Morgunblaðið - 25.03.2001, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. MARS 2001 B 19
MÉR varð það á einhvern daginn ný-
verið að leggja kollhúfur er ég hlust-
aði á útvarpsauglýsingar. Ég þóttist
heyra hvatningarorð frá starfs-
mönnum í Hlíðarfjalli, skíðasvæði
Akureyringa. Þeir létu þess getið að
þar væri púðursnjór. Í svipinn kom
ég því ekki fyrir mig að hafa heyrt
þetta orð fyr. Þóttist samt skilja að
hér væri átt við lausamjöll.
Mér varð hugsað til Sigurðar Guð-
mundssonar skólameistara, sem
frægur var sem stafnbúi og fram-
vörður íslenskrar tungu. Að vísu má
segja að tungan taki sífelldum breyt-
ingum og púðursnjór eigi betur við
þá tíma þegar bandarískir hermenn
fari í kynnisferðir í blómlegar byggð-
ir Eyjafjarðar, klæðist dularklæðum
og stökkvi hæð sína í herklæðum um
leið og þeir gróðursetja trjáplöntur
hjá háskólamönnum á Akureyri. Við
þessar hugleiðingar rifjaðist upp
kvæði Gríms Thomsens, sem hann
kvað er hann vegsamaði norskan út-
laga, sem eigraði um skóga og merk-
ur Noregs og leitaði hælis í hellis-
skútum og á heiðum, á flótta undan
úlfahjörðum. Um þessar mundir líð-
ur naumast sá dagur að eigi sé getið
úlfa er reika um merkur Noregs og
valda bændum búsifjum.
En víkjum nú að ljóði Gríms
Thomsens um Arnljót gellini. Auk
Gríms mun norska skáldið Björn-
stjerne Björnson hafa sungið Arn-
ljóti lof.
Orðabók Háskóla Íslands, sem er
til húsa í Árnastofnun kannast ekki
við orðið púðursnjór, hvorki í mæltu
máli né ritmáli. Tíminn mun leiða í
ljós hvort orðið verður sigursælla
þegar fram líða stundir. Lausamjöll
eða púðursnjór.
Arnljótur gellini
Lausa mjöll á skógi skefur,
skyggnist tunglið yfir hlíð
eru á ferli úlfur og refur,
örn í furutoppi sefur,
nístir kuldi um næturtíð.
Fer í gegnum skóg á skíðum
sköruglegur halur einn,
skarlats kyrtli sveiptur síðum,
sára gyrður þorni fríðum
geislinn hans er gambanteinn.
Eftir honum úlfar þjóta
ilbleikir með strengdan kvið;
gríðar stóðið gráa og fljóta
greitt má taka og hart til fóta,
ef að hafa á það við.
Hefur hann á mörkum marga
munntama þeim gefið bráð;
sjálfs hans ævi er álík varga,
einn sér verður hann að bjarga,
hefur safnað ei né sáð.
Með ráni og vígum rauna hnútinn
reið hann sér og auðnu tjón;
á holtum og á heiðum úti
hýsa hann eikarstofn og skúti
hvergi er honum fritt um frón.
Ýmsar sögur annarlegar
Arnljóts fara lífs um skeið;
en – fátækum hann þyrmir þegar,
og þeim, sem fara villir vegar,
vísar hann á rétta leið.
(Grímur Thomsen.)
Bragi Kristjónsson brá við skjótt
og útvegaði myndina til birtingar.
Eru honum færðar bestu þakkir.
Myndin er úr útgáfu Gustav
Storm á Heimskringlu Snorra. Útg.
Kristiania 1899. Teikningin er eftir
Halfdan Egedius.
Púðursnjór eða lausamjöll
Arnljótur gellini á skíðum í norskum skógi. Með honum eru Þóroddur og fylgisveinn hans.
Eftir Pétur Pétursson
Grímur Thomsen
- trygging fyrir l
águ ver›i!