Morgunblaðið - 14.10.2001, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 51
DAGBÓK HÖFUÐBEINA- OG SPJALDHRYGGSJÖFNUN
College of Cranio Sacral Therapy London.
3ja ára heildarnám. A. hluti 1. stig 10.-15. nóv.
Námið veitir full réttindi innan bresku og evrópsku samtakanna.
cranio.simnet.is - cranio@simnet.is
Gunnar 699 8064 - Margeir 897 7469
Antíkmessan
2001
Sölusýning
í Perlunni til 21. október
Opið frá kl. 11-18
Skólavörðustíg, s. 698 7273
Klapparstíg, s. 896 3177
Gili, Kjalarnesi, s. 566 8963
Guðmundur Hermannsson,
úrsm., Bæjarlind, s. 554 7770
Hverfisgötu, s. 695 7933
Meðvirkni
Námskeið um meðvirkni, samskipti, tjáskipti
og tilfinningar verður haldið föstudagskvöldið
26. október og laugardaginn 27. október
í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafiNánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
!"#"$
%&
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VOG
Afmælisbarn dagsins:
Þér lætur betur að starfa á
bak við tjöldin en vera í
sviðsljósinu. Þú ert ljúfur og
hjálpfús.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þótt til orðaskaks komi milli
þín og náins vinar, skaltu sýna
þolinmæði og alls ekki láta
reiðina ná tökum á þér.
Brostu bara framan í heiminn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þótt þér þyki óþægilegt að
hlusta á aðra segja þér til um
heilsufar þitt, skaltu hlusta,
því vinur er sá er til vamms
segir. Hugsaðu svo þitt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú átt ef til vill erfitt með að fá
vini þína til að fallast á fyr-
irætlanir þínar. Sýndu samt
ekki óþolinmæði heldur gefðu
þeim tíma til að átta sig.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Vinir og vandamenn sækjast
eftir tíma þínum og þú átt að
láta þeim hann í té eftir
fremsta megni. Mundu að þú
leitar til þeirra þegar þú þarft
með.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Taktu þér nægan tíma og
leggðu þig allan fram við að
útskýra mál þitt svo enginn
þurfi að taka afstöðu til mála
með ófullnægjandi upplýsing-
ar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Láttu ekki draga þig í dilka í
þeim deiluefnum sem koma
upp á vinnustað þínum. Til þín
kann að verða leitað sem
sáttasemjara og þá hefur þú
þitt á tæru.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ættir að taka daginn í dag í
að klára þau verkefni sem
liggja óleyst á borði þínu.
Taktu ekki fleiri að þér fyrr
en þú situr við hreint borð.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Hlustaðu á það sem náinn vin-
ur hefur fram að færa og áður
en þú tekur afstöðu skaltu
reyna að komast að því hvað
það er í raun og veru sem
hann vill.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú þarft ekkert að gefa
drauminn frá þér þótt aðstæð-
ur hafi breyst. Það kemur
dagur eftir þennan dag og
tími til þess að láta drauminn
rætast.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Svo kann að fara að þú þurfir
að taka upp gömul mál sem þú
hélst að væru gleymd og graf-
in. Gakktu úr skugga um hvað
menn vilja gera með þau.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þótt þér liggi á máttu ekki
vinna svo hratt að þú klárir í
raun ekki neitt. Það er betra
að geyma hlutina heldur en
láta þá frá sér hálfkaraða.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér kann að þykja það erfitt
hversu vinur þinn er hikandi
við að standa við sinn hluta af
skuldbindingum ykkar. Gefðu
honum tíma til þess að átta
sig.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
EFTIR sterka laufopnun
austurs kaupir suður
samninginn í fjórum spöð-
um doblum:
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ D2
♥ 102
♦ ÁD84
♣ G10862
Suður
♠ ÁK1087654
♥ 8764
♦ 2
♣ --
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 1 lauf * 4 spaðar
Pass Pass Dobl Pass
Pass Pass
* Sterkt lauf.
Útspil vesturs er tígul-
gosi. Hvernig er best að
spila?
Átta slagir á tromp og
tígulás gera níu. Ein
hjartastunga í borði dugar
í tíunda slaginn, en hætt
er við að vörnin nái að
trompa tvisvar út áður en
að því kemur. Tígulútspilið
kemur í veg fyrir mögu-
leika á innkasti í lokin, því
það slítur allt samband við
blindan. Svo kannski er
ekkert annað að gera en
að spila upp á hjarta-
stungu.
Norður
♠ D2
♥ 102
♦ ÁD84
♣ G10862
Vestur Austur
♠ G93 ♠ --
♥ D95 ♥ ÁKG3
♦ G10973 ♦ K65
♣73 ♣ÁKD954
Suður
♠ ÁK1087654
♥ 8764
♦ 2
♣ --
En ekki er sama hvernig
það er gert. Í reynd tók
sagnhafi á tígulás og spil-
aði hjartatvisti úr borði.
Austur sýndi mikinn aga
þegar hann lét þristinn í
þann slag! Þannig komst
vestur inn á hjartaníu og
aftur síðar á drottninguna
til að trompa tvisvar út.
Spilið fór því einn niður.
Í þessari legu er örugg
vinningsleið að trompa tíg-
ul heim í öðrum slag og
spila hjartaáttunni að
blindum. Vestur kemst þá
aðeins einu sinni inn á
hjarta til að trompa út.
E.S. Ekki er fráleitt að
svína tígli í öðrum slag,
þótt ólíklegt sé að vestur
sé að koma út frá tígul-
kóng. En það kostar ekk-
ert í raun og veru og sagn-
hafi getur ennþá byggt
upp hjartastungu.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
50 ÁRA afmæli. Ámorgun mánudaginn
15. október verður fimmtug-
ur Pálmar Þorgeirsson,
eigandi flutningafyrirtæk-
isins Flúðaleiðar ehf., Vest-
urbrún 15, Flúðum,
Hraunamannahreppi. Í til-
efni þess mun Pálmar ásamt
konu sinni, Ragnhildi Þór-
arinsdóttur, taka á móti
gestum að gistiheimilinu
Geysi, Biskupstungum,
laugardag 20. október kl. 21.
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, sunnudaginn 14. október, eiga 50
ára hjúskaparafmæli hjónin Svava Agnarsdóttir og Garðar
Pétursson. Þau eru að heiman í dag.
ÁÐUR hefur verið minnzt
á nafnorðið ártíð í þessum
pistlum og merkingu þess.
Trúlega virðist sá pistill
því miður hafa farið
framhjá þeim blaðamanni
Mbl., sem skrifaði í blaðið
30. sept. sl. ágæta grein
um mætan borgara, sem
fæddur var fyrir réttum
hundrað árum, en lézt fyr-
ir rúmum áratug. Greinin
endar á þessum orðum:
„Sæli kafari var lands-
þekktur maður sem vert
er að minnast nú á hundr-
að ára ártíð hans.“ Hér
skýtur enn upp kollinum
þeim misskilningi, að ártíð
merki hið sama og afmæli.
Svo er alls ekki. Ártíð er
haft um dánardægur. Þeg-
ar talað er um hundruð-
ustu ártíð manns, er átt
við, að liðin séu hundrað ár
frá andláti hans. Hér end-
urtek ég til frekari skýr-
ingar nokkur orð úr eldri
þætti. „Árið 1950 var 400
ára ártíð Jóns biskups
Arasonar og sona hans, en
þeir voru teknir af lífi af
danska konungsvaldinu
árið 1550. Á sama hátt var
hundraðasta ártíð Jóns
Sigurðssonar og konu
hans árið 1979, en þau lét-
ust bæði í desember
1879.“ Hins vegar var Há-
skóli Íslands stofnaður 17.
júní 1911, þ.e. á hundrað
ára afmæli Jóns Sigurðs-
sonar. Ég hygg engum
hafi dottið í hug að tala um
ártíð í því sambandi. Hér
er því reginmunur á merk-
ingu orðanna afmæli og
ártíð og engan veginn
unnt að setja „samasem-
merki“ milli þeirra. Ár-
tíðaskrá manna er því
skrá um dánardægur
manna. Dæmi eru líka um
ártíðardag og ártíðisdag í
þessu sambandi. Þessi
merkingaruglingur milli
ártíðar og afmælis mun nú
ekki nýr af nálinni, enda
er ártíð ekki algengt orð í
almennu máli manna. En
sjálfsagt er að fara hér
rétt með og gæta upprun-
ans. – J.A.J.
ORÐABÓKIN
Ártíð
LJÓÐABROT
ÚR VÍGLUNDARSÖGU
(14. öld)
Eigi má ek á ægi
ógrátandi líta,
sízt er málvinir mínir
fyr marbakka sukku;
leiðr er mér sjóvar sorti
ok súgandi bára,
heldr gjörði mér harðan
harm, í unna farmi.
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4
cxd4 4. Rxd4 a6 5. Rc3
Dc7 6. Be2 Rf6 7. O-O d6
8. f4 Be7 9. De1 b5 10. Bf3
Bb7 11. e5 dxe5 12. fxe5
Bc5 13. Kh1 Bxd4 14. exf6
Bxf3 15. Hxf3 gxf6 16. Re4
Rd7 17. Bf4 Be5
Staðan kom upp í Evr-
ópukeppni taflfélaga sem
lauk fyrir stuttu í Krít.
Rússneska undrabarnið
Alexander Grischuk
(2669) hafði hvítt gegn
Claudiu Zetocha (2434) 18.
Rxf6+! og svartur gafst
upp enda staða hans slæm
eftir t.d. 18... Ke7 19.
Db4+ Rc5 20. Rd5+! exd5
21. Bxe5 Dxe5 22. He1.
Seinni dagur atskákmóts
Glefsis hefst kl. 14.00 í dag
í Fjölbrautaskóla Garða-
bæjar.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face
Ungbarnafatnaður
Komdu í bæinn og skoðaðu úrvalið og
verðið. Allt fyrir mömmu.
Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136.