Morgunblaðið - 15.05.2001, Page 24
VIÐSKIPTI
24 ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
BÁTASMIÐJAN Trefjar í Hafnar-
firði afgreiddi fyrir skömmu Cleo-
patra-bát til skoskrar útgerðar.
Þetta er annar báturinn sem Trefjar
afgreiða til Skotlands á þessu ári.
Kaupandi bátsins er skoskt útgerð-
arfélag, Philip Buchan Ltd. Philip
Buchan skipstjóri er í forsvari fyrir
fyrirtækið. Báturinn hefur hlotið
nafnið Spes Firma PD-397 sem þýðir
„Vonin“. Spes Firma er af gerðinni
Cleopatra 33, 10 metra langur og
mælist 10 brúttótonn.
Báturinn verður gerð út frá Pet-
erhead á austurströnd Skotlands.
Hann er sérútbúinn til krabba- og
humarveiða með gildrum, ásamt því
að vera útbúinn til netaveiða. Í lest
bátsins er rými fyrir tólf 380 lítra
fiskikör en lestin er einnig útbúin
súrefniskerfi sem gerir kleift að
halda krabba og humri lifandi um
borð.
Í lúkar er svefnpláss fyrir 3 ásamt
eldunaraðstöðu og salerni. Aðalvél
bátsins er af gerðinni Caterpillar og
er 450 hestöfl. Siglingatæki eru af
gerðinni Furuno. Báturinn er einnig
útbúinn með löndunarbúnaði.
Reiknað er með að báturinn hefji
veiðar á Peterhead-svæðinu eftir
miðjan mars.
Philip Buchan skipstjóri við bátinn sem fékk nafnið Spes Firma PD-397.
Cleopatra 33 til Peter-
head í Skotlandi
VINNSLA er hafin á ný í fisk-
iðjuveri Síldarvinnslunnar hf. í
Neskaupstað eftir rúmlega fjög-
urra vikna vinnustöðvun vegna
verkfalls sjómanna. Færeysku
ísfisktogararnir Gorpur og
Skrápur lönduðu alls um 80 tonn-
um af fiski, aðallega ufsa en einn-
ig þorski og karfa í Neskaupstað
í gær. Gert er ráð fyrir að það
taki þrjá til fjóra daga að vinna
aflann.
Klara Sveinsdóttir, Hulda Viðarsdóttir og Dagný Gunnarsdóttir
virðast ánægðar með að vera komnar til starfa á nýjan leik.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Vinnslustöðvun lokið
HVALVEIÐIVERTÍÐ Norðmanna
hófst í gær og gera þeir sér vonir um
að veiða 549 hrefnur eins og kvótinn
segir til um, en í fyrra settu þeir
markið á 589 hrefnur. Á liðnu ári
fengu þeir 10 aura norska, um eina
krónu, fyrir kílóið af eftirsóttasta
spikinu en nú geta þeir fengið sem
samsvarar um 570 kr. og hefur af-
nám útflutningsbannsins haft þessi
áhrif á verðið.
Þetta háa verð er háð því að öllum
skilyrðum eins og DNA-prófum og
fleiru sé fullnægt en eftir á að ganga
frá þeim. Á meðan hafa hagsmuna-
samtök komist að samkomulagi um
lágmarksverð og aukagreiðslur til
veiðimanna þegar að útflutningi
kemur. Lágmarksverð fyrir eftir-
sóttasta spikið er sjö norskar krónur
fyrir kílóið en þegar útflutningur
hefst fá veiðimennirnir 50 norskar
krónur að auki fyrir kílóið. Áður
höfðu menn samið um að lágmarks-
verðið fyrir hvalkjöt yrði 30 norskar
krónur fyrir kílóið.
Vegna lágs verðs í fyrra var
stórum hluta spiksins fleygt í sjóinn
en nú endurspeglar verðið vænting-
ar um góða sölu, fyrst og fremst til
Japans.
DNA-sýni eru í rannsókn í Lond-
on og þegar niðurstöður liggja fyrir
er ekkert að vanbúnaði, að sögn pró-
fessors Lars Wallöe, ráðgjafa
norsku ríkisstjórnarinnar varðandi
sjávarspendýr. Hann gerir ráð fyrir
að málið liggi fyrir innan skamms.
Þegar er búið að veiða 10 hrefnur
og er stutt í að nýtt kjöt verði í búð-
um í Noregi. Útflytjendur vilja fá að
flytja út hvalkjöt og spik sem fyrst
en miklar birgðir eru til af spiki og
vilja þeir helst ekki þurfa að frysta
meira. Japönsku kaupendurnir bíða
líka spenntir og eru tilbúnir að taka
þátt í pökkuninni strax og niðurstöð-
ur umræddra rannsókna liggja fyrir.
Hvalveiðar Norðmanna byrjaðar
Verðið hefur
margfaldast
Ósló. Morgunblaðið.
Í GÆÐAMATI Ríkiskaupa fyrir
nýtt upplýsingakerfi ríkisins fékk
SAP-kerfi Nýherja einkunnina 9,4
og Oracle-kerfi Skýrr 9,1 í ein-
kunn. Þessi tvö kerfi hafa verið að
bítast á erlendum mörkuðum á síð-
ustu misserum og nú virðist röðin
komin að Íslandi. Tilboð Skýrr nú-
virt til 10 ára hljóðar upp á 1.122
milljónir króna en tilboð Nýherja
upp á 1.793 milljónir. Rekstur kerf-
isins verður síðan boðinn út í
haust. Eftirfarandi atriði eru höfð
til hliðsjónar við mat á tilboðum,
raðað eftir vægi: Gæðamatið sem
nú hefur fengist niðurstaða í, verð,
mat á hæfni bjóðenda, þjónusta
þar með talið tímagjald í viðbót-
arverkefnum og gæði og úrval
aukakerfa sem í boði eru.
Verðmunur um 670 milljónir
Hreinn Jakobsson, forstjóri
Skýrr, segir að öll vinnubrögð í
kringum útboðið hafi verið mjög
fagleg. Skýrr hafi lagt hart að sér
við að bjóða ríkinu eins hagstætt
tilboð og mögulegt er. Lausnirnar
hafi verið metnar með tilliti til
þarfa ríkisins og séu í samræmi við
kröfulýsingu sem gefin var út í
sambandi við útboðið. Ríkið hafi
löngum verið einn traustasti og
helsti viðskiptavinur fyrirtækisins
og Skýrr hafi viljað bjóða þessum
viðskiptavini hagkvæma og ódýra
lausn. Reynsla og þekking Skýrr í
að vinna fyrir ríkið sé mjög mikil
og fyrirtækið þekki því þennan við-
skiptavin og þarfir hans mjög vel.
Oracle-kerfið sé nýtískulegt, bygg-
ist að mörgu leyti á hugmynda-
fræði Netsins og lögð sé áhersla á
að nýta kosti Netsins eins og
mögulegt er. Nú þegar hefur Skýrr
sett upp Oracle-kerfi hjá Reykja-
víkurborg og Varnarliðinu, en þar
eru um 11 þúsund launþegar.
Hreinn segir að munurinn á tilboð-
unum sé mjög mikill. Munurinn á
gæðum lausna sé einungis um 3%
en staðreyndin er að samkvæmt
útreikningum Ríkiskaupa nemi
verðmunurinn samtals 670 milljón-
um eða um 60%.
Mikil reynsla í
uppsetningu SAP
Kristján Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri hugbúnaðar- og ráð-
gjafarsviðs Nýherja segir að fyr-
irtækið hafi lagt mikla áherslu á að
bregðast við kröfum ríkisins um að
tryggja gæði uppsetningar. Tilboð
Nýherja sé mjög vandað og stór
hluti af tilboðinu er kostnaður sem
tengist kennslu og þjálfun. Til að
tryggja gæði uppsetningar er sér-
stakt gæðaráð og gæðastjóri sem
mun halda utan um uppsetningu.
Nýherji hafi á að skipa mjög hæf-
um hópi sérfræðinga sem hafi
mikla reynslu af uppsetningu SAP-
kerfa. Allir þessir þættir muni
skila sér í mun öruggari og betri
uppsetningu en ella. Kristján segir
að Skýrr hafi ekki mikla reynslu af
uppsetningu Oracle-kerfa og því sé
SAP-kerfið mun betri kostur fyrir
ríkið. Nýherji hafi fjögurra ára
reynslu af að setja upp SAP-hug-
búnað hérlendis.
Fyrirtækjunum falið að gera
greiningu á St. Jósefsspítala
Kristján segir að inni í leyfis-
kostnaðinum fyrir notkun á hug-
búnaðinum sé öll mysap.com-svítan
en ekki bara það sem er í kröfulýs-
ingu ríkisins. Ríkið geti því bætt
við og notað önnur kerfi án þess að
borga sérstaklega fyrir leyfin eins
og þyrfti annars að gera. Þar sé
um að ræða hluti eins og eigna-
kerfi, vöruhús gagna, stefnumót-
unarstjórnun og fleira. Kristján
segir að þetta muni vera hagstætt
fyrir ríkið þar sem það sé alveg
ljóst að ríkið muni þurfa á þessum
hlutum að halda í framtíðinni.
Fyrirtækjunum hefur nú verið
falið að gera greiningu á St. Jós-
efsspítala og eiga að skila greining-
arskýrslu og ákveðinni frummynd
af kerfi fyrir stofnunina. Endanlegt
val á hugbúnaði verður tilkynnt í
júní.
Mjótt er á mununum milli kerfa Skýrr og Nýherja
í gæðamati Ríkiskaupa
Valið stendur á milli
Oracle og SAP
ÞUNGINN í veikingu krónunnar í
apríl var það mikill að ólíklegt er að
Seðlabankinn hefði ráðið við ástandið
hefði hann gripið inn í. Þetta segir í
nýútkominni mánaðarskýrslu Lands-
bankans fyrir tímabilið apríl til maí.
„Á hinn bóginn má fullyrða að staða
krónunnar væri mun verri hefði ekki
komið til inngripsaðgerða Seðlabank-
ans frá því að þessar hræringar hóf-
ust í janúar á þessu ári.“
Vandséð að vextir lækki
á næstu misserum
Ein leið til að verja gjaldmiðil falli
er, að því er segir í skýrslunni, að
grípa til aðgerða í vaxtamálum og
hækka skammtímavexti. Talið er að
ekki sé hægt að útiloka að gripið
verði til þess möguleika í ljósi nýlið-
inna atburða á gjaldeyrismarkaði og
vandséð sé að vextir lækki hér að ráði
á næstu misserum. Þó er varað við
því að vaxtahækkanir sem hefðu það
að markmiði að verja krónuna falli
væru í eðli sínu skammvinnar og geti
„gengið til baka komist ró á gengið á
nýjan leik“.
Auka vægi íslensku
krónunnar í fjármögnun
Í skýrslunni segir að flökt í stýri-
vöxtum Seðlabankans komi til með að
aukast í kjölfar þess að verðbólg-
umarkmið var tekið upp enda þurfi að
bregðast við aukinni verðbólgu með
auknu aðhaldi í peningamálum. „Það
er vandséð að hægt verði að ná niður
verðbólgunni án þess að til komi auk-
inn styrkur krónunnar og nær útilok-
að er að treysta á gjaldeyrisforða
Seðlabankans til þess að hafa mark-
tæk áhrif á gengið.“
Ennfremur segir að með upptöku
verðbólgumarkmiðs, afnámi vik-
markanna og floti krónunnar í kjöl-
farið hafi forsendur fyrir erlendri
fjármögnun gjörbreyst og gengis-
flökt aukist umtalsvert. Á endanum
velti fyrirtækin flöktinu út í verðlagið
með neikvæðum áhrifum á verð-
bólgu. „Eina leiðin til þess að draga
úr áhrifum gengisflökts á rekstrar-
afkomuna er að auka vægi íslensku
krónunnar í fjármögnun fyrirtækj-
anna“, segir í skýrslunni. Talið er lík-
legt að einhver fyrirtæki fari þá leið
en það muni valda auknum þrýstingi
á gengi krónunnar þegar til lengdar
lætur.
Mánaðarskýrsla Landsbankans
Ólíklegt að Seðlabankinn
hefði ráðið við ástandið
FORSVARSMENN norska ríkis-
olíufélagsins Statoil hafa staðfest
að áformað er að skrá allt að 25%
hlutabréfa félagsins á markaði 18.
júní nk., í Ósló og New York. Af-
koma Statoil á fyrsta ársfjórðungi
var einnig kynnt í gær og nam
hagnaður eftir skatta um 43 millj-
örðum íslenskra króna, saman-
borið við um 36 milljarða á sama
tíma í fyrra.
Það þykir jákvætt fyrir fyrir-
tækið að geta kynnt betri afkomu
nú en á sama tíma í fyrra, rétt í
undanfara sölu á hlutabréfum og
skráningar. Hærra verð á gasi og
lækkandi framleiðslukostnaður
eru meðal ástæðna sem gefnar
eru fyrir betri afkomu.
Áskriftartímabil hlutafjárút-
boðsins stendur frá 31. maí til 15.
júní fyrir einstaklinga en frá 29.
maí til 15. júní geta stofnanafjár-
festar keypt hlut í fyrirtækinu.
Norski olíu- og orkumálaráðherr-
ann, Olav Akselsen, hefur staðfest
að um einhvers konar afsláttar-
fyrirkomulag verði að ræða og að
hans sögn er mikilvægt að fá
Norðmenn til að taka þátt í útboð-
inu. Verðið mun liggja fyrir 17.
júní.
Góð afkoma Statoil
rétt fyrir skráningu
Ósló. Morgunblaðið.
GENGI íslensku krónunnar veikt-
ist um 0,8% í 13,1 milljarðs við-
skiptum á millibankamarkaði í
gær. Lokagildi vísitölunnar var
135,10 stig en í byrjun dags var
gengið 134,02 stig. Vísitalan sveifl-
aðist töluvert í gær. Lægst fór hún
í 132,10 stig, en hæst í 135,55 stig.
Lækkun vísitölunnar þýðir að
krónan hefur styrkst og hækkun
að hún hefur veikst. Innan dags
hækkaði krónan því mest um 1,4%
en lækkaði mest um 1,1% frá upp-
hafsgildi dagsins. Við lok dags var
gengi bandaríkjadals 99,0 kr. og
evru 86,6 kr.
Krónan
veikist
um 0,8%