Morgunblaðið - 03.08.2001, Síða 4
DAGLEGT LÍF
4 B FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FELULITIR hafa frá örófiverið til sem náttúrulegtfyrirbæri, en ekki er ýkja
langt síðan mennirnir tóku að
íhuga „tæknina“ að baki og reyna
sig við eftirlíkingar.
Sögur herma að það hafi verið
bandaríski listmálarinn Abbott
Thayer sem fyrstur smíðaði kenn-
ingar um eðli felulitanna. Hann er
reyndar einna þekktastur fyrir
myndir af vængjuðum konum og
þótti á sinni tíð í hópi bestu fígúra-
tívu málara Bandaríkjanna.
En það var upp úr 1890 sem
Thayer tók að móta kenningu um
hvernig litasamsetning hjálpar
dýrum að fela sig fyrir rándýrum,
og hvernig nýta mætti tæknina í
hernaðartilgangi.
Blöndun og upplausn lita
Thayer veitti því sérstaka at-
hygli hvernig náttúran máir út
andstæður í litum. Ein leiðin felst í
blöndun, sagði hann, litbrigði dýr-
anna líkja eftir litum umhverfisins.
Önnur leið felst hins vegar í trufl-
un eða upplausn; handahófskennt
litamynstur dregur úr skörpum út-
línum og brýtur upp skil skrokks
og umhverfis þannig að dýrin ým-
ist „hverfa“ eða líta út fyrir að
vera eitthvað annað en þau eru.
Margir dýrafræðingar kinkuðu
kolli þegar Thayer lýsti kenn-
ingum sínum, en einhverjir sögðu
kenninguna ekki eiga alls staðar
við. Bentu þeir á, réttilega, að æp-
andi og einsleitir dýralitir væru
líka til í náttúrunni, einmitt í þeim
tilgangi að hræða á brott óvini eða
laða að hugsanlega maka.
En hvað sem því leið, átti felu-
litakenningin mun betri samleið
með herkænsku en hræðslulitaað-
ferðin. Það eru gömul sannindi og
ný að hersveitir sem vilja koma
óvininum í opna skjöldu, ná best-
um árangri ef þær geta komist
sem næst honum óséðar. Og þar
sem orrustur fara iðulega fram í
óbyggðum, liggur beint við að
beita aðferðum náttúrunnar við
feluleikinn.
Hundruð listamanna
á launaskrá
Felulitir urðu hins vegar ekki
endanlega ómissandi og lífs-
nauðsynlegir fyrr en í fyrri heims-
styrjöldinni, sökum þess hve flug-
eftirlit og loftmyndatökur komu
þar við mikið sögu. Úr lofti var
næsta auðvelt að koma auga á
óvinahersveitir í venjulegum klæð-
um og því gripu stríðsaðilar til
felubúninga í meira mæli en áður
hafði þekkst. Frakkar komu á fót
fyrstu felubúningadeildinni árið
1915 og í fótspor þeirra fetuðu svo
Bretar og Bandaríkjamenn, en síð-
ar Þjóðverjar, Ítalir og Rússar þótt
í minna mæli væri. Og mynstrin
voru hönnuð eftir umhverfinu sem
búningarnir skyldu notaðir í; fjall-
lendi, frumskógar, eyðimerkur,
óbyggðir... Hönnunina önnuðust
listamenn, öðrum fremur, og ef
báðar heimsstyrjaldirnar eru
teknar með í reikninginn má
fullyrða að hundruð lista-
manna hafi verið á launaskrá
við felulitahönnun- og ráðgjöf
í flestum deildum flestra þátt-
tökuþjóða. Má þar nefna nöfn
eins og Jacques Villon, Franz
Marc, Arshile Gorky og Osk-
ar Schlemmer.
Víetnamstríðið var ekki
síður stór vettvangur felu-
búninga. Hönnuð voru sér-
stök mynstur í grænum tón-
um sem hentuðu leiðöngrum
um skóglendi Víetnam, auk
þess sem tígurmynstur var
jafnvel notað í suma bún-
inga.
Fjölmörg rit hafa verið
gefin út um tengsl list-
arinnar og felulitabúning-
anna, og um feluliti í
náttúru og hernaði. Árið
1999 var ennfremur
haldin sýning á verkum
Abbotts Thayers „föður
felubúninganna“ í Smit-
hsonian-safninu í New
York, auk þess sem
nefna má að áhuga-
samir geta keypt frum-
gerðir ýmiss konar
felubúninga Banda-
ríkjahers á söluvefj-
um á borð við
www.omahas.-
com.
Mynstur
náttúrunnar
Heimildir:
Vefútáfa
Smithsonian
Magazine,
Vefurinn
Leonardo
On-line
Netversl-
unin
Omaha’s.
HJÁ innvígðum er hugtakið camo gjarnan notaðyfir hið hefðbundna græna felumynstur, en orð-ið er stytting enska orðsins camouflage sem
merkir felulitur. Flíkurnar má finna í það mörgum ís-
lenskum verslunum að óhætt er að tala um tískubylgju.
Kemur í ótrúlegustu merkjum
„Svona bylgja byrjar alltaf einhvers staðar og breiðist
svo út til fjöldans. Í þetta sinn er eins og þetta hafi verið
samantekin ráð allra hönnuða, að setja feluliti í umferð,
og nú er þetta komið á götuna,“ segir Natalie Guðríður
Cosmano, verslunarstjóri í Spútnik, og bætir við: „Ef ég
á að rekja þetta aftur í tímann leyfi ég mér að fullyrða að
hérlendis höfum við verið fyrst til þess að bjóða upp á
camo-flíkur, í þessari annarri umferð hermannaæðisins.“
Með „annarri umferð“ vísar Natalie í þá alkunnu stað-
reynd að tískan fari ævinlega í hringi. Fyrsta umferð
hertískunnar, í minni þeirrar kynslóðar sem enn telst
ungt fólk, hafi verið um 1992–4, og nú standi önnur svip-
uð yfir. „Við erum búin að vera með camo-föt og fylgi-
hluti síðan um jólin og þetta hefur vaxið alveg síðan þá.
Nú stendur þetta með miklum blóma og úrvalið verður
enn meira í haust. Þá koma ný hermannaföt og fjöl-
breyttari, í navy-bláum og hermannagrænum litum,
töskur, fylgihlutir og jakkar.“
Natalie bætir við að ýmis tískuhús í fínni kantinum
hafi nú föt í felulitum á boðstólum, sem dæmi Donna
Karan. „Svona föt eru að koma í ótrúlegustu tískumerkj-
um, það eru þá pils og fínni dömuföt,“ segir hún.
Í Spútnik fást bæði notuð, ný og sérsaumuð föt í felu-
litum, en starfsliðið saumar sjálft pils og fleira í felulit-
um.
Aðspurð telur Natalie fólk helst kaupa föt með þessu
mynstri til þess að „vera kúl“, án þess að vera í neinum
pólitískum hugleiðingum. „Meirihluti fólks kaupir þetta
því það er í tísku. En auðvitað er til hugsandi minnihluti
sem spáir meira í tengslin við þjóðmálin. Reyndar held
ég því fram að það sé einmitt þessi hugsandi hópur sem
verslar hjá okkur, fólk sem hefur sjálfstæði til þess að
móta sér persónulegan smekk. En það er erfitt að segja
hvað hverjum og einum gengur til. Þótt fólk viti hvaðan
þetta mynstur er upprunnið og hvernig það hefur verið
notað held ég að það skipti ekki sköpum þegar í búðina er
komið. Þetta þykir fyrst og fremst flott.“
Natalie bendir á, sem hliðstætt dæmi, að bolir með
mynd af byltingarleiðtoganum Che Guevara hafi í upp-
hafi helst verið framleiddir og keyptir af þeim sem vildu
heiðra minningu hans eða undirstrika stuðning við mál-
staðinn. Nú séu slíkir bolir hins vegar orðnir vinsælir al-
mennt og broddurinn farinn úr áróðrinum. Hið sama
megi segja um flíkur í felulitum og hermannafatnað af
öðrum toga.
Útskriftarnemar í fullum herklæðum
Rakel Rós Guðnadóttir, verslunarstjóri í Mótor í
Kringlunni, er sömu skoðunar og starfssystirin – hún
segist ekki hafa á tilfinningu
fötum tengist afstöðu til stríð
geti haft með þá staðreynd
engan her og að ungt fólk h
reynslu af stríði. „Ég held
kaupi þetta fyrst og síðast
HERMANNATÍSKAN HÉR Á LANDI
Heldur velli í vetur
Enginn myndi kannast við neitt ef beðið væri um
bol með „skógarmynstri“, svo dæmi sé tekið. Allir
kalla þetta hermannaboli þótt felulitirnir séu hér
býsna stílfærðir. Rakel Rós Guðnadóttir og Hall-
dóra Lillý Jóhannsdóttir í Mótor.
Sérkennileg þversögn er
mannastílsins. Mynstur, s
til þess að menn féllu sem
sitt, dregur nú að sér athy
María Tómasdó
EFTIR þvgengari stakra hliggja ý
sama liði þurfa að k
er frábrugðinn bún
íþróttum. Þá er ljós
minni hætta á að þe
ir í loft upp. Einke
innan hverrar hers
stöðu hvers og eins
ytri ásýnd. Tvær g
ein og kaskeiti er æ
Á löngum köflum
ist um útlit, samræm
ur áherslan færst y
ytri aðstæðna. Fótg
ingum úr léttum ef
arvösum má geyma
að, efnin eru sérhö
út svita, verja
Stúlkurnar í Dest-
iny’s Child hafa gert
sitt til þess að koma
felulitunum á kortið á
ný. Í myndbandi við lag-
ið Survivor leita þær
lífsvonar á hitabeltis-
eyju eftir skipbrot og
klæðast til þess felu-
litabúningum – held-
ur efnislitlum, að
vísu.
Hún er komin aftur
gáfu; hermannatísk
litir sem helst ber a
stjörnurnar, hönnuð
unum. En Sigurbjör
hvaða merkingu þa
aði sem vísar ti
Feí svi
Reuters