Morgunblaðið - 03.01.2001, Side 2

Morgunblaðið - 03.01.2001, Side 2
Þ AU ÞÓRA Karítas Árnadóttir og Jón Geir Jóhannsson hafa ver- ið með þáttinn Pensúm á dag- skrá SkjásEINS síðan í ágúst- byrjun. Blaðamaður tók Þóru Karítas tali og spurði um þátt- inn. „Þátturinn á bæði að auð- velda framhaldsskólanemum val á námi og kynna þá starfsemi sem fer fram í háskólum landsins. Enda eru þetta stórir vinnustaðir og verið að fást við allt milli himins og jarðar þarna,“ segir Þóra. „Í hverjum þætti er oftast ein deildarkynning þar sem við kynnum til dæmis læknadeildina eða heimspekideildina eða eitt- hvað í þá vegu. Svo er fjallað um hvað sem er, eins og í jólaþættinum voru viðtöl við þrjá há- skólanema sem gefa eitthvað út um jólin: Heiðu í Unun sem stundar heimspeki og Guðrúnu Evu Mínervudóttur og Steinar Braga sem gefa út bækur og eru í bókmenntafræði og heimspeki.“ Nám og skemmtan „Þetta er því annars vegar að kynna námið og það sem er að gerast innan Háskólans og hins vegar að fjalla um það ef fólk er að gera ein- hverja sniðuga hluti. Svo höfum við líka tekið heila þætti þar sem kastljósinu er beint á aðra skóla. Til dæmis hefur Háskólinn í Reykjavík ver- ið með einn þátt og Kennaraháskóli Íslands hef- ur líka verið með einn þátt.“ Aðspurð um hvort undirbúningsvinna sé mikil verður Þóru að orði: „Við setjum okkur oftast bara í samband við nemendafélagsformenn og þau leiða okkur síðan um skólann og benda okkur á fólk sem er sniðugt að tala við. Svo þurf- um við náttúrulega að setja okkur inn í efnið ef um er að ræða til dæmis flókin verkefni, svo við lítum ekki út eins og kjánar þegar við spyrjum um efnið. Það er líka af nógu að taka því það er svo ótrúlega mikið að gerast þarna og viðfangs- efnin oft mjög ólík.“ Og Þóra heldur áfram: „Það er sérstaklega gaman að upphaflega átti þetta bara að vera fyr- ir Háskóla Íslands en aðrir háskólar hafa sýnt þessu svo mikinn áhuga. Við eigum til dæmis enn eftir að fara í Listaháskólann, Viðskiptahá- skóla Bifrastar og Háskólann á Akureyri.“ Sjálf eru þau Þóra Karítas og Jón Geir námsmenn. Hvernig fer það saman að stunda nám og stjórna heilum sjónvarpsþætti? „Maður sér það þegar maður er að fjalla um Háskólann að nem- arnir eru oft fjölskyldufólk, kannski með þrjú börn, einstæðar mæður og sumir að vinna 70% vinnu með svo ég er ekkert að afreka neitt meira en margir aðrir í Háskólanum. Ég hef líka mjög gaman af þessu vegna þess að þetta á mjög vel við mig. Ég hef yfirumsjón með þættinum og finnst þetta nauðsynlegur partur af því að vera til – að hafa einhverja sköpun í gangi. Ég hef haft mikinn áhuga á leiklist og öllu því tengdu og fæ þess vegna einhverja útrás fyrir sviðsþörfina sem ég losna ekki við,“ segir Þóra og hlær dátt. Hægt er að fylgjast með Pensúm á mið- vikudögum klukkan 19.30 og um að gera að fylgjast með enda aldrei að vita hverju há- skólanemar taka upp á næst. Pensúm tekur á málum sem snúa að menntun og málefnum námsmanna. Námsmenn að gera sniðuga hluti Háskólaþátturinn Pensúm er á dagskrá á SkjáEinum eigi sér stað sama árið. „Svo gerist það að sjálfu sér að fréttirnar breyt- ast eftir því sem líður á öldina. Bæði verður myndefnið öðruvísi auk þess að þegar um er að ræða samtímaþul reyni ég að láta þann þul kynna efn- ið, hvort sem hann gerir það sér- staklega fyrir þáttinn eða ég notast við gamlar upptökur. En aðalþulir í þessari seríu verða þau Broddi Broddason og Elín Hirst en ég verð númer þrjú.“ Aðspurður um undirbúningsvinn- una segir Ómar að hugmyndin sé gömul – eldri en margan myndi gruna: „Ég hef nú ekki verið lengi að því að vinna fyrstu þættina, því ég hef verið „fréttafrík“ alveg frá því ég var tíu ára gamall. Ég man eftir því þegar krakkarnir í jólaboðunum voru að leika sér með leikföngin þegar ég var kringum níu eða tíu ára gamall, þá lá ég bara yfir Öldinni okkar. En auðvitað er þetta mikið verk því það er ekkert minni vandi að skrifa þriggja mínútna frétt um stóra frétt eins og til dæmis hernám Íslands. Ég er til dæmis núna að vinna við 11. apríl 1940. Menn hafa kannski ekki áttað sig á því eftir á að hyggja hvað þetta er mikil „bombufrétt“ sem kemur þennan dag: „Rík- isstjórnin fær konungsvald!“ Her- námsdagurinn 10. maí hefur kannski yfirskyggt þetta. Og það er heilmikið mál að skrifa um 11. apríl og taka inn í aðdragandann: krepp- una, pólitíska ástandið, þjóðstjórn- ina og atburðarásina í Evrópu. Við handritsskrifin er eiginlega mesta verkið úrvalið – að koma þessu niður þannig að þegar horft er á útkomuna sé það eins og þú sért að horfa á frétt sem er að gerast í dag,“ segir Ómar og heldur áfram: „Þegar ég settist niður og gerði fyrsta handritið gerðist það mjög snöggt. Mér finnst mjög gott að byrja strax að setja á blað því að í upphafi hefur maður allt- af mesta áhugann, þá kviknar neist- inn fyrst, og síðan er hægt að lag- færa allt á eftir. Svo ég skrifaði bara niður merkilegustu fréttir aldarinnar sem urðu reyndar 135. Þá tók við rosalega erfitt ferli sem var að henda 35 fréttum út.“ Hugmynd frá Kanasjónvarpinu Ómar segir hugmyndina ekki komna frá sér upprunalega, heldur frá sjónvarpsstöð sem stytti Íslend- ingum skammdegisstundirnar fyrir alllöngu: „Þetta er ekki frumleg hug- mynd. Þetta var í Kanasjónvarpinu fyrir fjörutíu árum og hét þá Greatest Headlines of the Century. Þá voru fréttainnskot sett í staðinn fyrir aug- lýsingar og þá birtist á skjánum æst- ur þulur sem sagði: „Loftfarið Hind- enburg brennur við Lakehurst!“, „Japanir ráðast á Pearl Harbour!“ og satt að segja, þegar ég sneri aftur á Sjónvarpið fyrir fimm árum var þetta ein af þeim hugmyndum sem ég hafði í huga að væri gaman að fram- kvæma þegar aldamótin nálguðust.“ Og Ómar heldur áfram hressum rómi sem landsmönnum er af góðu kunn- ur: „Að geta í gegnum sjónvarp upp- lifað það sem að fólk upplifði þegar það heyrði þessa frétt í fyrsta skipti.“ „Síðan datt dagskrárstjóranum Rúnari í hug að setja þættina saman í þrjá eða fjóra klukkutímaþætti sem myndu þá vera sýndir í lok ársins enda er þetta óhemju magn, þetta verða um 400 mínútur eða um 7 klukkutímar. Svo geta þessir þættir kannski nýst eins og gert var í Kana- sjónvarpinu. Þá kom þetta í staðinn fyrir tónlistarmyndbönd.“ Sannarlega áhugaverð hugmynd og ekki hægt að neita því að Fréttir aldarinnar muni væntanlega hafa meira fræðslugildi en Britney Spears og Boyzone og eiga eflaust, í hönd- um Ómars, eftir að hafa síst minna skemmtanagildi. Morgunblaðið/RAX Ómar hefur verið drjúgur í að afla frétta á liðinni öld. Ómar Ragnarsson hefur ötullega flutt landsmönnum fréttir samtímans í áratugi. í Fréttum aldarinnar ætlar hann að flytja okkur helstu fréttir nýliðinnar aldar. „ÉG REYNI að fá til mín fólk sem hef- ur sjaldan eða aldrei áður komið fram í fjölmiðlum,“ segir Anna Krist- ine Magnúsdóttir sem fyrir löngu er orðin landsmönnum kunn enda hef- ur hún unnið við fjölmiðla í hartnær tuttugu og fjögur ár. „Ég reyni að hlusta á alla og leggja virkilega við hlustir, því það er staðreynd að það hafa allir sína sögu að segja. Við höf- um öll reynt eitthvað sem enginn annar hefur reynt.“ „Markmið mitt með þessum þátt- um er að viðtalið skilji eitthvað eftir sig, að þetta sé ekki einhver síbylja eða eitthvað sem fólki finnst það hafa heyrt þúsund sinnum áður. Ég vil í rauninni að hver þáttur geri ein- um einstaklingi gagn eða greiða,“ segir hin hálf-tékkneska og glað- beitta útvarpskona sem vill helst vinna í útvarpi á veturna og vera leið- sögumaður á sumrin. Þátturinn hefur verið í gangi síðan haustið 1996 svo þetta er fimmti vetur þáttarins. Tæknimaður er Haf- þór Freyr Sigmundsson og Anna get- ur ekki á sér setið að taka fram að hún hafi verið einstaklega heppin með tæknimenn í gegnum tíðina. Þátturinn stendur, eins og nafnið gef- ur til kynna, milli mjalta og messu, eða klukkan 9 til 11 á sunnudögum. Það hafa allir sína sögu að segja Milli mjalta og messu á Bylgjunni Morgunblaðið/Jim Smart Anna Kristine er landsmönnum löngu kunn sem hlýlegur og skemmtilegur útvarpsmaður. NÝVERIÐ hóf göngu sína á Radíó-X nýr þáttur með gömlum stjórnanda. Þátturinn ber nafnið Live og stjórn- andinn ber nafnið Hemmi feiti. „Við- fangsefni þáttarins er að taka á sen- unni, eða því sem er að gerast tónlistarlega í jaðarrokki í Reykjavík,“ segir Hemmi. „Það er það mikið að gerast í Reykjavík að ég get hlaupið með upptökutæki á milli staða. Fyrstu þættina hef ég tekið á ein- hverju íslensku og síðan endað á ein- hverjum stórum konsert [erlendis frá]. Ég hef gert þetta þannig að ég leita að einhverjum áhugaverðum tón- leikum og tek þá síðan upp. Síðan fæ ég bandið sem var að spila í heim- sókn og spjall þar sem tekinn er klukkutími til að ræða við hljómsveit- irnar um tónlist þeirra og áhrifa- valda.“ Hemmi er gamalkunnur útvarps- hlustendum og sér nú þegar um þættina Hemmi feiti um helgar og um Radió-X-Dóminós vinsældarlistann. Aðspurður um viðurnefnið sitt líf- seiga segist Hemmi hafa byrjað að nota það sjálfur en sé þó ekkert feit- ur, bara nokkuð bústinn. Hann játar þó að hann eigi sér þann draum að verða feitur. Hægt er að hlusta á Live milli ellefu og eitt á fimmtudögum á Radíó-X. Hemmi feiti stjórnar þættinum Live á Radio-X Jaðarrokk í Reykjavík Morgunblaðið/Árni Sæberg Hemmi feiti hefur sýnt og sannað að hann er mikill stuðbolti og á þátturinn vafalítið eftir að bera þess glögg merki. dagskrá

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.