Morgunblaðið - 03.08.2001, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 03.08.2001, Qupperneq 5
unni að kaup fólks á felulita- ðsrekstrar. Hún telur að það að gera að Íslendingar eiga hér á landi hefur enga beina að þeir sem hingað koma af því að þeim þykir þetta smart. Það er einhver spenningur í kringum þennan her- mannavarning,“ segir hún og bætir við að fjöldi ung- menna hafi „dimmiterað“ í hermannabúningum í vor. „Þá komu þau hér og keyptu boli til þess að vera í við gallana, sumir voru í fullum herklæðum, með gamlar hermannatöskur og leikfangabyssur. Eflaust hafa ein- hverjir svo haldið áfram að nota ákveðna hluta búnings- ins frá degi til dags, þar sem þetta er í tísku.“ Kaupendur felulitabola, belta og annars varnings eru að sögn Rakelar Rósar á öllum aldri – „jafnvel gamlir hippar“, segir hún og vísar til þess að sumir viðskiptavin- anna hafi, aldursins vegna, hæglega getað verið með í þeim mótmælum sem eitt sinn fólust í notkun herfata. Og hermannaæðið mun halda áfram. „Það er mikið spurt um buxur í hermannalitum hjá okkur, jafnvel fínni buxur þótt bolirnir sjálfir séu meira hversdagsklæðn- aður. Svo verða þessir litir áfram áberandi í haust; grænn og brúnn.“ r falin í útbreiðslu her- sem í upphafi var hannað allra mest inn í umhverfi ygli af ráðnum hug. Anna óttir í Spútnik. Herbúningar eru í sjálfu sér útivistarfatnaður og enn koma helstu einkenni hans að góðum notum: jarðarlitir (svo grasgrænublettir sjáist ekki), margir vasar, sterk efni, vídd sem heftir ekki hreyfingar o.s.frv. Buxur og taska í Spútnik. „Meirihluti fólks kaupir þetta því það er í tísku. En auðvitað er til hugs- andi minnihluti sem spáir meira í tengslin við þjóðmálin.“ Morgun blaðið/Þ orkell ví sem átök þjóða og hópa hafa gerst al- og skipulegri, hefur framleiðsla sér- hernaðarbúninga færst í vöxt. Að baki ýmsar hagnýtar ástæður. Hermenn í klæðast búningum í sama lit, sem helst ningum andstæðinganna – rétt eins og í st á löngu færi hverjir eru samherjar og eir séu í misgripum særðir eða sprengd- ennisbúningar gegna einnig hlutverki sveitar, búningar eru breytilegir eftir s og þannig er virðingarröð augljós af gylltar rendur á öxl þýða meiri völd en æðra kollhúfu, svo dæmi séu tekin. m hefur herfatnaður að miklu leyti snú- mi og valdsmannleik, en í seinni tíð hef- yfir á þægindi, sveigjanleika og tillit til gönguliðar margra þjóða eru nú í bún- fnum sem hindra ekki hreyfingu, í hlið- a aukahluti, skothylki, áttavita og ann- önnuð til þess að halda inni hita, hleypa ast vatni. Herbúningar eru í raun úti- vistarfatnaður, en útlitið lýtur þó enn ákveðnum reglum. Einkennisbúning- ur er alltaf einkennisbúningur þótt hann sé fjölnota og þægilegur. Pils og sundföt í felulitum Um áratugaskeið hafa einkennis- búningar byrjað að blandast hvers- dagslegri flíkum með þeim hætti að óbreyttir borgarar hafa tekið upp á því að ganga í búningunum á götum úti. Þekktar eru um víða veröld versl- anir á borð við Arma Supra, sem er fulltrúi sinna líka á Íslandi. Um er að ræða verslanir sem bjóða klæðnað og fylgihluti úr hernaði, auk einkennis- búninga af öðrum toga. Reyndar er víða bannað lögum samkvæmt að ganga í fötum sem merkt eru her við- komandi lands með áletrun, röndum eða merkjum – þetta á t.d. við um bún- inga Bandaríkjahers. En auðvelt er að sveigja hjá lagabókstafnum með því að fjarlægja helstu áletranir; búning- arnir eru jafnsannfærandi eftir sem áður. Rússneskir liðþjálfafrakkar, franskir sjóliðajakkar, matrósaföt, hermannaklossar og mosagrænar buxur með hliðarvösum eru meðal þeirra flíka sem hafa á liðnum áratug- um orðið að tískubylgjum, jafnt á gangstéttum sem göngubrautum há- tískuhúsanna. Felulitirnir, sem vel- þekktir eru í hernaði þótt hagnýtt gildi þeirra nýtist ekki síður við nátt- úrulífsljósmyndun og veiðar, hafa líka ítrekað sett svip sinn á tískuna. Í ár hefur ein slík bylgja gengið yf- ir. Í hillum verslana jafnt í Reykjavík sem París má nú finna sundföt, pils, buxur, veski, kjóla, belti og aðrar flík- ur og fylgihluti með felulitamynstri. Og útbreiðslan nær til ólíkra sviða og stétta. Leikkonan Sharon Stone prýddi forsíðu tískutímaritsins Elle í desember í felulitafatnaði frá Christ- ian Dior. Í básum Camden-markaðar- ins í London er felulitaúrval, notað og nýtt, og felulitur hertrukkur prýðir umslag nýrrar hljómplötu sveitarinn- ar Gorillaz. En toppi athyglinnar var líklega náð með myndbandi söngtríós- ins Destiny’s Child við lagið Survivor í sumar, þar sem blandað var saman kynþokka, skógarmennsku, skör- ungsskap og felulitum. Það reyndist vel til vinsælda fallið. Upphaflega mótmæli gegn stríðsrekstri í Víetnam Hertíska náði fyrst vinsældum meðal almennra borgara á 7. áratugn- um, og þá sem mótmæli í garð Víet- nam-stríðsins. Margir halda því ein- mitt fram, enn í dag, að í notkun hermannafatnaðar utan vígvallar fel- ist einmitt afstaða gegn stríðsbrölti. Með notkuninni sé ekki verið að sam- þykkja táknfræði hernaðar, heldur þvert á móti sé henni ætlað að grafa undan valdi, merkingu og tilgangi ein- kennisbúninga. Aðferðin felst ekki síst í því að rífa ákveðna hluta úr sam- hengi hernaðarkerfisins og blanda þeim við hversdagsklæðnað eins og hverjum öðrum aukahlutum. Þessi viðleitni, sem Víetnam-and- stæðingarnir kynntu til sögunnar, tók að birtast á ýmsum sviðum dægur- menningar. Margir muna t.d. John Lennon í herklæðum á frægum tón- leikum í Madison Square Garden. Og „tískan“ breiddist með tímanum jafn- vel út til þeirra hippa sem ekki tóku þátt í skipulögðum mótmælaaðgerð- um – eftir því sem haft er eftir hert- ískusérfræðingnum Rod Powers á vefnum fashion.about.com. Að Víetnam-stríðinu loknu, segir Powers, snerist almenningsálitið gegn Bandaríkjaher og allt sem vísaði í stríðsbrölt datt úr umferð. Aðeins örfáir hippar hér og þar héldu áfram að ganga í slitróttum einkennisklæð- um. Á valdatíma Ronalds Reagan, segir ennfremur á tískuvefnum, jókst stolt Bandaríkjamanna á herafla sín- um hins vegar á ný. Ástæðan var átök- in í Líbýu, auk aðgerða í Grenada og Panama. Fjöldi nýliða í hernum rauk upp úr öllu valdi, nokkrar hasarmynd- ir um hermennsku voru framleiddar og stutt hár að hætti dáta varð vinsælt á hárgreiðslustofum. „Vinsældir hermennsku jukust svo enn á dögum Persaflóastríðsins [1991] og – í minna mæli – með átökunum í Bosníu og Kosovo,“ segir á fashio- n.about.com. „Fjölmiðlar slógust í hópinn og hófu að gera fréttaþætti um herinn sem að mestu leyti voru já- kvæðir. Jafnvel þótt fréttirnar sjálfar væru neikvæðar í eðli sínu, var her- maðurinn alltaf sýndur sem góð manneskja, sjálfboðaliði sem reyndi það eitt að komast af.“ Getur tískan verið saklaus? Kvikmyndir um líf og stöf her- manna hafa án efa einnig haft talsverð áhrif á viðhorf almennings til hernað- ar og hetjudáða. Nægir þar að nefna nýlegar myndir á borð við Hina hár- fínu línu (The Thin Red Line) og Björgun óbreytts Ryans (Saving Priv- ate Ryan). Af öllu framangreindu má draga þá ályktun að hertíska á götum úti, a.m.k. í Bandaríkjunum, hafi ekki alla tíð verið undir formerkjum mótmæla, eins og mælt var fyrir um í upphafi. Sumir, í það minnsta, virðast festa kaup á felulitabuxum eða röndum prýddum jökkum af einskærri lotn- ingu eða þjóðerniskennd. Þá eru ónefndar enn vafasamari ástæður, eins og þær sem reka nýnasista til þess að klæðast gömlum SS-búning- um með öllum þeim augljósu tilvísun- um sem þar hanga á spýtunni. Felulitatíska sumarsins 2001 virðist þó ekki hafa neitt annað markmið en að eiga að vera smart. Grænar, bláar og brúnar felulitasamsetningar eru einfaldlega í tísku, óháð allri pólitík. Íslenskir olíutankar í felulitum Þór Whitehead, sagnfræðingur og höfundur ritraðar um Ísland í síðari heimsstyrjöldinni, vill ekki meina að það sé herskylduleysi að kenna að felulitirnir hafi misst hernaðarvísun sína í meðförum íslenskra unglinga. Hið sama hafi gerst víða um lönd. Til viðbótar við umfjöllun fashion.about.- com bendir hann á að þegar svonefnd- ar Army Supplies-verslanir hafi tekið að selja afgangsvörur hersins, t.d. í Bandaríkjunum, hafi fötin komist í notkun meðal útigangsfólks og ann- arra án hugmyndafræðilegra mein- inga. „Svo eru alltaf til snjallir kaup- sýslumenn sem kunna að skapa og sinna eftirspurn. Það hefur gerst með hermannafötin eins og gallabuxurnar; það sem í upphafi táknaði höfnun efn- ishyggjunnar hefur verið iðnvætt og dregið inn í hringiðu markaðarins,“ segir Þór og bætir kankvíslega við: „Það er til dæmis gaman að sjá hvern- ig Castro er lentur í hátískunni í gamla felubúningnum sínum!“ Og Þór bætir við sögu af því þegar Íslendingar reyndu sig við notkun felulita í síðari heimsstyrjöld. „Já, þeir gerðu tilraun til að „kamoflera“ með því að mála olíutankana við Klöpp við Skúlagötu í felulitum. Til þess að draga úr hættunni á loftárásum áttu tankarnir að líta út eins og íbúðarhús og til þess voru málaðir á þá gluggar. En á loftmynd sem Þjóðverjar tóku af Reykjavík árið 1942, kemur fram að tilraunin var til einskis. Á henni eru „húsin“ kyrfilega merkt: OLÍU- TANKAR, þannig að Þjóðverjarnir létu greinilega ekki blekkjast.“ Morgunblaðið/Ómar Reuters á kreik í enn einni út- kan. Nú eru það felu- að flíka, ef marka má ðina og úrvalið í versl- rg Þrastardóttir spyr ð hafi að ganga í fatn- il stríðsreksturs. elulitiriðsljósinu  Felulitir á götum úti eru langt í frá alltaf undir formerkjum tísku. Í Afr- íku er talið að um 120 þúsund börn þjóni nauðug uppreisnarmönnum í stríði. Hér ganga barnungir hermenn um götur Goma í Kongó árið 1999.  Á friðartímum eru meiri líkur en ella á að hermenn mæti jákvæðu við- horfi borgaranna. Varnarliðsmaður á Keflavíkurflugvelli málar barn með „ekta stíðsmálningu“ en í tilefni 50 ára afmælis varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna sóttu þúsundir manna opið hús hjá Varnarliðinu.  Ástralskur friðargæsluliði á spjalli við barn í Dili í Austur-Tímor í bún- ingi sem er hannaður fyrir skóglendi. DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2001 B 5

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.