Morgunblaðið - 14.12.2002, Blaðsíða 4
FÓLK
ÞORVARÐUR Tjörvi Ólafsson
skoraði eitt mark fyrir Århus GF
þegar liðið tapaði 33:22 fyrir Aal-
borg HSH í Álaborg í fyrrakvöld, en
Aalborg HSH mætir Gróttu/KR í
síðari viðureign liðanna í Áskor-
endakeppni Evrópu í handknattleik
í Álaborg í dag.
Í gær var dregið í riðla í undan-
keppni Evrópumóts 17 og 19 ára
landsliða karla í knattspyrnu. 19 ára
lið Íslands, sem Guðni Kjartansson
þjálfar, er í riðli með Ísraelsmönn-
um, Hollendingum og Moldövum og
17 ára liðið, sem Lúkas Kostic þjálf-
ar, er í riðli með Rússlandi, Litháen
og Albaníu.
LEE Bowyer miðvallarleikmaður
Leeds United á yfir höfði sér leik-
bann hjá UEFA fyrir afar ruddar-
legt brot í leik Leeds og Malaga í 3.
umferð UEFA-keppninnar. Bowyer
braut illa á mótherja sínum og lét
það ekki nægja heldur traðkaði ofan
á andliti hans. Dómarinn veitti því
atviki ekki athygli en myndavélar
sjónvarpsmanna náðu því og þar
með verður Bowyer réttilega napp-
aður af aganefnd UEFA.
MICHAEL Bridges leikur ekki
meira með Leeds á leiktíðinni.
Bridges, sem nýbyrjaður var að
spila á nýjan leik eftir að hafa verið
frá meira og minna í tvö ár vegna
hné- og ökklameiðsla, haltraði útaf
snemma leiks í leiknum á móti
Malaga – illa meiddur á hásin.
CARLO Cudicini hefur verið út-
nefndur leikmaður ársins hjá
Chelsea. Ítalinn hefur farið á kost-
um á milli stanganna hjá liði Chelsea
og er klárlega kominn í hóp bestu
markvarða í ensku úrvalsdeildinni.
Framherjinn Carlton Cole var kjör-
inn efnilegasti leikmaður félagsins.
EIÐUR Smári Guðjohnsen verður
væntanlega á varamannabekk
Chelsea í dag þegar liðið sækir
Middlesbrough heim á Riverside
leikvanginn. „Boro“ er taplaust á
heimavelli síðan 27. apríl en þá tap-
aði liðið fyrir Chelsea, 2:0.
LÁRUS Orri Sigurðsson verður
væntanlega í byrjunarliði WBA sem
mætir Aston Villa.
HERMANN Hreiðarsson og Heið-
ar Helguson mætast á Portman
Road í ensku 1. deildinni þegar Ips-
wich og Watford leiða saman hesta
sína. Báðir verða í byrjunarliðunum
svo væntanlega takast þeir á, enda
eru þeir báðir þekktir fyrir að kalla
ekki allt ömmu sína í baráttu inni á
vellinum.
STOKE á erfitt verkefni fyrir
höndum í dag en þá tekur liðið á
móti toppliði Portsmouth. Á meðan
allt hefur gengið eins og í sögu hjá
Portsmouth hefur gengi Stoke verið
afleitt og í síðustu 10 leikjum hefur
liðið tapað níu sinnum og gert eitt
jafntefli.
ÍVAR Ingimarsson verður að öll-
um líkindum á varamannabekk
Wolves sem tekur á móti Coventry.
ALEX Ferguson, stjóri United,
teflir líklega fram sama byrjunarliði
og í síðustu tveimur leikjum liðsins á
móti West Ham í dag. Það þýðir að
ekkert pláss er fyrir David Beck-
ham.
DRAUMUR Gerard Houllier,
knattspyrnustjóra Liverpool, hefur
ræst. Hann hefur beðið í fjögur og
hálft ár eftir því að stjórna Liver-
pool í leikjum gegn liði frá heima-
landi hans, Frakklandi, í Evrópu-
keppninni. Í gær drógst Liverpool
gegn franska liðinu Auxerre í 16-
liða úrslitum UEFA-bikarkeppninn-
ar.
HOULLIER var ánægður í gær og
sagði að hann væri búinn að þekkja
Guy Roux, þjálfara Auxerre í meira
en 25 ár. „Hann er mjög góður vinur
minn. Það eru ekki nema ár síðan við
vorum saman um jólin á Korsíku,“
sagði Houllier.
„LEIKURINN leggst nokkuð vel í
mannskapinn og hann veit það af
fenginni reynslu að viðureignin verð-
ur erfið. Við erum hins vegar stað-
ráðnir í að gera okkar besta,“ sagði
Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/
KR, í samtali við Morgunblaðið í gær
þar sem hann var staddur í Álaborg í
Danmörku en í dag mætir Grótta/
KR liðsmönnum Aalborg HSH í síð-
ari leik liðanna í 16-liða úrslitum
Áskorendakeppni Evrópu. Grótta/
KR vann fyrri leikinn á heimavelli
um síðustu helgi með þremur mörk-
um, 23:20, og Ágúst viðurkennir að
forskotið sé nokkuð naumt en von-
andi takist að spila rétt úr spilunum.
„Við ætlum að reyna að halda hrað-
anum í leiknum niðri og reyna þann-
ig að pirra Danina því að þeir vilja
hafa mikinn hraða í leiknum. Annars
verðum við að spila þetta svolítið eft-
ir eyranu eftir því sem leikurinn
þróast,“ sagði Ágúst.
Alfreð Finnsson er lítillega meiddur
og Magnús A. Magnússon, línumað-
ur, var lasinn í gær. Ágúst vonast
eftir að báðir verði klárir í slaginn í
dag ásamt öðrum liðsmönnum.
Margir Íslendingar á
meðal áhorfenda
Talsverð eftirvænting ríkir vegna
leiksins og mun vera nærri því upp-
selt á hann en um 2.000 áhorfendur
rúmast í íþróttahöllinni í Álaborg. Að
sögn Ágústs reiknar Íslendinga-
félagið í Álaborg með því að á milli
200 og 300 Íslendingar verði á meðal
áhorfenda. „Hér er mönnum í fersku
minni þegar íslenska landsliðið felldi
Dani í undankeppni HM hér í Ála-
borg fyrir sex árum,“ segir Ágúst og
væntir þess að fá góðan stuðning.
Við gerum okkur vel grein fyrir þvíað verkefnið er mjög krefjandi
en alls ekki óvinnandi. Lið Ademar er
geysiöflugt. Þetta er
eitt besta hraðaupp-
hlaupslið Spánar og
það er enga veikleika
að finna í þessu liði.
Vörn þeirra er sterk, sóknarmenn-
irnir góðir og þeir geta nánast teflt
fram tveimur jafnsterkum liðum,“
sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari
Hauka, í samtali við Morgunblaðið.
Eins og staðan er fyrir leikinn er
þá ekki ljóst að þið verðið að taka ein-
hverja áhættu í leiknum?
„Jú, við verðum að gera það og
tjalda öllu sem við eigum. Það fyrsta
sem við höfum sett okkur sem mark-
mið er að vinna leikinn og sjá til
hvernig leikurinn þróast og hvort við
eflumst ekki við hvert mark. Við tök-
um eitt mark í einu og erum meðvit-
aðir um miklar sveiflur sem geta átt
sér stað í Evrópuleikjum. Það er oft
þannig að þegar lið er með svona gott
forskot, reynir það að verja það og
það getur oft reynst erfitt samanber
þegar við fórum til Sandefjörd með
tíu marka forskot sem hvarf í fyrri
hálfleik. Ég er með ása uppi í erminni
sem ég ætla að láta liggja milli hluta
að ræða um hverjir eru en að sjálf-
ögðu ætlum við að gera það sem við
getum til að komast áfram.“
Viggó segir það breyta heilmiklu
fyrir lið sitt að endurheimta fyrirlið-
ann Halldór Ingólfsson en hans var
sárt saknað á Spáni. Halldór var for-
fallaður í þeim leik þar sem eiginkona
hans átti von á sér og fæddist þeim
sonur á mánudag, daginn sem Hauk-
arnir komu heim frá Spáni.
„Halldór er einn okkar besti leik-
maður sem oftar en ekki stígur upp í
svona stórleikjum svo það segir sig
sjálft að það er gott að fá hann til
baka. Lykilatriði ef við ætlum að
vinna er að hver einasti leikmaður nái
fram toppleik og við verðum að fá
mörk úr hornunum og úr hraðaupp-
hlaupum sem var ekki var til staðar á
Spáni. Það er mjög mikilvægt að við
náum að stjórna leiknum og byrjum
vel og ef það tekst þá er allt mögu-
legt. “
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
í gær verður Ademar Leon án Norð-
mannsins Stian Vatne í leiknum í dag
og segir Viggó það veikja varnarleik
Spánverjanna til muna. „Hann bind-
ur vörn þeirra mjög vel saman og
fjarverja hans veikir tvímælalaust
varnarleik þeirra,“ segir Viggó.
Reyna að
pirra
Danina
Ljósmynd/Norberto
Leikmenn Hauka úr Hafnarfirði leggja hér á ráðin í fyrri leiknum við Ademar í Leon.
Þungur róður
hjá Haukum
HAUKAR eiga í vændum þungan róður á heimavelli sínum á Ásvöll-
um í dag þegar þeir taka á móti Ademar Leon frá Spáni í síðari við-
ureign liðanna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni bikarhafa í hand-
knattleik. Spánverjarnir standa vel að vígi – eru með átta marka
forskot eftir sigur í ljónagryfju sinni um síðustu helgi, 29:21, en að
sögn Viggó Sigurðssonar, þjálfara Hauka, eru hans menn ekki búnir
að játa sig sigraða og ætla að berjast til síðasta manns.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Edda í hópi þeirra bestu
EDDA Garðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu úr KR, var valin
í þriðja lið 1. deildar kvenna í bandarísku háskóladeildinni fyrir ár-
ið 2002. Það eru þjálfarar í deildinni sem velja lið ársins en alls eru
valin níu 12 manna lið í árslok ár hvert. Þrjár deildir eru í há-
skóladeildinni og eru valin þrjú lið í hverri deild. Það er því ljóst að
afrek Eddu er mikið þar sem hún er í hópi 36 bestu leikmanna
bandaríska háskólaboltans. Edda er við nám í Richmond-háskól-
anum í Virginíu-fylki og er þar á þriðja ári. Áður hefur Ásthildur
Helgadóttir verið valin í lið ársins, það var árið 1998 er hún var val-
in í fyrsta lið 1. deildar og var því í hópi 12 bestu leikmanna deild-
arinnar. Athygli vekur að í þessum þremur liðum er einn mark-
vörður í hverju liði, þrír varnarmenn, fjórir miðjumenn og fjórir
sóknarmenn, þannig að sóknarleikurinn er í hávegum hafður.