Morgunblaðið - 25.10.2002, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 25.10.2002, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 C 3  FJÓRIR leikmenn voru úrskurð- aðir í eins leiks bann vegna brottvís- ana á fundi aganefndar KKÍ í fyrra- kvöld. Tveir þeirra leika með liðum í úrvalsdeildinni, Intersport-deildinni, Kenneth Tate, Breiðabliki, og Svav- ar Birgisson, Hamri. Svavar leikur ekki með Hamri í kvöld þegar lið hans tekur á móti meisturum Njarð- víkinga í Hveragerði og Tate verður ekki með Blikum á móti ÍR á sunnu- daginn.  RÓBERT Gunnarsson, línumað- urinn sterki úr Fram, er í fjórða sæti yfir markahæstu leikmenn í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Ró- bert, sem leikur á línunni hjá Århus GF, hefur skorað 47 mörk í níu leikj- um liðsins.  JOE Royle fyrrum knattspyrnu- stjóri Everton og Manchester City hefur slegist í hóp þeirra sem koma til greina sem næsti knattspyrnu- stjóri Ipswich. Peter Reid sem sagt var upp störfum hjá Sunderland á dögunum þykir enn líklegastur til að taka við stjórninni á Portman Road.  ARSENAL mætir Blackburn í ensku úrvalsdeildinni á morgun og takist ensku meisturunum að skora í leiknum verður það 50. leikurinn í röð sem Arsenal tekst að skora hjá andstæðingum sínum. Giovanni van Bronckhorst hefur náð sér af meiðslum og fær væntanlega að spreyta sig í liði Arsenal sem og Frakkinn Robert Pires sem lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu í sjö mán- uði – kom inná sem varamaður þegar Arsenal tapaði fyrir Auxerre í Meistaradeildinni.  DAMIEN Duff, útherjinn knái hjá Blackburn, getur ekki leikið með fé- lögum sínum vegna meiðsla en Dwight Yorke og Andy Cole eru báðir heilir heilsu og verða saman í fremstu víglínu gegn Arsenal.  COVENTRY fékk í gær Brian Kerr, 21 árs miðvallarleikmann, að láni í mánuð frá Newcastle. Hann meiddist í fyrra og hefur ekki náð að festa sig í sessi í liði Newcastle.  STEVEN Gerrard, miðjumaður hjá Liverpool, sem hefur ekki getað leikið tvo síðustu leiki liðsins vegna meiðsla sem hann hlaut í landsleik í sl. viku, mun leika með liðinu gegn Tottenham á morgun.  BRYAN Robson, fyrrverandi fyr- irliði enska landsliðsins og knatt- spyrnustóri Middlesbrough, er ekki í viðræðum við Stoke, eins og sagt hefur verið frá í blöðum á Englandi.  ADRIAN Heath, fyrrverandi leik- maður Stoke, Lou Macari, fyrrver- andi knattspyrnustjóri Stoke, og George Burley, sem hætti hjá Ips- wich á dögunum, voru orðaðir við Stoke í gær.  FRANCESCO Cozza tryggði Reggina rétt til að leika við Juventus í 16-liða úrslitum ítölsku bikar- keppninnar í gærkvöldi, er hann skoraði mark liðsins, sem tapaði fyr- ir Modena, 1:1. Reggina vann heima- leikinn, 1:0, og kemst því áfram á marki skoruðu á útivelli.  LIÐIN sem mætast í 16-liða úrslit- unum 4. og 18. desember eru: Regg- ina – Juventus, Sampdoria – Per- ugia, Piacenza – Chievo, Ancona – AC Milan, Bari – Inter, Empoli – Lazio, Vicenza – Bologna og Triest- ina – Roma.  CRAIG Bellamy, sóknarleikmaður Newcastle, sem var skorinn upp við meiðslum í hné í Bandaríkjunum í maí, er líklega úr leik á ný. Meiðsli hans hafa tekið sig upp á ný. Þetta eru slæm tíðindi fyrir Newcastle.  SEPP Blatter, forseti Alþjóða- knattspyrnusambandsins, FIFA, sagði í gær í viðtali við blaðið Sports Business, að hann muni láta af störf- um sem forseti eftir þetta kjörtíma- bil, 2006, en þá verður hann 70 ára. Hann var fyrst kjörinn forseti FIFA 1998 og endurkjörinn í ár. „Það má segja að seinni hálfleikurinn sé rétt hafinn hjá mér og margt skemmti- legt eftir að gerast,“ sagði Blatter. FÓLK Haraldur fékk einn skolla á fyrriníu holunum, lék þriðju holuna, sem er par fimm á sex höggum. Síðan fylgdu níu pör og á þrettándu hol- unni, sem er par fimm fékk Haraldur fugl og aftur á næstsíðustu holunni, sem er par fjórir. Glæsilegur árangur hjá Haraldi. Suðurnesjamönnunum gekk ekki eins vel í gær. Örn Ævar lék aðra hol- una á fimm höggum, en hún er par þrír. Síðan fékk hann skolla á fjórðu og fimmtu holu en í kjölfarið fylgdu þrír fuglar og virtist kappinn kominn á fínt skrið, einn yfir pari eftir átta holur. Skolli á níundu og því tvo yfir eftir fyrri níu holurnar. Síðari níu lék hann á fimm yfir, fékk skolla á 11., 13., 15., 16 og 18. holuna. Helgi Birkir byrjaði hræðilega í gær, fékk skolla á fyrstu holu og skramba á þeirri næstu, rétt eins og Örn Ævar. Var því kominn þrjá yfir eftir tvær holur. Fjögur pör fylgdu í kjölfarið en síðustu þrjár á fyrri níu voru slæmar, skrambi á sjöundu braut og skollar á tveimur síðustu og því sjö yfir pari á fyrri níu holunum. Síðari níu voru betri hjá Helga Birki, fjögur pör, síðan skollar á 14. og 15. holunni og þrjú pör í lokin. Eins og áður segir er Ísland í 18.– 27. sæti ásamt Austurríki, Brasilíu, Taipei, Ítalíu, Hollandi, Noregi, Puerto Ríkó, Skotlandi og Venesúela. Alls taka 62 þjóðir þátt í mótinu. Bandaríkjamenn eru í nokkrum sérflokki en þeir léku á sjö undir pari í gær, einn keppandi þeirra var á fjórum undir, annar á þremur undir en sá þriðji lék á fjórum yfir pari. Frakkar eru í öðru sæti á tveimur höggum undir pari. Leikið er á tveimur völlum og eru tvær efstu þjóðirnar á sama velli og íslenska liðið, en hinn völlurinn er Bunga Raya Course sem er einnig par 72, en heldur styttri. „Við gerðum okkur vonir um að vera í um 20. sæti þegar uppi er stað- ið, 15. sæti væri frábær árangur,“ sagðiRagnar Ólafsson, liðsstjóri ís- lenska liðsins, í gær en Ragnar var þá að þurrka farsíma sinn sem hafði gef- ist upp í rakanum. „Það er alltaf móða á gleraugunum mínum þar sem rakinn er gríðarlegur og hitinn fór upp 38 gráður í dag. Við erum ekki vanir slíku og þessir hlutir hafa mikil áhrif á keppendur. Það er mikill hug- ur í okkar mönnum og þeir Örn Ævar og Helgi Birkir eru langt frá því að vera sáttir við fyrsta keppnisdaginn og ætla sér að gera betur í framhald- inu,“ sagði Ragnar. Íslenska landsliðið í golfi byrjar ágætlega á HM í Malasíu Haraldur lék á höggi undir pari ÍSLENSKA landsliðið í golfi er í 18.–27. sæti eftir fyrsta daginn á heimsmeistaramóti áhugamanna sem fram fer á Palm Course- vellinum í Malasíu. Íslenska sveitin lék á sex höggum undir pari samanlagt. Haraldur H. Heimisson úr Golfklúbbi Reykjavíkur lék best íslensku keppandanna í gær, kom inn á 71 höggi, einu höggi undir pari vallarins. Örn Ævar Hjartarson úr Golfklúbbi Suðurnesja lauk leik á 7 höggum yfir pari og Helgi Birkir Þórisson, einnig úr Golfklúbbi Suðurnesja, kom inn á níu höggum yfir pari og taldi ekki í gær. Til að svo megi verða hefur Amst-el Light gerst stór styrktarað- ili, en þetta vörumerki styrkir einnig bandarísku mótaröð- ina í golfi. Lynn Raynault starfar hjá fyrirtækinu og kom hingað til lands á dögunum til að kynna verkefnið. „Þeir sem drekka Amstel Light eru fólk í yngri kantinum, fólk sem er með þokkalega góðar tekjur og finnst gaman af útiveru og framandi hlutum. Ferð til Íslands til að leika golf um miðja nótt er eitthvað sem við teljum að viðskiptavinir okkar kunni að meta,“ segir Raynault. Bruce Revman er framkvæmda- stjóri markaðssviðs Time4Media og hann á í raun heiðurinn af væntan- legu golfmóti. En hvers vegna golf um miðja nótt á Íslandi? „Það er auðvitað einstakt eins og þú veist að spila golf á Íslandi. Marg- ir landar mínir setja upp furðusvip þegar ég segi þeim frá golfi á Íslandi, landslaginu hér, golfvöllunum, sem eru mjög góðir, og þegar ég bæti því við að hér sé hægt að spila um miðja nótt yfir sumarið þá halda menn end- anlega að ég sé orðinn eitthvað bil- aður. Þessar aðstæður eru einstakar og það er ekki hægt að gera neitt þessu líkt annars staðar í heiminum. Ég held að þessi möguleiki sé mjög spennandi fyrir marga kylfinga í Bandaríkjunum, að fara eina svona ferð til Íslands og spila um miðja nótt og njóta alls þess sem hægt er að njóta hér, fara í Bláa lónið, fara á hestbak, skoða hvali, fara á snjósleð- um upp á jökla og á bátum niður straumharðar ár. Svona ferð yrði gríðarleg upplifun fyrir marga landa mína,“ sagði Revman. Fyrirtækið ætlar í mikla herferð er líður á veturinn til að kynna mótið hér á landi, sem mun kallast Amstel Light Iceland Open. Skrifaðar verða greinar um það og auglýsingar birt- ar í Golf Magazine, Ski tímaritinu og Skiing Gear blaðinu. Auk þess á Time4Media og rekur golfonline.- com. Þeir sem nota þessa miðla að staðaldri eru fjölmargir og má búast við að um tíu milljónir lesenda sjái umfjöllunina sem verður frá febrúar og fram í júní auk þess sem 1,9 millj- ónir fara mánaðarlega inn á golfon- line.com. „Við gerðum smáprufu í fyrra með þetta mót, hún gekk vel og í kjölfarið kom Amstel Light inn í dæmið. Núna er komið að því. Við er- um með réttu styrktaraðilana og allt annað til að gera þetta mót að al- vörugolfmóti,“ sagði Revman. Morgunblaðið/Kristinn n Johnson berjast um frákast í leik Hauka og Keflavíkur í gær. Þrír búnir að skrifa undir hjá KR-ingum EINS og Morgunblaðið hefur greint frá í vikunni fá Íslands- meistarar KR-inga í knattspyrnu góðan liðsstyrk fyrir næsta tíma- bil. Nú er það orðið staðfest því leikmennirnir þrír hafa skrifað undir samninga við KR-sport sem annast rekstur meistaraflokks karla. Kristján Örn Sigurðsson gerði þriggja ára samning en hann er 22 ára gamall varnarmaður sem lék með KA. Skotinn Scott Ram- sey og Garðar Jóhannsson gerðu báðir samning til tveggja ára. Ramsey kemur til KR frá Grinda- vík og Garðar frá Stjörnunni. Í fréttatilkynningu sem KR- Sport sendi frá sér í gær kemur fram meðal annars; „Stjórn KR-Sport og þjálfari eru mjög ánægð með að samningar hafi tekist við leikmennina. Þeir koma til með að styrkja leik- mannahóp KR og verða mik- ilvægir hlekkir í uppbyggingu á framtíðar knattspyrnuliði KR.“ Stefnt að „alvöru“golfmóti fyrir erlenda kylfinga Aðstæður á Íslandi sagðar spennandi NÆSTA sumar er stefnt að því að halda fjölmennasta golfmót sem haldið hefur verið hér á landi fyrir erlenda og innlenda kylfinga. Það eru GR, GK og fyrirtækið Time4Media sem standa að mótinu, en mótið var haldið í fyrsta sinn í fyrra. Nú skal hins vegar blásið í lúðra og stefnt er að því að hafa mótið mjög veglegt. Eftir Skúla Unnar Sveinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.