Morgunblaðið - 18.04.2001, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.04.2001, Blaðsíða 3
KÖRFUKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 B 3 Heimamenn í liði Tindastóls hófuleikinn fullir sjálfstrausts og virtust ætla að nota sér meðbyrinn úr viðureign liðanna á laugardag sér til framdráttar. Shawn Myers sótti hart að þeim Friðriki Stef- ánssyni og Jes V. Hansen og þegar á leið voru báðir leikmennirnir komnir í villuvandræði. Logi Gunn- arsson var allt í öllu í sókninni hjá Njarðvíkingum fyrstu sjö mínútur leiksins og skoraði kappinn fjórtán af fyrstu átjan stigum liðsins. Valur Ingimundarson, þjálfari Tindastóls, breytti sífellt um varnaraðferð til að reyna að hemja Loga sem skoraði jafnt og þétt gegn maður á mann- vörn sem og svæðisvörn. Svæðisvörn Tindastóls setti Njarðvíkinga aðeins út af laginu og í öðrum leikhluta skoraði Logi aðeins tvö stig. Framherjinn Halldór Karlsson kom Njarðvíkingum inní leikinn aftur með átta stigum á skömmum tíma en Halldór lék laus- um hala á meðan varnarmenn Tindastóls höfðu áhyggjur af þeim Loga og Teiti Örlygssyni. Danski miðherjinn, Hansen, skaut lítið fyrir utan og var í raun daufur í sókninni en Halldór hélt áfram að koma á óvart eins og hann hefur raunar gert í allan vetur. Lárus Dagur Pálsson, fyrirliði Tindastóls, fékk loks skotin sín til að rata rétta leið á ný en því miður fyrir lið Tindastóls var Lárus sá eini sem eitthvað lét að sér kveða í langskotunum að þessu sinni. Adonis Pomones var firnas- terkur í leiknum á laugardag og það var greinilegt að hann hafði notað mesta púðrið í þann leik og virkaði hann þreyttur er líða tók á leikinn. Ungu leikmennirnir Axel Kárason og Friðrik Hreinsson sem komu Njarðvíkingum í opna skjöldu á laugardag fengu ekki frið til að at- hafna sig að þessu sinni og komst hvorugur á blað. Í hálfleik var stað- an 45:48, gestunum í vil, en tvær þriggja stiga körfur á fyrstu tveim- ur mínútum seinni hálfleiks var upphafið að skorpu Njarðvíkinga sem tók ekki enda fyrr en leiknum lauk. Það var kannski táknrænt fyr- ir kynslóðaskiptin í liði Njarðvík- inga að Teitur Örlygsson skoraði þá fyrri og Logi Gunnarsson þá seinni. Munurinn á liðunum var nú skyndi- lega átta stig og heimamönnum gekk erfiðlega að skora á þessum kafla. Logi skoraði sex stig í lok þriðja leikhluta og sýndi á þeim kafla að hann hefur fjölbreyttan sóknarleik í pokahorninu og má segja að Logi hafi þar með gert út um vonir heimamanna. Þegar mun- urinn jókst tóku leikmenn Tinda- stóls við að skjóta ótímabærum þriggja stiga skotum og ekkert þeirra rataði rétta leið. Miðherjar liðsins, Michail Antropov og Shawn Myers, fengu úr litlu að moða undir körfunni en þeir áttu greiða leið að körfunni þar sem Friðrik og Han- sen voru báðir komnir með 4 villur. Leikaðferð Njarðvíkinga gekk full- komlega upp og varnarleikur liðsins var með besta móti. Brenton Birm- ingham átti góðan leik að venju og tók af skarið þegar á þurfti en vissi nákvæmlega hverjir áttu að fá bolt- ann þegar hart var sótt að honum. Hansen og Friðrik Stefánsson voru lítt áberandi í sóknarleiknum en nýttu þau færi sem þeir fengu vel og styrkur Njarðvíkinga að þessu sinni var að finna nýjar leiðir að körfu andstæðinganna þegar búið var að stoppa í götin sem gáfust vel áður. Styrkur Njarðvíkinga var augljós í gærkvöld. Þegar liðið leikur eins og það gerði á köflum í leiknum er vandfundin aðferð til að stöðva þá. Logi var frábær, Brenton heilinn á bak við sóknarleikinn, Friðrik Stef- ánsson og Hansen léku varnarleik- inn af festu og Teitur skoraði þegar á þurfti ásamt Halldóri. Leikmenn Tindastóls geta borið höfuðið hátt eftir þessa úrslitakeppni. Liðið óx með hverju verkefninu en erfiðlega gekk að finna taktinn eftir erfiða undanúrslitaleiki gegn Keflavík. Skyttur liðsins áttu erfitt með að stilla miðið gegn Njarðvík og við það var auðveldara um vik fyrir Njarðvíkinga að herða vörnina gegn þeirra besta manni, Myers. Kristinn Friðriksson lék ekki með liðinu í gærkvöld vegna veikinda og munar um minna. Valur Ingimundarson, þjálfari liðsins, er með góðan efnivið í höndunum og verði kjarninn úr þessu liði áfram á Sauðárkróki næsta vetur er ekki loku fyrir það skotið að liðið verði á sömu slóðum næsta vor í úrslitum. Hefð og kunnátta Morgunblaðið/Golli Teitur Örlygsson og Brenton Birmingham fallast í faðma þegar Íslandsmeistaratitillinn var í höfn. NJARÐVÍKINGAR eru ein stór fjölskylda innan sem utan vallar þeg- ar mest á reynir á körfuknattleiksvellinum. Eflaust er ellefti Ís- landsmeistarafáninn nú þegar tilbúinn og bíður þess eins að vera hengdur upp í „ljónagryfjunni“ í Njarðvík, og á eftir að minna önnur lið á að velgengni liðsins er ekki afurð skammtímaverkefnis. Bræð- ur og frændur eru í liði Njarðvíkinga innan vallar sem utan, tæplega helmingur liðsins vinnur á sama vinnustaðnum og þeir leikmenn sem fengnir voru til liðsins voru vandlega valdir til að falla að nýju fjölskyldunni. Og ekki má gleyma að Logi Gunnarsson fékk að hlaupa af sér hornin í vetur dyggilega studdur af þeim sem eldri eru. Þegar mest á reyndi í rimmu liðsins við lið Tindastóls frá Sauð- árkróki um Íslandsmeistaratitlinn var hefðin og kunnáttan í liði með Njarðvíkingum og þrátt fyrir að tuttugu og fimm stig hafi skilið liðin að í gærkvöld, 96:71, geta Skagfirðingar horft jákvæðir fram á veg- inn eftir eldskírnina í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar Ellefti Íslandsmeistaratitill Njarðvíkinga í höfn Við fórum út úr sókninni okkar ísíðari hluta leiksins, Njarðvík- ingar hittu úr öllum opnu skotunum sínum og þeir fundu líka svar við svæð- isvörninni okkar, sem hefur reynst okkur vel en núna gekk hún ekki upp. Þeir voru sterk- ari á lokasprettinum og við vorum einfaldlega orðnir orkulausir,“ sagði Lárus Dagur Pálsson, fyrir- liði Tindastóls, að leikslokum. „Hins vegar hefur liðið ekki áður náð svona langt og í því eru firna- sterkir persónuleikar. Þessi reynslusjóður sem við höfum nú afl- að okkur mun nýtast vel þótt síðar verði. Við höfum gert marga frábæra hluti sem við höfum ekki gert áður og ég tel að við getum borið höfuðið hátt. Hér eru einstakir áhorfendur og stuðningsmenn og það næst hvergi önnur eins stemmning og á þessum heimavelli okkar. Heimavöllurinn og áhorfendurnir eru stór hluti af velgengni okkar í vetur,“ sagði Lárus Dagur. Svavar Birgisson tók undir orð Lárusar en bætti við að það hefði vissulega vantað býsna mikið þegar reynslumesti maður Tindastóls, Kristinn Friðriksson, lá í flensu. „Við hefðum virkilega þurft á reynslu hans og baráttu að halda og það er ekkert gefið hvernig farið hefði ef hann hefði verið með. Við stóðum í leikmönnum Njarðvíkur fram í þriðja leikhluta, en þá sagði reynslan til sín. Þeir voru sterkari í lokin, spiluðu fína vörn og gerðu fá mistök. En það er nú svona; það eru ekki allar brekkurnar niðurímóti og við töpuðum núna,“ sagði Svavar, en þeir félagarnir Svavar og Lárus voru sammála um það að í heild hefði þetta tímabil verið feikilega skemmtilegt. „Við erum í öðru sæti í deildar- keppninni og Íslandsmótinu og komumst í fjögurra liða úrslit í Kjörísbikarnum þannig að í heild erum við bara sáttir við árangurinn. Þetta eru bara endalok á einu keppnistímabili, það byrjar annað í haust,“ sögðu þeir Lárus og Svavar. Björn Björnsson skrifar Berum höfuðið hátt  LOGI Gunnarsson og Ragnar Ragnarsson voru einu leikmenn Njarðvíkur sem höfðu áður orðið meistarar með liðinu, fyrir utan þjálf- arana, Teit Örlygsson og Friðrik Ragnarsson. Þeir Logi og Ragnar voru í sigurliði Njarðvíkur 1998.  GUNNAR Þorvarðarson, faðir Loga, var mættur á Krókinn í gær- kvöld og fagnaði innilega ásamt dyggu stuðningsliði félagsins. Gunn- ar varð Íslandsmeistari með Njarð- vík fimm fyrstu árin sem félagið hampaði titlinum, 1981–1986.  UM 70 Njarðvíkingar voru á leikn- um á Sauðárkróki í gærkvöld en ein full rúta af stuðningsmönnum fór norður og talsvert af einkabílum. Þeir fögnuðu að vonum gífurlega og voru byrjaðir að stíga sigurdansinn þegar 3–4 mínútur voru til leiksloka og ljóst hvert stefndi.  ÁHORFENDUR á leiknum voru rúmlega eitt þúsund og aldrei hafa jafn margir verið samankomnir á leik í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Þeir studdu sína menn mjög vel að vanda en sýndu jafnframt mjög íþrótta- mannslega framkomu í leikslok og hylltu Njarðvíkinga þegar þeir tóku við Íslandsbikarnum.  KÁRI Marísson, aldursforseti úr- valsdeildarinnar, sem verður 49 ára á þessu ári, var í leikmannahópi Tinda- stóls í tveimur síðustu leikjunum í úr- slitakeppninni. Hann tók við silfur- verðlaununum í gærkvöld sem eru fyrstu verðlaun hans fyrir toppsæti á Íslandsmóti á löngum ferli.  KÁRI lék með KFR og Val og síðan með Njarðvík en var farinn þaðan áð- ur en Njarðvíkingar urðu fyrst meist- arar, 1981. „Ég byggði þetta upp hjá þeim,“ sagði Kári eftir leikinn, hæst- ánægður með silfurpeninginn.  KRISTINN Friðriksson lék ekki með Tindastóli í gærkvöld vegna veikinda og missti því af tveimur síð- ari leikjunum við Njarðvík en hann fékk slæma flensu.  TINDASTÓLSMENN vöknuðu upp við vondan draum um páskana þegar í ljós kom að dvalarleyfi Antropovs á Íslandi rann út á páska- dag, 15. apríl. Ekki hafði verið gert ráð fyrir að liðið kæmist svona langt þegar gengið var frá pappírum hans í haust. Þeir höfðu samband við útlend- ingaeftirlitið, en þurftu ekki að fara út í neina skriffinnsku til að halda hon- um á landinu út vikuna.  HALLDÓR Halldórsson, formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls, og Jóhann Ingólfsson, einn harðasti stuðningsmaður liðsins, höfðu heldur ekki gert ráð fyrir svona góðu gengi liðsins. Þeir eru ásamt eiginkonum sínum í átta manna matarklúbbi sem fer til Tyrklands í dag í átta daga ferð en hún var pöntuð með margra mán- aða fyrirvara. Halldór og Jóhann voru að vonum óstyrkir yfir því að þurfa að seinka brottför sinni, ef um fimmta leik yrði að ræða. FÓLK Við vorum nánast með sjálfstýr-inguna í gangi þegar kom fram í 3. leikhluta. Það hjálpaði okkur þegar mest á reyndi hve skýr hlutverka- skiptingin er í lið- inu, allt frá leik- mönnum í byrjunarliðinu og til þeirra sem leika minna. Fram eftir vetri gekk okkur ekki sem skyldi að vinna saman sem liðsheild en eftir áramót hefur þetta gengið mun betur. Þeg- ar líða tók á leikinnn var eins og all- ir leikmenn Tindastóls ætluðu sér að vera hetja liðsins og ég hefði gef- ið knöttinn meira undir körfuna á stóru leikmennina í liðinu þar sem Friðrik Stefánsson og Jes V. Han- sen áttu í villuvandræðum,“ sagði Birmingham. Aðspurður um hlutverk sitt sem fyrirliði liðsins sagði Birmingham að hann hefði reynt að hvetja menn til dáða þegar á þurfti. „Það sem er veikleiki okkar er að við gleymum okkur oft í varnarleiknum og förum að trúa því að sóknarleikurinn dugi til sigurs. Í leiknum gegn Tindastól á laugardag skoruðum við 93 stig og venjulega ætti það að duga en á sama tíma var vörnin léleg. Við átt- um við þetta vandamál að stríða í fyrri umferð deildarkeppninnar. Ég hef reynt að skerpa aðeins á því sem þjálfararnir og liðstjórinn segja og það er allt og sumt,“ sagði Birm- ingham. Birmingham vildi einnig minnast á þátt landsliðsmiðherjans Friðriks Stefánssonar, sem sneri aftur til Njarðvíkur eftir skamma dvöl sem atvinnumaður í Finnlandi. „Friðrik breytti miklu í leik okk- ar. Hann er mikill nagli og berst eins og ljón undir körfunni. Jes V. Hansen og Friðrik eru mjög ólíkir leikmenn og þeir bæta veikleika hvor annars fullkomlega upp,“ sagði Birmingham. Þegar reynt var að spyrja fyrir- liðan um framhaldið og hvort hann hygðist verða áfram í herbúðum Njarðvíkinga sagði Birmingham að næstu dagar yrðu notaðir til að fagna titlinum. „Ég sótti um ís- lenskan ríkisborgararétt fyrr í vet- ur og sú umsókn er enn í gildi en hvað framtíðina varðar er allt óráð- ið og ég ætla ekki að hafa áhyggjur af því næstu daga,“ sagði Birming- ham. Sjálfstýringin sett í gang BRENTON Birmingham er fyr- irliði Njarðvíkinga og fagnaði Ís- landsmeistaratitli í fyrsta sinn í gærkvöld. Bandaríkjamaðurinn var potturinn og pannan í sókn- arleik liðsins í hlutverki leik- stjórnanda og að leik loknum var hlutverkaskipting leik- manna Njarðvíkurliðsins honum efst í huga. Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.