Morgunblaðið - 29.12.2001, Page 1
2001 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÍSÍ HEIÐRAR FIMMTÍU OG TVO ÍÞRÓTTAMENN / C2, C3
BERTI Vogts, fyrrverandi landsliðsþjálfari
Þýskalands og núverandi landsliðsþjálfari
Kúvæts, sem Ísland mætir í byrjun janúar,
mun að öllum líkindum taka við landsliði Skot-
lands í byrjun febrúar. Fyrir utan Vogts hafa
þeir Nevio Scala, fyrrverandi þjálfari Parma,
Frakkinn Philippe Troussier, landsliðsþjálfari
Japans, og Bruce Rioch, fyrrverandi fyrirliði
skoska landsliðsins, verið nefndir sem lands-
liðsþjálfarar. Vogts, sem er 54 ára, var leik-
maður með Borussia Mönchengladbach á árum
áður og varð heimsmeistari með Þýskalandi
1974 í München.
Það er rætt um að Vogts fái um 60 millj. ísl.
króna í árslaun og hann fái 50% bónusgreiðslu
ef Skotar komast í úrslitakeppni EM 2004 í
Portúgal og HM í Þýskalandi 2006.
Berti Vogts
þjálfari Skota
Íslenska liðið byrjaði mjög vel og
allt stefndi í stórsigur upp úr
miðjum fyrri hálfleik þegar staðan
var orðin 12:4. En þá urðu nokkur
kaflaskipti, Pólverjar skoruðu úr sjö
sóknum í röð og minnkuðu muninn
jafnt og þétt en staðan í hálfleik var
16:12, Íslandi í hag.
Pólverjar skoruðu tvö fyrstu
mörk síðari hálfleiks en 2–4 marka
munur hélst lengst af eftir það. Pól-
verjar jöfnuðu seint í leiknum og
komust síðan í 25:23 þegar þrjár
mínútur voru eftir. Einar Örn Jóns-
son minnkaði muninn tveimur mín-
útum fyrir leikslok og þegar hálf
mínúta var eftir misstu Pólverjar
boltann. Síðasta sókn Íslands rann
út í sandinn án þess að skot næðist
að marki Pólverja.
„Við byrjuðum leikinn geysilega
vel, vörnin var mjög þétt og sókn-
arleikurinn gekk upp. En síðan
fylgdi slæmur kafli í kjölfarið og við
misstum þetta smám saman niður.
Samt tel ég að við höfum ekki leikið
illa en það sem gerði útslagið var að
við nýttum ekki þrjú vítaköst og
mörg dauðafæri, ein 5–6 slík þar
sem við vorum einir gegn markverði
fóru forgörðum,“ sagði Einar Örn
Jónsson, hornamaður, í samtali við
Morgunblaðið eftir leikinn í gær-
kvöld.
Einar Örn sagði að það væri ekki
spurning að íslenska liðið ætti að
sigra það pólska á eðlilegum degi.
„Við fáum tvær aðrar tilraunir og
erum staðráðnir í að sigra þá í báð-
um leikjunum sem eftir eru,“ sagði
Einar Örn.
Halldór Ingólfsson var atkvæða-
mestur íslensku leikmannanna og
skoraði 8 mörk, 2 þeirra úr vítaköst-
um. Einar Örn skoraði 5, Gunnar
Berg Viktorsson 4 (3 úr vítaköst-
um), Guðjón Valur Sigurðsson 2 og
þeir Dagur Sigurðsson, Aron Krist-
jánsson, Sigfús Sigurðsson, Ragnar
Óskarsson og Rúnar Sigtryggsson
gerðu eitt mark hver.
Þeir Guðmundur Hrafnkelsson og
Bjarni Frostason vörðu 7 skot hvor
í íslenska markinu.
EIÐUR Smári Guðjohnsen, knatt-
spyrnumaður ársins á Íslandi 2001,
verður í sviðsljósinu í Englandi um
áramótin, svo framarlega sem
ökklameiðsli sem hann varð fyrir á
æfingu í gær setja ekki strik í
reikninginn. Hann haltraði af æf-
ingunni en reiknað er með honum í
byrjunarliðinu. Chelsea sækir topp-
lið Newcastle heim í dag og á ný-
ársdag tekur liðið á móti South-
ampton. Hér á myndinni er Eiður
Smári í baráttu við tvo af bestu
knattspyrnumönnum heims – enska
landsliðsmiðvörðinn Sol Campbell
og franska heimsmeistarann Pat-
rick Vieira, leikmenn Arsenal. Eið-
ur Smári og félagar urðu að játa sig
sigraða í þeirri orrustu, 2:1.
Reuters
Eiður í
baráttu
■ Leikir um áramót/B3
Bobby Robson/B4
ARNAR Sigurðsson, margfald-
ur Íslandsmeistari í tennis, ætl-
ar að söðla um á nýju ári og hef-
ur sett stefnuna á
atvinnumennsku í íþrótt sinni.
Hyggst hann freista þess að
verða fyrstur Íslendinga at-
vinnumaður í þessari íþrótt.
Arnar er tvítugur og lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum
í Kópavogi nú fyrir jólin.
Arnar segist þurfa að fara í
gegnum tvennskonar mótarað-
ir til þess að vinna sér inn stig
til að hann komist á lista yfir
1.000 bestu tennismenn heims.
Þannig öðlist hann þátttökurétt
á stórmótum. „Það má segja að
undankeppnin sé ekkert ósvip-
uð og í golfi. Menn verða að
fara í gegnum þrepaskiptar
mótaraður um allan heim til
þess að safna stigum á stórum
mótunum. Arnar segir vera
gamlan draum að fara út í at-
vinnumennsku. Um tíma naut
hann styrkja frá Tennissam-
bandi Evrópu sem efnilegur
unglingur og var þá kominn inn
á lista yfir 100 bestu pilta 18 ára
og yngri í Evrópu. Nú sé ráð að
stíga næsta skref.
Stefnir á
atvinnu-
mennsku
í tennis
Átta marka forskot
fór í súginn í Póllandi
ÍSLENDINGAR biðu lægri hlut fyrir Pólverjum, 25:24, í vináttulands-
leik í handknattleik sem fram fór í pólsku borginni Zory í gærkvöld.
Íslenska liðið var með undirtökin allan tímann og heimamenn náðu
forystunni í fyrsta skipti skömmu fyrir leikslok. Þetta var fyrsti leik-
ur þjóðanna af þremur en þær mætast aftur í Plock í dag og í Varsjá
í fyrramálið.