Morgunblaðið - 20.11.2002, Síða 2
KÖRFUKNATTLEIKUR
2 B MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
ÍR - Hamar 107:87
Íþróttahús Seljaskóla, úrvalsdeild karla,
Intersport-deildin, þriðjudaginn 19. nóv-
ember 2002.
Gangur leiksins: 0:1, 3:3, 8:3, 14:9, 14:19,
19:19, 19:21, 21:24, 30:26, 36:36, 36:38,
46:39, 51:41, 56:45, 56:47, 69:49, 71:60,
82:66, 84:77, 94:80, 96:85, 107:87.
Stig ÍR: Eugene Christopher 28, Hregg-
viður Magnússon 24, Sigurður Þorvalds-
son 13, Eiríkur Önundarson 12, Fannar
F. Helgason 11, Ómar Örn Sævarsson 8,
Ólafur J. Sigurðsson 6, Pavel Ermol-
inskij 5.
Fráköst: 28 í vörn - 15 í sókn.
Stig Hamars: Robert O’Kelley 30, Svav-
ar Birgisson 26, Lárus Jónsson 12, Pétur
Ingvarsson 9, Marvin Valdimarsson 6,
Svavar Pálsson 4.
Fráköst: 25 í vörn - 6 í sókn.
Villur: ÍR 20 - Hamar 26.
Dómarar: Jón Bender og Bjarni G. Þór-
mundsson.
Áhorfendur: Tæplega 100.
Valur - Keflavík 61:114
Hlíðarendi, Reykjavík:
Gangur leiksins: 0:5, 4:9, 4:29, 6:29,
13:31, 13:38, 22:42, 24:50, 26:52, 28:62,
31:62, 31:71, 35:77, 42:87, 43:87, 47:91,
47:102, 53:108, 61:114.
Stig Vals: Laverne Smith 16, Bjarki
Gústafsson 15, Guðbjörn Sigurðsson 10,
Ægir Már Jónsson 9, Hinrik Gunnarsson
4, Gylfi Már Geirsson 3, Kjartan Orri
Sigurðsson 2, Ragnar Steinsson 2.
Fráköst: 23 í vörn - 16 í sókn.
Stig Keflavíkur: Damon S. Johnson 33,
Gunnar Einarsson 23, Kevin Grandberg
18, Guðjón Skúlason 9, Magnús Gunn-
arsson 9, Sverrir Þór Sverrisson 7, Jón
N. Hafsteinsson 6, Gunnar Stefánsson 5,
Falur Harðarson 2, Hjörtur Harðarson
2.
Fráköst: 32 í vörn - 11 í sókn.
Villur: Valur 21 - Keflavík 20.
Dómarar: Einar Skarphéðinsson og
Georg Andersen.
Áhorfendur: 42.
Skallagr. - Breiðablik 71:74
Íþróttamiðstöðin Borgarnesi:
Gangur leiksins: 3:5, 3:6, 9:9, 11:11,
14:18, 15:21, 20:26, 20:28, 27:32, 32:37,
38:39, 38:45, 40:51, 45:56, 50:56, 53:58,
63:59, 67:65, 69:69, 71:74.
Stig Skallagríms: Isaac Hawkins 21,
Pétur Sigurðsson 15, Hafþór Gunnarsson
13, Valur Ingimundarson 8, Finnur Jóns-
son 6, Pálmi Sævarsson 4, Sigmar Eg-
ilsson 1, Egill Egilsson 1.
Fráköst: 25 í vörn - 15 í sókn.
Stig Breiðabliks: Kenneth Tate 26, Frið-
rik Hreinsson 13, Mirko Virijevic 11,
Pálmi Sigurgeirsson 10, Jón A. Ingvars-
son 9, Þórólfur H. Þorsteinsson 5.
Fráköst: 30 í vörn - 9 í sókn.
Dómarar: Einar Einarsson og Kristinn
Óskarsson höfðu góð tök á leiknum.
Áhorfendur: 190.
Tindastóll - Njarðvík 85:86
Íþróttahúsið Sauðárkróki:
Gangur leiksins: 5:2, 9:6, 14:18, 20:20,
25:23, 27:26, 30:29, 36:35, 39:39, 39:47,
44:50, 49:55, 56:59, 60:63, 62:65, 66:69,
70:74, 77:76, 80:82, 85:86.
Stig Tindastóls: Clifton Cook 33, Krist-
inn Friðriksson 14, Michail Antropov 12,
Einar Aðalsteinsson 9, Maurice Carter 8,
Sigurður Grétar Sigurðsson 6, Óli Barð-
dal 2, Helgi R.Viggósson 1.
Fráköst: 39 í vörn - 17 í sókn.
Stig Njarðvíkur: G.J. Hunter 23, Páll
Kristinsson 17, Friðrik Stefánsson 16,
Sigurður Einarsson 10, Teitur Örlygsson
9, Halldór Karlsson 8, Guðmundur Jóns-
son 2, Ólafur Ingvason 1.
Fráköst: 28 í vörn - 14 í sókn.
Villur: Tindastóll 25 - Njarðvík 18.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson og
Björgvin Rúnarsson.
Áhorfendur: 330.
Snæfell - Haukar 78:79
Íþróttamiðstöðin Stykkishólmi:
Gangur leiksins: 10:8, 18:14, 20:17,
20:20, 25:20, 30:26, 38:38, 42:40, 46:42,
50:44, 53:44, 55:50, 57:58, 59:60, 61:67,
67:72, 71:74, 73:78, 76:78, 78:79.
Stig Snæfells: Hlynur Bæringsson 23,
Clifton Bush 22, Helgi Reynir Guð-
mundsson 8, Jón Ólafur Jónsson 6,
Georgi Bujuklien 6, Daði H. Sigurþórs-
son 4, Andrés M. Heiðarsson 4, Sig-
urbjörn Þórðarson 3. Lýður Vignisson 2.
Fráköst: 26 í vörn - 11 í sókn.
Stig Hauka: Stevie Johnson 18, Sævar
Haraldsson 14, Predrag Bojovic 11, Mar-
el Guðlaugsson 10, Davíð Ásgrímsson 7,
Ottó Þórsson 7, Þórður Gunnþórsson 5,
Lúðvík Bjarnason 4, Ingvar Guðjónsson
3.
Fráköst: 30 í vörn - 5 í sókn.
Villur: Snæfell 19 - Haukar 15.
Dómarar: Sigmundur Herbertsson og
Erlingur Erlingsson, voru lítið áberandi
í leiknum, sem er til merkis um góða
frammistöðu.
Áhorfendur: 220.
Staðan:
KR 7 6 1 620:525 12
Keflavík 7 5 2 725:558 10
Grindavík 7 5 2 623:538 10
Haukar 7 5 2 601:558 10
Njarðvík 7 5 2 563:551 10
ÍR 7 4 3 592:616 8
Tindastóll 7 3 4 606:619 6
Breiðablik 7 3 4 629:638 6
Snæfell 7 2 5 538:560 4
Hamar 7 2 5 666:759 4
Skallagrímur 7 1 6 520:618 2
Valur 7 1 6 497:640 2
1. deild karla
ÍS - Stjarnan..................................... 73:72
Staðan:
KFÍ 6 5 1 519:491 10
Reynir S. 5 4 1 454:366 8
Ármann/Þróttur 6 4 2 545:505 8
Þór Þorl. 6 4 2 492:454 8
Selfoss/Laugd. 5 2 3 375:396 4
Fjölnir 5 2 3 424:457 4
Stjarnan 5 1 4 361:381 2
ÍS 6 1 5 409:448 2
Höttur 4 1 3 260:341 2
NBA-deildin
Úrslit í fyrrinótt:
Atlanta - Toronto............................ 117:92
New York - Detroit .......................... 94:91
Golden State - LA Clippers ............ 89:99
New Jersey - Denver....................... 99:79
San Antonio - Cleveland ................ 104:78
KNATTSPYRNA
Vináttulandsleikur
Suður-Afríka - Senegal....................... 1:1
Shaun Bartlett 66. - Mamadou Niang 68.
Senegal sigraði í vítaspyrnukeppni,
4:1, og hlaut Nelson Mandela-bikarinn.
Sara Jónsdóttir er Íslandsmeistari í ein-
liðaleik kvenna í badminton en ekki Ragna
Ingólfsdóttir eins og sagt var í myndatexta
Morgunblaðsins í gær. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
LEIÐRÉTTING
Áhorfendur á Sauðárkróki fengu svosannarlega nokkuð fyrir krónurn-
ar sínar þegar Tindastóls og Njarðvík-
ur mættust og gestirnir
höfðu betur 86:85. Bar-
ist var frá fyrstu mín-
útu til hinnar síðustu,
liðin léku ágæta vörn
og sóknarleikurinn var frábær lengst-
um hjá báðum liðum, og sigurinn hefði
eins og tölurnar sýna getað fallið hvor-
um megin sem var.
Lengst af fyrri hálfleik var allt í járn-
um, allt þar til rétt fyrir hálfleik þegar
gestirnir komust þrisvar inn í klaufa-
legar sendingar heimamanna og náðu
að breyta stöðunni á síðustu mínútu
hálfleiksins úr 39:41 í 39:47.
Í þriðja leikhluta komu heimamenn
mun ákveðnari til leiks og þrátt fyrir að
Njarðvíkingar næðu mest 10 stiga for-
skoti í upphafi leikhlutans var það for-
skot saxað jafnt og þétt niður og rétt
fyrir lok leikhlutans var munurinn eitt
stig, en karfa á lokasekúndunni var
gestanna og munurinn þrjú stig. Þegar
hér var komið sögu voru þrír heima-
manna komnir með fjórar villur, þeir
Axel, Helgi og Antropov og setti það
ótvírætt mark sitt á leikinn.
Frumkvæðið var gestanna í síðata
leikhuta, en þó tókst heimamönnum tví-
vegis að jafna og komast yfir, og þegar
45 sekúndur lifðu af leiknum var mun-
urinn eitt stig og brotið á Hunter sem
skoraði úr öðru skotinu, og strax var
brotið á sóknarmanni Tindastóls Helga
Viggóssyni, sem einnig skoraði úr öðru
vítinu og enn var munurinn eitt stig.
Njarðvíkingar hófu sókn en Tindastóls-
menn náðu boltanum, og brotið var á
Cook sem skoraði úr öðru vítinu og náði
að jafna.
Njarðvíkingar hófu leikinn og Krist-
inn braut á Teiti sem skoraði úr öðru
skotinu og Tindastólsmenn áttu bolt-
ann og innan við 10 sek. til loka. Carter
fékk langa sendingu fram völlinn og
Hunter fylgdi honum og kom í veg fyrir
að hann næði að skora og sló boltann út
af vellinum.
Áhorfendur vildu meina að um brot
hefði verið að ræða og létu vel í sér
heyra, en dómararnir voru vissir í sinni
sök og dæmdu Tindastól innkast þegar
2 sekúndur voru eftir og tóku heima-
menn leikhlé, en hver svo sem áformin
voru nýttust þau ekki og Njarðvíkingar
hrósuðu sætum sigri.
Tæpt í Stykkishólmi
Haukar sigruðu Snæfell með einustigi, 79:78, í gærkvöldi þar sem
Stevie Johnson tryggði sigurinn þegar
hann hitti úr vítaskoti
er 1,6 sekúnda var til
leiksloka. Mikið jafn-
ræði var með liðum
Snæfells og Hauka
framan af leik í gærkvöldi og nánast
jafn á öllum tölum í fyrsta leikhluta.
Góð barátta var í liðunum í þessum leik-
hluta sem og reyndar í öllum leiknum.
Helst var að þriggja stiga skotin vildu
ekki niður hjá hvorugu liðinu. Í lok fyrri
hálfleiks tók Snæfell góða rispu með
Helga Reyni og Clifton í fararbroddi,
en staðan í hálfleik var 46 stig Snæfells
gegn 42 stigum Hauka. Eftir jafnan
fyrri hálfleik var seinni hálfleikurinn
mikið sveiflukenndari.
Í upphafi síðari hálfleiks hélt kraftur
heimamanna áfram og náðu þeir um
tíma níu stiga forskoti á Haukana. Á
þessum tíma léku heimamenn ágæta
vörn sem kom dálitlu fáti á gestina. En
um miðjan þriðja leikhluta gáfu Hauk-
arnir í og náðu að jafna og komast yfir í
lok leikhlutans. Fjórði leikhluti var
eign Haukanna, mun meiri kraftur í
þeim enn Snæfelli, enda héldu þeir um
það bil fimm stiga forskoti alveg fram á
síðustu mínútu leiksins. Þegar 9 sek.
voru eftir jafnaði Clifton fyrir Snæfell
og mikil spenna var í húsinu, Haukar
tóku leikhlé og skipulögðu leik sinn síð-
ustu andartökin. Stevie átti að fá bolt-
ann og keyra að körfunni. Þetta heppn-
aðist því þegar 1,6 sek. var eftir var
brotið á honum og fékk hann tvö víta-
skot þar sem hann hitti úr fyrra
skotinu, sem dugði til sigurs.
Haukaliðið var afar jafnt í leiknum,
liðið er með unga og skemmtilega leik-
menn innanborðs. Snæfellsliðið stóð sig
vel í leiknum og voru leikmenn súrir í
leikslok. Enn og aftur tapa þeir leik í
fjórða leikhluta þrátt fyrir að breiddin
hafi aukist í liðinu og fleiri leikmenn eru
að koma inn á. Í síðasta leikhlutanum
vöktu innáskiptingar hjá Snæfelli at-
hygli, t.d. hvað Helgi Reynir og Hlynur
hvíldu mikið.
Helgi Reynir Guðmundsson átti
mjög góðan leik í liði Snæfells, stjórn-
aði spilinu vel að vanda. Hlynur Bær-
ingsson var að leika einn sinn besta leik
á heimavelli í vetur, skoraði 23 stig, tók
12 fráköst og barðist mjög vel bæði í
vörn og sókn. Clifton Bush var einnig
afar sterkur á báðum hlutum vallarins,
með 13 fráköst og 22 stig. Georgi Buj-
uklien, sem er kominn aftur til leiks
með Snæfelli, en hann lék og þjálfaði
liðið fyrir tveimur árum, eykur breidd-
ina mikið í liðinu, en hann átti ágæta
innkomu. Andrés Heiðarsson skilaði
varnarhlutverkinu vel í leiknum. Lýður
Vignisson og Jón Ólafur Jónsson fundu
sig engan veginn í þessum leik og hafa
oftast verið betri.
Hjá Haukum lék Sævar Haraldsson
mjög vel, fljótur og kraftmikill bak-
vörður, sem lék vörn heimamanna oft
grátt. Stevie Johnson hefur trúlega oft
verið meira áberandi, hann komst oft
lítið gegn sterkri vörn Snæfells, en þeg-
ar á þurfti að halda í lokin stóð hann vel
undir væntingum og bjargaði liði sínu
fyrir horn.
Þá var Predrag Bojovic mjög ógn-
andi með sínum þriggja stiga skotum.
Marel Guðlaugsson átti einnig ágæta
kafla í leiknum en lítið bar hins vegar á
Ingvari Guðjónssyni.
Blikar höfðu betur
Leik Skallagríms og Breiðablikslyktaði með naumum sigri Breiða-
bliks 71:74. Framan af leit út fyrir að
þetta yrði daufur leikur
en í restina breyttist
hann í mikinn spennu-
leik. Fyrri hálfleikur
var slakur hjá báðum
liðum. Liðin fengu margsinnis dæmd á
sig skref eða misstu boltann klaufalega.
Blikarnir voru þrátt fyrir allt greini-
lega mun ákveðnari í leik sínum. Lengi
vel hirti Mirko Virijevic flest fráköstin
á sama tíma og Isaac Hawkins náði sér
ekki á strik hjá Skallagrímsmönnum.
Staðan í hálfleik var 32:37.
Eftir hlé héldu Blikar áfram að auka
muninn. Þeir fengu mun meira svigrúm
í sóknarleik sínum og miðjusvæðið
stutt frá körfunni var oft autt svæði. Í
síðasta leikhluta fóru hlutirnar að ger-
ast. Skallagrímsmenn skoðuðu 15 stig á
móti 7 stigum gestanna og komust yfir
67:65. Þarna varð kúvending í varnar-
leik heimamanna jafnframt sem Isaac
Hawkins lét meira til sín taka undir
körfunni. Hraðinn var keyrður upp, en
Blikar áttu svar við því og á síðustu
tveimur mínútum leiksins breyttu þeir
stöðunni úr 69:69 í 74:71.
Jón A. Ingvarsson og Kenneth Tate
fóru á kostum og voru bestu menn
Breiðabliks í þessum leik. Jón átti 7 stoð
sendingar og tók 11 fráköst og yfirvegun
hans á síðustu mínútu skipti miklu um
hvorum megin sigurinn lenti. Auk þess
voru Mirko Virijevic og Friðrik H
Hreinsson góðir, sérstaklega í fyrri hálf
leik. Hjá Skallagrími voru Hafþór Gunn
arsson og Isaac Hawkins atkvæðamest
ir. Isaac tók 26 fráköst í sókn og vörn
Léleg notkun í vítaskotum síðustu mín
útur auk þess sem stress og skortur á
sigurvilja kom í veg fyrir tvö dýrmæt
stig fyrir Skallagrím.
Keflavík kjöldró Val
Keflvíkingar kjöldrógu Val rækilegaað Hlíðarenda í gærkvöldi – byrj
uðu með látum, höfðu 29:4 forystu eftir
níu mínútur og höfðu að
eins fengið á sig þrjár
villur. Sigurinn var aldr
ei í hættu og Keflavík
vann 114:61.
Fyrsti leikhluta var nánast sprettur
frá upphafi til enda. Gestirnir úr Kefla
vík spiluðu stífan varnarleik og gáfu
heimamönnum afar lítinn tíma til að spila
enda fór oft svo að Valsmenn komust
ekki yfir miðju. Það dró vígtennurnar úr
þeim en Keflvíkingar slógu ekkert af. Í
næsta leikhluta náðu Valsmenn að klóra
í bakkann og halda í horfinu, þar munað
um að Ægir Jónsson kom sterkur inná
Hin mjög svo ágenga vörn Keflavíkur
var búin að draga mesta máttinn úr Vals
mönnum þegar kom fram í þriðja leik
hluta og þó að þeir gæfu allt sitt í leikinn
dugði það skammt gegn ofureflinu.
„Besta sóknin er að spila vörn því góð
sókn fylgir alltaf í kjölfarið,“ mælt
Gunnar Einarsson spaklega eftir leikinn
en hann átti góðan leik fyrir Keflavík
„Þjálfarinn lagði upp með að einbeita sér
FJÖGUR lið eru nú jöfn með tíu stig, tveimur stigum á eftir KR-ingum, í
Intersport-deildinni í körfuknattleik karla. Keflavík, sem burstaði Val að
Hlíðarenda, Grindavík, Haukar, sem lögðu Sneæfell með einu stigi í
Stykkishólmi og Njarðvík sem vann Tindastól nyrðra með einu stigi.
Breiðablik lagði Skallagrím í Borgarnesi með þremur stigum þannig að
segja má að þrír af fimm leikjum sem fram fóru í gærkvöldi hafi verið
æsispennandi. Það sama verður ekki sagt um leik Vals og Keflavíkur.
ÍR-ingurinn Eugene C
Á suðupunkti
síðustu sekún
Ríkharður
Hrafnkelsson
skrifar
Björn
Björnsson
skrifar
Guðrún Vala
Elísdóttir
skrifar
Stefán
Stefánsson
skrifar
HANDKNATTLEIKUR
1.deild kvenna, Esso-deild:
Vestmannaeyjar: ÍBV - FH.......................19
Í KVÖLD
GUNNLAUGUR Erlendsson
körfuknattleiksmaður hefur til-
kynnt félagaskipti úr úrvals-
deildarliðinu Hamri í Hveragerði
í sameiginlegt lið Selfoss og
Laugdæla sem leikur í 1. deild.
Gunnlaugur hefur leikið vel með
liði Hamars í vetur og er þriðji
stigahæsti leikmaður liðsins með
17 stig að meðaltali í leik. Gunn-
laugur er 21 árs gamall fram-
herji og verður hann löglegur
með Selfoss/Laugdælum 13. des-
ember n.k. Pétur Ingvarsson
þjálfari og leikmaður Hamars
sagði í gær að hann vissi ekki af
hverju Gunnlaugur hefði ákveðið
að yfirgefa Hamar. „Hér mega
allir koma og æfa og reyna að
komast í liðið. Að sama skapi
mega allir fara ef þeim líkar ekki
dvölin,“ sagði Pétur.
Gunnlaugur frá Hamri
TVEIR körfuknattleiksdómarar
munu freista þess að gerast alþjóð-
legir dómarar á næstunni en Körfu-
knattleikssambandið samþykkti í
vikunni að senda þá Jón Bender og
Sigmund Má Herbertsson á nám-
skeið fyrir tilvonandi alþjóðadóm-
ara.
Þeir félagar verða undir verndar-
væng Jan Holmin, sem er eftirlits-
dómari hjá FIBA, en hann mælti
með Jóni og Sigmundi þegar hann
kom á Valsmótið hér á landi í haust.
Prófið sjálft verður haldið í apríl.
Kristinn Albertsson, sem hefur
verið FIBA-dómari um nokkurra
ára skeið, endurnýjaði ekki alþjóða-
réttindi sín í haust og eftir að Leifur
Garðarsson var ráðinn skólastjóri í
Hafnarfirði er óvíst að hann hafi
tíma til að sinna dómarastörfum á
vegum FIBA.
Tveir í FIBA-próf