Morgunblaðið - 11.04.2001, Blaðsíða 1
11. - 24. apríl
d gskrá
J
AMES Cameron, sem á heiðurinn af dýrustu kvikmynd allra tíma,
hinni rosalegu Titanic, hefur nú haslað sér völl á sviði sjónvarps-
ins. Af því sem Dagskrárblaðið hefur séð er hér ansi athyglisverður
þáttur á ferðinni en Myrkvaengillinn (e. Dark Angel) er vísindaskáld-
sögulegur og áferð öll með svalasta móti.
Undanfarin ár virðist sem sjónvarpsmenningin hafi öðlast meiri
vigt – að henni eru að koma mikilsmetnir kvikmyndamógular sem
listamenn á því sviðinu. Nægir að líta til nýlegra þáttaraða eins og
The Sopranos til að sannfærast um þetta en það er mál manna að vel skrifaður
Sopranosþáttur standist vönduðustu kvikmyndum fyllilega snúninginn og vel
það meira að segja.
Púlssprengjan svokallaða
Jæja, nóg komið af heimspekilegu þvaðri. Snúum okkur frekar að þætt-
inum sjálfum og um hvað hann snýst. Þátturinn, sem hefur verið lýst sem
sniðnum að Matrix (vísindaskáldsaga með Keanu Reeves í burðar-
hlutverki) kynslóðinni, fjallar um unga stúlku, Max að nafni, sem býr í
Seattle, Bandaríkjunum. Árið er 2019 og eins og nærri má geta ríkir
skálm- og skeggöld í heimi hér. „Púlssprengjan“ svokallaða, rafsegluð
höggbylgja, sem leyst var úr læðingi árið 2009 af, líkast til illræmdu,
hryðjuverkafólki hefur valdið því að svört ský hefur dregið fyrir sólu og jarð-
vistin er ansi kaldranaleg svo ekki sé nú meira sagt. Max, sem er erfða-
breyttur hermaður, er því á stöðugum flótta frá sköpurum sínum um leið og
hún er í stöðugri leit að huldum uppruna sínum. Í þeim tilgangi slæst hún í
lið með hinum hugsjónaríka og netgædda blaðamanni, Eyes Only.
Þáttur þessi er hugarfóstur þeirra James Cameron (sem á að baki „risa
NÝ SPENNUÞÁTTARÖÐ Á STÖÐ 2 EFTIR
JAMES CAMERON, LEIKSTJÓRA TITANIC
MYRKVA-
ENGILL
Jessica Alba
leikur hetjuna
okkar, Max
Guevara.
a
SJÓNVARPSSTÖÐIN Omega hefur
tekið til sýninga viðtalsþátt sem
ber heitið Á réttri leið. Þátturinn er
framleiddur af Íslensku Kristskirkj-
unni og er í umsjón séra Friðriks
Schram.
Í samtali við Dagskrárblaðið
sagði Friðrik að eitt af markmið-
unum með þessum þætti væri að
minna á tilvist Íslensku Kristskirkj-
unnar og kynna starfsemi hennar
en hún hefur verið starfandi frá
1997 og er yngsta lútherska frí-
kirkjan hérlendis.
„Þetta er byggt upp sem viðtals-
þáttur og við ræðum við fólk sem
er í kirkjunni um reynslu þeirra af
lífinu og trúnni og af hverju það fór
að hugleiða þessi mál. Ég er
svona að spyrja þau út í það af
hverju þau hafi áhuga á trúmálum
og hvernig standi á því að það
ákvað að gera alvöru úr því; þ.e.
fór að leita uppi ákveðna kirkju til
að finna farveg fyrir þessa trú
sína.“
Þátturinn er svo brotinn upp um
miðbikið með tónlistaratriði og er
það tónlistarfólk frá Kristskirkjunni
sem sér um þá hlið mála.
Friðrik segir að ekki sé leitað
fanga neitt sérstaklega eftir fyr-
irmynd að uppbyggingu.
„Sá sem gerir sviðsmyndina
heitir Eiríkur Ingi Böðvarsson og er
starfsmaður hjá Ríkissjónvarpinu.
Þar höfum við fagmann til að vinna
umgjörðina og hann stjórnar jafn-
framt öllum upptökum og slíku.
Þetta er tekið upp í litlu myndveri
sem er staðsett hjá útvarpsstöð-
inni Lindinni í gamla góða Krók-
hálsi.“
Friðrik tæpir því næst lítillega á
eðli söfnuðarins.
„Einnig erum við að undirbúa
sýningar á myndum frá kirkjunni
svo að fólk átti sig á því hvað
þarna fer fram og hvers konar starf
þetta er. Þetta er nefnilega ekki
svo frábrugðið þeirri starfsemi
sem fam fer í þjóðkirkjunni nema
það að við erum með frjálslegra
form á hlutunum. Tónlistin er nú-
tímalegri og helgisiðir eru ekki eins
fastmótaðir.“
Hinn kristni boðskapur
Friðrik áréttar og mikilvægi þess
að hinn kristni boðskapur sé
kynntur. „Það að þessi kristni boð-
skapur hafi eitthvað gildi fyrir fólk í
dag og sé til þess fallinn að bæta
mannlífið og gera það fegurra og
betra. Að þetta hjálpi fólki til þess
að takast á við lífið. Gefa því innri
frið og styrk og hjálpi þeim að
finna svör við þeim spurningum
sem leita á þau.“
Á réttri leið er sýndur annað
hvert laugardagskvöld kl. 21.00 og
er svo endurtekinn laugardags-
kvöldið þar á eftir. Einnig er áætl-
að að einhverjar sýningar verði á
virkum dögum líka.
Á réttri leið
með Omega
Séra Friðrik Schram er umsjónar-
maður þáttarins Á réttri leið.
Nýr íslenskur þáttur á Omega