Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 4

Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 4
FÓLK  ÚRVALSDEILDARLIÐ ÍR fær liðstyrk eftir áramótin þegar Steinar Arason byrjar að leika með liðinu. Steinar stundar nám og leikur körfubolta í Þýskalandi en hefur ákveðið að snúa aftur heim til Íslands. Síðasta vetur lék Steinar með Skallagrím í Borg- arnesi og skoraði þar 12,1 stig að meðaltali í leik.  ÍSLENDINGARNIR Jakob Sig- urðarson og Helgi Margeirsson leika með körfuknattleiksliði Birm- ingham Southern-háskólans og hefur liðið tapað báðum leikjum sínum á leiktíðinni. Jakob er stiga- hæsti leikmaður liðsins með 13 stig að meðaltali og leikur að meðaltali 32 mínútur í leik. Helgi hefur lítið komið við sögu hjá liðinu í fyrstu tveimur leikjunum, Jakob lék með KR hér á landi en Helgi með liði Tindastóls.  PÉTUR Marteinsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, sem meiddist á hné í landsleik gegn Eistlandi í Tallinn, verður í leikmannahópi Stoke, sem mætir Gillingham á útivelli í ensku 1. deildarkeppninni.  FRANSKI landsliðsframherjinn, David Trezeguet, verður í byrj- unarliði Juventus í fyrsta sinn á leiktíðinni gegn Reggio Calabria næsta miðvikudag í ítölsku bik- arkeppninni. Trezeguet skoraði flest mörk allra á sl. leiktíð eða 24 alls en hefur lítið leikið í haust vegna meiðsla á hné sem hann hlaut á undirbúningstímabilinu.  BLACKBURN vonast til þess að geta fengið tyrkneska landsliðs- framherjann Hakan Sukur til liðs- ins í byrjun janúar. Hinn 31 árs gamli Sukur er samningslaus eftir að hann fór frá ítalska liðinu Parma í sumar. Sukur mun ræða við Graeme Souness, knattspyrnu- stjóra Blackburn, um helgina á Englandi. „Við viljum fá Sukur til liðsins og ætlum að bjóða honum samning til loka leiktíðarinnar, að þeim tíma loknum er þá hægt að meta stöðuna á ný. Ef honum líkar dvölin og við verðum ánægðir með hann þá er ekkert vandamál að semja á ný og þá til lengri tíma,“ segir Souness.  ANDY Cole og Dwight Yorke hafa aðeins skorað fimm mörk til samans það sem af er leiktíðinni fyrir Blackburn auk þess sem Cor- rado Grabbi virðist lítt skárri en fyrrum „radarpar“ Manchester United.  JOSE Antonio Camacho, fyrrum þjálfari spænska landsliðsins í knattspyrnu, er líkast til á leiðinni til Benfica þar sem hann mun stýra liðinu til loka leiktíðarinnar. Camacho mun stýra liðinu í fyrsta sinn í dag er liðið mætir Sporting. Jesualdo Ferreira var áður þjálf- ari Benfica sem hefur haft tíu þjálfara í sínum röðum sl. sjö ár og ætlar Camacho aðeins að taka verkefnið að sér í stuttan tíma.  FRAKKINN, Bruno Cheyrou, sem leikur með enska liðinu Liver- pool, verður frá keppni næstu vik- urnar vegna meiðsla. Hinn ungi framherji fór af leikvelli eftir að- eins 10 mínútur í leik Liverpool og Vitesse sl. fimmtudag í UEFA- keppninni. ÞAÐ verða erfiðar æfingar hjá norska úrvalsdeildarliðinu Lille- ström í jólamánuðinum en leik- menn liðsins hafa ekki æft sameig- inlega eftir að leiktíðinni lauk þar í landi í lok október sl. Arne Erlandsen þjálfari liðsins og aðstoðarmaður hans, Logi Ólafs- son, voru langt frá því að vera sátt- ir við ástand leikmanna liðsins er þeir gengust undir þrekpróf er liðið kom saman til æfinga á ný. „Almennt séð voru niðurstöður þrekprófa undir þeim viðmiðum sem við höfum séð á þessum tíma árs, við treystum okkar leik- mönnum til þess að æfa sjálfir á þessum tíma en við vitum nú að margir þeirra hafa verið meira í sófanum en góðu hófi gegnir,“ seg- ir Erlandsen við Romerikes Blad og segir uppskriftina einfalda. „Þeir sem hafa slakað á í fríinu fá nú að hlaupa meira en aðrir í desember.“ Fabio Capello, 56 ára, er talinn einnhæfasti þjálfari heims og margir telja að hans tími sé að renna upp sem landsliðsþjálfari Ítal- íu. Hann var leik- maður með AC Milan í tuttugu ár, sneri sér síðan að þjálfun og undir hans stjórn varð AC Milan fjór- um sinnum ítalskur meistari og sig- urvegari í Evrópukeppni meistara- liða 1994. Capello fór til Spánar 1996 og þjálfaði Real Madrid í eitt ár og fagnaði Spánarmeistaratitli 1997. Frá Mardid hélt hann til Rómar og 1999 varð Roma bikarmeistari og 2001 ítalskur meistari undir hans stjórn – fagnaði sínum fyrsta meistaratitli í 18 ár. Capello sagði á fundi með frétta- mönnum fyrir Evrópuleikinn að Ars- enal væri besta lið Evrópu um þessar mundir, að hans mati, og að liðið væri það vel mannað að það gæti farið alla leið. „Arsenal hefur stóran hóp leik- manna sem eru í mjög háum gæða- flokki. Þeir búa yfir þreki, gæði knatt- spyrnunnar sem þeir leika eru mikil, hraðinn geysilegur og leikmenn búa yfir mikilli tækni. Leikmannahópur liðsins er það stór að þjálfarinn getur leyft sér að hvíla sterka leikmenn þegar við á. Liðsandinn er greinilega mjög góður hjá Arsenal og leikmenn vinna geysilega vel saman og lifa sig inn það sem þeir eru að fást við,“ sagði Capello. Þegar Capello var spurður á fund- inum hvort Arsenal gæti rutt Real Madrid, sem er spáð Evrópumeist- aratitlinum, úr vegi, sagði hann: „Hér eru um tvö mjög ólík lið að ræða. Real er skipað úrvali af stórstjörnum, sem allar vilja skína. Leikmenn vilja alltaf vera með knöttinn, en þegar maður hugsar um varnarvinnuna þá er Ars- enal sterkara lið. Leikmenn liðsins bíða yfirvegaðir eftir að að ná knett- inum frá andstæðingnum og þeir eru fljótir fram þegar þeir ná honum. Ég er mjög hrifinn af leikaðferð Arsen- al,“ sagði Capello og það vakti athygli hvað orð hans voru sterk er hann lýsti leikmönnum Arsenal, mótherjum sín- um, fyrir leik í Evrópukeppninni. „Knattspyrnan sem Arsenal leikur hefur vakið mikla athygli um Evrópu. Arsene Wenger hefur náð stórkost- legum árangri með liðið. Ég þekki hann vel. Kynntist honum þegar hann var þjálfari Mónakóliðsins í Frakk- landi. Hann er greinilega hæfasti þjálfarinn sem er í brasanum núna,“ sagði Capello, sem var orðaður sem landsliðsþjálfari Englands er Kevin Keegan hætti sem landsliðsþjálfari. Það eru fleiri þjálfarar en Capello sem eru hrifnir af vinnubrögðum Wenger. Atli Eðvaldsson, landsliðs- þjálfari Íslands, sagði í Tallinn í Eist- landi á dögunum að vinnubrögð Wen- ger væri honum að skapi. „Wenger skammar leikmenn sína aldrei. Hann leggur sig fram að leiðbeina þeim, þannig að sömu mistökin séu ekki gerð aftur,“ sagði Atli. Arsenal náði frábærum enda- spretti á sl. keppnistímabili – vann tvöfalt, bæði deild og bikar. Það vakti mikla athygli í Englandi hvað Arsen- al-liðið byrjaði vel, en síðan komu fjórir tapleikir í röð. En leikmenn liðsins hafa náð að rétta úr kútnum og sýndu mjög góðan leik í Róm. Wenger sagði í upphafi keppnis- tímabilsins að það hefði komið sér á óvart hvað léttleikinn væri mikill hjá leikmönnum sínum, þar sem álagið á þeim hefði verið mikið. Margir þeirra hafi verið á ferðinni í heimsmeistara- keppninni um sumarið. „Þeir leika á sama krafti og þeir gerðu undir lokin á síðasta keppnistímabili – setja hvert metið á fætur öðru. Leikgleðin og samvinnan er mikil,“ sagði Wenger og hann hélt ró sinni er liðið var búið að tapa fjórum leikjum í röð á dög- unum, en það hafði ekki þekkst í her- búðum Arsenal í nítján ár, að tapa svo mörgum leikjum í röð. „Við þurfum ekki að örvænta. Það getur enginn íþróttamaður haldið fullum dampi endalaust. Spretthlauparar vinna ekki öll mót sem þeir taka þátt í, held- ur ekki tennisleikarar eða kylfingar. Það kemur alltaf fyrir að íþróttamenn verða að sætta sig við ósigur, en góðir íþróttamenn halda alltaf styrk sínum. Það munu strákarnir mínir gera,“ sagði Wenger. Fabio Capello, þjálfari Roma, er hrifinn af Arsenal-liðinu AP Það var létt yfir leikmönnum Arsenal að leik loknum í Rómarborg, eftir glæsilegan sigur þeirra á Roma, 3:1. Besta lið Evrópu „HVAÐ var ég búinn að segja … Henry var maðurinn sem myndi refsa okkur, ef við sofnuðum á verðinum,“ hefði Fabio Capello, hinn kunni knatt- spyrnuþjálfari ítalska liðsins Roma, réttilega getað sagt við sína menn eftir að þeir urðu að sætta sig við tap fyrir Arsenal á Ólympíuleikvanginum í Róm í meistaradeild Evrópu, 3:1. Það var franski miðherjinn Thierry Henry sem var maðurinn á bak við sigur Arsenal, skoraði öll þrjú mörk leiksins. Fyrir leikinn sendi Capello út stormviðvörun – Hafið góðar gætur á Henry! Eftir Sigmund Ó. Steinarsson Leikmenn Lilleström latir í fríinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.