Morgunblaðið - 14.10.2001, Blaðsíða 18
LISTIR
18 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Calsium Cidrate
FRÁ
Fyrir bein og tennur.
Einnig talið gott fyrir
maga og ristil.
Með GMP gæðaöryggi.
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Apótekin
FRÍHÖFNIN
ÞVÍ miður gefst alltof sjaldan tæki-
færi til að heiðra kvikmyndir með
fjórum stjörnum
og vissulega hefur
Moulin Rouge
fleira með sér en að
vera vammlítil yfir-
burðamynd. Hver
hortitturinn og
undirmálsmyndin
hafa rekið aðra,
lengur en mann
fýsir að rifja upp.
Þá skapar um-
gjörðin, nýtt og
glæsilegt bíó með
óaðfinnanlegum
sætum (þó ekki
lúxussófi), aukna
ánægju. Útkoman í
það heila tekið er
einstaklega vel
heppnuð skemmt-
un. Leikstjórinn,
Baz Luhrman,
sannaði með tveim-
ur fyrstu myndunum að hann líður
engar málamiðlanir og undirstrikar
það enn frekar í MR. Hann er engum
líkur, þessi athyglisverðasti leikstjóri
samtímans, heldur fer sínar eigin leið-
ir, vandrataðar, og alltof hættulegar
fyrir meðalmenn í hans stétt; þeir
mundu villast á fyrstu gatnamótum
þessa völundarhúss sorgar og gleði,
fáránleika og jarðbundinna tilfinn-
inga, og drösla áhorfendum með sér
útí ógöngurnar.
Leiðir Luhrmans eru fullkomlega
óhefðbundnar. MR hefst vitaskuld
með því að frá eru dregin rauðu tjöld-
in og áhorfandanum varpað varnar-
lausum inní litríka undirheima næt-
urklúbbsins um aldamótin 1900. Til
Parísar er kominn Christian (Ewan
McGregor), ungur, breskur, lítt
reyndur rithöfundur. Flúinn stífnina
og staðnað andrúmsloftið í heima-
landinu, til að taka þátt í hinni nýju,
frönsku byltingu þar sem lífsgleðin,
frelsið og umfram allt ástin, er í önd-
vegi. Honum er svipt inní veröld abs-
intunnar, bóhemanna, nátthrafnanna,
dansanna, söngsins og ekki síst
eggjandi dansmeyja og gleðikvenna
næturlífsins. Fær vinnu við að semja
söngleik fyrir Zidler (Jim Broad-
bent), eiganda MR. Hann á að vera
saminn í kringum persónu Satine
(Nicole Kidman), seiðandi drottningu
þessara siðspilltu undirheima. Þar
sem allt er falt og kærkomið – annað
en ástin.
Sem breytir engu um að þau verða
ástfangin, sem er óviðunandi fyrir
Zidler, sem hefur önnur plön í gangi.
Bráðvantar fjármagn til að halda
áfram rekstrinum og ætlar sér að fá
það hjá hertoganum (Richard Rox-
burgh), forríkum, spilltum og slæg-
vitrum aðalsmanni, sem samþykkir.
Með þeim afarkostum að Satine líti
engan annan mann og tryggingu í
næturklúbbnum.
Sýningin verður að
ganga fyrir öllu.
Ástarharmleikur
er í uppsiglingu og
Satine gengur ekki
heil til skógar.
MR er í fyrsta
lagi söngleikur, en
svo fjölmargt ann-
að. Stórfengleg
veisla fyrir auga og
eyra í litagleði og
tónaflóði þar sem
blandað er saman á
hrífandi hátt frum-
saminni tónlist, við
eðalpopp stór-
stjarnanna Ma-
donnu, Elton John
o.fl. o.fl., samflétt-
að frægri söng-
leikjatónlist snill-
inga formsins, á
borð við Rodgers og Hammerstein.
Úr verður einn allsherjar, undurfag-
ur darraðardans þar sem eitt atriðið
rekur annað án minnstu endurtekn-
inga. Luhrman tekst af sannri list að
sauma saman farsa, tragedíu, spila á
allan tilfinningaskalann, án þess að
sjáist misfella. Efnið er í sjálfu sér
átakanlegt en Luhrman njörvar það
niður samkvæmt lögmálum söng-
leiksins og nýtur hjálpar frábærs leik-
hóps.
Kidman kemur nokkuð á óvart þótt
hún hafi sýnt innsæi og túlkað af
skilningi vandasöm hlutverk í mynd-
um einsog Dead Calm og To Die For.
Hún syngur sómasamlega og uppfyll-
ir allar útkröfur (og rúmlega það)
hins lokkandi og lostafulla, fallna eng-
ils. Sá sem kemur mest flatt uppá
mann með hófstilltri og hárréttri
framkomu hins lítt veraldarvana og
ástsjúka skálds, er Skotinn Ewan
McGregor. Hefur lítið gert til að
hrópa húrra fyrir eftir Shallow Grave
og Trainspotting. Hér er túlkun hans
hnökralaus fagmennska, svo syngur
hann laglega í þokkabót. Frammi-
staða Jims Broadbent kemur ekki á
óvart. Þessi miðaldra stórleikari hef-
ur þó sjaldan verið betri en sem hinn
útsmogni skemmtanastjóri og eigandi
MR. Sama má segja um óaðfinnan-
legan John Leghizamo sem Toullouse
Lautrec (á ekkert skylt við impress-
ionistann, franska málarann sem Jose
Ferrer túlkaði svo vel í samnefndri
mynd Johns Huston fyrir hálfri öld,
annað en nafnið – og sama er að segja
um myndina). Ástralski sviðsleikar-
inn Richard Roxburgh vinnur þó
stærsta leiksigurinn með ógleyman-
legri túlkun á hertoganum, spjátr-
ungslegum og hrokafullum myrkra-
höfðingja myndarinnar. Öll
tæknivinna er afbragð.
MR er hvirfilbylur tals og tóna,
harms og gleði og allt þar á milli. Slíkt
gjörningaveður að það hrífur mann
með sér á upphafssekúndunum og
varpar manni ekki aftur inní grá-
móskuna fyrr en, ja, ég veit ekki hve-
nær. Er ekki kominn alveg niður enn!
„Moulin Rouge er hvirfilbylur
tals og tóna, harms og gleði
og allt þar á milli.“
Veisla í Rauðu
myllunni
KVIKMYNDIR
S m á r a b í ó , S t j ö r n u -
b í ó , B o r g a r b í ó
A k u r e y r i
Leikstjóri og handritshöfundur:
Baz Luhrman. Tónskáld: Craig
Armstrong. Tónlistarstjórnun:
Marius DeVries. Kvikmyndatöku-
stjóri: Donald M. McAlpine.
Kóreógrafía: John O’Connell.
Búningar: Catherine Martin, Angus
Strathie. Aðalleikendur: Nicole
Kidman, Ewan McGregor, Jim
Broadbent, John Leguizamo,
Richard Roxburgh. Sýningartími
110 mín. Bandarísk.
20th Century Fox. 2001.
MOULIN ROUGE Sæbjörn Valdimarsson
SJÖTTU alþjóðlegu myndlist-
arkaupstefnunni í Berlín, Art
Forum Berlin, lauk í vikunni, og
var íslenska galleríið i8 meðal
þeirra 172 gallería sem tóku þátt
í kaupstefnunni. Á stefnunni er
lögð áhersla á að kynna það
helsta sem er að gerast í list-
heimi samtímans á vegum sýning-
araðila frá 28 löndum.
Edda Jónsdóttir eigandi gall-
erís i8 kom til landsins fyrir helgi
eftir þátttöku í Art Forum Berlin
í fyrsta sinn og segir hún þátt-
tökuna hafa verið árangursríka,
sérstaklega vegna nýrra sam-
banda við áhrifafólk þar í borg.
Gallerí i8 sýndi með tveimur
þýskum galleríum frá Berlín og
Stuttgart sem i8 hefur verið í
nokkru samstarfi við undanfarið.
„Við sýndum þrjú saman í einum
standi, sem gerði það að verkum
að við vorum með einn stærsta
sýningarstandinn á kaupstefn-
unni. Uppsetningin tókst jafn-
framt mjög vel og hafði stand-
urinn tilkomumikinn heildarsvip,
og er þar ekki síður að þakka
hinni glæsilegu aðstöðu sem
kaupstefnan býður uppá. Aðsókn-
in á standinn var mjög góð og
held ég að með þessu móti hafi
galleríið og listamennirnir á þess
vegum náð talsvert meiri árangri
í að mynda tengsl en hefði gall-
eríið sýnt eitt og sér,“ segir
Edda. „Til okkar komu helstu
safnarar og safnstjórar í Berlín,
og fleira mjög ráðandi fólk í list-
heiminum, m.a. Harold Seeman,
sem valdi inn á Feneyjatvíæring-
inn, og sýningarstjórar frá
Hamburger Banhof hér í Berlín
en þar er fyrirhuguð sýning á
ungri norrænni list árið 2003 og
sýndi þetta fólk töluverðan
áhuga.“
Berlín sem miðstöð
myndlistar
Edda segir að viðræður hafi
komist á við ýmsa aðila um bæði
kaup á verkum íslensku myndlist-
armannanna og sýningar á verk-
um þeirra erlendis, m.a. í Kunst-
halle Stuttgart á næsta ári. Auk
þess hafi heimsþekktir listamenn
sýnt áhuga á að sýna á vegum i8
á Íslandi. „Þetta hefur verið
ákaflega mikilvægur vettvangur
til kynningar íslenskar mynd-
listar erlendis og er ég ákveðin í
því að taka þátt í stefnunni að ári
liðnu. Berlín er að verða ein af
„heitustu“ borgum á sviði mynd-
listar og skiptir það því miklu
máli að taka þátt í listamessu
sem þessari. Menn höfðu tals-
verðar áhyggjur af því að hörm-
ungaratburðir síðustu vikna
myndu hafa áhrif á aðsókn, en
reyndin var sú að aldrei hafa jafn
margir sótt opnunina. Það var
hins vegar merkilegt að aðsókn
datt niður í einn og hálfan tíma
eftir að tilkynnt var um að árásir
Bandaríkjamanna og Breta á
Afganistan væru hafnar. Menn
eru sammála um að gangur
heimsmála muni hafa mikil áhrif
á möguleika á sölu verka, og
fylgjast menn grannt með þeim
hræringum sem eru að eiga sér
stað,“ segir Edda.
Kaupstefnunni Art Forum Berl-
in var komið á fót árið 1995 og
hefur það að markmiði að efla
borgina sem eina helstu miðstöð
samtímalisthræringa í Evrópu.
Myndlistarmennirnir sem i8
kynnti á kaupstefnunni eru Finn-
bogi Pétursson, Hrafnkell Sig-
urðsson, Hreinn Friðfinnsson,
Kristján Guðmundsson, Ragna
Róbertsdóttir, Sigurður Guð-
mundson, Max Cole, Roni Horn
og Karin Sander.
Gestir skoða verk frá galleríi Markus Richter í Berlín, sem sýndi með i8 á kaupstefnunni. Auk þess má sjá ljós-
myndaverk eftir Roni Horn tl hægri og skúlptúra Sigurðar Guðmundssonar á gólfi.
Þátttaka i8 í kaupstefnunni Berlin Art Forum
„Brýnt fyrir kynningu
á íslenskri myndlist“
Verk Finnboga Péturssonar (t.v.), Sigurðar Guðmundssonar (á gólfi) og
Rögnu Róbertsdóttur (t.h.) í standi gallerís i8 á Art Forum í Berlín.
Á ÆVINTÝRASÝNINGU „Kattar
úti í mýri ...“ í Norræna húsinu er
meðal annars Söguherbergi, þar sem
sagðar verða sög-
ur annað slagið
meðan á sýning-
unni stendur.
Aðstandendur
sýningarinnar
sendu bréf til
allra ráðherra
ríkisstjórnar Ís-
lands og báðu þá
um að segja
börnum sögur í
Söguherberginu. „Viðbrögð ráð-
herranna voru mjög jákvæð og allir
vildu gjarnan gera þetta. Á þennan
hátt vilja þeir aðstoða Köttinn við að
vekja athygli á gildi bókmennta og
þeirrar gleði sem þær geta vakið,“
segir Guðrún Dís Jónatansdóttir hjá
Norræna húsinu.
Næstu sunnudaga verður því
hægt að hlusta í Söguherberginu á
ráðherra lesa sögur sem þeir hafa
sjálfir valið. Fyrsti ráðherrann, Siv
Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra,
les upp í dag kl. 13.
Sögustund
ráðherranna
Siv
Friðleifsdóttir