Vísir


Vísir - 10.01.1979, Qupperneq 13

Vísir - 10.01.1979, Qupperneq 13
12 c Miðvikudagur 10. janúar 1979 VtSIR jUk VJSIR MiOvikudagur 10. janúar 1979 13 Þetta ## var sœtt" „Þetta var mjög sætt og alveg stórkostlegt að sigra Danina á þeirra eigin heima- velli,” sagði Siguröur Jóns- son, formaður Handknatt- leikssambands Islands, er viðslógum á þráðinn til hans i gærkvöldi. „Við erum búnir að vera iengi I hópi 10-16 bestu hand- knattieiksþjóða heims og það erum við í dag,” sagði hann. ,,Það þýðir ekkert að vera með neinar skýjaborga- byggingar, þetta er staða okkar. Það hefur verið erfitt að halda okkur i þessum hópi vegna harðnandi samkeppni siðustu árin, en úrslitin i kvöld sýna vissan „stand- ard” hjá liðinu, og undir- strika að það getur ýmislegt gerst ennþá,” bætti formaö- urinn við. gk — Oli frán Island ólafur Benediktsson landi okkar var svo sannariega I sinum mesta ham I gærkvöldi. Hann varðí 18 skot i leiknum við Danina og átti sinn besta landsleik fyrr og sfðar. Ármann með nýja lyftu „Þegar siðari áfanganum verður lokið mun þetta veröa af- kastamesta skiöalyfta á landinu — hún mun þá geta flutt 1400 manns á klukkustund”, sagði Björn Kristinsson formaður skiðadeiidar Armanns i viötali við Visi I gær. „Viö erum nú aö fara i gegn með fyrri hlutann og getur þá lyftan flutt um 700 manns á klukkustund”, bætti Björn viö. „Ef snjóalög leyfa, verður lyftan komin i rekstur um næstu helgi — eða þessi fyrri hluti hennar sem er tilbúinn — en einhver bið mun verða á þvi að öll lyftan eins og hún á að verða fari i gang”. Þessi nýja Armannslyfta er sunnan Kóngsgils og liggur upp á hæsta tind Bláfjalla, sem er i rúmlega 700 metra hæð. Lyftan, sem er svonefnd toglyfta, er inn- lend smiði að svo miklu leyti sem þvi varð komið við, en annar út- búnaður er frá Austurriki. Fé- lagar i skiðadeild Ármanns, sem eru um 600 talsins — þar af 200 mjög virkir félagar — önnuðust undirbúning og uppsetningu lyft- unnar, sem mun kosta nær 40 milljónum króna og er þá sjálf- boðavinna verðlögð að fullu. Fjölskyldubíll — sportbill? Hvoru tveggja MAZDA 323 SP er búinn öllum kostum góös fjölskyldubíls: Rúmgóöur, sparneytinn og umfram allt ódýr. Þar aö auki hefur hann til aö bera eiginleika sportbíla sem gleöja alla sanna bílaunnendur: 1415 cc vél og 5 gíra kassa (0—100 km á 12,8 sek.) sérbólstruö rally sæti, ríkulega útbúiö mælaborð meö snúnings- hraöamæli, sportfelgur, sérstakt svart metallic lakk, svarta stuöara, grill og margt fleira. Sjón er sögu ríkari. BÍLABORG HF SMIDSHÖFDA 23 símar: 812 64 og 81299 y.T Umsjón: Gylfi Kristjánsson ______ Kjartan L. Pálsson D „Allt small eins og flís við rassl' — íslenska landsliðið hefndi rœkilega og sigraði Dani i fyrsta leik liðanna i Baltik-keppninni Já, nú erum við hressir og kátir, það small allt eins og flis viö rass hjá okk- ur”, sagði Jón P. „Klempel” Jónsson, handknattleikslandsliðsmaður, er viö ræddum við hann I gærkvöldi. Jón var þá kominn á hótel sitt I Randers eftir að Island hafði unniö sinn fyrsta sigur á útivelli gegn erkióvininum Dönum i Baltic-keppninni, úrslitin 18:15 og gleði islendinganna mikil að vonum. Ósigurs- ins gegn Dönum frá HM haföi verið hefnt. „Það var vörnin og markvarslan, sem öðru fremur skóp þennan sigur”, sagði Jón P. „Vörnin var sterk og Ólafur Benediktsson, sem stóð i markinu, átti sinn besta landsleik fyrr og slðar og er þá mikið sagt.” Þannig er þaö oft, að þegar menn búast við minnstum afrekum þá gerast óvæntir hlutir. Slikt átti sér stað i Randers i Danmörku i gærkvöldi i fyrsta leik Baltic-keppninnar, og Danir sem höfðu ætlaö sér að vinna auðveldan sigur, hittu fyrir ofjarla sina. Jón Pétur sagði að 3300 áhorfendur hefðu verið á leiknum, sem hefði auk þess verið sjónvarpað um alla Dan- mörku. En þeir hefðu ekki reiknað með islenska liðinu svona sterku og þvi ætlað sér auðveldan sigur. En það smallt allt samanhjá Islandi, vörnin mjög sterk og stórskyttur Dana þeir Michael Berg og Anders-Dahl Nielsen voru stöðvaðir al- gjörlega. Ólafur Benediktsson varði ein 18 skot i leiknum, sem er með þvi al- mesta sem gerist. Þá var sóknin leikin skynsamlega, boltanum haldið þar til glufur mynduðust i vörn Dana og þá skotið og skorað. Sem sagt, algjör topp- leikur og árangur eftir þvi, fyrsti útisig- ur gegn Dönum. Jafnræði var með liðunum til að byrja með, en Danir komust siöan yfir 8:6. En tvö siðustu mörk hálfleiksins voru islensk, og staðan i leikhléi 8:8. Sigur Islands var engin tilviljunarsig- ur. Það sést best á þvi að I siöari hálfleik komst liðið I 12:9 og siðan 17:13, loka- tölur sem fyrr sagði 18:15. Oft hafa menn óskað eftir sigri gegn Dönum i iþróttum og oft hafa menn orð- ið fyrir vonbrigðum. Það er þvi full Kanarnir á fullri ferð í Höllinni Nær allir bandarisku körfuknattleiks- mennirnir, sem leika hér á landi, verða i sviðsljósinu I Laugardalshöll i kvöld. Þá leika KR og Valur þar meö styrkum lið- un, og er leikurinn liður i hátiðahöldum vegna 80 ára afmælis KR. KR-ingar mæta til leiksins meö John Hudson og hafa auk þess fengiö Mark Christenssen, sem leikur með Þór á Akureyri, til að styrkja liö sitt. Valsmenn hafa hinsvegar gerst enn stórtækari. Þeir hafa i leiknum I kvöid auk Tim Dwyer, þá Paul Stewart. 1R- ing, John Johnson, Fram, Dirk Dunbar, 1S og Mark Hoimes, sem leikur með UMFG. Það verða þvi 7 bandariskir leikmenn, sem hefja leikinn i kvöld. Um leiö og að vera afmælisleikur KR er leikurinn undirbúningur fyrir KR- inga vegna ferðar þeirra á alþjóðlegt körfuknattleiksmót I Doncaster á Englandi um helgina. Þar mun Mark Christenssen leika meö KR, og þvi er hann með liði KR i kvöld. Valsmenn verða ekki árennilegir i kvöid með þann liösauka, sem þeir hafa náö sér I, og þeir hefja leikinn meö 5 bandariska ieikmenn. Leikur Iiðanna hefst I Höliinni kl. 20. ástæða til að gleðjast yfir þessum sigri og óska piltunum til hamingju með hann. Þessi sigur vannst fyrst og fremst vegna þess hversu sterk heild íslenska liðið var, þótt hlutur Ólafs Benedikts- sonar i markinu sé auðvitað mestur. Mörk íslands i gær skoruðu Páll Björgvinsson 4, ólafur Einarsson, Bjarni Guðmundsson og Jón P. Jónsson 3 hver, Ólafur H. Jónsson og Viggó Sig- urðsson 2 hvor, Árni Indriöason 1. Úrslit annarra leikja I gær urðu þau að heimsmeistarar V-Þjóðverja unnu Pólverja 19:18 eftir að Pólverjarnir höfðu haft yfir lengst af, en i lið heims- meistaranna vantar fjóra íastamenn. — I hinum riðlinum unnu A-Þjóðverjar fyrirhafnarlitinn sigur gegn B-riðli Dana 26:14 og Sovétmenn fóru létt með Svia 26:19. tsland leikur i kvöld gegn heims- meisturum V-Þýskalands. Þeir Axel Axelsson, Þorbjörn Jens- son, Stefán Gunnarsson og Brynjar Kvaran léku ekki i gærkvöldi. Þeir komu til Randers rétt i þann mund að leikurinn var að hefjast og verða væntanlega með i kvöld, að minnsta kosti einhverjir þeirra. gk-. SAMHERJAR í SLAGSMÁLUM — þegar Charlton mœtti utandeildarliðinu Maidstone í ensku bikarkeppninni í gœrkvöldi Vfða á Englandi tókst að moka snjón- um af knattspyrnuvöllunum i gær og leika á þeim ieiki, sem hefur orðið að fresta undanfarnar helgar. 1 þetta sinn voru það aðallega ieikir i ensku bikar- keppninni frá þvi á laugardaginn, sem fóru fram, en einnig fór fram mikil- vægur leikur í deiidarbikarkeppninni. Þar áttust við 2. deildarlið Stoke City og 3. deildarliðið Watford, sem sendi Manchester United út úr þessari sömu keppni fyrr I hausLLeikmenn Stoke urðu nú að sætta sig við sömu örlög og leik- menn Man. Utd,— Watford sigraði 3:1 eftir framlengdan leik — en staðan eftir venjulegan leiktima var 1:1. Watford mætir Englandsmeisturunum Notting- ham Forest I næstu umferð, sem eru undanúrslit. I FA bikarkeppninni i gærkvöldi urðu nokkur óvænt úrslit. Þar voru t.d. tvö 1. deildarlið slegin út af liðum úr 2. deild. Birmingham tapaði á heimavelli fyrir Burnley 2:0 óg QPR var slegið út af Ful- ham meö sömu tölum. Arsenal slapp með skrekkinn gegn Sheffield Wednes- day á Highbury i gærkvöldi, en þá mættust liðin aftur i 3. umferð keppn- innar. Jafntefli varð 1:1 eftir venjulegan leiktima og framlengingu. Þá bjargaði Middlesbrough sér á siðustu sekúndu með marki Billy Ash- croft og náði þar með jafntefli gegn Crystal Palace. Aftur á móti varð West Ham að sætta sig við tap gegn Newport County úr 4. deild og Luton úr 2. deild mátti þola tap fyrir öðru 4. deildar liði, York City, sem lék hér á landi fyrir nokkrum árum. 1 öllum leikjunum i gækvöldi gekk mikið á, en þó einna mest i leik Charlton og Maidstone. Þar brutust út slagsmál — þó ekki á milli leikmanna Charlton og Maidstone, heldur tveggja leikmanna Charlton. Voru það þeir Mick Flanagan og Derek Hale sem slógust og var þeim báðum visað af leikvelli. Annars urðu úrslitin I leikjunum i gærkvöldi sem hér segir: FA- bikarinn,3. umferð: Bristol City-Bolton Wand. 3:1 Charlton-Maidstone 1:1 Coventry-West Brom. 2:2 Darlington-Colchester 0:1 Fulham-QPR 2:0 Middlesbr.-Crystal Palace 1:1 Notts County-Reading 4:2 Sheff. Utd.-Aldershot 0:0 Swindon-Cardiff 3:0 Wimbledon-Southampton 0:2 York Citv-Luton 2-0 ¥ 9 Brighton/Howe-Wolverhampt. 2:3 Orient-Bury 3:2 Birmingham-Burnley 0:2 FA-bikarinn 2. umferð (annar leikur): Rotherham-Barnsley 2:1. Deiidar-bikarinn 5. umferð: Watford-Stoke 3:1 (eftir framlengin- gu). FA-bikarinn 3. umferð (annar leikur): Arsenal-Sheff. Wednesday 1:1. Fresta varð nokkrum leikjum i gærkvöldi og fara þeir fram mánudag- inn 15. janúar, en i kvöld verða einnig fjölmargir leikir á dagskrá — það er að segja, ef veðrið helst gott á Bretlands- eyjum I dag... —klp — ÞEIR BESTU DUTTU Allir þeir skiðamenn, sem likleg- astir voru taldir til þess að sigra, þegar keppt var I svigi heimsbikar- keppninnar I Montana I Sviss I gær, féllu úr keppni og ungur V-Þjóö- verji hrósaði sigri er upp var stað- ið. Hann heitir Christian Neureuther, og hefur ekki sigrað I heimsbikarkeppninni i fimm ár. Ingimar Stenmark féll I fyrri ferðinni. Hann datt ofarlega i brautinni en komst á fætur og hélt áfram. Hins vegar ætlaöi hann að flýta sér og vinna upp þann tima, sem hann haföi tapaö, og þá skeði annað óhapp og Stenmark var úr leik. Það sama geröist hjá Peter Luescher frá Sviss, sem hefur for- ustu I stigakeppni heimsbikar- mótsins, og Bojan Krizaj frá Júgó- slaviu. Þeir duttu báðir og voru þar með úr leik. Staða efstu manna i stigakeppn- inni breyttist því ekki, Luescher er efstur meö 105 stig, Stenmark með 100 og Krizaj ineð 49. gk-. SJA EINNIG IÞROTTIR A BLAÐSIÐU 14 HROLLUR / O Kinq Fcatures ! TEITUR AGGI

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.