Morgunblaðið - 20.11.2002, Side 4
FÓLK
BIRKIR Kristinsson markvörður
og Þórður Guðjónsson eru einu
leikmenn Íslands sem hafa leikið
báða leikina gegn Eistlandi – 1994
á Akureyri og 1996 í Tallinn.
Þórður kom inn á sem varamaður í
báðum leikjunum, en er nú í byrj-
unarliði, en Birkir kominn á bekk-
inn.
ÍSLENSKA landsliðið leikur í
hvítum búningum gegn Eistlandi í
Tallinn. Dómari leiksins er frá
Hollandi.
LEIKNUM, sem hefst kl. 16 að
íslenskum tíma, er sjónvarpað
beint til Íslands á RÚV. Þess
vegna verða auglýsingar frá Sím-
anum og Vífilfelli á vellinum, sem
er heimavöllur Floru. Sautján af
átján manna manna landsliðshópi
Eistlands eru leikmenn eða hafa
leikið með Floru.
GEIR Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Knattspyrnusam-
bands Íslands, kemur til Tallinn í
dag til að fylgjast með leiknum. Þá
kom fimmtán manna hópur frá Ís-
landi í hópferð til Tallinn, til að
mæta á leikinn.
ATLI Eðvaldsson og leikmenn
hans fengu ekki að æfa á keppn-
isvellinum í gær, þar sem það var
verið að þurrka völlinn upp fyrir
leikinn. Völlurinn var blautur
vegna snjóa, en þrjá síðustu daga
hefur hann verið hitaður upp fyrir
átökin og sandur settur á hann.
Landsliðið æfði tvisvar á gervi-
grasvelli í gær.
SÍÐAST þegar leikið var hér í
Tallinn komu feðgar við sögu. Eið-
ur Smári Guðjohnsen skipti við
pabba sinn, Arnór, á 62. mín. Þeir
feðgar náðu aldrei að leika saman
landsleik, þar sem Eiður Smári
meiddist stuttu síðar, en þeir áttu
að leika saman í næsta landsleik
Íslands, gegn Makedóníu.
FEÐGAR eru nú einnig á ferð.
Haukur Ingi sóknarleikmaður er
sonur Guðna Kjartanssonar, að-
stoðarmanns Atla og fyrrverandi
fyrirliða landsliðsins.
BALDUR Bett, knattspyrnumað-
ur, hefur framlengt samning sinn
við FH-inga um eitt ár. Baldur er
22 ára gamall miðjumaður sem
leikið hefur með Hafnarfjarðarlið-
inu undanfarin þrjú ár.
RUDI Völler landsliðsþjálfari
þýska landsliðsins í knattspyrnu
hefur valið framherjann Fredi
Bobic í lið sitt sem mætir Hollend-
ingum í vináttulandsleik á morgun.
Bobic hefur ekki leikið landsleik í
fjögur ár og kemur inn í liðið í stað
Carsten Jancker sem er meiddur.
Völler valdi einnig Hanno Balitsch
frá Bayer Leverkusen í liðið en
hinn 21 árs gamli miðjumaður er
nýliði og kemur í stað Carsten
Ramelow sem er veikur.
BOBIC sem er þrítugur, var á
sínum tíma markahæsti leikmaður
þýsku deildarinnar er hann lék
með Stuttgart, en hann hefur skor-
að átta mörk í s.l. níu leikjum með
Hannover 96. Bobic fékk lítið að
spreyta sig með Borussia Dort-
mund og reyndi fyrir sér með Bolt-
on í ensku úrvalsdeildinni s.l. vor.
LOGI Gunnarsson skoraði 15
stig fyrir lið sitt Ratiopharm Ulm
á sunnudag í þýsku 2. deildinni í
körfuknattleik er liðið lagði Chem-
nitz að velli 81:77. Logi hefur skor-
að að meðaltali 16,3 stig að með-
altali og tekur að 3 fráköst að
meðaltali. Ulm er með 10 stig að
loknum 14 umferðum og er liðið í
5. sæti af alls 17 liðum.
CLAUDIO Reyna, fyrirliði
bandaríska landsliðsins í knatt-
spyrnu, leikur líklega ekki meira
með Sunderland í vetur. Hann
meiddist á hné í síðasta mánuði og
var skorinn upp af þeim sökum í
fyrradag.
Tryggvi Guðmundsson er mjögánægður með þá stöðu, sem
hann leikur gegn Eistlendingum –
fremstur miðju-
manna, fyrir aftan
Helga Sigurðsson,
miðherja. „Þetta er
algjör draumastaða.
Þetta er staða sem leikmaður númer
tíu leikur, sem leikstjórnandi fyrir
aftan miðherja. Ég hef þann hæfileika
að geta leikið í nokkrum stöðum á
vellinum, einnig sem miðherji og
vinstri útherji. Þetta er þó drauma-
staðan,“ sagði Tryggvi, sem sagði að
leikurinn gegn Eistlendingum legðist
mjög vel í sig. „Ég er mjög vel upp-
lagður, heitur og spenntur að fá tæki-
færi til að leika í byrjunarliði Íslands
á ný.
Ég ætla þó ekki að lofa neinu, nema
að ég mun gera mitt besta. Það geri
ég alltaf þegar ég mæti til leiks til að
leika knattspyrnu. Það verður engin
breyting þar á er við mætum Eistum.
Ég ætla þó ekki að lofa neinum mörk-
um,“ sagði Tryggvi.
Ætlum að leggja
okkur alla fram
Þórður var einnig ánægður að fá
tækifæri hér í Tallinn. „Ég er mjög
sáttur við að vera kominn á ný í lands-
liðshópinn. Það er mikill heiður fyrir
mig að vera kominn aftur í þennan
samstæða hóp landsliðsmanna Ís-
lands, eftir langa fjarveru. Það hefur
verið erfiður róður hjá mér síðan ég
fór til Kanaríeyja fyrir tveimur árum
– til liðs við Las Palmas. Það var mik-
ill léttir fyrir mig að losna frá Spáni og
halda á ný til Bochum í Þýskalandi,“
sagði Þórður og hann sagði að hann
væri mjög sáttur við niðurstöðuna í
sínum málum. „Ég er ánægður og
glaður með það sem ég er að gera í
dag. Mér var tekið vel í Bochum og
ekki skemmir það að mér hefur geng-
ið vel með liðinu. Ég er kominn í eins
góða æfingu og ég var í þegar best
gekk.
Ég er spenntur fyrir leiknum hér í
Tallinn. Þó að þetta sé æfingaleikur
er hann landsleikur. Við ætlum allir
að leggja okkur fram í því sem við er-
um að gera. Það eru fleiri í landsliðinu
sem eru í svipaðri stöðu og ég – eru að
koma inn eftir töluverðan tíma. Það
eru allir ákveðnir að sýna sig og sanna
á morgun. Sýna að það sé góð breidd í
íslenskri knattspyrnu og að menn séu
tilbúnir þegar kallið kemur,“ sagði
Þórður, sem sagðist vona að hann
fengi tækifæri til að leika með tveim-
ur yngri bræðra sinna, sem eru hér í
Tallinn – Bjarna og Jóhannesi Karli.
„Við bræðurnir vorum saman í eitt og
hálft ár í Belgíu, sem leikmenn Genk.
Þar fengum við aldrei tækifæri að
leika saman, þó að við værum oft sam-
an í hópnum. Það myndi ekki skemma
ánægjuna hér, ef við myndum leika
saman inni á einhvern hluta leiksins.
Það kemur í ljós, en það kemur dagur
eftir þennan dag,“ sagði Þórður.
Allir leikið saman áður
Pétur Hafliði sagði að það væri
gaman að vera aftur kominn í lands-
liðshópinn. „Það er ár síðan ég lék síð-
ast landsleik, en í millitíðinni hef ég
gengið í gegnum meiðsli og mótlæti í
félagsliði mínu, Stoke. Ég þekki vel
þá stöðu sem ég leik í gegn Eistum,
fyrir framan miðverðina. Ég hef leik-
ið hana áður með landsliðinu og gerði
það í síðasta leik Stoke. Þó að breyt-
ingarnar séu þónokkrar núna á byrj-
unarliðinu höfum við allir leikið sam-
an áður og þekkjumst vel. Það ætti að
sjást hér í Tallinn, að það eru komnir
leikmenn sem hafa ekki leikið lengi
með, að það er vilji og barátta í hópn-
um, til að sýna og sanna fyrir Atla og
sjálfum okkur að við eigum heima í
landsliðshópnum. Ég mun taka slag-
inn,“ sagði Pétur Hafliði.
Get ekki endurtekið
leik Bjarka
„Það er mjög ánægulegt að vera
kominn á ný í landsliðið, eftir þriggja
ára fjarveru. Það er alltaf gaman að
hitta strákana. Við gerum okkur
grein fyrir að þetta er meira en vin-
áttulandsleikur – leikurinn er mikil-
vægur fyrir okkur og eins og alltaf þá
stefnum við á sigur,“ sagði Arnar,
sem segist ekki ætla að lofa að end-
urtaka afrek Bjarka bróður síns, sem
skoraði öll mörk Íslands í sigurleik
gegn Eistlandi í Tallinn 1996, 3:0.
„Ég myndi sætta mig við það að
endurtaka leikinn – skora þrjú mörk í
fyrri hálfleik og leika síðan ekki seinni
hálfleikinn. Það verður erfitt, ég held
að ég geti ekki endurtekið leik
Bjarka.“ Arnar sagði að hann hefði
fengið fá tækifæri með Dundee Unit-
ed. „Þrátt fyrir það tel ég að ég sé
mjög vel upplagður fyrir slaginn hér.
Ég vil festa mig í landsliðshópnum,
enda eru geysilega skemmtileg verk-
efni framundan – átta leikir í riðlinum
í undankeppni EM í Portúgal, sem fer
fram eftir tvö ár.
Fyrsti leikurinn verður gegn Skot-
um í Glasgow í mars,“ sagði Arnar.
Ísland hefur tvisvar áður leikið
gegn Eistlandi, vináttulandsleiki. Síð-
ast þegar Bjarki skoraði mörkin þrjú
og þar áður á Akureyri 16. ágúst 1994,
4:0. Þá skoraði Þorvaldur Örlygsson
þrjú mörk og Þórður Guðjónsson eitt.
Það yrði sannkölluð drauma-
þrenna, ef þriðji sigurinn næðist á
Eistlandi hér í Tallinn og ef þriðji
leikmaðurinn næði að skora þrennu
gegn Eistum.
Mikil spenna fyrir
átökin í Tallinn
ÞAÐ var létt yfir landsliðs-
mönnum Íslands í gærkvöldi er
þeir komu út af fundi með Atla
Eðvaldssyni landsliðsþjálfara,
Ásgeiri Sigurvinssyni og Guðna
Kjartanssyni, aðstoðarmönnum
hans, og það var greinilegt að
mikill hugur og spenna var í
mönnum að standa sig sem
best gegn Eistlendingum. Atli
kallaði inn í liðið fjóra leikmenn
sem hafa ekki verið lengi í byrj-
unarliði Íslands – Þórð Guð-
jónsson, Arnar Gunnlaugsson,
Pétur Hafliða Marteinsson og
Tryggva Guðmundsson, allt
reynda atvinnumenn. „Ég er í
sjöunda himni, enda er það
mikill heiður fyrir mig að leika
fyrir hönd Íslands,“ sagði
Tryggvi Guðmundsson, sem var
síðast í byrjunarliði landsliðsins
í leik gegn Pólverjum á Laug-
ardalsvellinum 15. ágúst í fyrra,
1:1. Arnar lék aftur á móti sinn
síðasta landsleik á Möltu 28.
apríl 1999 undir stjórn Guðjóns
Þórðarsonar í sigurleik, 2:1.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
frá Tallinn
Morgunblaðið/Júlíus
Þórður Guðjónsson á fleygiferð í leik með íslenska landsliðinu gegn Andorra.
Fjórir „nýir“ leikmenn í lykilstöðum gegn Eistlandi