Morgunblaðið - 31.10.2002, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 B 3
Kvenna-
landsliðið
fer til
Slóveníu
STEFÁN Arnarson og Örn Ólafsson,
þjálfarar landsliðs kvenna í handknatt-
leik, hafa valið 16 leikmenn til þess að
taka þátt í æfingaleikjum í Slóveníu 2.
til 6. nóvember. Leiknir verða þrír leikir
við Slóvena og fara þeir fram í Ljubij-
ana.
Landsliðshópurinn er þannig skipaður:
Markverðir: Berglind Hansdóttir, Val,
og Helga Torfadóttir, Víkingi.
Hornamenn: Anna Blöndal, Stjörnunni,
Dagný Skúladóttir, Issy Les-Moulineaux
(Frakklandi), Hanna Stefánsdóttir,
Haukum, Ragna Karen Sigurðardóttir,
Gróttu/KR – nýliði.
Línumenn: Inga Fríða Tryggvadóttir,
Haukum, Margrét Vilhjálmsdóttir,
Stjörnunni – nýliði.
Útileikmenn: Drífa Skúladóttir, Val,
Dröfn Sæmundsdóttir, FH – nýliði, Guð-
munda Ósk Kristjánsdóttir, Víkingi,
Harpa Melsteð, Haukum, Hrafnhildur
Skúladóttir, Tvis/Holstebro (Danmörku),
Jóna Margrét Ragnarsdóttir, Stjörnunni
– nýliði, Kristín Guðmundsdóttir, Sindal
(Danmörku), Ragnhildur Guðmunds-
dóttir, Haukum.
DAGUR Sigurðsson reyndi að hita
upp fyrir leikinn en hætt var við að
láta hann leika. „Ég var mjög nærri
því en eftir á að hyggja held ég að
það hafi verið rétt hjá þjálfurunum
að hafa vit fyrir mér og láta mig ekki
leika,“ sagði Dagur rétt áður en leik-
urinn hófst. Hann hélt í morgun
áleiðis til Japans.
VIÐUREIGN Aberdeen og Moth-
erwell í skosku deildabikarkeppn-
inni var frestað í gærkvöldi, en 21 úr
hópi leikmanna og stjórnenda Aber-
deen liggur nú rúmfastur sökum
flensu.
ENSKA knattspyrnusambandið
hefur fengið í hendur ákæru frá
knattspyrnusambandi Evrópu,
UEFA, vegna óláta sem stuðnings-
menn enska landsliðsins höfðu í
frammi í landsleik Englands og Slóv-
akíu á dögunum. UEFA hefur einnig
ákært knattspyrnusamband Slóvak-
íu fyrir að aðhafast ekkert er stuðn-
ingsmenn liðsins höfðu í frammi kyn-
þáttafordóma í garð ensku lands-
liðsmannanna Emile Heskey og
Ashley Cole í leiknum.
ENGLENDINGAR eiga yfir höfði
sér háa sekt en Slóvakar fá vænt-
anlega ekki að hafa áhorfendur á
næstu heimaleikjum liðsins. Dæmt
verður í málunum tveimur 21. nóv.
MICHAEL Jordan, þekktasti
körfuknattleiksmaður fyrr og síðar,
mun ekki verða í byrjunarliði Wash-
ington Wizards í vetur í NBA-deild-
inni, og er þetta í fyrsta sinn á 15 ára
ferli hans sem atvinnumaður að
Jordan er „á bekknum“ í upphafi
leiks. Jordan segir í viðtali við NBC
að sér þyki hlutverk sitt vera mik-
ilvægt eigi að síður. „Ég er ekki
framtíðin í þessu liði og ég veit
hvernig ég get hjálpað liðinu í vet-
ur,“ segir Jordan sem er fertugur að
aldri og hefur unnið sex meistara-
titla með Chicago Bulls.
GRANT Hill lék að nýju með Or-
lando Magic í fyrrakvöld í NBA-
deildinni í körfuknattleik en Hill hef-
ur verið meiddur undanfarin tvö
keppnistímabil, vegna ökklabrots.
Hill lék í 33 mínútur og skoraði 18
stig, tók sex fráköst og gaf sjö stoð-
sendingar.
ALLT bendir til þess að Gary Pay-
ton verði látinn fara frá NBA-liðinu
Seattle Supersonics á næstunni en
samningur hans við liðið rennur út í
lok keppnistímabilsins. Payton er
ekki sáttur við ákvarðanir eigenda
liðsins á undanförnum árum og telur
að Seattle eigi ekki möguleika á
meistaratitli á næstu árum.
ÍTALSKIR fjölmiðlar greindu frá
því í gær að Juan Sebastian Veron
gæti verið á förum til Lazio að nýju
þegar opnað verður fyrir félaga-
skiptin í ensku úrvalsdeildinni í jan-
úar. Lazio er reiðubúið að láta leik-
mann upp í kaupin á Veron og hafa
nöfn Alvaro Recoba, Mohamed Kall-
on og Stephane Dalmat verið nefnd í
því sambandi.
ÞÝSKIR fjölmiðlar eru harðorðir í
garð Bayern München eftir fall liðs-
ins í Meistaradeildinni og þeirri stað-
reynd að þátttöku Bæjara í Evrópu-
keppninni á þessu tímabili er lokið.
„Skömm“ er aðalfyrirsögnin í Bild
og þar segir ennfremur; mesta nið-
urlægingin í sögu Bayer München.
Ottmar Hitzfeldt, þjálfari liðsins,
fær sinn skerf og sum blöð ganga svo
langt að segja að hann eigi að segja
starfi sínu lausu.
SKOSKI kylfingurinn Colin
Montgomerie hefur neitað þeim orð-
rómi að hann hyggist hætta á næsta
ári en hinn 39 ára gamli Montgomer-
ie hefur átt við þrálát meiðsl í baki að
stríða. „Ég vil hætta sem atvinnu-
maður eins nálægt toppnum eins og
hægt er. Hvort það verður eftir tvö,
fjögur eða sex ár er ekki gott að
segja. Ég ætla hinsvegar ekki að
leika golf sem atvinnumaður, vitandi
það að ég sé á niðurleið, það sem eft-
ir er ferilsins,“ sagði Montgomerie
við BBC.
FÓLK
f velli með um tuttugu sekúndna
ibili en þeir voru skynsamir og
u boltanum lengi og náðu að
ra með því að henda boltanum á
n risavaxna línumann, Mark Drag-
ki, en Ólafur jafnaði fimm sek. síð-
r skemmtilegu hraðaupphlaupi.
ftir þrettán mínútna leik var stað-
7:17 og Þjóðverjar skoruðu fjögur
k í röð eftir klaufaleg mistök ís-
ka liðsins í sókninni. Sigurður
rnason minnkaði muninn, 21:18.
ftir hléið komu þrjú þýsk mörk í
og staðan orðin 24:18. Á þessum
a misstu Þjóðverjar mann útaf en
u að síðar var réttilega dæmd leik-
a á íslenska liðið. Raunar var leið-
gt að sjá hversu illa gekk í sókn-
einum fleiri.
að sem eftir var leiks var jafnræði
liðunum en þau undur og stór-
ki gerðust að Ísland fékk sína
tu brottvísun þegar síðari hálf-
ur hafði staðið í 23 mínútur og 56
úndur, þá var Sigfúsi vikið af velli.
uðmundur var maður leiksins í
, lék eins og hann gerir best. Pat-
ur átti ágætan leik, svo og Sigfús
ann skoraði ekki mikið. Þrátt fyr-
ð vera lengstum með mann á sér
aði Ólafur meira en gegn Rússum
Aron kom sterkur inn.
tra
tap
Morgunblaðið/Mikael Forslund
ar í gegnum þýsku vörnina og skorar eitt af sex mörkum sínum.
ÁHORFENDUR brugðust, sagði í
fyrirsögn Borlänge Tidningen í
gær eftir leikina þar í bæ í fyrra-
kvöld. Ástæðan var að aðeins um
600 áhorfendur lögðu leið sína á
leikina, en mótshaldarar bjuggust
við að það yrði fullt hús, eða 1.700
manns.
Ein af ástæðum þess að fáir
áhorfendur voru fyrsta kvöldið var
að íshokkíleikur var í næsta bæ og
þangað flykktist fólk enda íshokkí
vinsæl íþrótt í Svíþjóð. Enginn ís-
hokkíleikur er í nágrenninu í kvöld
þegar Ísland mætir Júgóslövum og
búast aðstandendur mótsins við
fullu húsi enda mætast Rússar og
Þjóðverjar í fyrri leik kvöldsins.
Fáir áhorfendur
Eftir þrjár mínútur voru KR-stúlkur með 6:2 forystu en þá
hrukku gestirnir í gang og jöfnuðu
þegar hittnin brást
KR illilega auk þess
að Keflvíkingar voru
mun sterkari í frá-
köstum. Jafnt var
með liðunum þar til í byrjun annars
leikhluta en þá hertu gestirnir enn
meira á sprettinum og við því átti
KR ekkert svar svo að tíu stig skildu
liðin að í leikhléi, 29:39.
KR-stúlkur komu ákveðnar til síð-
ari hálfleiks og náðu með ærinni fyr-
irhöfn að minnka muninn niður í
fjögur stig á sjö mínútum, 45:41. En
þar við sat, baráttan kostaði sitt og
Keflvíkingar áttu nóg eftir, stilltu
einbeitinguna og hættu ekki fyrr en
munurinn var 20 stig, 51:71, og tæp-
ar fimm mínútur til leiksloka. Þar
með var sigurdraumur KR úti og
baráttuþrekið fjaraði út.
„Við vorum ekki nógu harðar í frá-
köstum og þær tóku of mikið af sókn-
arfráköstum,“ sagði Hildur Sigurð-
ardóttir úr KR eftir leikinn en hún
átti góðan leik ásamt Hönnu Kjart-
ansdóttur og Grétu Maríu Grétars-
dóttur. KR-stúlkur börðust nógu
mikið en kappið var oft of mikið.
Hildur hafði nóg að gera við að reyna
halda aftur af nýjum erlendum leik-
manni Keflavíkur. „Við vissum lítið
um útlending þeirra þó að hann hafi
verið á Íslandi í fyrra. Það var erfitt
að eiga við hana, hún virtist alltaf
geta skotið og var klók í fráköstun-
um. Deildin verður mjög jöfn í vetur,
margir eru komnir með útlendinga
og fleiri munu eflaust koma.“
Við annan tón kvað hjá Önnu Mar-
íu Sveinsdóttur leikmanni og þjálf-
ara Keflvíkinga. „Þetta var frábær
leikur hjá okkur, sérstaklega varn-
arleikur á köflum auk þess að við
hittum þokkalega vel og spiluðum
saman sem lið. Við ætluðum okkur
að byrja með góða vörn og ná hraða-
upphlaupum, eins og við höfum lagt
upp með í öðrum leikjum. Það tókst
og þegar við höfðum hleypt þeim inn
í leikinn í byrjun síðari hálfleiks sett-
um við í gírinn aftur og þá var ekki
að spyrja að leikslokum,“ sagði Anna
María eftir leikinn. Sonja Ortega var
drjúg með 21 stig auk þess að sýna
góða tækni við að taka fráköst. Mar-
ín Rós Karlsdóttir skoraði úr fimm
þriggja stiga körfum og Kristín
Blöndal, Birna Valgarðsdóttir og
Rannveig Randversdóttir voru
drjúgar. Erla Þorsteinsdóttir lék
ekki með en þjálfarinn reiknar með
að hún verði tilbúin í næsta leik.
Öruggt hjá
Keflavík
KEFLAVÍKURSTÚLKUR héldu áfram sigurgöngu sinni í 1. deild
kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi, er þær unnu sinn fimmta leik
þegar þær lögðu KR að velli í Vesturbænum 82:61. Þær náðu strax
undirtökunum og þegar Vesturbæingar náðu að saxa aðeins á for-
skotið spýttu þær í lófana og stungu af.
Stefán
Stefánsson
skrifar
POUL Hansen, þjálfari danska úr-
valsdeildarliðsins AGF frá Árósum,
segir íslensku knattspyrnumennina
þrjá hjá Lokeren ekki vera þá leik-
menn sem hann og Ólafur H. Krist-
jánsson aðstoðarþjálfari hafi verið
að skoða þegar þeir gerðu sér ferð
til Belgíu á mánudaginn að sjá lið
Lokeren etja kappi við Andwerpen.
„Íslendingarnir eru ekki inni í
myndinni hjá okkur,“ sagði Hansen
í samtali við BT í gær og vildi lítið
gefa út á í hvaða erindagjörðum
hann og Ólafur hefðu verið. Ólafur
er sagður þekkja vel til Íslending-
anna Arnars Þórs Viðarssonar, Arn-
ars Grétarssonar og Rúnars Krist-
inssonar hjá Lokeren, einkum þó
Arnars Þórs. Segir blaðið að þeir fé-
lagar hafi líklega verið að leita eftir
markaskorara og nefnir m.a. til sög-
unnar tvítugan Gíneumann, Samb-
egou Bangoura, sem þykir afar
markheppinn og er í röðum Lok-
eren. Samningur hans við félagið
rennur út næsta sumar. „Ég skal
viðurkenna að ég fylgdist með hon-
um en þar með er ekki sagt að þetta
sé sá leikmaður sem ég er að leita
eftir,“ segir Hansen.
Íslendingarnir
koma ekki til greina
ÞAÐ var hraður handknattleikur
sem leikinn var í fyrstu umferð
heimsbikarmótsins í Borlänge í
fyrrakvöld. Í leik Júgóslavíu og
Þýskalands, sem Þjóðverjar unnu
31:24, voru sóknirnar 122 talsins, 62
hjá Júgóslövum og 60 hjá Þjóð-
verjum. Í leik Íslands og Rússlands,
sem Rússar unnu 39:28, voru sókn-
irnar tveimur færri eða 120 talsins.
Þar sem hver handboltaleikur stend-
ur í 60 mínútur er ljóst að á hverri
mínútu eru tvær sóknir í leik Íslands
og Rússlands og rúmlega tvær sókn-
ir á mínútu í leik Júgóslavíu og
Þýskalands. Hraðinn í alþjóðlegum
handknattleik hefur aukist mikið
síðustu árin og má sem dæmi nefna
að leik Júgóslavíu og Rúmeníu í
fyrsta úrslitaleik heimsbikarmótsins
árið 1971 lauk með sigri Júgóslava
17:15 eftir tvær framlengingar.
Staðan í hálfleiki hjá Júgóslövum í
fyrradag var 17:12 fyrir Þýskaland.
Mikill hraði í Svíþjóð
ÍÞRÓTTIR