Morgunblaðið - 14.10.2001, Page 60
60 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10.10. B i. 16. Vit 251
strik.is
Mögnuð stuðmynd
í nánast alla staði!
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. , 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 274
THE IN CROWD
Sýnd kl. 1.45, 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
Mán kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B. i. 12. Vit 269
Með sama genginu.
Ekki missa af skemmtilegustu grínmynd ársins.
Allir vilja
þeir sneið af
„glæpakökunni“
Nýjasta snilldar-
verkið frá
meistaranum
Woody Allen.
Með hreint út sagt
úrvalsliði leikara:
Hugh Grant ,
Tracey Ullman ,
Michael Rapaport
og Jon Lovitz .
ÞÞ strik.
is
SÁND
Sýnd kl. 1.50 og 3.45. mán kl. 3.45.
Íslenskt tal. Vit 245
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mán kl. 4 og 6.
Ísl tal. Vit 265.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mán kl. 4 og 6.
Íslenskt tal. Vit 245
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i.16 ára Vit 280.
Kurt Russell, Kevin Costner, Courteney Cox,
Christian Slater, David Arquette og Jon Lovitz í
hörkuspennandi mynd um rán á spilavíti
í glansborginni Las Vegas.
Konugur glæpanna er kominn!
FRUMSÝNING
strik.is
Radio X
DV
Sýnd kl. 6. B.i. 12. Vit 256
Tilboð 2 fyrir 1
Sýnd kl. 2 og 4. (2 fyrir 1)
Mán kl. 4.(2 fyrir 1)Ísl tal Vit 213
Sýnd í Lúxus VIP kl. 1.45, 3.45, 5.45, 8
og 10.10 Mán kl. 3.45, 5.45, 8
og 10.10 B.i 16 ára Vit nr. 278
HÁSKÓLABÍÓ
Í leikstjórn
Steven Spielberg
Hagatorgi www.haskolabio.is sími 530 1919
Radíó X
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
HK DV
Mbl
Hæfileikar
eru ekki
allt.
Sýnd kl. 6.
Himnasending i i
Sýnd kl.10.
Sýnd kl. 5.15 og 10. B. i. 12 ára.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16 ára.
Með sama genginu
Ekki missa af skemmtilegustu
grínmynd ársins.
Sýnd kl. 3, 5.45, 8 og 10.15.
Mán kl.5.45, 8 og 10.15 B. i. 12 ára.
Stærsta mynd ársins yfir
50.000 áhorfendur
ÞÞ strik.
is
Sýnd kl. 8. (2 fyrir 1)
Mán kl. 6 og 8 (2 fyrir 1)
Sýnd sunnudag kl. 2 og 4. Sýnd sunnudag kl. 2 og 4.
Sýnd sunnudag kl. 3. (2 fyrir 1)
SÁND
TILLSAMMANS
Vegna fjölda áskor-
ana verður myndin
sýnd í nokkra daga.
Stærsti salur landsins með 220 fm tjaldi.
Menn eru tilbúnir að
deyja fyrir þær.
Hrá, sexí og svöl glæparæma í anda Shallow Grave,
Thelma & Louise og Bound.
Með Rachel Weisz (The Mummy Returns, Enemy at the
Gates), Susan Lynch (Waking Ned Devine)
og Iain Glen (Lara Croft: Tomb Raider).
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 8.
Tilboð 2 fyrir 1
Tilboð 2 fyrir 1
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.30.
Mán kl. 8 og 10.30.
975
sæt
i
í sa
lnu
m
Ég hef hafið störf á
hár og sýningarhúsinu
Unique Laugavegi 168
(Brautarholtsmegin)
s. 552 6789.
Verið velkomin
Jóa.
(Var áður á Jóa og félögum)
ÁÐUR ER getið á þessumstað þeirrar þróunar semverið hefur í tónlist vestanhafs að menn hafa leitað
aftur í upprunann, beislað sköp-
unarkraftinn og einlægnina í sveita-
tónlistinni bandarísku á bernsku-
skeiði hennar. Bæði er að gamlir
refir í slíkri tónlist hafa tekið upp
einfaldari flutningsmáta og bein-
skeyttari og svo hitt að ungir tón-
listarmenn hafa farið sömu leið eða
fetað út í bræðing af rokki og/eða
pönki og sveitatónlist áþekkt því
sem Byrds, Band og
Buffalo Springfield
gerðu á sjöunda ára-
tugnum.
Innan bandarísku
sveitabylgjunnar, ef
nota má þann merki-
miða, eru óteljandi
flokkar sem sumir skar-
ast meira eða minna.
Flestir merkimiðarnir,
eins og til að mynda no
depression, roots-rock,
folk-rock, alternative
country eða americana,
eru vitanlega aðeins
hjálpartól sem tónlistar-
gagnrýnendur og blaða-
menn hafa fundið upp
sjálfum sér til hægð-
arauka og oftar en ekki
er erfitt eða ógerningur
að skipa tónlistinni svo
á bása, því hún spannar
oftar en ekki allt frá
Appalachian-bluegrass í
rokkskotinn blús. Þann-
ig er því til að mynda
farið með margar skífur
einnar helstu útgáfu á
þessu sviði vestan hafs,
Lost Highway. Hún gaf
meðal annars út diskinn góða með
tónlistinni úr O Brother, Where
Art Thou? með tónlist úr sam-
nefndri kvikmynd og framhald
hans, Down From the Mountains,
en á þeim diskum er ágætis sam-
antekt yfir tónlistarstrauma frá
bökkum Mississippi. Lost Highway
gefur út meira en það, því á mála
hjá því fyrirtæki eru tveir merkir
tónlistarmenn; Lucinda Williams og
Ryan Adams, sem eru bæði að fást
við áþekka hluti en þó býsna ólíka.
Byrjað á húsgöngum
Lucinda Williams hefur sent frá
sér nokkrar framúrskarandi skífur
frá því hún kom fyrst fram á sjón-
arsviðið með plötu þar sem hún
söng gamla blússlagara eftir Ro-
bert Johnson og Memphis Minnie,
aukinheldur sem Hank Williams
lag fékk að hljóma í bland við þjóð-
vísur. Á þeirri plötu var Williams
ein á ferð með kassagítarleikara
sér til stuðnings, en hún stefndi
hærra eins og kom í ljós á næstu
skífum.
Williams er fædd í Louisiana,
dóttir nafntogaðs skálds, Millers
Williams, en móðir hennar var
snjall píanóleikari. Foreldrar henn-
ar höfðu gaman af að ferðast og
Williams segir það hafa haft áhrif á
tónlistarferil sinn að vera sífellt að
kynnast nýjum löndum og siðum,
enda segist hún kunna jafn vel að
meta Lorettu Lynn, Hank Will-
iams, Bob Dylan, Doors og Jimi
Hendrix, aukinheldur sem tónlist
víða að úr heiminum sé henni að
skapi.
Eins og getið er söng Williams
lög eftir aðra á fyrstu plötu sinni
sem kom út 1979, en á þeirri næstu,
sem kom út 1980, á hún öll lög og
fullskipuð hljómsveit sér um undir-
leikinn. Platan er skemmtileg en
Williams var aftur á móti ekki
ánægð með árangurinn, vildi ráða
meiru um útsetningar
og upptökur og svo fór
að það tók hana átta ár
að gera næstu plötu. Öll
vinnan skilaði sér aftur
á móti rækilega því
platan, sem heitir ein-
faldlega Lucinda Willi-
ams, gerði Williams að
stjörnu, en um leið fékk
hún það orð á sig að
vera óhemju erfið í
samstarfi eins og gjarn-
an er sagt um konur
sem vita hvað þær vilja.
Fremsti lagasmiður
Bandaríkjanna
Næstu plötu þar á
eftir, Sweet Old World,
tók fjögur ár að gera og
var ekki síðri. Sú sem á
eftir kom var sex ár í
smíðum, heitir Car
Wheels on a Gravel
Road. Hún seldist af-
bragðsvel og afskaplega
vel tekið af gagnrýn-
endum, svo vel reyndar
að sumir líktu henni við
Blonde on Blonde Dyl-
ans, sem þótti og þykir
mikill merkisgripur.
Car Wheels on a Gravel Road
var mjög rokkskotin, hljómur allur
og stemmning, en lögin aftur á móti
klassísk sveitatónlistarlög, af-
skaplega vel samin og útsett af
natni. Fyrir stuttu kom svo enn ein
gæðaplatan frá Lucindu Williams,
Essence.
Á Essence kveður nokkuð við
annan tón í yrkisefni, en textar
Williams hafa jafnan verið myrkir,
sjá til að mynda drungalega sjálfs-
vígstexta á Sweet Old World. Á Es-
sence er hún aftur á móti að syngja
um ást og skyldar tilfinningar og
gerir það opinskátt og einlægt eins
og hennar er siður. Sérdeilis
skemmtileg plata.
Þess má geta að fjölmargir aðrir
tónlistarmenn hafa tekið lög Luc-
indu Williams upp á sína arma og
ekki tilviljun að fyrir skömmu var
hún valin fremsti lagasmiður
Bandaríkjanna af Time tímaritinu.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Bandaríska
sveitabylgjan
Mikið er að gerast í tónlist vestanhafs þar sem
menn bræða saman nýbylgjurokk, pönk og sveita-
tónlist. Árni Matthíasson segir frá útgáfunni Lost
Highway og Lucindu Williams.