Morgunblaðið - 21.03.2001, Side 2

Morgunblaðið - 21.03.2001, Side 2
KÖRFUKNATTLEIKUR 2 C MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Aðalfundur Handknattleiksráðs Reykjavíkur verður haldinn fimmtudaginn 29. mars 2001 kl. 17.00 í stóra sal ÍBR hússins, Laugardal, 3. hæð. Venjuleg aðalfundarstörf. H.K.R.R ÚRSLIT KÖRFUKNATTLEIKUR Njarðvík – Skallagrímur 87:57 Íþróttahúsið í Njarðvík, 8 liða úrslit úrvals- deildar karla, Epson-deildar, oddaleikur, þriðjudaginn 20. mars 2001. Gangur leiksins: 3:0, 5:7, 16:8, 19:15, 22:20, 26:20, 30:27, 39:28, 39:31, 43:37, 51:37, 57:40, 63:41, 71:48, 80:53, 82:57, 87:57. Stig Njarðvíkur : Teitur Örlygsson 23, Brenton Birmingham 20, Logi Gunnarsson 14, Halldór Karlsson 10, Jes V. Hansen 8, Friðrik Stefánsson 6, Sævar Garðarsson 3, Ragnar Ragnarsson 2, Ásgeir Guðbjarts- son 1. Fráköst: 31 í vörn – 16 í sókn. Stig Skallagríms : Warren Peebles 14, Sig- mar Egilsson 12, Alexander Ermolnskij 9, Hafþór I. Gunnarsson 8, Hlynur Bærings- son 8, Evgenij Tomilovski 5, Birgir Mik- aelsson 1. Fráköst: 23 í vörn – 2 í sókn. Villur: Njarðvík 25 – Skallagrímur 26. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Einar Einarsson. Að mestu leyti ágætir. Áhorfendur: Um 600.  Njarðvík sigraði, 2:1, og mætir KR í und- anúrslitum. Tindastóll – Grindavík 79.75 Íþróttahúsið á Sauðárkróki: Gangur leiksins: 3:2, 5:6, 7:9, 11:14, 15:22, 17:27, 24:30, 29:38, 32:48, 40:55, 40:60, 48:60, 53:62, 63:64, 68:67, 70:70, 75:70, 75:75, 79:75. Stig Tindastóls: Shawn Myers 32, Kristinn Friðriksson 10, Lárus Dagur Pálsson 9, Svavar Birgisson 8, Michail Antropov 7, Adonis Pomonis 4, Friðrik Hreinsson 4, Ómar Sigmarsson 3, Axel Kárason 2. Fráköst: 24 í vörn – 24 í sókn. Stig Grindavíkur: Billy Keys 27, Páll Axel Vilbergsson 13, Bergur Hinriksson 11, Guðlaugur Eyjólfsson 10, Pétur Guð- mundsson 8, Elentínus Margeirsson 5, Kristján Guðlaugsson 1. Fráköst: 26 í vörn – 7 í sókn. Villur: Tindastóll 16 – Grindavík 18. Dómarar: Kristinn Albertsson og Jón H. Eðvaldsson, dæmdu nokkuð vel. Áhorfendur: 510.  Tndastóll sigraði, 2:1, og mætir Keflavík í undanúrslitum. NBA-deildin Atlanta – LA Lakers ........................ 108:106 Seattle – Philadelphia .......................... 93:89 San Antonio – Portland........................ 98:85 KNATTSPYRNA England Bikarkeppni neðrideildarliða Undanúrslit, síðari leikir: Port Vale – Lincoln ...................................0:0 Brentford – Southend...............................2:1  Brentford sigraði, 4:2, samanlagt, og mætir Port Vale í úrslitaleik í Cardiff. 1. deild: Gillingham – Tranmere ............................2:1 Grimsby – Birmingham............................1:1 2. deild: Bristol Rovers – Peterborough ........frestað Colchester – Swindon ...............................0:1 Wycombe – Rotherham............................0:1 Wrexham – Bury.......................................0:1 3. deild: Cheltenham – York ...................................1:1 Leyton Orient – Blackpool .......................1:0 Shrewsbury – Kidderminster ..................1:0 Skotland Aberdeen – Dundee United ..............frestað HANDKNATTLEIKUR Þýskaland Willstätt/Schutterwald – Essen...........25:28 BLAK 1. deild kvenna, undanúrslit: KA – Þróttur N..........................................0:3 14:25, 18:25, 22:25.  Þróttur N. sigraði, 2:0, og leikur til úr- slita gegn sigurliðinu úr viðureign Víkings og ÍS. ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA Íslandsmót Íþróttafélags fatlaðra í sundi fór fram í Sundhöll Reykjavíkur 9. og 10. mars 2001 Besti árangur: Flokkur hreyfihamlaðra: Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR..1.004 stig Flokkur þroskaheftra: Gunnar Örn Ólafsson, Ösp ...............865 stig Flokkur blindra og sjónskertra: Una Sóley Stefánsdóttir, ÍFR .........233 stig Karlar 50 m frjáls aðferð: Flokkur S14 Arnar M. Ingibjörnsson, Nes...............35,51 Flokkur S11 Eyþór Þrastarson, ÍFR .....................1.16,62 Flokkur S3–S6 Pálmi Guðlaugsson, Firði ..................1.01,10 50 m bringusund: Flokkur SB 14 Gunnar Örn Ólafsson, Ösp....................36,91 Flokkur S 11 Eyþór Þrastarson, ÍFR .....................1.35,85 Flokkur SB4–6 Pálmi Guðlaugsson, Firði ..................1.23,98 Flokkur S 14 100 m bringusund: Anton Kristjánsson, Ösp ...................1.31,90 Flokkur SB6–7 Bjarki Birgisson, ÍFR........................1.38,89 Opinn flokkur Haraldur Þór Haraldsson, ÍFR ........1.27,93 100 m frjáls aðferð: Flokkur S14 Anton Kristjánsson, Ösp ...................1.15,58 Flokkur S6–8 Bjarki Birgisson, ÍFR........................1.19,52 Rudy Garcia-Tolson, Bandar. ...........1.27,67 Opinn flokkur Haraldur Þór Haraldsson, ÍFR ........1.08,66 100 m flugsund: Haraldur Þór Haraldsson, ÍFR ........1.26,09 400 m frjáls aðferð: Opinn flokkur Rudy Garcia-Tolson, Bandar ............6.30,03 50 m baksund: Flokkur S 14 Gunnar Örn Ólafsson, Ösp....................32,86 Flokkur S 11–12 Eyþór Þrastarson, ÍFR ........................56,95 Flokkur S 3–6 Alexander Harðarson, ÍFR...............1.06,43 100 m baksund: Opinn flokkur Haraldur Þór Haraldsson, ÍFR ........1.23,47 100 m fjórsund: Gunnar Örn Ólafsson, Ösp.................1.11,93 200 m fjórsund: Jón Gunnarsson, Ösp .........................3.15,30 Strákar 25 m frjáls aðferð Bjarki Erlingsson, Ösp .........................23,57 Konur 50 m frjáls aðferð: Flokkur S 14 Sigríður Ásgeirsdóttir, Nes..................50,47 100 m frjáls aðferð: Flokkur S 14 Sæunn Jóhannesdóttir, Ösp ..............1.45,22 Flokkur S6–8 Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR ......1.17,35 50 m flugsund: Flokkur S 14 Bára B. Erlingsdóttir, Ösp ...................38,70 Opinn flokkur Jóna Dagbjört Pétursdóttir, ÍFR........55,68 50 m bringusund: Flokkur S 14 Rut Ottósdóttir, Ösp .............................52,65 400 m frjáls aðferð: Bára B. Erlingsdóttir, Ösp................5:45,72 50 baksund: Flokkur S 14 Emma Rakel Björnsdóttir, Þjóti .........53,68 Flokkur S 11–12 Una Sóley Stefánsdóttir, ÍFR...........1.04,12 100 metra baksund: Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR ......1.25,86 100 m bringusund: Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR ......1.38,17 100 fjórsund: Rut Ottósdóttir, Ösp ..........................1.57,66 200 m fjórsund: Flokkur S 14 Bára B. Erlingsdóttir, Ösp ................3.01,24 Flokkur SM 6–7 Vala Guðmundsdóttir, ÍFR ...............4.34,71 Stelpur 25 m frjáls aðferð Sunneva Geirharðsdóttir, Ösp .............28,20 HANDKNATTLEIKUR Nissandeildin 1. deild karla: Austurberg: ÍR – FH................................20 Digranes: HK – Stjarnan .........................20 Framhús: Fram – Valur ...........................20 Ásvellir: Haukar – KA ..............................20 Seltjarnarnes: Grótta KR – ÍBV .............20 Varmá: UMFA – Breiðablik ....................20 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild, úrslitakeppni, annar leikur: Selfoss: Selfoss – Breiðablik ....................20 Þorlákshöfn: Þór Þ. – Stjarnan................20 BLAK Undanúrslit karla, annar leikur: Ásgarður: Stjarnan – Þróttur R. ........19.30 KNATTSPYRNA Reykjavíkurmót karla: Leiknisvöllur: Leiknir R. - Víkingur ..18.30 Laugardalur: Þróttur R. - Fram.........18.30 Leiknisvöllur: Léttir - Valur ...............20.30 Laugardalur: Fjölnir - ÍR....................20.30 Í KVÖLD Leikmenn liðanna virtust nokkuðstrekktir á tauginni og þannig liðu nokkrar mínútur áður en fyrstu stigin birtust á töflunni og runnu til að mynda sex fyrstu sóknir heima- manna út í sandinn. Bæði lið léku mjög sterka vörn, þannig að sóknirnar gengu ekki upp og mikið var um baráttu þar sem mistök voru á báða bóga. Í fyrsta leikhluta höfðu gestirnir frumkvæðið en heimamann fylgdu þeim fast eftir og lengsum var munurinn tvö til þrjú stig. Við lok fyrsta leikhluta var staðan 11–14. Í upphafi annars leikhlutans rifu Grindvíkingarnir sig upp og nú tóku þriggja stiga skytturnar sig til og Páll Axel Vilbergsson, Bergur Hinriksson og Billy Keys náðu allir að setja niður góðar körfur, á með- an heimamenn náðu sér ekki á strik, þó kom Shawn Myers vel út úr þessum leikhluta og má segja að á þessum tíma hafi hann haldið heimamönnum inni í leiknum. Stað- an var 26:32 þegar þrjár mínútur voru til leikhlés en fyrri hálfleikur endaði 29:38. Í þessum hálfleik áttu Tindastólsmenn erfitt uppdráttar í sókninni og sýndu gestirnir mikla baráttu, stálu boltum og hittu vel. Í síðari hálfleik héldu leikmenn Grindvíkinganna uppteknum hætti og röðuðu niður þriggja stiga skot- unum, og á fyrstu tveimur og hálfri mínútu höfðu Grindvíkingar skorað tíu stig meðan Tindastólsmenn skoruðu þrjú. Sífellt seig á ógæfuhlið fyrir lið heimamanna, og náðu gestirnir mest tuttugu stiga foyrstu og stað- an var 40:60, en þá fékk Keys sína fjórðu villu og var tekinn út af. Heimamenn þéttu vörnina og pressuðu vel á gestina, hittnin komst í lag, og leikurinn snerist Tindastól í vil og staðan við lok þriðja leikhluta var 53:62. Srax í upphafi fjórða leikhluta háfst kafli sem áhorfendur munu seint gleyma, Myers skoraði þriggja stiga körfu, Ómar Sigmars- son tveggja stiga körfu og fiskaði víti, og síðan skoraði Lárus Dagur Pálsson, og nú var allt í einu komin staðan 63:64 og húsið beinlínis á suðupunkti. Þegar sex mínútur lifðu leiks komust heimamenn yfir í fyrsta sinn frá því í upphafi, og baráttan var í algleymingi. Grindvíkingar tóku leikhlé þegar staðan var 70:70 og þá voru rúmar fimm mínútur eftir á klukkunni. Vörn Tindastóls var nú mjög virk og komust Grindvíkingar hvergi að til að skjóta, og á þessum síðustu mínútum einkenndist leikurinn af gríðarlegri baráttu, 75:75, síðan kemur Myers Tindastól yfir með því að skora úr öðru af tveimur vítaskotum, og svo gerði Michail Antropov það sama án þess að gestirnir næðu að svara fyrir sig og staðan var 77:75, og var þá tæp mínúta eftir. Grindvíkingar fengu þá tækifæri á að jafna eða skora þriggja siga körfu en misstu boltann og Lárus Dagur innsiglaði sigur Tindastóls á lokasekúndunum með því stela boltanum og leggja hann í körfuna um leið og flautað var til leiksloka. Í liði Tindastóls var Myers yf- irburðamaður allan leikinn, á með- an aðrir leikmenn áttu erfiðan dag í sókninni í fyrri hlutanum, en dæm- ið snerist rækilega við eftir þriðja leikluta þegar sóknin varð jafn- sterk og vörnin. Þá léku allir jafn- vel og má geta þess að á síðustu tólf mínútum leiksins skoruðu þeir 40 stig á móti 39 áður. Í liði Grindavíkur var Keys best- ur sem sást best á því að þegar hann var tekinn út af með fjórar villur í þriðja leikhluta virtust gest- irnir ekki ná að spila eins beitta sókn sem öll varð ráðleysislegri og slakari. Annars voru Páll, Bergur og Guðlaugur Eyjólfsosn góðir og Pét- ur Guðmundsson að vanda sterkur í vörninni. Tinda- stóll loks áfram TINDASTÓLL tryggði sér sigur á Grindavík, 79:75, í gærkvöldi og komst þar með í fyrsta sinn í undanúrslit á Íslandsmótinu. En sig- urinn tók á því gestirnir úr Grindavík voru yfir allt þar til í síðasta leikhlutanum en góður endasprettur heimamanna tryggði þeim sigurinn og kærkominn áfanga í sögu körfuknattleiksins nyrðra. Björn Björnsson skrifar Það hljómar sjálfsagt kjánalega aðsegja að leikur sem endar með 30 stiga sigri hafi verið spennandi, en sú var samt raunin í Njarðvík í gærkvöldi, eða altént fyrri hálfleik- urinn. Borgnesingar voru yfir í upphafi en heimamenn náðu síðan forystunni og létu hana ekki af hendi eftir það. Teitur Örlygsson hóf leikinn með glæsilegri þriggja stiga körfu en síðan kom skrautlegur kafli hjá liðunum þar sem taugaspennan virtist bera leik- menn ofurliði. Hver virtleysan rak aðra og menn sendur frekar á mótherja sína en samherja. Hraðinn var gríðarlega mikill en hann nýttist liðunum í raun ekkert því menn misstu knöttinn og hittu ekki úr þokkalegum skotfærum. Borgnesingar komust yfir en Njarð- vík jafnaði 7:7 og þá hafði leikurinn staðið í heilar fimm mínútur. Þegar staðan var 10:8 og heimamenn höfðu fengið dæmdar á sig fimm villur, fannst Njarðvíkingum nóg komið og tóku leikhlé. Það skilaði sér heldur bettur því næstu sex stig voru heimamanna og breytti engu þó gestirnir reyndu að leika sama leik og heimamenn með því að taka leikhlé. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 19:15 og sem dæmi um hversu allt var gestum erfitt má nefna að Hlynur Bæringsson gerði fyrstu stig sín á lokasekúndu leik- hlutans er hann setti loks niður þriggja stiga skot. Í öðrum leikhluta gerði hvort lið einu stigi meira en í þeim fyrsta þannig að staðan í leikhléi var 39:31. Miklu mun- aði í fyrri hálfleik hversu iðnir heima- menn voru við fráköstin í sókninni og Logi Gunnarsson lék vel þegar Njar grímsmennirnir Sigmar Egilsson og Vörnin sm NJARÐVÍKINGAR sýndu í oddaleiknum við Skallagrím í gærkvöldi að það er engin tilviljun að þeir eru deildarmeistarar í körfuknattleik. Liðið lék mjög sterka vörn og komust gestirnir úr Borgarnesi lítt áleiðis gegn henni nema í upphafi leiksins þegar æðibunugangur einkenndi leik beggja liða. Þegar upp var staðið voru Njarðvíkingar öryggir sigurveg- arar, sigruðu með 30 stiga mun, 87:57. Skúli Unnar Sveinsson skrifar ÍVAR Jónsson, knattspyrnumaður úr Fram, hefur gengið frá sam- komulagi við Breiðablik um að leika með félaginu á komandi tíma- bili. Ívar hefur leikið með Fram undanfarin tvö ár en ákvað að leita á önnur mið þegar hann fékk ekki tækifæri með liðinu í fyrstu móts- leikjum ársins. Viðræður um félagaskipti hans standa yfir en félögin hafa ekki gengið frá sam- komulagi um þau. Ívar samdi við Breiðablik

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.