Vísir - 02.11.1979, Blaðsíða 4
VÍSIR
Föstudagur 2. nóvember 1979
Nýlegar vörur
6 góðu verði
Sporið
í verðbólgunni
FATAMARKAÐURIHH
Lau9Qve9Í 07
O
Höfum opnað ó ný
ó loftinu eftir
breytingor
Tilkynning frá
Bifreiðaeftirliti rikisins
Aðalskoðun bifreiða fyrir þetta ár er lokið. Til
að forðast frekari óþægindi, er þeim sem eiga
óskoðaðar bifreiðar bent á, að færa þær nú
þegar til skoðunar.
Reykjavík, 30. október 1979
BIFREIÐAEFTIRLIT RIKISINS.
VERKAMENN 0G BORMENN ÓSKAST:
Upplýsingar í símum 81700 og
77075 eftir kl. 6.
AÐALBRAUT HF.
I
Urval af
fiskum og vatnagróðri.
Komið og sjáið nýja
sýningarbúrið.
Opið kl. 10-4 laugardag.
GUUflSmÚOIN
Grjótaþorpi
Fischersundi
(Áðalstræti 4)
sími 11757
4
Mafvæli á lelö
til Kampútski
jurtaoliu, sykur, fisk, þurrmjólk
og vitaminrik matvæli.
WFP hefur búið þrjátiu og tvö
þúsund lestir af neyðarbirgðum
sinum til sendinga austur til
Kampútsiu og hefur á áætlun
sinni að leggja alls um fjörutfu og
tvö þúsund lestir af matvælum.
Afgangurinn gæti komiö með
framlögum viða frá, sem VFP á
að samhæfa á eina hendi.
Fyrsta alþjóða átakið til þess
að seðja sárasta hungur hinna
sveltandi þjóðar Kampútsiu er nú
loks komið það áleiðis, að hris-
grjón og önnur nauðþurftarmat-
væli eru lögð af stað.
Þessi fyrsta sending er farin á
vegum Mat vælaáætlunar
Sameinuðu þjóðanna (skamm-
stöfuð WFP), en framkvæmda-
stjórn hennar hefur aðalskrif-
stofur sinar i Rómaborg. — WFP
var valin til þess að samhæfa og
hafa milligöngu um að matar-
gjafir berist þeim 2,5 milljónum
manna, sem biðu hungurdauðans
i Kampútsiu.
,,Tvö flutningaskip á vegum
WFP eru stödd i höfninni i
Kompong Som með um fimm
þúsund lestir af hrisgrjónum”,
sagði Garson Vogel, fram-
kvæmdastjóri VFP, i viötali við
Reuter i gær. Fyrsta skipið er
langleiðina búið að losa, en það
þriðja er senn væntanlegt i Kom-
pong með um eitt þúsund lestir af
hrisgrjónum til viðbótar. Fjórða
flutningaskipið er á leiðinni, og er
það stærst þessara skipa með um
fjögur þúsund lestir af hris-
grjónum. önnur munu svo fylgja
á eftir.
Þessi verða fyrstu skipin til
Kompong Som með matvæli til
nauðstadds fólksins i Kampútsiu.
Einu birgðirnar, sem vitað er til,
að hafi borist þangað áður, komu
með stórum pramma, sem
breska liknarfélagið Oxfam
sendi.
„Það komast ekki nema um
fjögur skip i einu að bryggju i
Kompong Som”, sagði Vogel
framkvæmdastjóri, ,,og gallinn
er sá, að þar eru engar vöru-
skemmur, nær enginn löndunar-
búnaður og ekki nema um þrjú
hundruð verkamenn. — Þvi
sendum við heilmikið af
löndunartækjum og köðlum með
fyrsta skipinu, en höfum orðið að
látar þar við sitja”.
Vogel, sem áður var formaður
hveitiútflutningsráðs Kanada,
segir, að meira magn af mat-
vælum sé sent að landamærum
Kampútsiu og Thailands land-
veginn, og þeim úthlutað þar. —
„Við höfum sent milli tiu og tólf
þúsund smálestir þangáð til
vörslu i fimmtán vöruskemmpm,
uns unnt verður að senda það
áfram yfir landamærin.
Framkvæmdastjóri WFP
segist ala á vonum um að geta
sent matvæli beint til höfuð-
borgar Kampútsiu, Phnom Penh,
eftir Mekongfljóti i gegnum
Vietnam þótt fyrri tilraunum
einkaaðila til þess hafi verið
hafnað af yfirvöldum Kampútsiu.
—■ „Við verðum varla skotnir
fyrir að reyna”, segir hann.
„Ef við komumst upp Mekong-
fljót, þá er þar bryggja, sem tvö
skip geta legið við i senn”, segir
Vogel. „En þar eru engin tæki til
þess að afferma skipin og jafnvel
enn færri verkamenn en i
Kompong Som”.
Það er ekki stærri skipum fært
upp Mekongfljót en þrjú þúsund
brúttólesta eða minni. Komist
þau til höfuðborgarinnar er þó
greiðara um vik aö dreifa mat-
vælunum beint til fjölbýlustu
hverfa höfuðborgarinnar
WFP segir, að þörf sé 165
þúsund smálesta matvæla til þess
að seðju hungur þeirra 2,5
milljóna Ibúa Kampútsiu, sem
sögð eru búa við neyð. Þar á
meðal eru um sjö hundruð þúsund
börn og gamalmenni. „öll á
þröskuldi hungurdauöans”. —
Þessi 165 þúsund tonn gætuenst i
hálft ár eða svo.
Til viðbótar við hrisgrjón þarf
Nú i vikunni var haldinn fundur
sautján rikja, sem ætla að láta af
höndum rakna til þessa bág-
stadda fólks, og fjórtán hjálpar-
samtök urðu á eitt sátt um nauð-
syn þess að skipuleggja og sam-
stilla hjálparstarfið til þess að
kaffæra ekki þá litlu móttöku-
möguleika, sem Kampútsia
hefur.
Bandarikin, Kanada, Vestur-
Evrópuriki ymis og Saudi Arabia
ætla fyrir 5. nóvember að til-
kynna, hvað mikið þau ætla að
leggja fram. Þau munu senda öll
fulltrúa á ráðstefnu, sem Kurt
Waldheim, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, veitir for-
sæti i New York — en sá fundur er
að beiðni Frakklands — og verður
tilkynnt um framlögin þar.
Það hefur tekið nokkurn tima
að skipuleggia alþjóölega
hjálparstarf og koma af stað við-
ræðum við yfirvöld i Phnom
Penh, en loks er að komast
skriður á.
r
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
„Við erum búnir að hreinsa Washington af öllum stuðningi við I
Kennedy, herra forseti’.”