Morgunblaðið - 25.10.2002, Síða 2
ÍÞRÓTTIR
2 C FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
Haukar – Keflavík 72:90
Ásvellir, úrvalsdeild karla, Intersportdeild-
in, fimmtudagur 24. október 2002.
Gangur leiksins: 0:4, 5:4, 9:13, 11:20, 13:26,
16:28, 18:34, 25:36, 30:40, 34:45, 36:51,
40:56, 48:56, 48:64, 56:69, 62:61, 62:79,
70:79, 70:84, 72:90.
Haukar: Stevie Johnson 29, Ingvar Guð-
jónsson 15, Marel Guðlaugsson 9, Sævar I.
Haraldsson 7, Þórður Gunnþórsson 7, Hall-
dór Kristmannsson 3, Lúðvík Bjarnason 2.
Fráköst: 18 í vörn – 16 í sókn.
Keflavík: Damon S. Johnson 20, Kevin
Grandberg 17, Jón Nordal Hafsteinsson 11,
Guðjón Skúlason 11, Gunnar Einarsson 10,
Magnús Gunnarsson 7, Sverrir Þ. Sverr-
isson 6, Hjörtur Harðarson 5, Gunnar H.
Stefánsson 3.
Fráköst: 15 í vörn – 16 í sókn.
Villur: Haukar 16 – Keflavík 19.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Jón Ben-
der. Sluppu þokkalega frá erfiðum leik.
Áhorfendur: Ríflega 150.
Valur – Breiðablik 70:75
Hlíðarendi:
Gangur leiksins: 0:4, 4:4, 9:16, 14:22, 19:25,
19:29, 23:36, 29:38, 29:42, 35:42, 39:46,
43:46, 43:48, 47:48, 47:55, 50:58, 57:61,
57:65, 65:69, 65:72, 68:72, 70:75.
Valur: Ólafur M. Ægisson 18, Bjarki Gúst-
afsson 14, Laverne S. Jr. 13, Hinrik Gunn-
arsson 11, Hjörtur Þ. Hjartarson 5, Ævar
H. Jónsson 5, Ragnar N. Steinsson 4.
Fráköst: 29 í vörn – 14 í sókn.
Breiðablik: Kenny Tate 29, Pálmi Freyr
Sigurgeirsson 16, Friðrik H. Hreinsson 14,
Jón Arnar Ingvarsson 8, Valdimar Helga-
son 4, Þórarinn Örn Andrésson 2, Eyjólfur
Ö. Jónsson 2.
Fráköst: 29 í vörn – 15 í sókn.
Villur: Valur 20 – Breiðablik 25.
Dómarar: Eggert Þór Aðalsteinsson og
Sigmundur Herbertsson.
Áhorfendur: Um 80.
Snæfell – Grindavík 66:78
Stykkishólmur:
Gangur leiksins: 15:11, 23:21, 34:26, 40:30,
42:42, 49:44, 49:50, 54:60, 58:68, 62:72,
66:78.
Snæfell: Clifton Bush 19, Helgi Reynir
Guðmundsson 17, Hlynur Bæringsson 15,
Lýður Vignisson 8, Sigurbjörn Þórðarson
5, Jón Ólafur Jónsson 2
Fráköst: 29 í vörn – 9 í sókn.
Grindavík: Darrel Lewis 24, Páll Axel Vil-
bergsson 23, Helgi Jónas Guðfinnsson 13,
Guðmundur Bragason 8, Guðlaugur Eyj-
ólfsson 6, Jóhann Þór Ólafsson 2, Pétur
Guðmundsson 2.
Fráköst: 25 í vörn – 15 í sókn.
Villur: Snæfell 14 – Grindavík 16.
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson og
Rögnvaldur Hreiðarsson, ágætir.
Áhorfendur: 190.
Tindastóll – Skallagr. 95:86
Sauðárkrókur:
Gangur leiksins: 4:5, 8:5, 13:10, 19:12,
28:19, 33:19, 40:25, 47:32, 52:32, 55:37,
58:40, 63:40, 65:45, 68:57, 75:63, 77:66,
80:68, 84:70, 89:75, 93:83, 95:86.
Tinsastóll: Clifton Cook 21, Maurice Cart-
er 17, Axel Kárason15, Michail Antropov
15, Helgi Rafn Viggósson 12, Kristinn Frið-
riksson 10, Óli Barðdal 5.
Fráköst: 30 í vörn – 17 í sókn.
Skallagrímur: Hafþór Gunnarsson 28, Pét-
ur Már Sigurðsson 17, Isaac Hawkins 17,
Sigmar Egilsson 7, Egill Örn Egilsson 6,
Pálmi Þór Sævarsson 5, Finnur Jónsson 3,
Ari Gunnarsson 3.
Fráköst: 22 í vörn – 18 í sókn.
Villur: Tindastóll 15 – Skallagrímur 20.
Dómarar: Einar Einarsson og Bjarni G.
Þórmundsson.
Áhorfendur: 320.
KNATTSPYRNA
Ítalía
Bikarkeppnin, samanlögð úrslit innan
sviga.:
Modena – Reggina............................2:1 (2:2)
Reggina áfram á marki skoruðu á úti-
velli.
Toríno – Empoli ................................1:2 (1:3)
Svíþjóð
Djurgården – Sundsvall ...........................2:1
Djurgården er svo gott sem orðið sænsk-
ur meistari.
Skotland
Bikarkeppnin:
Hibernian – Glasgow Rangers.................2:3
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Essodeildin:
Ásvellir: Haukar – HK...............................20
KA-heimilið: KA – Þór Ak. ........................20
Selfoss: Selfoss – UMFA...........................20
Hlíðarendi: Valur – Stjarnan ....................20
Vestmannaeyjar: ÍBV – FH......................20
Víkin: Víkingur – Grótta/KR.....................20
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Intersportdeild:
Hveragerði: Hamar – UMFN..............19.15
Seljaskóli: ÍR – KR ...............................19.15
Í KVÖLD
KRISTJÁN Finnbogason, mark-
vörður KR, gekk í gær frá nýjum
tveggja ára samningi við félagið.
Kristján hefur leikið 273 leiki fyrir
KR og er fimmti leikjahæsti leikmað-
ur félagsins.
ÞAÐ er mikill hugur í Berti
Vogts, landsliðsþjálfara Skotlands,
eftir tvo sigurleiki á fjórum dögum –
fyrst á Íslandi í Reykjavík 12. októ-
ber og síðan á Kanadamönnum.
Skotar áttu að mæta Írum í vináttu-
leik 30. apríl. Sá leikur hefur verið
færður fram til 12. febrúar og er
hann liður í upphitun fyrir Evrópu-
leik gegn Íslandi í Glasgow 29.
mars.
ÞÁ hefur Vogts fengið vináttuleik
gegn Austurríkismönnum í apríl og
er sá leikur liður í undirbúningi fyrir
Evrópuleik Skota gegn Þjóðverjum,
sem verður 7. júní í Glasgow.
BRASILÍUMAÐURINN Juninho,
29 ára, hjá Middlesbrough er farinn
til Brasilíu, þar sem hann verður
næstu vikurnar við sjúkraþjálfun.
Juninho meiddist illa á hné og vonast
til að geta snúið aftur til Newcastle í
byrjun janúar.
NORSKI landsliðsmarkvörðurinn
Steinar Ege er á leiðinni frá þýska
liðinu Kiel, þó svo að hann sé samn-
ingsbundinn liðinu til ársins 2005.
Uwe Schwenker, framkvæmda-
stjóri Kiel, kallaði Ege á sinn fund í
vikunni og sagði honum að það væru
ekki not fyrir hann lengur. Ege er
þriðji markvörður liðsins – á eftir
þýska landsliðsmarkverðinum
Henning Fritz og Svíanum Mattias
Andersson.
EGE segist ekki vera á hraðferð
frá Kiel. „Ég þarf að fá gott tilboð til
að ég hreyfi mig.“ Vitað er að lið á
Spáni hafi sýnt Ege áhuga.
GUNNAR Pettersen, landsliðs-
þjálfari Noregs, segir að það sé
slæmt fyrir norska landsliðið ef Ege
fær ekki að spreyta sig.
Búist var við spennandi leik í Ás-völlum þar sem Haukar fengu
Keflvíkinga í heimsókn. Hafnfirðing-
ar höfðu komið á
óvart og unnið fyrstu
tvo leikina, Breiða-
blik og Njarðvík, og
allir vita hvers megn-
ugir Keflvíkingar eru enda er liðinu
spáð sigri á Íslandsmótinu. En eftir
fyrsta leikhluta virtist fátt benda til
að einhver spenna yrði í leiknum.
Reyndar var jafnræði fyrstu fjórar
mínúturnar en þá tók Sigurður Ingi-
mundarson, þjálfari Keflvíkinga,
leikhlé. Hann setti sína menn í
pressuvörn og svæðisvörn sem skilaði
sér mjög vel og gekk ungum og lítt
reyndum leikmönnum Hauka illa að
ná góðum skotum. Ofan á það bættist
að vörn heimamanna var slök þannig
að Keflvíkingar náðu að skora 28 stig
gegn 16 stigum heimamanna.
Hafnfirðingar mættu gríðarlega
ákveðnir í næsta leikhluta. Allt annað
var að sjá til liðsins í vörn og þar fóru
fremstir í mikilli baráttu Sævar Har-
aldsson og Lúðvík Bjarnason. Kefl-
víkingar héldu áfram í svæðisvörninni
og það vakti furðu að Jón Nordal, sem
hafði leikið mjög vel í vörn og sókn í
fyrsta leikhluta, hvíldi fyrri helming
þessa leikhluta. Haukar höfðu betur í
hlutanum, 18:17 og voru inni í leikn-
um enda munaði aðeins 11 stigum.
Heimamenn náðu muninum niður í
átta stig, 48:56 en þá kom gríðarlega
skemmtilegur kafli hjá gestunum þar
sem vörnin virkaði eins og hún gerir
best. Boltinn gekk ekki nægilega vel
hjá Haukum og Keflvíkingar náðu
alltaf að færa vörnina þannig að tveir
menn væru í þeim sem var með bolt-
ann. Staðan 56:69 eftir þrjá leikhluta.
Keflvíkingar mættu með maður á
mann vörn til síðasta leikhutans og
léku þá vörn ágætlega – þegar þeir
nenntu því. Þeir breyttu stöðunni í
62:79, slökuðu þá á og Haukar gengu
á lagið og staðan var 70:79 þegar rúm-
ar þrjár mínútur voru eftir. Þá settu
Keflvíkingar í gang á ný og gerðu 11
stig gegn tveimur á lokakaflanum.
Leikurinn var ágætis skemmtun,
en leikmenn gerðu talsvert mikið af
mistökum, bæði í vörn og sókn. Hauk-
ar eru með ungt lið, sem getur vel náð
langt þegar strákarnir hafa allir feng-
ið nægilegt sjálfstraust. Það kemur
og því þurfa þeir alls ekki að örvænta.
Stevie Johnson er frábær leikmaður
sem mikið mæðir á og stendur hann
fyllilega undir því. Ingvar Guðjónsson
er einnig sterkur en hann hangir
óþarflega mikið á boltanum og mætti
huga meira að félögum sínum sem
stundum þurftu að bíða nokkuð eftir
boltanum í ákjósanlegu skotfæri.
Hjá Keflavík er valinn maður í
hverju rúmi og rúmlega það. Í gær-
kvöldi lék liðsheildin ágætlega en
engu að síður að geta gert miklu bet-
ur. Menn áttu fína kafla til skiptis,
Jón Nordal í fyrsta leikhluta, Kevin
Grandberg í þeim næsta og svo tók
einn við af öðrum. Damon Johnson
lék vel en hefur þó oft gert meira upp
á eigin spýtur en þarf þess þó alls
ekki.
Reynslan dugði
Grindvíkingum
Í upphafi leiks Snæfells og Grinda-víkur var jafnræði með liðunum en
þegar leið á fyrsta leikhluta náðu
heimamenn yfir-
höndinni þar til á síð-
ustu mínútu hálf-
leiksins að leikmenn
Grindavíkur jöfnuðu
42:42. Á þessum kafla léku heima-
menn mjög vel og náðu mest tíu stiga
forskoti. Grindvíkingar beittu pressu-
vörn um allan völl megnið af fyrri
hálfleik og er nokkuð ljóst að það fór
orka hjá heimamönnum í að brjóta
hana niður, sem kom í ljós þegar leið á
leikinn. Annars var varnaleikur lið-
anna góður, sérstaklega hjá Snæfelli í
fyrri hálfleik og hjá Grindavík í þeim
síðari. Það er ekki fyrr en á fimmtu
mínútu síðari hálfleiks sem Grindvík-
ingar komust fyrst yfir í leiknum og
náðu þá strax sex stiga forskoti, og
eftir það gáfu þeir aldrei færi á sér. Á
þessum kafla kom Helgi Jónas Guð-
finnsson allt í einu í ljós og skoraði
þrjár þriggja stiga körfur á stuttum
kafla en hann hafði ekki sést í leikn-
um.
Við að lenda undir virtust heima-
menn missa móðinn, þreyta var kom-
in í leikmenn og þolinmæðin hvarf.
Fjórði leikhluti var langslakasti hluti
leiksins, stigaskorið 10:15 fyrir
Grindavík, hálfgert óðagot á báðum
liðum en gestirnir samt með góð tök á
stöðunni.
Í liði Snæfells, sem er allt að koma
til, lék Helgi Reynir Guðmundsson
sinn besta leik í vetur, stjórnaði sókn-
arleiknum vel, skoraði 17 stig og
keyrði hraðann upp, var þó orðinn
þreyttur í lokin sem kostaði nokkur
mistök. Clifton Bush lék mjög vel í
fyrri hálfleik, sérstaklega í sókninni
en þá skoraði hann 17 stig af 19 í
heildina. Hann tók 15 fráköst en á eft-
ir honum í fráköstum kom Hlynur
Bæringsson með 12. Hlynur er að
koma mjög öflugur inn í lið Snæfells
og fellur betur og betur inn í hópinn,
var ógnandi bæði í sókn og vörn. Lýð-
ur Vignisson og Sigurbjörn Þórðar-
son áttu ágæta spretti í leiknum.
Hjá Grindavík voru það þrír menn
sem báru liðið uppi í fyrri hálfleik,
skoruðu t.a.m. öll stig liðsins í hálf-
leiknum. Þeir léku afar vel Páll Axel
Vilbergsson og Darrel Lewis, skor-
uðu sín sautján stigin hvor. Heima-
mönnum gekk illa að ráða við þá tvo
og Guðmund Bragason. Í síðari hálf-
leik kom Helgi Jónas Guðfinnsson
mjög sterkur inn með sín 13 stig og
mikla ógnun. Guðlaugur Eyjólfsson
átti einnig góðan kafla í síðari hálfleik.
Tæpt hjá Blikum á Hlíðarenda
Valsmenn eru að sækja í sig veðriðeftir slæma tapleiki í byrjun
móts en þeim tókst samt ekki að
leggja Breiðablik að
velli þegar liðin
mættust á Hlíðar-
enda í gærkvöldi.
Blikar héldu alltaf
forskoti og þó það væri naumt er leið
á leikinn var endaspretturinn þeirra í
75:70 sigri.
„Við ætluðum að stela okkar fyrsta
sigri og þetta eru mikil vonbrigði,“
sagði Bergur Már Emilsson, þjálfari
Vals, eftir leikinn. „Við ætluðum ekki
að missa þá frá okkur eins og gerst
hefur með önnur lið en það vantaði
herslumuninn á þessa trú sem menn
verða að hafa á sigri.“ Kópavogsliðið
náði strax forystu og jók hana jafnt og
þétt uns munaði 13 stigum, 42:29.
Valsmenn lögðu þó ekki árar í bát,
minnkuðu muninn niður í sjö áður en
blásið var til leikhlés og eftir það gáfu
þeir allt í leikinn og söxuðu forskotið
niður í eitt stig á meðan ekkert gekk
hjá Blikum. Baráttan kostaði sitt og
Blikar hafa áður komist í hann krapp-
an. Þeir rifu sig upp úr lægðinni og
það var meira en Valsmenn réðu við.
„Við spiluðum ákaflega illa í þess-
um leik en það var samt þægilega að
vinna leikinn þrátt fyrir að spila svona
illa og ég er ánægður með það,“ sagði
Jón Arnar Ingvarsson, leikmaður og
þjálfari Breiðabliks, eftir leikinn. „Við
byrjuðum að vísu vel fyrstu þrettán
mínúturnar en spiluðum eftir það sér-
lega illa. Varnarleikurinn var reyndar
skárri en í síðustu leikjum en við þurf-
um að gera miklu betur í sóknarleikn-
um.“
Kenneth Tate var atkvæðamestur
Blika með 29 stig og 18 fráköst.
Skallagrímur enn án stiga
Valur Ingimundarson, fyrrverandiþjálfari Tindasóls, mætti með lið
sitt úr Borgarnesi til Sauðárkróks í
gær og mátti þar lúta
í lægra haldi. Heima-
menn tóku fljótlega
frumkvæðið og fóru
þar mikinn Axel
Kárason sem átti frábæran fyrri hálf-
leik og Clifton Cook sem einnig var
mjög góður.
Tindastólsmenn keyrðu upp hrað-
ann og í lok leikhlutans þegar tíu sek-
úndur voru eftir skoraði Hafþór
glæsilega þriggja stiga körfu fyrir
Skallagrím og lagaði stöðuna í 25:19
en Clifton svaraði þegar með skoti frá
miðlínu og jók aftur forskot heima-
manna í 28:19.
Í öðrum leikhluta gerðu heima-
menn nánast út um leikinn og lengst-
um var um tuttugu stiga munur. Sem
fyrr voru það Axel og Clifton sem
fóru fyrir en nú komu einnig Helgi
Rafn og Carter vel inn í leikinn á með-
an leikur gestanna var bitlítill og
sóknirnar þungar og aftur lék Clifton
sama leikinn, stal bolta þegar þrjár
sekúndur voru til hlés og skoraði
þriggja stiga körfu um leið og blásið
var til leikhlés, og var þá staðan 58:40.
Í þriðja leikhluta slökuðu heima-
menn á og losnaði þá um besta mann
Skallagríms, Hafþór Gunnarsson,
sem setti niður þrjú þriggja stiga skot
í röð og lagaði verulega stöðuna, en þá
voru Sigmar Egilsson og Pálmi Þór
komnir með fjórar villur og gátu ekki
beitt sér sem skyldi. Kristinn þjálfari
lét yngri mennina reyna sig er á leið
og sá þá Antropov um að skora og
þannig lönduðu heimamenn góðum
sigri í fyrsta heimaleiknum í deildinni.
Kristinn Friðriksson var að vonum
ánægður í leikslok: „Þetta var ágætt
við lékum vel í fyrri hálfleik, þriðji
leikhluti var afleitur hjá okkur en við
náðum að vinna úr þessu og þetta er
aldeilis ekki besti leikurinn okkar til
þessa. Við erum með grunnan vara-
mannabekk en þegar við fáum Einar
og Sigga inn í liðið verður það gíf-
urlegur styrkur. Við vorum þræl-
heppnir að ná í þessa stráka frá Þór
og þeir eiga eftir að gera góða hluti
með okkur í vetur,“ sagði Kristinn.
„Leikur okkar hefði mátt vera
betri,“ sagði Valur Ingimundarson.
„Við fórum einfaldlega ekki í gang í
fyrri hálfleik og Tindastólsmenn
þurftu ekki að hafa mikið fyrir þess-
um stigum. Við þurfum helst að
styrkja liðið eitthvað, þetta hefur ver-
ið erfið byrjun hjá okkur og það er
býsna erfitt að sjá sig í góðri stöðu í
næstefstu deild en vera svo allt í einu
kominn í slag efstu deildar. En ég hef
tröllatrú á þessum strákum,“ sagði
Valur Ingimundarson.
Grindvíkingar
taplausir
FJÓRIR leikir voru í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í gærkvöldi.
Haukar töpuðu sínum fyrsta leik er þeir fengu Keflavík í heimsókn.
Þá eru aðeins tvö lið eftir taplaus í deildinni, Grindavík, sem vann
Snæfell í gær, og KR-ingar sem leika þriðja leik sinn í kvöld er þeir
heimsækja ÍR-inga. Tindastóll er með fjögur stig eftir sigur á
Skallagrími og Breiðablik einnig eftir sigur á Val.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Ríkharður
Hrafnkelsson
skrifar
Stefán
Stefánsson
skrifar
Björn
Björnsson
skrifar
Stevie Johnson og Damon
E
g
m
g
b
l
u
a
k
þ
2
l
s
b
R
v
S
f
m
h
k
m
i
f
FÓLK