Morgunblaðið - 15.05.2001, Page 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2001 21
„ÞETTA er sýnishorn af því sem fólk
er að fást við,“ sagði Hjörtur Þór-
arinsson, einn af forsvarsmönnum
Félags eldri borgara, þegar hann
lýsti handverkssýningu félagsins
opnaða. „Þetta er ánægjusýning,“
sagði Hjörtur og vísaði til þess að við-
fangsefnin veittu fólki ánægju og list-
ræna útrás.
Handverkssýningu Félags eldri
borgara á Selfossi lauk á sunnudag í
Safnahúsinu við Tryggvagötu.Á sýn-
ingunni var fjölbreytt úrval listmuna
sem fólk hefur unnið í vetur en mjög
mikil starfsemi er hjá félaginu. Sýn-
ingin var haldin í tengslum við 20 ára
afmæli félagsins og 25 árum eftir að
undirbúningur formlegs félagsstarfs
aldraðra hófst á Selfossi. Markmiðið
með sýningunni var að birta áhorf-
endum sýnishorn af verkefnum vetr-
arins og fjölbreytni handverks eldri
borgara á Selfossi.
Félagsstarf eldri borgara má rekja
til ársins 1976 en þá hófust formlegar
umræður um slíkt starf sem sam-
félagsverkefni sveitarfélagsins.
Styrktarfélag aldraðra var stofnað
1980 og nafni þess síðar breytt í
Félag eldri borgara, Selfossi.
Strax á þessum árum var farið að
sinna ýmiss konar föndurvinnu og
handmennt og þróaðist þessi starf-
semi smátt og smátt.
Í lok fréttatilkynningar um sýn-
inguna er þessi vísa eftir Hjört Þór-
arinsson:
Hugljúf vist við okkar íð
oft var hist í vetur.
Handbragð list og hugarsmíð
hér er rist í letur.
Vetrarstarf eldri
borgara á sýningu
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Undirbúningshópur handverkssýningar eldri borgara á Selfossi.
Selfoss
Í TILEFNI 50 ára afmælis byggð-
ar í Þorlákshöfn var sett upp í
Menningar- og stjórnsýsluhúsinu
sýningin Alþýðulist í Þorlákshöfn.
Sýningin var mjög fjölbreytt og
lauk henni nú á sunnudaginn. Öll
verk á sýningunni tengdust Þor-
lákshöfn.
Margir merkilegir hlutir voru á
sýningunni, svo sem málverk, ljós-
myndir, listmunir margskonar auk
handverks eftir unga sem aldna.
Það vekur furðu margra hversu
mikið og fjölbreytt tómstundastarf
er unnið í Þorlákshöfn, en margir
hafa það á tilfinningunni að þar geri
fólk lítið annað en að vinna og sofa.
Hápunktur afmælisársins verður
á Þorláksvöku, sem tengjast mun
sjómannadeginum, 8. til 11. júní,
síðan verða Hafnardagarnir 9. til
12. ágúst. Auk þessara viðburða
verður margt gert til að minnast
tímamótanna og nægir þar að nefna
ýmsa viðburði tengda tónlist, íþrótt-
um og fleira.
Fjölbreytt listasýning
Þorlákshöfn
Alþýðulist í tilefni 50 ára byggðar
SKEMMTIKVÖLD var haldið þar
sem söngvarar frá Eskifirði og
Reyðarfirði komu saman og sungu
lög Magnúsar Eiríkssonar, og var
þetta hin besta skemmtun. Þarna
stigu margir sín fyrstu spor á sviði
og vonandi ekki þau síðustu. Að
þessari skemmtun stóðu þau Daníel
Arason, hljómsveitarstjóri, Rut
Arnardóttir, framkvæmdastjóri
skemmtunarinnar, Anna Sævars-
dóttir og Sverrir Ágústsson kokkar.
Lög Magnúsar
Eiríkssonar sungin
Eskifjörður
Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson