Morgunblaðið - 29.12.2001, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 29.12.2001, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2001 B 3 FÓLK  SAM Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, hefur hug á að styrkja sókn- arleik liðsins og horfir hann til Fredi Bobic, leikmanns með Dortmund.  ASTON Villa verður að snara tíu millj. punda á borðið, ef liðið á að hafa möguleika á að fá Andy Cole frá Man. Utd. Hann hefur einnig verið orðaður við Blackburn og Man. City.  EF Aston Villa ætlar sér Cole verður liðið að selja Kólumbíumann- inn Juan Pablo Angel, sem Parma hefur áhuga á – fyrir 9,5 millj. punda.  REAL Madrid er nú sagt hafa áhuga á hinum 23 ára miðvallarleik- manni Newcastle, Kiernon Dyer, til að leika við hlið Zinedine Zidane og Luis Figo. Man. Utd. og Leeds hafa einnig áhuga á Dyer.  ALEX Ferguson, stjóri United, segir að Frakkinn Laurent Blanc eigi ekki sök á neinu af þeim 28 mörkum sem félagið hefur fengið á sig í úrvalsdeildinni. Ferguson finnst Blanc hafa fengið óréttmæta gagn- rýni en þessi 36 ára gamli varnar- maður kom til liðsins í stað Jaap Stam í upphafi leiktíðarinnar.  „BLANC hefur sýnt það í undan- förnum leikjum að hann er ennþá klassavarnarmaður og ég hefði svo sannarlega viljað kaupa hann fyrir fimm árum. Hann er mikill foringi á vellinum, hvetur óspart og lætur vel í sér heyra,“ segir Ferguson.  ROMARIO, sem var á dögunum útnefndur knattspyrnumaður ársins í Brasilíu, er þessa dagana að velta fyrir sér tilboði frá ítalska 2. deild- arliðinu Napolí. Hann leikur nú með Vasco de Gama í Brasilíu, sem skuldar honum yfir 300 millj. ísl. kr. Romario hefur ekki leikið á Ítalíu, en aftur á móti á Spáni – með Barce- lona og Valencia, og í Hollandi með PSV Eindhoven.  SAMI Hyypia, fyrirliði Liverpool, var í vikunni útnefndur íþróttamað- ur ársins í Finnlandi af samtökum þarlendra íþróttafréttamanna. Hyypia hafði mikla yfirburði í kjör- inu. Í öðru sæti hafnaði skíðamað- urinn Paavo Puurunen og spjótkast- arinn Aki Parviainen, varð þriðji. LEIKIRNIR í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu nú um áramótin eru þessir: Laugardagur Arsenal - Middlesbrough Aston Villa - Tottenham Blackburn - Derby Bolton - Leicester Everton - Charlton Ipswich - Sunderland Newcastle - Chelsea Southampton - Leeds West Ham - Liverpool  Leikur West Ham og Liverpool er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 15. Sunnudagur Fulham - Man.Utd  Í beinni útsendingu á Sýn klukkan 14. 1. janúar Charlton - Ipswich Chelsea - Southampton Liverpool - Bolton Middlesbrough - Everton Sunderland - Aston Villa Tottenham - Blackburn Leicester - Arsenal  Í beinni útsendingu á Sýn klukkan 17.30. Leeds - West Ham  Í beinni útsendingu á Sýn klukkan 20. 2. janúar Derby - Fulham Man.Utd. - Newcastle  Í beinni útsendingu á Sýn klukkan 20. Áramóta- leikir komast á sigurbraut,“ segir Frank ampard, miðvallarleikmaður helsea, sem hefur skorað mark í eimur síðustu leikjum Chelsea. „Létt“ hjá Arsenal Arsenal og Liverpool, sem eru emur stigum á eftir Newcastle, eiga un „léttara prógramm“ framundan hin toppliðin. Arsenal tekur í dag á óti Middlesbrough, sem tapað hefur órum af fimm síðustu leikjum sínum, g á nýársdag heimsækir liðið Leicest- heim á Filbert Street. Sol Campbell, rnarmaðurinn öflugi sem Arsenal kk frá Tottenham fyrir tímabilið, úir því að Arsenal hafi mannskap til verða meistari, en Campbell hefur ks fundið taktinn í liði Arsenal og fur átt tvo stórleiki í röð – á móti verpool og Chelsea. „Ég efast ekki um að lið okkar er ægilega sterkt og með það mikla ynslu að við eigum að geta unnið ildina. Við megum hins vegar alls ki ofmetnast þrátt fyrir gott gengi í ðustu leikjum. Við verðum að vera á num og með einbeitinguna í 100% lagi,“ segir Campbell sem skoraði fyrsta mark sitt fyrir Arsenal í 2:1 sigrinum á móti Chelsea. Erfitt val hjá Thompson Liverpool mætir West Ham á Upton Park í Lundúnum í dag og tekur svo á móti Bolton á nýársdag. West Ham hefur átt ágætu gengi að fagna í und- anförnum leikjum – liðið taplaust í fimm síðustu leikjum svo Liverpool á í vændum erfiðan útileik. Phil Thomp- son sem stýrt hefur liði Liverpool í fjarveru Gerards Houlliers, hefur úr öllum sínum mannskap að velja í dag. Emile Heskey hefur jafnað sig á ökkla- meiðslum og höfuðverkurinn sem Thompson glímir við er að ákveða hvaða leikmönnum hann á að tefla fram í fremstu víglínu. Frakkinn Nicolas Anelka og Tékkinn Milan Ba- ros, sem báðir eru sóknarmenn, eru orðnir löglegir, Jari Litmanen hefur verið á skotskónum í undanförnum leikjum og Michael Owen freistar þess að skora sitt 100. mark fyrir félagið. „Það er ekki auðvelt að ákveða hvaða tveir leikmenn leika á fremstu víglínu, en hverjir sem það verða þá ættu þeir að ná vel saman. Anelka stóð sig vel þann tíma sem hann lék á móti Aston Villa og hann getur leikið með hverjum sem er,“ segir Thompson. Meiðsli hjá Leeds Meiðslavandræði eru hjá Leeds sem mætir í dag Southampton á útivelli og tekur svo á móti West Ham á Elland Road á nýársdag. David O’Leary, stjóri Leeds, hefur ákveðið að hvíla Harry Kewell, Erik Bakke, Domenic Matteo, Robbie Keane og Seth John- son í leiknum við Southampton í dag, en þeir hafa allir átt við meiðsli að stríða. Danny Mills kemur hins vegar til baka eftir að hafa tekið út leikbann á móti Bolton og þá er víst að Jonathan Woodgate mun halda stöðu sinni í öft- ustu vörn, en hann lék sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar Leeds skellti Bolton um síðustu helgi. Á næsta ári eru 10 ár liðin síðan Leeds varð meistari og þá var David nokkur Batty í herbúðum liðsins eins og í dag. „Á sama tíma fyrir ári vorum við ekki nálægt toppnum en við enduðum tímabilið vel. Ef okkur tekst að komast á svipaðan skrið og verðum heppnir varðandi meiðsli tel ég að Leeds eigi mjög góða möguleika á að fara langt í vetur og kannski alla leið,“ segir David Batty. Verður Beckham áfram á bekknum? Manchester United mætir Fulham á útivelli á morgun og er reiknað með að Alex Ferguson, stjóri United, geri litl- ar sem engar breytingar á liði sínu sem hefur unnið fjóra leiki í röð. Paul Scholes er laus úr leikbanni sem hann tók út í leiknum við Everton en þar með er ekki sagt að hann fái sæti í byrjunarliðinu. Spurningin sem brenn- ur á vörum allra er sú hvort David Beckham hefji leikinn á varamanna- bekknum fimmta leikinn í röð, en án Beckhams hefur meisturunum gengið allt í haginn. United hafði betur á móti nýliðum Fulham, 3:2, í fyrstu umferð deildarinnar en „Rauðu djöflarnir“ eiga harma að hefna á móti Newcastle sem vann meistarana 3:1 á heimavelli sínum í fyrri umferðinni. Guðni ekki með Reiknað er fastlega með því að Bolt- on leiki án Guðna Bergssonar í leikj- unum við Leicester og Liverpool. Guðni er meiddur í læri og hefur hans verið sárlega saknað í vörn Bolton í síðustu tveimur leikjum. Bolton hefur fengið átta mörk á sig í þessum leikjum og eitt sigur í síðustu níu leikjum hefur komið liðinu í fallbaráttuna. Hermann Hreiðarsson verður hins vegar í fullu fjöri með Ipswich sem hef- ur unnið tvo leiki í röð og er komið út botnsætinu. Ipswich tekur á móti Sunderland í dag og mætir Charlton á The Valley í Lundúnum á nýársdag. rðir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um áramótin eynir á Newcastle a sæti í ensku úrvalsdeildinni í verkefni nú um áramótin, en þá inni. Í dag tekur Newcastle á um degi nýs árs sækir toppliðið d Trafford. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.