ársins í Suður-Ameríku.
Hann fór á kostum með liði sínu,
Vasco da Gama, á árinu og skoraði
66 mörk. Juan Roman Riquelme,
leikmaður Boca Juniors, varð í öðru
sæti og samherjar hans, Oscar Cord-
oba og Martin Palermo, voru jafnir í
þriðja sæti. 242 blaðamenn í Suður-
Ameríku kjósa leikmann ársins og
má hann ekki leika utan heimsálf-
unnar.
FÓLK
Wislander fram-
lengir hjá Kiel
SÆNSKI handknattleiksmaðurinn Magnus Wislander hefur ákveð-
ið að taka boði Kiel og framlengja samning sinn við félagið um eitt
ár, eða til enda leiktíðarinnar vorið 2002. Wislander, sem verður 37
ára 22. febrúar nk., hefur leikið með Kiel síðan 1990 og orðið þrisv-
ar sinnum þýskur meistari. Auk þess hefur honum hlotnast marg-
háttaður heiður, s.s. að vera kjörinn besti handknattleiksmaður
Kielar-liðsins frá upphafi og fremsti handknattleiksmaður Svíþjóð-
ar.
Wislander hefur einnig verið kjölfesta sænska landsliðsins í
handknattleik um margra ára skeið og ætlar að leika með því á
heimsmeistaramótinu í Frakklandi síðar í þessum mánuði.
Fyrstu æfingar liðsins eftir ára-mót voru í gær en þá var æft
tvívegis. Þorbjörn Jensson lands-
liðsþjálfari sagði í
samtali við Morgun-
blaðið í gær að æf-
ingarnar hefðu
gengið vel fyrir sig
og að menn hefðu komist vel frá jól-
um og áramótum. „Hádegisæfingin
í dag var fín og menn voru mjög
sprækir. Óli [Ólafur Stefánsson]
kemur til liðs við okkur á morgun
og Julian [Róbert Julian Duranona]
er þessa stundina á leiðinni til
landsins og ekki alveg ljóst hvort
hann verður með á æfingunni í
kvöld, en hann verður þá altént með
á morgun,“ sagði Þorbjörn um miðj-
an dag í gær.
Landsliðsþjálfarinn sagði að þeg-
ar allir væru mættir til leiks færi
undirbúningurinn á fulla ferð. „Við
þurfum að setjast niður og fara yfir
stöðuna og sjá hvaða möguleika við
teljum okkur eiga. Það er auðvitað
erfitt að setja niður í hvaða sæti við
ætlum að verða, en markmið okkar
er auðvitað að komast upp úr riðl-
inum okkar og þá erum við komnir
í sextán liða úrslit. Í þeim getur
allt gerst og árangurinn veltur að
hluta til á heppni og dagsforminu
hverju sinni.
Það er ekkert gefið í riðlakeppn-
inni og ómögulegt að segja hvaða
lið komast til dæmis áfram í B-
riðli, en við mætum þeim liðum á
næsta stigi. Í okkar riðli eru fimm
lið sem eiga nokkuð jafna möguleika
á að komast áfram, en fjögur lið af
sex fara áfram,“ sagði Þorbjörn.
Íslendingar mæta Frökkum á Ás-
völlum á laugardaginn, á Akureyri á
sunnudaginn og í Laugardalshöll á
þriðjudaginn. Meðal áhorfenda á
þessum leikjum verður Bengt Jo-
hansson landsliðsþjálfari Svía, en
Íslendingar mæta Svíum í fyrsta
leik HM í Frakklandi 23. janúar.
Með sænska þjálfaranum kemur
Dani nokkur, sá sem séð hefur um
að mynda landsleiki Dana undanfar-
in ár, og virðist því komið samstarf
þar á milli, en Danir náðu ekki að
tryggja sér þátttöku í úrslitakeppni
HM að þessu sinni.
Svíar koma saman 10. janúar og
þar í landi verður fjögurra landa
mót 12.–14. janúar þar sem Frakk-
ar, Danir og Þjóðverjar verða. Á
sama tíma verða Íslendingar á fjög-
urra landa móti á Spáni þar sem
Norðmenn og Egyptar verða auk
heimamanna og íslenska liðsins.
Síðustu leikir íslenska liðsins verða
síðan við Bandaríkjamenn hér
heima 18. og 19. janúar og liðið
heldur til Frakklands mánudaginn
21. janúar.
Morgunblaðið/ Kristinn.
Einar Örn Jónsson, annar tveggja nýliða í landsliðshópnum, fylgist með félaga sínum freista þess
að skora hjá Birki Ívari Guðmundssyni markverði á æfingu í gær.
Johansson fylgist með
leikjum gegn Frökkum
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik æfir fullskipað í fyrsta sinn í
hádeginu í dag, en Ólafur Stefánsson var síðastur landsliðsmann-
anna til að koma til landsins. Um helgina leikur liðið þrjá leiki við
Frakka og marka þeir leikir upphaf undirbúnings liðsins fyrir
Heimsmeistaramótið í Frakklandi, sem hefst 23. janúar.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Lokaundirbúningurinn fyrir HM í Frakklandi er hafinn
FRAKKAR sigruðu Egypta,
27:23, í úrslitaleik á al-
þjóðlegu handknattleiksmóti
í París á laugardaginn.
Frakkar mæta sem kunnugt
er Íslendingum þrívegis í
æfingaleikjum á næstunni,
og Egyptar eru með Íslend-
ingum í riðli á HM sem hefst
í Frakklandi 23. janúar.
Franska liðið Ivry vann
Braga frá Portúgal, 25:24, í
leik um 3. sætið, Granollers
frá Spáni vann Rúmena,
25:24, í framlengdum leik
um 5. sætið og Alsír hafnaði
í 7. sæti eftir sigur á
Cantabria frá Spáni, 28:21.
STEFAN Kretzschmar,
hornamaður Magdeburg og
þýska landsliðsins í hand-
knattleik, hefur ákveðið að
ræða ekki meira við fjöl-
miðla fram yfir HM í Frakk-
landi. Kretzschmar hefur
verið mjög í sviðsljósinu, að-
allega vegna sambands síns
við sunddrottninguna Franz-
iska van Almsick. Hjá
Magdeburg þykir mönnum
nóg komið og Alfreð Gísla-
son, þjálfari liðsins, hefur
ekki legið á þeirri skoðun
sinni að Kretzschmar þurfi
að gefa meira af sér til að
liðið nái að halda út í barátt-
unni um meistaratitilinn.
Frakkar sigr-
uðu Egypta
Kretzschmar
þegir fram
yfir HM