Morgunblaðið - 18.04.2001, Síða 8
PÉTUR Hafþór Ragnarsson, 17
ára íslenskur piltur, varð á dögunum
sænskur unglingameistari í körfu-
knattleik með liði sínu, KFUM Capit-
als frá Stokkhólmi. Pétur Hafþór er
1,95 m á hæð og hefur verið búsettur
í Svíþjóð frá ungaaldri.
GUNNAR Andrésson skoraði 7
mörk, þar af þrjú úr vítakasti, þegar
lið hans Amicitia frá Zürich vann
BSV Bern 26:22 í svissnesku deild-
arkeppninni í handknattleik á dög-
unum. Gunnar er sem fyrr marka-
hæstur í næstefstu deild með 94
mörk í 11 leikjum. Amicitia er nú í 5.
sæti deildarinnar með 12 stig og á
þrjá leiki eftir.
ARNAR Pétursson skoraði 5 mörk
fyrir Merano í sínum fyrsta leik í
ítölsku 1. deildinni í handknattleik
um helgina en eins og Morgunblaðið
greindi frá á dögunum mun Arnar
leika með Merano út leiktíðina.
Mörk Arnars dugðu skammt því
Merano tapaði fyrir Al.Pi.Prato
28:27
MERANO er í 6. sæti deildarinnar
þegar einni umferð er ólokið af deild-
arkeppninni en síðan tekur við úr-
slitakeppni átta efstu liða.
ÞÝSKA handknattleikssambandið
hefur úrskurðað að Wetzlar og Ess-
en skuli mætast að nýju í 8-liða úr-
slitum þýsku bikarkeppninnar.
ESSEN vann leik liðanna á dög-
unum, 34:33, eftir framlengingu og
þar skoraði Patrekur Jóhannesson
11 mörk fyrir Essen.
WETZLAR kærði leikinn á þeim
forsendum að leikmenn Essen hefðu
átt að hefja framlengingu einum
manni færri, og lögðu fram mynd-
band því til sönnunar. Kristof
Szargy, aðstoðarþjálfari Essen, seg-
ir að félagið muni kæra þennan úr-
skurð.
WETZLAR hefur samið við júgó-
slavnesku stórskyttuna Nebojsa
Golic til tveggja ára. Hann á að leysa
af hólmi Markus Baur sem er á för-
um til Lemgo eftir tímabilið. Golic er
24 ára og leikur með Sintelon í
heimalandi sínu.
SKJERN missti endanlega af
möguleikanum á að komast í úrslita-
keppnina um danska meistaratitilinn
í handknattleik þegar liðið gerði
jafntefli, 23:23, við Team Helsinge í
næstsíðustu umferð. Aron Krist-
jánsson skoraði 2 mörk fyrir Skjern í
leiknum en lið hans er í sjötta sæti
fyrir lokaumferðina. Bjerringbro, lið
Jóhanns Samúelssonar, er í 5. sæti
en á heldur ekki möguleika.
HELGI Jónas Guðfinnsson og
félagar í Ieper féllu út í undanúrslit-
um belgísku bikarkeppninnar í
körfuknattleik um páskana þegar
þeir töpuðu fyrir Oostende, 79:63.
Helgi lék í tæpan stundarfjórðung
og skoraði 8 stig.
COLIN Pluck, enski varnarmað-
urinn sem lék með knattspyrnuliði
KA síðasta sumar í 1. deild, kemur
aftur til félagsins. Pluck, sem leikur
með enska utandeildaliðinu Dover,
er væntanlegur til Akureyrar
snemma í maí ásamt landa sínum,
Dean Martin, sem spilar með Stev-
enage í sömu deild en Martin hefur
leikið með KA undanfarin ár.
GUÐNI Rúnar Helgason skoraði
síðara mark Hönefoss í 2:1 sigri á
Raufoss í leik norsku 1. deildarlið-
anna á mánudag en þetta var loka-
leikur beggja fyrir deildakeppnina.
Haraldur Ingólfsson lék með Rau-
foss en ekki Kristinn Hafliðason.
PETER Schmeichel, fyrrverandi
leikmaður Man. Utd., mun leika
kveðjuleik sinn í markinu hjá Dön-
um, er þeir mæta Slóvaníu í vináttu-
landsleik í Kaupmannahöfn í næstu
viku. Schmeichel, sem er 37 ára,
leika þá sinn 129. landsleik. Hann er
samningsbundinn Sporting Lissa-
bon eitt keppnistímabil til viðbótar.
FÓLK
Nokkurrar taugaspennu gætti íupphafi leiks og fyrstu fimm
sóknirnar misfórust. Mosfellingar
spiluðu 5/1 vörn og
tóku Guðjón Val Sig-
urðsson úr umferð
en KA spilaði 3/3
vörn. Sú vörn hefur
þrælvirkað hjá KA nema á móti
Mosfellingum en eins og margir
muna þá sigraði Afturelding KA með
sjö marka mun síðast þegar liðin
mættust að Varmá. Þá náðu Mosfell-
ingar að komast í gegnum hreyfan-
lega KA-vörnina en á upphafsmín-
útunum í gær var annað uppi á
teningnum. Þeim gekk mjög illa og
Bjarki Sigurðsson náði þó tveimur
mörkum með þrumuskotum. Eftir
það lokuðu KA menn á hann og
stungu hreinlega af. Það skipti engu
máli hvað Mosfellingar gerðu. Sókn-
arleikurinn var stirður og hvað eftir
annað komust heimamenn í hraða-
upphlaup sem gáfu mörk. Í stöðunni
9:3 fóru hlutirnir að breytast. Alexei
Trúfan kom inn í vörn gestanna og
þeir breytti yfir í 6/0 vörn. Það virk-
aði og KA-menn lentu í vandræðum.
Smám saman tókst Mosfellingum að
saxa á forskotið. Sóknirnar urðu
markvissari og fleiri menn fóru að
láta að sér kveða. Náðu gestirnir að
minka muninn í tvö mörk en KA átti
síðasta mark fyrri hálfleiks og stað-
an í leikhléinu var 13:10.
Seinni hálfleikinn hófu KA-menn
með glæsibrag og skoruðu tvö fyrstu
mörkin.
Eftir það var ávallt á brattann að
sækja hjá Mosfellingum en barátta
þeirra var þó til fyrirmyndar. Þeir
héldu í við heimamenn en munurinn
var ávallt tvö til fjögur mörk. Gest-
irnir reyndu ýmislegt í varnarleikn-
um en allt kom fyrir ekki. Það var
en Heimir Örn og Hörður Flóki
markvörður sýndu oft á tíðum snilld-
artakta. Fyrirliðinn Sævar Árnason
nýtti færin sín einstaklega vel og Er-
lingur Kristjánsson batt vörnina
saman þær sex mínútur sem KA-
menn voru einum færri, svo vel að
leikmenn Aftureldingar skoruðu
ekki eitt einasta mark, manni fleiri.
Þrír menn báru uppi sóknarleik
Mosfellinga. Bjarki Sigurðsson var
langbestur og á hann fullt erindi í
landsliðið á ný ef hann kærir sig um.
Hinir tveir, þeir Páll Þórólfsson og
Savukynas Gintaras, byrjuðu illa en
áttu síðan skínandi leik. Vörnin var
sterk eftir örðugleika í upphafi.
Trúfan hafði greinilega góð áhrif en
Galkauskas Gintas fór þó fremstur í
flokki. Hann var mjög öflugur en fór
þó í tvígang fullgeyst og lágu KA-
menn óvígir á eftir, fyrst Heimir og
síðan Guðjón Valur sem fékk eflaust
eina verstu byltu sem sést hefur í
handboltanum lengi. Ætlaði þá allt
um koll að keyra í húsinu og var
Gintas heppinn að fá ekki rautt
spjald fyrir vikið.
Nýliðinn Arnór átti
síðasta orðið fyrir KA
Morgunblaðið/Skapti
Andríus Stelmokas, línumaður KA, grípur knöttinn á lofti og skorar með lúmsku leifturskoti aftur
fyrir sig. Mosfellingarnir eru, frá vinstri, Páll Þórólfsson, Alexej Trúfan og Þorkell Guðbrandsson.
ÞAÐ var rífandi stemmning og
mikil spenna á Akureyri í gær-
kveldi þegar deildarmeistarar
KA lögðu Aftureldingu í fyrsta
leik undanúrslitakeppninnar.
KA-menn höfðu frumkvæðið all-
an leikinn og forysta þeirra var
lengstum þrjú til fjögur mörk.
Mosfellingar náðu að minnka
muninn tvívegis í eitt mark á
lokakaflanum en lengra komust
þeir ekki. Arnór Atlason, hinn
16 ára gamli leikmaður KA, átti
síðasta orðið í leiknum og gull-
tryggði sigurinn á lokasekúnd-
unum. Lokatölur 27:25.
Einar
Sigtryggsson
skrifar
! !
"
#
$
%
&
'
%%
#
%
"
(
&'
#%
&)
*+
+
(
',
#&
&
-(
Hörður Flóki Ólafsson, KA:
14/1 (3 til mótherja); 4 langskot,
3 (3) af línu, 3 eftir gegnumbrot,
2 úr horni, 1 hraðaupphlaup, 1
vítakast.
Reynir Þór Reynisson,
UMFA: 10 (3 til mótherja); 7 (2)
langskot, 2 (1) úr horni, 1 af
línu.
Ólafur H. Gíslason, UMFA: 1
vítakast.
Þannig vörðu þeir
Stórtap á móti
Grikkjum
Íslenska ungmennalandsliðið íhandknattleik karla, skipað leik-
mönnum 20 ára og yngri, tapaði öll-
um þremur leikjum sínum í undan-
keppni heimsmeistaramótsins en
leikið var í Ungverjalandi um páska-
helgina. Það tapaði 24:23 fyrir Rúss-
um, 28:22 á móti heimamönnum og
loks 24:14 fyrir Grikkjum, en síðast-
nefnda þjóðin hefur ekki verið í hópi
fremstu þjóða Evrópu í handknatt-
leik. „Leikurinn gegn Grikkjum var
fyrir neðan allar hellur. Mína menn
skorti grimmd, áhuginn var lítill og
piltarnir voru hræddir við að beita
sér,“ sagði Einar Þorvarðarson,
þjálfari ungmennalandsliðsins, um
leikinn við Grikki. „Mitt lið var eins
og sprungin blaðra allan leikinn við
Grikki, einbeitingin var ekki fyrir
hendi og áhuginn afar takmarkað-
ur,“ sagði Einar ennfremur.
Hann sagði íslenska liðið hafa leik-
ið vel gegn Rússum og verið óheppið
að ná ekki jafntefli, en misheppnað
vítakast undir lok leiksins gerði það
að verkum að Rússar unnu með einu
marki, 24:23. Þá var leikurinn við
Ungverja allþokkalegur þrátt fyrir
tap, 28:22. Ungverjar unnu síðan
Rússa 31:26 og unnu riðilinn. Rússar
lögðu síðan Grikki, 32:23, og Ung-
verjar sigruðu Grikki, 33:28.
Stúlkurnar í öðru sæti
Íslenska ungmennalandsliði
kvenna gekk mun betur í undan-
keppni sem háð var í Danmörku um
nýliðna helgi. Liðið vann tvo af þrem-
ur leikjum sínum og hafnaði í öðru
sæti. Það nægði eigi að síður ekki til
þess að komast áfram í keppninni.
Ísland lagði Moldavíu, 32:17, og Ítal-
íu, 24:20, en tapaði fyrir Danmörku,
24:16. Danir stóðu uppi sem sigur-
vegarar í riðlinum, þeir unnu alla
sína leiki. Ítalía varð í þriðja sæti eft-
ir að hafa unnið Moldavíu, 38:32.
ekki fyrr en Trúfan kom aftur í vörn-
ina tíu mínútum fyrir leikslok að
Mosfellingar fóru að bíta almenni-
lega frá sér. KA-menn misnotuðu
þrjár sóknir á stuttum kafla og eftir
hraðaupphlaup minnkaði Aftureld-
ing muninn í eitt mark. Þá lifðu tvær
og hálf mínúta af leiknum og áhorf-
endum leist ekki á blikuna. Heimir
Örn Árnason skoraði þá fyrir KA
með þrumuskoti í slána og inn. Gint-
as átti síðan skot aftur fyrir sig sem
hafnaði í stönginni. KA-menn mis-
notuðu síðan næstu sókn sína og Aft-
urelding skoraði úr hraðaupphlaupi
þegar tuttugu sekúndur voru eftir.
Arnór Atlason skoraði síðan í blálok-
in og tryggði sigur KA.
Atli Hilmarsson var ánægður með
sigurinn og ekki síst með frammi-
stöðu sonarins en eins og flestir vita
sem fylgjast með handboltanum er
áðurnefndur Arnór sonur Atla. „Það
var gott að vinna fyrsta leik, ekki síst
vegna þess að við lékum ekki eins og
við getum best,“ sagði Atli.
Guðjón Valur var tekinn úr um-
ferð nær allan leikinn. Hann átti þó
nokkrar stoðsendingar sem gáfu
mörk en hinir sáu um að skora. Sigur
KA var nokkuð tæpur og liðið sýndi
örlítið kæruleysi á lokakaflanum.
Andreas Stelmokas var hreint frá-
bær í leiknum jafnt í vörn sem sókn