Morgunblaðið - 11.10.2002, Side 3

Morgunblaðið - 11.10.2002, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 C 3 Getraunir í Víkinni Uppgjör í Sumargetraunaleik Víkings verður í Víkinni á morgun, laugardag, kl. 11.00, en eins og flestum er kunnugt sigraði hópurinn bæði í 1. og 2. deild í sumar. Eftir uppgjörið verður vetrarstarfið kynnt ásamt því að opið verður fyrir venjulega getraunastarfsemi. Við minnum einnig á skokkhópinn sem starfræktur er í Víkinni á laugardagsmorgnum sem og á aðgang að tækjasalnum. Sjáumst í Víkinni!! FÓLK  BJÖRGVIN Sigurbergsson, kylf- ingur úr Keili, lék í gær á Euro- pro-mótaröðinni á 68 höggum eða þremur höggum undir pari Duds- bury vallarins og dugði það honum til að komast áfram. Í gær hitti Björgvin níu brautir og 14 flatir á réttum höggafjölda. Púttin voru að þessu sinni 29.  BJÖRGVIN er á 144 höggum en þeir sem léku á höggi meira kom- ust ekki áfram. Björgvin var einn af sex sem léku hringina tvo á 144 höggum. Í gær fékk Björgvin þrjá skolla og sex fugla og síðustu hol- urnar lék hann á fugli, fugli og pari.  DAGUR Þórisson, miðherji í úr- valsdeildarliði Grindavíkur í körfu- knattleik, mun ekki leika með lið- inu í vetur vegna meiðsla. Dagur sleit krossband í hné í leik á Reykjanesmótinu fyrir nokkru gegn Haukum og mun gangast undir aðgerð á næstunni og verður því ekki klár í slaginn fyrr en á næsta tímabili.  ÞÁ geta Grindvíkingar ekki not- að miðherjann Nökkva Má Jónsson í upphafi Íslandsmótsins þar sem Nökkvi er með brotið rifbein og verður frá af þeim sökum næstu vikurnar.  BALDUR Ólafsson mun leika með úrvalsdeildarliði KR í vetur, en Baldur hélt utan til Spánar fyr- ir skemmstu og gerði samning til eins árs við körfuknattleiksliðið Leche Breogan Lugo sem leikur í efstu deild þar í landi. Baldur lék með varaliði félagsins og sam- kvæmt frétt á heimasíðu KR kunni Baldur ekki við sig á Spáni og ósk- aði eftir að fá samningnum rift.  KVENNALIÐ Keflvíkinga í körfunni verður erfitt viðureignar í vetur þegar Erla Þorsteinsdóttir og Carrie Coffman verða mættar til leiks. Erla hefur verið meidd en er byrjuð að æfa og beðið er eftir leikheimild fyrir Coffman, sem lék með liðinu í fyrra.  GHENADI Khalepo, félagi Ró- berts Sighvatssonar og Sigurðar Bjarnasonar hjá þýska handknatt- leiksliðinu Wetzlar hefur fengið þýskan ríkisborgararétt. Khalepo er 33 ára og á að baki 72 landsleiki fyrir Hvíta-Rússland. Hann hefur búið í Þýskalandi í níu ár og m.a. leikið með Lemgo, Nettelstedt og Düsseldorf auk Wetzlars.  GUENTER Netzer, leikmaður þýska heimsmeistaraliðsins á HM 1974, hefur keypt svissnesku fjöl- miðlafyrirtækið KirchSport AG. Það gerði hann með aðstoð fyrrver- andi forstjóra Adidas. Þar með hef- ur Netzer eignast réttinn á útsend- ingum í sjónvarpi frá HM 2006 sem einmitt fer fram í hans heimalandi. Auk þess þá á fyrirtækið sýning- arréttinn frá leikjum efstu deildar þýsku knattspyrnunnar. Ekki hef- ur verið greint frá kaupverði fyr- irtækisins sem stóð á brauðfótum vegna slæmrar fjárhagsstöðu.  FORRÁÐAMENN enska 3. deild- ar liðsins Exeter City segja ekki lengur hafa áhuga á að ræða við Paul Gascoigne um að hann taki að sér knattspyrnustjórn hjá félaginu. Til stóð að þeir ræddu við Gasc- oigne en hætt var við fundinn og engin skýring gefin á. John Corn- forth, framkvæmdastjóri Exeter, segir að 61 maður hafi lagt inn um- sókn um starfið og rætt verði við 17 þeirra. ÍÞRÓTTIR Samvinna Þróttar og Hauka KNATTSPYRNUDEILDIR Þróttar í Reykjavík og Hauka í Hafnarfirði hafa ákveðið að vinna saman með meistaraflokka félaganna í kvennaflokki. Ekki þó með því að sameina þá og tefla fram einu liði. Stefnt er að því að bestu leikmenn félag- anna tveggja spili undir merkjum Þróttar í úrvals- deildinni næsta sumar en þeir leikmenn sem ekki séu tilbúnir til að spila þar leiki með Haukum í 1. deild. Þrótt- ur vann Hauka í úrslitaleik 1. deildarinnar í haust og tryggði sér með því úrvals- deildarsæti. Haukar eiga marga efnilega leikmenn sem hafa verið orðaðir við úrvalsdeildarlið í haust en nú virðast mestar líkur á að þeir leiki með Þrótti, í samvinnu við Hauka. ALLS leika 117 útlendingar frá 24 þjóðum í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik á þessari leiktíð, þar af níu Íslendingar, en með Þjóðverj- um eru 290 leikmenn samnings- bundnir liðum í deildinni, sem margir segja að sé sú sterkasta í heiminum. Útlendingar eru því um 40% leikmanna sem eru á mála hjá félögunum. Svíar eiga fjölmenn- asta hóp útlendinga í deildinni, en alls er 21 Svíi samningsbundinn fé- lagsliðum í deildinni, þar af eru sex markverðir en Svíar hafa lengi átt hóp góðra markvarða sem tald- ir hafa verið meðal þeirra bestu í heiminum. Frakkar og Danir eiga 11 leikmenn í deildinni hvor þjóð. Þar á eftir koma Norðmenn með tíu og þar næst Íslendingar og Júgóslavar með 9 leikmenn. Átta Pólverjar leika í deildinni, Rúss- arnir eru sex, Spánverjar og Hvít- Rússar eiga fjóra leikmenn. Króat- ar, Hollendingar, Tékkar, Austur- ríkismenn eiga þjá fulltrúa hver þjóð, tveir Svisslendingar spila í þýsku 1. deildinni, svo og tveir Suður-Kóreumenn. Finnar eiga einn fulltrúa, einnig Úkraína, Slóv- enía, Slóvakía, Túnís og það sem e.t.v. vekur mesta athygli er að einn leikmaður frá Brasilíu og einn frá Nígeríu eru samningsbundnir liðum í deildinni en hvorug þess- ara þjóða hefur verið aðsópsmikil á stórmótum í handknattleik í gegnum tíðina. Íslendingarnir níu í deildinni eru; Ólafur Stefánsson og Sigfús Sigurðsson hjá Magdeburg, Guð- jón Valur Sigurðsson og Patrekur Jóhannesson með Essen, Róbert Sighvatsson og Sigurður Bjarna- son eru á mála hjá Wetzlar, Gústaf Bjarnason hjá GWD Minden, Gylfi Gylfason með Wilhelmshaverner og Einar Örn Jónsson hjá Wallau Massenheim. Eru Íslendingarnir í deildinni nú fjórum fleiri en í fyrra. 40% útlendingar í þýsku deildinni Einar Örn Jónsson KSÍ bauð Jóhannesi á leikinn JÓHANNES Eðvaldsson, fyrr- verandi fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, sem búsettur hefur verið í Glasgow í Skotlandi í 27 ár, verður á meðal áhorfenda á Laug- ardalsvellinum á morgun þeg- ar Íslendingar taka á móti Skotum í undankeppni EM. Jó- hannes sagði í viðtali við Morg- unblaðið á miðvikudaginn að sér þætti verst að geta ekki komið til Íslands og séð leik- inn, en síðdegis þann sama dag hringdi Eggert Magnússon, formaður KSÍ, í Jóhannes og bauð honum á leikinn á kostn- að KSÍ. „Ég kom alveg af fjöllum þegar Eggert sagði mér að KSÍ hefði ákveðið að bjóða mér á leikinn. Það verður gaman að vera á meðal áhorfenda enda hef ég taugar til beggja þjóða, þótt hjartað slái með íslenska liðinu,“ sagði Jóhannes, sem kemur til landsins í dag. Það er mjög fín stemmning íhópnum og dagskipunin hjá mér fyrir leikinn er einföld. Við ætl- um að vinna Skotana og ég tel ágæta möguleika á að það geti tekist,“ sagði Ólafur í samtali við Morgunblaðið í gær frá Hótel Selfossi þar sem landsliðshópurinn dvelur fram að leik í góðu yfirlæti. Ekki var hægt að æfa fyrir austan í gær vegna mikillar bleytu á vellinum og var gripið til þess ráðs að keyra í bæinn og var æft innandyra í Fífunni í Smáranum. „Ef 80–90 prósent af liðinu ná góð- um leik þá held ég að við getum lagt Skotana að velli. Leikirnir tveir sem við höfum spilað að undanförnu hafa að mörgu leyti verið mjög góðir og vonandi getum við haldið áfram á sömu braut og byggt ofan á það sem við höfum gert. “ Ólafur hefur undanfarna daga ver- ið að skoða spólu frá leik Skota við N-Íra sem háður var í síðasta mán- uði. „Skotarnir spila mjög fast og ákveðið og við verðum að vera til- búnir að mæta þeim af hörku. Þetta snýst um að leikmenn mæti til leiks með vilja og metnað til að ná árangri og ef þeir hlutir verða í lagi þá óttast ég ekki úrslitin,“ sagði Ólafur. Ólafur tilkynnir byrjunarlið sitt fyrir hádegi en ekki er alveg ljóst hvort Guðmundur Viðar Mede geti leikið þar sem hann hefur átt við flensu að stríða. Ungmennalandslið Íslands mætir Skotum í undan- keppni EM og Ólympíuleik á Kaplakrikavellinum Dagskipunin hjá Ólafi er sigur ÍSLENSKA ungmennalandsliðið í knattspyrnu, skipað leikmönnum undir 21 árs aldri, leikur í dag sinn fyrsta leik í undankeppni Evr- ópumótsins þegar það mætir Skotum á Kaplakrikavelli kl. 15.30. Leikurinn er jafnframt leikur í undankeppni Ólympíuleikanna í Aþenu 2004. Leikurinn er sá þriðji undir stjórn Ólafs Þórðarsonar, þjálfara, en leikirnir tveir á undan voru báðir vináttuleikir til undirbúnings fyrir leikinn við Skota og leikinn við Litháa sem fram fer á Kaplakrikavelli á þriðjudaginn. Ólafur stýrði sínum mönnum til sigurs á móti Ung- verjum, 1:0, en liðið tapaði síðan fyrir Frökkum, 2:1, ytra. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ólafur Þórðarson Morgunblaðið/Golli ústafsson reynir að stöðva hann. EIÐUR Smári Guðjohnsen sagði í við- ali á netmiðlinum Sky í gær að jafn- efli við Skota yrðu viðunandi úrslit en hann vonaðist þó eftir sigri með dygg- um stuðningi íslenskra áhorfenda. Eið- ur Smári, sem leikur sinn 19. landsleik, sagði að Skotar ættu í vændum mjög erfiðan leik á Laugardalsvellinum. „Það er ekki auðvelt að koma til Ís- ands og ætlast til að ná hagstæðum úr- slitum. Við verðum með meirihluta áhorfenda á okkar bandi og ég veit að stemmningin á vellinum verður brjál- æðislega góð. Sjálftraustið er gott í hópnum og þetta verður einn stærsti eikur nokkurra leikmanna í liðinu sem þeir vilja örugglega sanna sig í. Við viljum í það minnsta fá eitt stig út úr eiknum en þrjú stig gæfu okkur byr í seglin og mikið sjálfstraust upp á fram- haldið,“ sagði Eiður. Eiður Smári segir jafntefli viðunandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.