Vísir - 14.01.1980, Síða 1

Vísir - 14.01.1980, Síða 1
Mánudagurinn 14. janúar J980. iþróttir helgarinnar „Engin lætiSvavar minn.ég er búinn aö vinna þig’’ gæti Bjarni Frið- riksson veriö aö segja viö Svavar Carlsen á þessari mynd, en Bjarni haföi þaö af aö leggja Svavar i sveitakeppni J.S.t. i gær. Vísismynd Friöþjófur. sveitakeooni Judósambandsins: Bjarnl lagði Svavar aflur Sveit Júdófélags Reykjavikur sigraði nokkuð örugglega i Sveitakeppni JSt, sem háð var i viftar Ojálfar hjá JFR Júdófélag Reykjavikur hefur ráðið einn besta júdómann lands- ins- Viðar Guðjohnsen, sem þjálfara félagsins og hóf hann störf nú i siðustu viku. Viðar er sjálfur Armenningur og þar kekktur keppnismaður. Þvi miður hefur hann litið getað stundað iþrótt sina vegna þrálátra meiðsla undanfarna mánuðu, en ætlar nú aö snúa sér að þjálfun hjá JFR á meðan hann er að jafna sig alminnilega á þeim... 'klP- gær, og var þó sveitin ekki með menn i öllum flokkum. Sameiginleg sveit frá Grindavik og Keflavik varð i ööru sæti, en þar vantaði einnig menn i flokka. A-sveit Armanns varö svo i þriðja sæti og B-sveit Ármanns i fjórða. Júdómenn hér á landi þekkja orðið svo vel hvern annan og uppáhlddstök og brögð allra, að mikið þarf til að skora stit eða ná fullnaðabragði. A móti þessu sáust þó margar skemmtilegar viðureignir og brögð, sem lofa góðu fyrir mótin i vetur. Aðeins ein viðureign var háö i þungavigt á þessu móti, þar sem aðeins tveir .fullvaxnir’ mættu til leiks, þeir Bjarni Friðriksson Armanni og Svavar Carlsen JFR. Viðureign þeirra lauk með naumum sigri Bjarna, og er þetta i annað sinn sem Svavar tapar fyrir honum. Svavar sem lengi hefur verið ókrýndur konungur i júdó-iþrótt- inni hér, hefur ekki tapað nema 4 glimum fyrir islenskum júdó- manni til þessa — Bjarna Frið- rikssyni tvisvar og Siguröi Kr. Jóhannssyni tvisvar— allt frá þvi að hann hóf keppni fyrir mörgum árum. A þessu móti mátti glöggt sjá að yngri mennirnir eru viða aö taka þar við af þeim eldri. Máttti þar t.d. sjá tvenna feðga, Benedikt Pálsson JFR meö son sinn Eðvard I sigursveitinni og Jóhannes Haraldsson UMFG með son sinn Gunnar i sameiginlegri sveit Keflavikur og Grindavikur. Veður sjálfsagt ekki langt að biða þess að þeir fara að tuska pabbana til svo aö um munar á opinberum mótum... -klp- ENGIN GLÆTA A MOTI DÖNUNUM Frá Gylfa Kristjánssyni á Baltic Cup í Oldenburg: „í heildina er ég ánægður með þessa ferð. Við hlutum 6. sætið í keppninni eins og í fyrra", sagði Johann Ingi Gunnarsson, landsliðseinvaldur, eftir siðasta leik ís- lands í Baltic-keppninni hér i Oldenburg á laugardag- inn. I siðasta leiknum léku islend- ingarnir við Dani og voru þar gjörsigraðir. Töpuðu þeir leikn- um með 8 marka mun — 28:20. „Þetta var of stór sigur hjá þeim — 4 til 5 marka munur gæfi betri mynd af leiknum,” sagði Jóhann Ingi á eftir.” „Við gerðum mikið af mistökum, sem þeir gátu og kunnu að notfæra sér, enda með mikla leikreynslu að baki. En við erum að byggja upp og eftir 1 til 2 ár verða það við sem sigrum Dani, en þeir ekki okkur...” Island byrjaði vel og skoraði fyrstu 2 mörkin i leiknum, en Danir komust i 5:2 og siðan i 8:4. Þá náði Kristján Sigmundsson sér á strik I markinu og Island minnkaði biliö I 10:9. En Danir skoruðu 4 siðustu mörkin i hálf- leiknum og höfðu yfir 14:9 i leik- hléi. Segja má að þessi 4 mörk þeirra hafi gert endanlega út um leikinn. Islendingarnir náðu aldrei að ógna þessu forskoti þeirra — þeir komust i 19:13 og sigruöu svo I leiknum 28:20. Það er litiö hægt að segja um þennan leik annað en að hann hafi verið mjög lélegur. Vörn islenska liðsins var eins og gamallt 'net með allt of stóra möskva og mikið af stórum. götum. I sókninni var mikið um rangar sendingar og vitleysur, sem kostuöu þaö aö Danirnir náðu boltanum — brun- uðu upp og skoruðu mark. Inni á milli komu þó kaflar, þar sem dæmin gengu upp i sókninni. Var þeim vel fagnað af áhorfend- um, sem allir voru á bandi Is- lenska liðsins. En þvi miður voru þessir kaflar fáir þó að mörkin, sem liðið gerði, hafi veriö 20 tals- ins. Sigurður Gunnarsson var nú loks eitthvað likur sjálfum sér i þessari keppni. Hann skoraöi 5 mörk , og voru það fyrstu mörkin sem hann gerir i ferðinni. Bar hann af i Islenska liðinu, en einn- ig átti Kristján i markinu ágæta kafla. Þeir sem skoruðu fyrir islenska liðir fyrir utan Sigurð Gunnars- son voru: Sigurður Sveinsson 4 þar af 2 viti, Ólafur Jónsson 4, Þorbergur Aðalsteinsson 3, Bjarni Guömundsson 3 og Stefán Halldórsson 1 mark... Þeip I Þvskuj í fýlu! Frá Gylfa Kristjáns-1 syni á Baltic Cup i| Oldenburg: Það vakti mikla athygli i_ 200 manna hófi, sem haldið flj var fyrir keppendur og| starfsmenn i Baltic Cup á | föstudaginn, að leikmenn m A-liðs Vestur-Þýskalands I voru vel viö skál á hófinu, og ■ hegöuöu sér þar alis ekki ■ eins og heimsmeisturum ■ sæmir. Var sýnilegt og heyranlegt ■ á öllu að þeir töldu mótiö ■ búið hjá þeim, þar sem þeir ■ komust ekki i úrslit I keppn- ■ inni. Vakti framkoma þeirra ■ mikla furðu, ekki sist hjá ® islensku leikmönnunum, | sem hvorki i þessari veislu ■ né annarstaðar i ferðinni ■ höfðu svo mikiö sem fengiö ■ sér bjórsopa. Þrátt fyrir „véislugang- ■ inn” á föstudaginn höföu U heimsmeistararnir þaö af að ■ ná 3. sætinu i keppninni. Þeir ■ sigruöu B-lið Vestur-Þýska- ■ lands i gær 20:15. Danir urðu ■ i 5. sæti á mótinu með sigrin- I um yfir Islandi og Pólverjar H urðu i 7. sæti með 23:16 sigri fe yfir Noregi. Sigurvegarar I keppninni | — í fjórða sinn siöan 1972 — ■ uröu Sovétmenn. Þeir léku i fl gær til úrslita viö ■ Austur-Þjóðverja i Kiel að I viðstöddum 7000« áhorfaidum. 1 hálfleik voru I Sovétmenn yfir 11:10 og þeir ■ sigruöu i leiknum, sem var ■ mjög harður. meö tveggja ■ marka mun, 18:16.... Sigurður Gunnarsson skoraði sin fyrstu mörk I Baltic Cup I siðasta ieiknum, og var besti maður isienska liðsins þá. Mætti til ao sja ■ yflr Dönum’ sigur Frá Gylfa Kristjánssyni á Baltic Cup í Oldenburg: Meðal áhorfenda á siöasta leik Islands I Baltic Cup leiknum gegn Dönum voru flestir af „útlending- unum” úr islenskum handknatt- leik menn sem leika i þýsku deildarkeppninni. Hrifning þeirra af leiknum og leik islenska liðsina var þar ekki mikil. Við tókum tvo þeirra tali eftir leikinn, svo og Jón Karlsson úr Val, fyrrum fyrirliða lands- liðsins, sem var I Þýskalandi i viðskiptaerindum. „Þar var allt of mikið að tapa með 8 marka mun fyrir þessu liði” sagði Axel Axelsson. „Vörn islenska liðsins var ægilega léleg eins og 28 mörk sina best. 1 sóknarleiknu var svo allt of mikiö hnoðast með boitann inn i vörn andstæðingnaan i stað þess að láta hann ganga fyrir utan”. „Ég kom hingað til aö sjá islenskan sigur yfir Dönum og varð fyrir miklum vonbrigöum með það og leik islenska liösins I heild” sagði Jón Karlsson. „Þaö vantaði alla einbeitingu og varnarleikurinn var vægast sagt ömurlegur. Jóhann Ingi, landsliösþjálfariverður aðfara að gera sér grein fyrir þvi, að lið hans verður að leika sterkan varnarleik ef það á að eiga möguleika gegn landsliöum sem geta eitthvað i þessari iþrótt”. „Þetta var alveg hræöilegt að sjá ” sagði Jón Pétur Jónsson eftir leikinn. „Sóknin var leikin á hraða, sem menn réöu ekki við þrátt fyrir ágætt úthald, og varnarleikurinn var I einu oröi sagt lélegur. Danirnir voru langt frá þvi aö leika neinn stórleik og ef þeir Sigurður Gunnarsson og ólafur Jónsson hefðu ekki staðiö sig svona vel i leiknum, hefði þetta farið enn verr..

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.