Morgunblaðið - 03.08.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.08.2001, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 3 . Á G Ú S T 2 0 0 1 B L A Ð B  MEISTARAR TÍMANS/2  EINKANÚMER: HÚÐFLÚR Á HJÓLUM/3  FELULITIR ENN Í SVIÐSLJÓSINU/4  HVAÐ ER „BLOGG“? VEFLEIÐARAR OG DAGBÆKUR Á NETINU/6  AUÐLESIÐ EFNI/8  GETA svalirstrákar látið sjásig í sterkbleik- um buxum? Já, þeir geta það ef tískuhús á borð við Aquascutum, Bybl- os, Jil Sander og Mosch- ino fá að ráða ferðinni. Í vor og sumar hafa bleik- ir litir verið áberandi á fataslám í herrafata- verslunum hérlendis. Bleikt hefur verið sjaldgæft í fataskápum karla hingað til, ef frá eru taldar fölbleikar skyrtur sem margir karlar klæðast gjarnan undir hefðbundnu dökku jakkafötunum. Að öðru leyti hefur hinn venjulegi ís- lenski meðaljón hingað til verið treg- ur til þess að klæðast áberandi bleik- um fötum – kannski vegna þess að liturinn hefur ríka skírskotun til alls þess sem kvenlegt er og karlmennsk- an sjálf er gjarnan skilgreind sem al- ger andstæða kvenleikans. Börn læra það sem fyrir þeim er haft og viðteknar hugmyndir um hvaða litir hæfi körlum og hvaða litir konum taka sér snemma bólfestu í hugum þeirra. Tengslin milli lita og kynhlutverka eru sérstaklega áber- andi meðal barna á forskólaaldri. Litlar stúlkur elska bleik og rauð föt – litlir strákar forðast hins vegar þessa liti eins og pestina ... eða skyldu það vera foreldrarnir sem ráða ferð? Stelpur í bleikt – strákar í blátt Nýlega mátti lesa umfjöllun um bleiku karlmannatískuna í Style, sem er sérblað Sunday Times og fjallar um hönnun og tísku. Þar kemur fram að peysur og bolir, buxur, jakkar og jafnvel heilu jakkafötin sjáist nú í tískuverslunum í ýmsum bleikum lit- um. Að sögn Style er einnig hægt að fá fylgihluti eins og belti, hálstau og skó í bleikum litbrigðum. Blaðið bendir réttilega á að karlar í dag séu bæði frjálslyndari og áræðnari í lita- vali en kynbræður þeirra voru fyrir 20 árum. Þeir láti síður kreddur og fordóma stjórna því í hvaða liti þeir klæði sig. Þrátt fyrir það má ætla að það sé ekki á færi nema sjóaðra tísku- trölla að klæðast hinum forboðna lit með jafn afgerandi hætti og nú er verið að boða. Lausleg könnun í nokkrum verslunum á höfuðborgar- svæðinu leiddi í ljós að bleika tískan höfðar eink- um til yngri og nýjunga- gjarnari kynslóðar karla – erfiðara hefur reynst að fá þá sem eldri eru til þess að líta við bleika fatnaðinum. Varist bleik jakkaföt Sumarið er rétt hálfnað og þeir sem höfðu ekki kjark til að fara í bleikt í byrjun sumars geta enn náð í skottið á þessari tísku. Style ráðleggur þeim körl- um sem vilja feta inn á braut bleiku tískunnar að fara að öllu með gát og bendir meðal annars á nokkrar tískugildrur sem menn skyldu varast. Ekki er mælt með því að kaupa sér jakkaföt í bleik- um lit – áhrifaríkara er að láta sér nægja bindi eða bol. Bleik skyrta eða bolur vek- ur ekki eins mikla athygli (og aðhlát- ur) og bleikar buxur. Ráðlegt er að velja sér liti sem hæfa litarafti manns – sterkbleikt og ljósbleikt fer flestum vel og hressir upp á húðlitinn og grá- bleikt þykir karlmannlegast af bleiku litunum. Þótt skóm, beltum og tösk- um í bleikum litum hafi brugðið fyrir á tískusýningum á slíkt aldrei eftir að slá í gegn í raunveruleikanum, að því er fram kemur í blaðinu. Loks ráð- leggur Style rauðhærðum körlum að forðast alveg bleiku tískuna. rh Peysa, skyrta og vesti frá Sand. Aron Óli Gunnarsson í skyrtu frá Sand. Skyrta og bindi frá GK. Ljósbleikt frá DKNY. Gústaf Kristjánsson í bol frá Mótor. Morgunblaðið/Ásdís Nú er Bleik brugðið Karlmenn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.