Morgunblaðið - 09.08.2002, Qupperneq 3
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2002 C 3
JÚLÍUS Rafnsson, forseti Golf-
sambands Íslands, hélt stutta tölu
við upphaf Íslandsmótsins á Strand-
arvelli í gærmorgun. Hann minntist
Frímanns Gunnlaugssonar, fyrrver-
andi framkvæmdastjóra GSÍ, sem
lést á árinu og kylfingar minntust
hans með einnar mínútu þögn.
GUÐMUNDUR Magnússon móts-
stjóri setti síðan 60. Íslandsmótið í
golfi og Júlíus forseti sló fyrsta
höggið af kvennateig því það voru
stúlkurnar sem hófu leik klukkan
átta árdegis í gær. Höggið hjá for-
setanum var fínt og vel nothæft fyrir
pari á fyrstu brautinni. Fyrsti kepp-
andinn til að slá var Helga Rut Svan-
bergsdóttir úr GKj og tókst upphafs-
högg hennar með ágætum. Mótið fór
því vel af stað.
FYRIR þá sem vilja fylgjast með
gangi mála á Íslandsmótinu er hægt
að fylgjast nokkuð grannt með á
heimasíðu GSÍ, golf.is, en skor verð-
ur fært þar inn á þriggja holna fresti
þannig að menn geta fylgst vel með
þótt þeir séu ekki á staðnum. Einnig
verður sagt frá gangi mála á mbl.is.
KLÚBBFÉLAGAR í Golfklúbbn-
um á Hellu eru aðeins 118 og því má
telja það kraftaverki líkast að svo lít-
ill og fámennur klúbbur skuli geta
haldið jafn stórt mót og Íslandsmótið
er. Völlurinn er í mjög góðu standi og
öll aðstaða til mikillar fyrirmyndar.
INGI Rúnar Gíslason úr Keili þarf
ekki að stökkva hátt til að fylgjast
með kúlunni sinni þegar hann slær
því Einar Karl Haraldsson há-
stökkvari er kylfusveinn hjá Inga
Rúnari. Einar Karl sagðist lítið vera
í golfi sjálfur en hann hefði gaman af
að fylgjast með þeim bestu.
BJÖRGVIN Þorsteinsson, sem nú
keppir fyrir Golfklúbb Vestmanna-
eyja, er kominn með langan pútter
eins og stöðugt er að verða algeng-
ara. Björgvin sagðist hafa skipt fyrir
nákvæmlega ári. „Eftir tvo hringi á
síðasta Íslandsmóti var mér nóg boð-
ið, hringdi í félaga minn og bað hann
að lána mér einn langan, sem hann
gerði, og ég hef verið með svona
langan pútter síðan,“ sagði Björgvin.
BJÖRGVIN Sigurbergsson úr
Keili lék í gær á 71 höggi, einu höggi
yfir pari, sem er nákvæmlega eins og
hann lék fyrsta hring árið 1995 þegar
hann varð Íslandmeistari í fyrsta
sinn. Síðan þá hefur hann bætt
tveimur Íslandsmeistaratitlum í
safnið, 1999 á heimavelli í Hvaleyr-
inni og 2000 á Akureyri.
FÓLK
Það mátti fljótlega merkja á leik-mönnum FH að þeir mættu til
leiks með sjálfstraustið í lagi eftir
gott gengi í síðustu
leikjum. Það voru þó
Framarar sem
fengu fyrstu mark-
tækifærin í leiknum.
Þorbjörn Atli fór illa með gott færi á
7. mínútu og fimm mínútum síðar
kiksaði Eggert Stefánsson úr opnu
færi. FH-ingar létu þetta ekki slá sig
út af laginu. Þeir náðu smátt og
smátt undirtökunum í leiknum og
sérstaklega á miðsvæðinu þar sem
Heimir Guðjónsson var í aðalhlut-
verki. FH-ingar sóttu að Frömurum
hátt uppi á vellinum og á köflum var
pressan þung upp við mark Fram-
ara. Jónas Grani Garðarsson hefði
hæglega getað skorað tvö til þrjú
mörk í fyrri hálfleiknum en honum
brást bogalistin og Safamýrar-
drengirnir máttu prísa sig sæla að
halda jöfnu eftir fyrri hálfleikinn.
FH-ingar hófu síðari hálfleikinn
líkt og þeir enduðu þann fyrri.
Gunnar Sigurðsson sýndi snilldar-
markvörslu þegar hann varði
þrumuskot Jóns Þ. Stefánssonar og
rétt á eftir misnotaði Jónas Grani
enn eitt færið. Stuðningsmenn
Hafnarfjarðarliðsins voru farnir að
ókyrrast og þeir héldu svo sannar-
lega niðri í sér andanum þegar Þor-
björn Atli slapp einn inn fyrir vörn
FH en Daði Lárusson bjargaði sín-
um mönnum með glæsilegri mark-
vörslu. Framarar virtust missa móð-
inn við þetta atvik því fimm
mínútum síðar tókst Jónasi Grana
loks að brjóta ísinn og við það var
eins og blaðran spryngi því í kjölfar-
ið fylgdu þrjú mörk á aðeins 13 mín-
útum. Framarar minnkuðu muninn í
2:1 en FH-ingar voru ekki lengi að
kæfa möguleika þeirra því þeir svör-
uðu fyrir sig rétt í þann mund sem
Framarar voru hættir að fagna
marki Sævars Guðjónssonar. Bæði
lið fengu ágæt færi undir lokin og
ekki varð betur séð en Framarar
hefðu átt að fá vítaspyrnu þegar
Þorbjörn Atli var felldur á lokamín-
útunum.
„Við erum í góðum gír þessa dag-
ana og liðið spilar mjög sannfær-
andi. Við höfum spilað blússandi
sóknarleik sem skilað hefur mörgum
mörkum og ég get ekki verið annað
en ánægður með leik strákanna hér í
kvöld. Eins og leikurinn þróaðist var
þetta bara spurning hvenær en ekki
hvort okkur tækist að skora fyrsta
markið og eftir að það kom litum við
ekki til baka. Þetta var geysilega
mikilvægur sigur og nú verðum við
bara að fylgja honum eftir þegar við
fáum meistarana í heimsókn á
mánudaginn,“ sagði Sigurður Jóns-
son, þjálfari FH, við Morgunblaðið
en hann tók út leikbann og fylgdist
með lærisveinum sínum úr áhorf-
endastúkunni.
FH-liðið var mjög heilsteypt og
nánast hvergi veikan hlekk að finna.
Tilkoma Calums Betts og Atla Við-
ars hefur eflt mjög sóknarleikinn hjá
FH-ingum og segja mörkin tíu í síð-
ustu þremur leikjum sína sögu.
Vörnin var traust með Ásgeir Ás-
geirsson sem besta mann, Heimir
var öflugur á miðjunni og Jón Þor-
grímur gerði varnarmönnum Fram
lífið leitt allan tímann. Með sama
áframhaldi halda FH-ingar áfram að
fikra sig upp töfluna.
Framarar áttu á brattann að
sækja mestallan tímann. Þeir fengu
þó fín færi til að ná forystu en var
refsað grimmilega. Miðjan var afar
döpur og lykilmaður eins og Ágúst
Gylfason náði sér ekki á strik og
munar um minna. Það var helst
Freyr Karlsson sem náði að skapa
eitthvað fyrir þá bláklæddu en í
heild léku Framarar undir getu og
verða að taka sig á ef ekki á illa að
fara.
„Við áttum ekkert meira skilið út
úr þessum leik. FH-ingarnir voru
betri og unnu verðskuldaðan sigur.
Við vorum heppnir að vera ekki und-
ir í hálfleik og það var aðeins tíma-
spursmál í síðari hálfleik hvenær
FH kæmist yfir. Það hefur vantað
neistann í lið okkar í allt sumar og
þegar við höfum fengið tækifæri til
að slíta okkur frá botnbaráttunni
höfum við ávallt klúðrað því. Það er
ekki spurning að við verðum að taka
okkur taki og hressa upp á leik okk-
ar,“ sagði Gunnar Sigurðsson, mark-
vörður Fram, við Morgunblaðið.
FH-ingar
fikra sig upp
ÞAÐ verður ekki annað sagt en FH-ingar hafi unnið afar verðskuld-
aðan sigur á Frömurum á heimavelli sínum í Kaplakrika í gærkvöldi,
í lokaleik 8. umferðar sem frestað var á sínum tíma vegna þátttöku í
Inter-toto-keppninni. FH-ingar höfðu tögl og hagldir allt frá byrjun
leiks og unnu sannfærandi 3:1-sigur sem kom þeim upp í fimmta
sæti deildarinnar en Framarar sitja í áttunda sæti og ef marka má
frammistöðu þeirra í gær eiga þeir í vændum baráttu um að halda
sæti sínu í deildinni.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
!
"
# $%" & '& (
)
'
*"&#
+,
! "
#
$
%
%
&'( )
*
+
,-
.$
/
0
1
/ 23-4
-
15-&
2"-44
6/
7+ 7/
/82-.
9
-".//.
' & 0 ( 1. , "* %5.
/23/
# 4 5 &
' &
/
!!
6
$
+ :
""1!4
;
( <
)
.$
1
=>-4
,?@
*
+9
%'+.
1<$A2-4
#
/
19 $AB-4
,C -
& '7118& *
9 & 7:38& * &
;<6 & '7-18& *
/
:
/ 6
"B7=/8
;B7==8
;"72.8
>"72:8
"A1A4
3
r
.
u
r
,
g
n
a
-
-
-
a
r
ð
r
í
r
f
.
-
,
höggi á eftir Erni Ævari. Hann hóf leik á
tíundu holu og byrjunin lofaði ekki góðu
því hann fékk par á holuna, sem er stutt
par fjórir og tiltölulega auðveld „fugla-
hola“, en ef til vill ekki sem fyrsta hola
dagsins. Síðan kom skolli og annar til, þá
par og loks fugl á 14. holunni. Þrjú pör
fylgdu í kjölfarið og skolli á 18. holunni og
því tvö högg yfir pari eftir níu holur.
Tryggvi lét það hins vegar ekki á sig fá
og hóf síðari hringinn, þann fyrri á vell-
inum, með glæsibrag. Þrír fuglar í röð og
allt í einu var hann kominn einu höggi
undir pari eftir tólf holur. Par var næst á
dagskránni og síðan fugl. Aftur par og
fugl og loks tvö pör. Flott spilamennska á
síðari hringnum en hann lék Tryggvi á
fimm undir pari.
Fimm kylfingar eru höggi á eftir
Tryggva, á tveimur höggum undir pari.
Haraldur Hilmar Heimisson, GR,
Gunnar Þór Gunnarsson, GKG, Ottó Sig-
urðsson, GKG, Pétur Óskar Sigurðsson,
GR, og Sigurpáll Geir Sveinsson, GA.
Höggi þar á eftir koma fjórir kylfingar
úr fjórum klúbbum. Sigurður Pétursson,
GR, Helgi Birkir Þórisson, GS, Styrmir
Guðmundsson, GK, og Björgvin Þor-
steinsson, GV. Þrír kylfingar léku á pari í
gær, Kristinn Árnason úr GR, Willy
Blumenstein úr Leyni á Akranesi og
Birgir M. Vigfússon, GR. Það voru því 14
sem léku á pari eða betur á fyrsta degi.
starinn
látum
Morgunblaðið/Arnaldur
hún nýlega slegið inn á flöt.
VALSMENN taka þátt í Granollers-mótinu í handknattleik sem fram
fer í Granollers á Spáni dagana 3.–10. september næstkomandi. Þetta
er sama mótið og Íslandsmeistarar KA tóku þátt í á síðasta ári, en KA-
menn höfnuðu í öðru sæti á eftir franska liðinu Montpellier.
Auk Valsmanna og gestgjafanna í Granollers leika á mótinu frönsku
félögin Creteil og Tolouse.
„Ég lít á þetta mót sem góðan undirbúning fyrir tímabilið. Liðin eru
sterk sem við komum til með að mæta og það verður fróðlegt að sjá
hvernig okkur tekst til á móti þeim,“ sagði Geir Sveinsson, þjálfari
Vals, við Morgunblaðið, en Geir þekkir vel til á þessum slóðum en hann
lék í tvö ár með liði Granollers.
Valsmenn á
Granollers-mótið