Vísir - 28.05.1979, Page 7
7
VISIR Mánudagur 28. mal 1979
„MARGT ÚVENJULEGT A ÞINGINU”
seglr LúDvlk Jósepsson, lormaöur Alpýðubandalagslns
„Þetta þing hefur óneitanlega
veriö um margt furðulegt og ólikt
öðrum þingum, það er ekki hægt
að neita þvf” sagði Lúðvik
Jósepsson er Visir ræddi við hann
I þinglokin.
„Það hefur verið mikill
ágreiningur milli stjórnarsinna
innbyrðis og margt i afgreiöslu
þingsins hefur borið þess merki.
Allajafna hefur það verið
þannig, að mál stjórnarandstöð-
unnar hafa ekki náð fram að
ganga, en á þessu þingi hafa þeir
fengið öll sln mál afgreidd. Ég
harma það ekkert út af fyrir sig,
en þetta er kannski dæmigert fyr-
ir ástandið. Það hefur samsagt
margt veriö óvenjulegt i vetur og
það aö þingnefnd úr þingdeild
skuli geta flutt mál inn I Samein-
aö þing, sýnir að allt getur gerst
núna. (Þingmaðurinn átti þarna
við mál Skúla á Laxalóni sem
allsherjarnefnd neörideildar bar
upp i Sameinuðu þingi). Þegar
flutt eru stórmál eins og fjárlög
og lánsfjáráætlun er samstaðan
veik og það setur svipmót á þing-
ið.
Ég vona að ýmsir ungir og
sprettharðir þingmenn, sem
komu inn á þing i haust, hafi lært
þaö, að þingstörf eru ekki eins og
þeir höróu átt von á og aö þeir
veröi að temja sér önnur vinnu-
brögð”, sagði Lúðvik Jósepsson.
—JM.
„ÚHEILINDI MILLI
STJÚRNARFLOKKANNA"
- seglr Gelr Hallgrlmsson, lormaður
Slálfstæölsllokkslns
„Þjóðin er ver stödd I lok þessa
þings en I byrjun þess”, sagði
Geir Haligrimsson, formaöur
Sjálfstæðisflokksins, við VIsi I
þinglokin.
„Hjá þessari rikisstjórn, hefur
hver bráðabirgðaráðstöfunin rek-
ið aöra og i staö þess að leysa
vandann hefur hann veriö aukinn
með hverri svokallaðri „ráðstöf-
un” rikisstjornarinnar.
Það eru aðeins sex mánuðir siö-
an formælendur stjórnarinnar
lýstu þvi yfir að þeir hefðu höndl-
að varanlegt bjargráð i efnahags-
máium, með efnahagsfrumvarpi
forsætisráðherra. En nú, þegar
upp er staðiö og sjálfstæðismenn
krefja forsætisráðherra um
stefnumótun i kaup- og kjaramál-
um, er engin svör að fá og þvi
boriö við að þau muni ekki fást á
næstunni.
Hinsvegar hefur forsætisráö-
herra lýst þvi yfir að bráðabirgða
lög verði ekki gefin út, nema
örugg vissa sé fyrir þvi að þau
njóti þingmeirihluta
Ef bráðabirgðalög verða gefin
út, bera samsagt allir þrir
stjórnarflokkanna ábyrgö á þeim
og getur þvl enginn einn þeirra
skotið sér bak við hina tvo eins og
allir þrir stjórnarflokkanna hafa
itrekað gert i vetur. Óheilindi
milli þeirra hafa verið slik, að það
kann ekki góðri lukku að stýra.
—JM.
/msmgtamúrva/ kmdsins:
Klassískir gítarar með nylonstrengjum, stálstrengjagítarar með stórum
eða litlum hljómkassa, 12 strengja gítarar, rafmagnsgítarar og bassa-
gítarar.
Vel þekkt merki eins og Eko, Kimbara, Lorenzo, Levin, Ibanez, Sigma,
Colubus, Ovation ofl.
Bjóðum einnig handsmíðaða gítara fyrir þá sem gera meiri kröfur.
FRAKKASTIG 16 SIMI 17692
Dráltur á byggingu ölfusárbrúar:
Kostar hundrað
milljónlr á árl
lyrlr Eyrbekklnga og stokkseyrlnga
„Hvert ár sem bygging
ölfusárbrúarinnar dregst kostar
Eyrbekkinga og Stokkseyringa
meira en hundrað milljónir króna
i beinum kostnaði, sem þeir hljóta
senn að kikna undan.”
Þetta segir m.a. I samþykkt,
sem gerð var á hreppsnefndar-
iundi Eyrarbakka- og Stokks-
eyrarhrepps fyrir stuttu.
Vakin er athygli á þvi aö vega-
lengdin milli Eyrarbakka og
Þorlákshafnarstyttist um tæpa 28
kilómetra með tilkomu brúarinn-
ar. Það sama má segja um veg-
inn milli Stokkseyrar og Þorláks
haftiar; hann styttist um tæpa 25
kilómetra.
„A timanum janúar—-april 1979
fóru bátar Eyrbekkinga og
Stokkseyringa 370 róðra af 521
róðri úr Þorlákshöfn, þrátt fyrir
bestu veðráttu til sjósóknar, sem
menn muna. Eðlilegt verður að
teljast aö skipverjar komist til
heimila sinna milli róðra.
Kostnaðarauki skipverja af
brúarleysinu nemur á þessum 4
mánuðum á bilinu 3 til 13 milljón-
um króna á grundvelli aksturs-
taxta opinberra starfsmanna.
Þetta er breytilegt eftir þvi hvort
allt að 5 skipverjar sameinastum
sama bilinn, eöa hver skiþverji
ekur sinum bil”, segir i
samþykktinni um óhagkvæmni
sjómanna vegna brúarleysis.
Þá segir að fjárveitingar til
hafnargerðar á Eyrarbakka og
Stokkseyri hafi um langt árabil
verið langt undir þörfum.
Jafnhliþa hefur framkvæmda-
leysið við hafnirnar og órafjar-
lægð til „heimahafnar” i
Þorlákshöfn hvað eftir annað
steypt yfir þessi þorp hundruð
milljóna króna tjónum vegna
skipsskaða og fast að þvi lagt i
rústir atvinnumöguleika ibúanna.
Kostnaðarauki fiskvinnslu-
stöðvanna á Eyrarbakka og
Stokkseyri af brúarleysinu I bein-
um fhitningakostnáði hefur num-
ið um 30 milljónum króna mánuö-
ina janúar til april á þessu ári.
I samþykktinni er bent á að
hitaveitumöguleikar fyrir Eyrar-
bakka og Stokkseyri byggjast á
vatnsöflun vestan ölfusár. Vafa-
samt sé hvort arðsemi hitaveitu
séfyrir hendi án brúar og þótt svo
væri muni brú lækka fram-
kvæmdakostnað veitunnar um 20
til 25 prósent.
__________________—KP.
Sjúkrastðö
SÁÁ fiutt
Sjúkrastöð SAA, sem verið
hefur I Reykjadal i Mosfells-
sveit , hefur nú verið flutt að
SilungapoDi og hefur samist
svo um milli SAA og
Reykjavlkurborgar að
húsnæðið á Silungapolli fáist
til afnota þar til siðla árs 1980.
Ráðstefna um vonda lykt
Vegna háværra krafna ná-
granna fiskimjölsverksmiðja um
eyöingu óbærilegrar lyktar I
grennd viö verksmiðjurnar hefur
veriö ákveðið að halda ráðstefnu
á Hótel Sögu 28—30. þ.m. Þar
veröur auk framangreindra
atriöa fjallað um orkusparnaö og
nokkuð sem nefnis „soðeiming
meö glatvarmatækjum”.
A ráðstefnunni verða og haldin
erindi um ýmsar mengunarvarn-
ir, þurrkun mjöls o.fl.
Fyrirlesarar verða tveir frá
íslandi og einn frá Danmörku en
til ráðstefnunnar er boöaö af A/S
Atlas, Aalborg Værft og Hamri
hf- —ÓM.
AEG TELEFUNKEN
B4NN UPP
PAL LITSJÓNIÆRPSKERFIÐ
Fyrir rúmlega 10 árum settu AEG TELEFUNKEN verksmiðjurnar á markaðinn fyrstu
PAL litsjónvarpstækin, en þá hófust litsendingar eftir því kerfi í Vestur Þýskalandi.
Síðan hafa yfir 40 lönd, með yfir 700 milljón íbúa tekið TELEFUNKEN PAL KERFIÐ í notkun.
íslensk yfirvöld tóku einnig þá skynsamlegu ákvörðun, að velja PAL KERFIO
FRÁ TELEFUNKEN, fyrir íslendinga.
Allir framleiðendur PAL LITSJÓNVARPSTÆKJA, framleiða tæki sín undir einkaleyfi
TELEFUNKEN; og greiða þeim einkaleyfisgjöld.
TELEFUNKEN er eina fyrirtækið sem framleiðir litsjónvarpstæki sin með 100%einingarkerfi,
sem einfaldar og flýtir viðgerðum.
TELEFUNKEN notar 20% framleiðslutíma hvers litsjónvarpstækis í reynslu hinna einstöku
hluta tækisins, auk þess er hvert tæki reynt í 24 tíma áður en það yfirgefur verksmiðjurnar.
Lítil orkunotkun (aðeins 140 wött) gefur lítið hitaútstreymi og eykur endingu tækisins.
TELEFUNKEN litsjónvarpstæki eru með 110° ,,lnline“ myndlampa, sem sýnir jafna
og góða mynd á skerminum, út í öll horn, auk þess sem tækin eru þynnri,
en áður hefur verið hægt að framleiða þau. Fjarstýring er að sjálfsögðu fáanleg.
Þrátt fyrir yfirburði TELEFUNKEN PAL LITSJÓNVARPSTÆKJA ERU ÞAU
SAMKEPPNISFÆR í VERÐI.
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820