Morgunblaðið - 03.08.2001, Page 8
SKIPULAGSSTOFNUN á að
fylgjast með því að bygging-
arframkvæmdir eyðileggi ekki
náttúruna og trufli ekki dýralíf.
Í gær sagði stofnunin að hún
væri á móti því að farið yrði út
í að byggja Kárahnjúkavirkjun
og að virkja ár á Austurlandi til
þess að búa til rafmagn.
Þessi virkjun átti að framleiða
rafmagn fyrir stórt og mikið ál-
ver sem átti að reisa á Reyð-
arfirði. Skipulagsstofnun seg-
ir að allar þessar
framkvæmdir muni hafa mikil
áhrif á gróður og dýralíf á
svæðinu og að ekki sé hægt
að sætta sig við það.
Landsvirkjun, sem ætlaði
að byggja virkjunina, er ekki
ánægð með þessa nið-
urstöðu, og mun sennilega
kæra ákvörðunina til umhverf-
isráðherra, en hann á síðasta
orðið í þessu máli. Þeir sem
vinna að því að vernda um-
hverfið eru mjög ánægðir með
ákvörðun Skipulagsstofnunar.
Morgunblaðið/RaxKárahnjúkur, sem virkjunin er kennd við.
Vill ekki Kárahnjúkavirkjun
AUÐLESIÐ EFNI
8 B FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÆSTUM fimmtán mánaða
bið er nú eftir heyrnartækjum
hjá Heyrnar- og talmeinastöð
Íslands. Einnig þarf að bíða
lengi eftir að komast í heyrn-
armælingu. Sigríður Snæ-
björnsdóttir er forstöðumað-
ur stöðvarinnar og hún segir
að eðlileg bið eftir heyrn-
artækjum sé 2–3 mánuðir.
Sigríður segist vera í góðu
samstarfi við heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið um
að finna leiðir til þess að
stytta biðina. Hún segir nauð-
synlegt að fjölga bæði háls-,
nef- og eyrnalæknum og
heyrnar- og talmeinafræð-
ingum hjá Heyrnar- og tal-
meinastöðinni.
Löng bið
eftir heyrn-
artækjum
HEIMSMARKAÐSVERÐ á
bensíni og olíu hefur lækkað
og þess vegna lækkuðu ís-
lensku olíufélögin einnig sín
verð í fyrradag. Lítri af 95 okt-
ana bensíni kostar nú 98,80
krónur með fullri þjónustu, en
94,40 krónur ef maður dælir
sjálfur bensíni á bílinn. Lítri af
dísilolíu kostar 50,50 krónur
og 98 oktana bensín kostar
103,50 krónur.
Bensín og
olía lækkar
NOKKRAR myndbandaleigur
hafa tekið upp á því að taka
myndir af viðskiptavinum
þegar þeir koma til þess að
leigja sér spólu. Mörgum
finnst þetta skrýtið og sumir
kunna alls ekki við að vera
myndaðir á þennan hátt.
Myndbandaleigurnar hafa
sett upp skilti þar sem fólk er
látið vita af myndatökunni.
Eigendur myndbanda-
leignanna segja að mynd-
unum sé hent þegar spólunni
er skilað aftur.
Persónuvernd, sem gætir
þess að ekki sé verið að
safna upplýsingum um fólk
að óþörfu, hefur verið látin
vita af myndatökunum og
mun ákveða hvort þær séu
leyfilegar eða ekki.
Myndbanda-
leigur taka
myndir
KRISTÍN Rós Hákonardóttir
hefur staðið sig mjög vel á
Evrópumeistaramóti fatlaðra
í sundi sem nú fer fram í
Stokkhólmi. Hún er búin að
setja Íslandsmet í 100 metra
skriðsundi og 100 metra bak-
sundi og er auk þess búin að
vinna tvenn gullverðlaun á
mótinu.
Kristín Rós
fær gull
HANN Hinrik Snær Katr-
ínarson, sem er átján mán-
aða, var heppinn í vikunni.
Hann var með mömmu sinni
úti á gangstétt fyrir utan hús-
ið heima hjá sér að spjalla við
konu sem þau þekktu þegar
bíl var bakkað út úr inn-
keyrslu í næsta húsi.
Hinrik Snær hafði fært sig
eitthvað frá mömmu sinni og
bílstjórinn sá ekki að hann
var fyrir aftan bílinn. Bíllinn
fór alveg yfir Hinrik Snæ og
meðal annars fór hjólið yfir
fótinn á honum. En vernd-
arengillinn var á vaktinni
þannig að Hinrik Snær slapp
með skrámur og marbletti.
Katrín Sylvía er mamma
Hinriks og hún segir að það
sé kraftaverk að hann skyldi
ekki stórslasast. Hann þurfti
ekki að vera nema tvo daga á
sjúkrahúsi og gat eftir það
farið hress og kátur heim til
mömmu sinnar.
Morgunblaðið/ÞorkellHinrik Snær öruggur hjá mömmu.
Engill
á vakt
Í BYRJUN vikunnar blossaði
enn á ný upp ófriður milli Ísra-
elskra hermanna og Palest-
ínumanna. Átökin hafa stað-
ið nær óslitið í tíu mánuði
eða frá því að Palestínumenn
hófu uppreisn gegn Ísraelum
í lok september 2000.
Á mánudag réðst ísraelski
herinn á höfuðstöðvar palest-
ínsku lögreglunnar í Gaza-
borg, en þá særðust fjórir
palestínskir lögreglumenn. Á
þriðjudag skutu ísraelskar
herþyrlur eldflaugum að bæn-
um Nablus á Vesturbakk-
anum, og átta Palest-
ínumenn létu lífið, þar á
meðal tveir ungir bræður
sem voru fimm og átta ára
gamlir.
Mörg ríki heims hafa for-
dæmt þessar árásir og segja
að nú sé mikil hætta á að
stríð brjótist út í Mið-Aust-
urlöndum. Ísraelski herinn
segist ætla að halda áfram
aðgerðum sínum til þess að
bæla niður uppreisn Palest-
ínumanna.
AP
Palestínumenn flytja burtu
látna og særða eftir áras
Ísraelshers.
Átök milli Ísraelshers
og Palestínumanna
FYRSTA ágúst tóku gildi
ný lög sem eiga að draga
úr tóbaksneyslu, en þau
þýða að tóbak verður
ekki eins sýnilegt og áður
en einnig verður erfiðara
að fá sér sígarettu á al-
mannafæri. Veitinga-
húsaeigendur eru ekki
ánægðir með nýju lögin,
en allir sem vilja selja
tóbak verða að kaupa
sérstakt tóbakssöluleyfi
og það finnst þeim ekki
sanngjarnt.
Einnig verða nú öll veit-
ingahús – bæði lítil og
stór – að bjóða gestum
sínum upp á svæði þar
sem bannað er að reykja,
og telja eigendur litlu
veitingahúsanna að erfitt
geti orðið fyrir þá að
koma þessu fyrir.
Bannað
að reykja
NÆSTA helgi er versl-
unarmannahelgi, og jafn-
framt mesta ferðahelgi
ársins. Fyrir þá sem vilja
fara í ferðalag og liggja í
tjaldi er af nógu að taka,
en skipulagðar útihátíðir
er að finna í öllum lands-
hlutum. Sagt er að flestir
muni vilja fara á þjóðhá-
tíð í Vestmannaeyjum
eða á útitónleikana við
Eldborg á Kaldármelum
enda verður lögreglan
með mestan viðbúnað á
þessum stöðum. Veð-
urstofan spáir ágætis
veðri um allt land.
Verslunar-
mannahelgin
framundan
Netfang: auefni@mbl.is