Morgunblaðið - 25.10.2002, Blaðsíða 1
2002 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
HARALDUR LÉK Á HÖGGI UNDIR PARI Á HM Í MALASÍU / C3
PATRICK Vieira, hinn skapbráði fyrirliði
Arsenal, var í gær sektaður um 25 þús. sterl-
ingspund og dæmdur í tveggja leikja keppn-
isbann, fyrir að hafa sent dómaranum Andy
D’Urso tóninn, eftir að hann sýndi Vieira
rauða spjaldið í kjölfarið á seinna gula
spjaldinu sem hann fékk í leik gegn Chelsea
1. september. Vieira, sem lét D’Urso fá það
óþvegið, missir af deildarleik á útivelli gegn
Fulham 3. nóvember og leik gegn Sunder-
land í deildarbikarkeppninni á Highbury
fjórum dögum seinna.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Vieira
hefur verið settur í bann af ensku aganefnd-
inni. Hann var dæmdur í sex leikja bann í
október 1999, fyrir að hafa hrækt á Neil
Ruddock, leikmann West Ham, í leik.
Vieira í tveggja
leikja bann
ALEX Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, hefur fengið
grænt ljós á að kaupa nýjan fram-
herja þegar leikmannamarkaðurinn
í ensku úrvalsdeildinni verður opn-
aður á ný í janúar. Í leiknum við
Olympikos í fyrrakvöld var Fergu-
son aðeins með einn framherja til
brúks – Úrúgvæann Diego Forlan –
því bæði Ruud van Nistelrooy og
Ole Gunnar Solskjær voru frá vegna
meiðsla. Ferguson segir á heima-
síðu Manchester United að hann
þurfti að fá meiri breidd í sóknarlín-
una enda sé mikið álag í úrvals-
deildinni og Meistaradeildinni fram
undan og hann gefur til kynna að
framherjinn sem hann hyggst
kaupa komi eingöngu til með að
spila leiki liðsins í úrvalsdeildinni.
Ferguson er sagður líta til þeirra
liða sem eru á leið út úr Meist-
aradeildinni í leit að framherja og
hefur nafn þýsku meistaranna í
Bayern München verið helst nefnt í
því sambandi en þátttaka í keppn-
inni hangir á bláþræði. Bæjarar
hafa í herbúðum sínum nokkra
framherja sem Ferguson er hugs-
anlega með á lista sínum, eins og
Brasilíumanninn Giovanni Elber,
Claudio Pizaro, Roque Santa Cruz
og Alexander Zickler. Á næstu vik-
um koma fjölmiðlar til með að velta
upp hinum ýmsu nöfnum nú þegar
Ferguson hefur gefið það út að
hann ætli að taka upp veski sitt og
strax í gær mátti sjá nöfn eins og
Gabriel Batistuta, Vincenzo Mont-
ella, Paolo Di Canio og Oliver Nau-
ville. Þá hefur Eiður Smári Guð-
johnsen sömuleiðis oftar en einu
sinni verið orðaður við Manchester-
liðið.
Ferguson fær grænt ljós
Aðsókn-
armet
í Noregi
LJÓST er að aðsóknarmet
verður sett í norsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu í ár
en þegar einni umferð er
ólokið er heildartala áhorf-
enda komin upp í 1.085.417.
Það þýðir að að meðaltali
hafa mætt 6.202 áhorfendur
á hvern leik í deildinni en
besta aðsókn hingað til var
árið 2000 en þá komu að með-
altali 5.722 áhorfendur á
hvern leik.
Árni Gautur Arason og
samherjar hans í Rosenborg
eru með besta aðsókn allra
liða í deildinni en að meðal-
tali hafa komið liðlega 14.000
áhorfendur á Lerkendal-
völlinn í Þrándheimi og er
það besta aðsókn norsku
meistaranna frá upphafi.
Morgunblaðið/Kristinn
Haukamaðurinn Sævar I. Haraldsson sendir hér knöttinn til samherja en að baki honum er Jón
Nordal Hafsteinsson, leikmaður Keflvíkinga – í leik liðanna í úrvalsdeildinni í körfuknattleik að
Ásvöllum í gærkvöldi, þar sem Keflvíkingar fóru með sigur af hólmi. Sjá umsögn á C2.
Stemmningin var engu lík og ástundum eins og best gerist á
leikjum enskra liða. Leikurinn var
reyndar ágæt
skemmtun þar sem
liðin skildu jöfn, 2:2,
en það sem vakti at-
hygli blaðamanns
Morgunblaðsins var „stemmningin“
sem virtist vera búin til á staðnum og
væri stuðningsmönnum Basel í blóð
borin. En svo reyndist ekki vera.
„Stuðningsmenn liðsins leggja
mikið á sig í dag líkt og liðið, en það
var ekki mikið sungið á leikjum Ba-
sel áður fyrr. Fólk mætti á völlinn og
klappaði af og til þegar eitthvað
gerðist,“ sagði Christian Kern mark-
aðsstjóri Basel í samtali við Morg-
unblaðið.
„Eftir að St. Jakobs-völlurinn var
vígður árið 2001 tóku stuðnings-
menn liðsins aðra stefnu en áður.
Þeir hittast nú í litlum hópum nokkr-
um sinnum í mánuði víðsvegar um
borgina. Á þeim fundum er ákveðið
hvaða söngva á að syngja á leikjum
liðsins. Fólk er með á nótunum og
allir vita nákvæmlega hvernig á að
bregðast við í öllum tilfellum. Ég við-
urkenni það fúslega að við „stálum“
okkar stemmningu og reynum að
líkja eftir því sem gerist hjá Eng-
lendingum. Það er ekki hægt að líkja
því saman hvernig þetta er í dag
miðað við áður. Stuðningsmenn liðs-
ins gera það sem þeir geta og eru
ánægðari fyrir vikið, hvernig sem
fer,“ sagði Kern og bætti því við að
stuðningsmenn Basel hefðu smitað
frá sér áhuga til annarra liða í Sviss.
„Vonandi verður „enskur“ blær á
svissnesku deildinni á næstu miss-
erum, án þess að það gangi of langt
því við erum ekki með nein vandamál
hjá stuðningsmönnum okkar.“
Stuðningsmenn Basel vekja athygli
„Stálum“
ensku and-
rúmslofti
SVISS er ekki þekkt fyrir knattspyrnuhefð sem líkja má við það sem
þekkist á Englandi eða Spáni, en á leik Basel og spænska liðsins
Valencia í Meistaradeildinni sl. þriðjudag á St. Jakob-vellinum var
engu líkara en að 30 þúsund stuðningsmenn svissneska liðsins
hefðu ekki gert neitt annað um ævina en að syngja þekkt stuðn-
ingslög.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
■ Sviss og.../C4