Morgunblaðið - 04.01.2003, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 04.01.2003, Qupperneq 4
 ÞRÍR íslenskir handknattleiks- þjálfarar héldu í gær til Júgóslavíu þar sem þeir taka þátt í þjálfararáð- stefnu. Þetta eru þeir Ágúst Jó- hannsson, þjálfari Gróttu/KR, Geir Sveinsson, þjálfari Vals, og Karl Erlingsson, aðstoðarþjálfari meist- araflokks kvenna hjá Stjörnunni.  RÁÐSTEFNAN er í tengslum við fjögurra landa mót þar sem Frakk- ar, Danir og Svíar keppa auk heima- manna. Á ráðstefnunni mun Daniel Constantini, fyrrverandi landsliðs- þjálfari Frakka, ræða sína útfærslu á 5-1 vörn. Tobern Winter, lands- liðsþjálfari Dana, ræðir sóknarleik gegn 5-1 vörn og Bengt Johansson, landsliðsþjálfari Svía, ræðir um 6-0 vörn. Claude Onesta, landsliðsþjálf- ari Frakka, fer síðan yfir sóknarleik gegn flatri vörn.  ROBBIE Fowler vill ekki fara frá Leeds til Manchester City og þar með hefur viðræðum milli ensku knattspyrnufélaganna verið slitið. City var reiðubúið til að greiða tæp- an milljarð króna fyrir Fowler.  FOWLER er sagður hafa neitað að fara til City þar sem hann hefði lækkað nokkuð í launum. Hann er með í kringum 6 milljónir króna í laun á viku hjá Leeds, sem þarf nauðsynlega að selja leikmenn vegna fjárhagsvandræða sinna. Auk Fowlers eru bæði Olivier Dacourt og Lee Bowyer til sölu, Birming- ham hefur sýnt Bowyer áhuga og Dacourt er orðaður við Roma á Ítal- íu.  ENSKI landsliðsdúettinn hjá Liv- erpool, Michael Owen og Emile Heskey, getur að öllum líkindum ekki leikið með liðinu gegn Man. City, þar sem þeir eru meiddir. Diet- mar Hamann er einnig á sjúkralista, en Danny Murphy leikur með á ný, eftir að hafa verið í eins leiks banni.  ARSENAL hefur áhuga á gríska markverðinum Stefanos Kotsolis, 24 ára, hjá Panathinaikos. Gríska blað- ið Ta Nea sagði frá þessu í gær og talsmaður Panathinaikos staðfesti að Arsenal hefði óskað eftir því að markvörðurinn kæmi til æfinga í London eftir helgi  ARSENE Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal, mun hvíla marga lyk- ilmenn sína þegar liðið mætir Ox- ford í bikarleik á Highbury í dag. Thierry Henry er meiddur, einnig Patrick Vieira, Ashley Cole, Gil- berto Silva og Robert Pires, líklega einnig Sol Campbell. Fyrir á sjúkra- lista voru Ray Parlour, Fredrik Ljungberg og Pascal Cygan, en reiknað er með að Edu komi á ný inn í lið Arsenal. FÓLK Guðmundur segir leikina veraprófstein á hvar íslenska landsliðið stendur nú þegar komið er að lokaundirbúningi fyrir HM. „Það er ljóst að Slóvenar eru komnir lengra en við í undirbúningi sínum fyrir HM þar sem þeir hafa verið saman við æfingar síðan um miðjan desember,“ segir Guðmundur sem reiknar með að nota flesta af þeim 22 leikmönnum sem eru í landsliðs- hópnum í leikjunum þremur. Guðmundur segist leggja höfuð- áherslu á varnarleikinn í leikjunum. „Það er algjört lykilatriði að varn- arleikurinn verði í lagi. Með góðum varnarleik þá batnar markvarslan. Þessi atriði verða að vera í lagi hjá íslenska landsliðinu til þess að það nái árangri þegar út í alvöruna er komið.“ Guðmundur segist reikna með að Slóvenar leiki að mestu leyti fram- liggjandi vörn og þá gefst kærkomið tækifæri að hans mati að til þess að spreyta sig gegn henni en reikna má með að einhverjir af andstæðingum Íslands á HM s.s. Katar leiki þess- háttar vörn. „Þá verðum við einnig að vera búnir undir það að Slóvenar reyni að taka Ólaf Stefánsson úr umferð. Það er atriði sem við verð- um að geta brugðist við þegar á HM verður komið,“ sagði Guðmundur. „Síðan gefur það augaleið að þeg- ar maður hefur úr stórum hópi leik- manna að velja þá fá margir tæki- færi á að spreyta sig um leið og reynt er að byggja upp leik liðsins. Nú gefst því kærkomið tækifæri fyrir menn til að sýna sig og sanna og láta ljós sitt skína, gera tilkall til þess að vera í þeim hópi sem valinn verður endanlega fyrir heimsmeist- aramótið. En ég legg áherslu á það að ætla að gefa mönnum tækifæri en jafnframt gera það á markvissan hátt,“ segir Guðmundur. „Leikur okkar byggist á ákveðnum grunni eða hugsun sem allir leikmenn verða að falla inn í.“ Lykilmenn meiddir Að sögn Guðmundar þá setja meiðsli ákveðið strik í reikninginn hjá landsliðinu. Patrekur Jóhannes- son er meiddur á kálfa og hefur lítið getað beitt sér á æfingum til þessa. Gústaf Bjarnason glímir við meiðsli í öxl og er ósennilegt af þeim sökum að hann taki þátt í leikjunum í dag og á morgun. Þá er Sigfús Sigurðs- son meiddur á nára, en allir komu leikmennirnir meiddir til landsins frá félagsliðum sínum í Þýskalandi. Aron Kristjánsson hefur í allan vet- ur barist við meiðsli í hásinum og hefur enn ekki fengið sig góðan. Guðmundur sagðist ekki telja meiðsli þeirra svo alvarleg að þau væri sérstakt áhyggjuefni vegna þátttökunnar á HM, en auðvitað kæmu meiðsli lykilmanna alltaf á einhvern hátt niður á undirbúningi liðsins. „Það verður því fróðlegt að sjá hvernig við förum í gegnum þessa leiki við Slóvena vitandi það að lykilmenn geta ekki lagt sig full- komlega fram vegna meiðsla. Meiðslin gera það að verkum að aðr- ir leikmenn fá tækifæri til að sýna hvað í þeim býr,“ sagði Guðmundur sem telur ástand manna vera þokka- lega gott þótt auðvitað sé það ein- staklingsbundið eins og gerist og gengur. Einn sigur, eitt tap Íslendingar og Slóvenar hafa í tví- gang mæst á handknattleiksvellin- um, síðast á Evrópumeistaramótinu í Svíþjóð í fyrra en þá tókust þjóð- irnar á í Skövde. Íslenska landsliðið sigraði örugglega í þeirri viðureign, 31:25. Slóvenar unnu hins vegar fyrsta leik þjóðanna sem fram fór á Evrópumótinu í Króatíu fyrir þrem- ur árum, 27:26. Frá því þjóðirnar áttust við í fyrra hafa orðið þjálfaraskipti hjá Slóven- um. Matjaz Tominec, sem stýrt hafði landsliðinu um nokkurra ára skeið, hætti eftir vonbrigði liðsins á EM í Svíþjóð og við starfi hans tók Niko Markovic. „Með nýjum þjálf- ara hefur metnaður Slóvena vaxið á nýjan leik. Ég reikna því með skemmtilegum og lærdómsríkum viðureignum við mjög sterkt lands- lið. Að þeim loknum vænti ég þess að við verðum margs vísari um það hvar við stöndum nú þegar heims- meistaramótið er á næstu grösum,“ sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari. Morgunblaðið/Árni Sæberg Íþróttamaður ársins 2002, Ólafur Stefánsson, mætti ánægður á æfingu hjá landsliðinu í gærmorgun og bregður sér hér í keppnis- treyju. Einar Örn Jónsson og Sigfús Sigurðsson, sem einnig leika í Þýskalandi, voru ánægðir með íþróttamann ársins. Stöðupróf gegn Slóvenum „SLÓVENAR eru með sterkt lið um þessar mundir og til að und- irstrika það þá unnu þeir meðal annars Rússa á æfingamóti í Frakklandi á milli jóla og nýárs. Þannig að það verður afar spennandi að sjá hvernig við stöndum að vígi gagnvart þeim um þessar mundir,“ sagði Guð- mundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknatt- leik, en í dag mætir íslenska landsliðið Slóvenum í fyrsta vin- áttulandsleik þjóðanna af þrem- ur hér á landi. Leikirnir eru liður í undirbúningi beggja þjóða fyrir heimsmeistaramótið sem hefst í Portúgal 20. janúar. Leikurinn fer fram í Kaplakrika kl. 16 en annað kvöld mætast þjóðirnar í Laugardalshöll kl. 20 og á ný á þriðjudagskvöldið á sama stað. Eradze með íslenskt vegabréf ÚKRAÍNUMAÐURINN Roland Eradze, markvörður Vals í handknattleik, fékk í gær íslenskt vegabréf, en hann fékk ríkisborgararétt fyrir áramót. Guðmundur Þórður Guðmundsson lands- liðsþjálfari getur því notað hann í æfingaleikjum lands- liðsins fyrir HM í Portúgal. Ekki er ólíklegt að hann verði með í leikjunum við Slóvena í dag í Kaplakrika og á morgun og þriðjudag í Laugardalshöllinni. Lands- liðið tekur síðan þátt í fjög- urra liða móti í Danmörku um næstu helgi og leikur þar gegn Pólverjum, Dönum og Egyptum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.