Morgunblaðið - 07.01.2003, Page 3
Morgunblaðið/Sverrir
vena í leik í Laugardalshöllinni.
ki gegn Slóveníu?
Varnarleikurinn gekk betur eftirþví sem á leið fyrri leikinn og þá
fjölgaði hraðaupphlaupunum um leið.
Sóknarleikurinn í
fyrsta leiknum var að
mínu mati góður og
þar kom í ljós að liðið
er mjög vel undir það
búið að leika gegn 3/2/1 vörn, en mest
áhersla hefur verið lögð á það í und-
irbúningnum nú fyrst til að byrja
með. Leikkerfin gengu mjög vel gegn
framliggjandi vörn.
Í leiknum á sunnudagskvöldið
fannst mér sóknarleikur íslenska liðs-
ins hiksta talsvert gegn flatri 6/0 vörn
Slóvena. Það gerist sennilega vegna
þess að menn eru enn sem komið er
ekki eins vel undir það búnir að leika
gegn flatri vörn. Það atriði á hins veg-
ar alveg örugglega eftir að batna þeg-
ar á líður undirbúninginn fyrir HM
og menn fara að vinna í því atriði,“
sagði Júlíus.
Róbert og Sigurður sterkir
Júlíus sagði ennfremur að ljósu
punktarnir í leikmannahópnum væru
Róbert Sighvatsson sem leikið hafi
afar vel og nýtt sín færi alveg fram-
úrskarandi vel, Sigurður Bjarnason
hafi verið afar traustur, ekki bara í
vörn heldur einnig í sókninni þar sem
hann hefur ekki fengið mörg tækifæri
með landsliðinu síðustu ár.
„Vörnin á bara eftir að styrkjast að
mínu mati. Það er alveg ljóst að þegar
Sigfús [Sigurðsson] kemur inn í hana
mun hún batna mikið, um leið fær lið-
ið mun fleiri hraðaupphlaup,“ sagði
Júlíus.
Lítið er um afgerandi rétthentar
skyttur í íslenskum handknattleik í
dag og hörgull á þeim í landsliðinu
þar sem leikstjórnendurnir Dagur
Sigurðsson og Patrekur Jóhannesson
verða að leysa það hlutverk. Júlíus
segir upp koma einkar sérstaka stöðu
í íslenskum handknattleik því í gegn-
um tíðina hafi alltaf verið til sterkar
rétthentar skyttur. „Nú er staðan sú
að hörgull er á rétthentum skyttum
og þegar litið er yfir þann hóp ungra
manna sem eiga eftir að banka á dyr
landsliðsins á næstu árum þá kemur í
ljós að það er mun meira til af örv-
hentum skyttum en rétthentum. Það
gæti því orðið nokkur höfuðverkur
þegar fram líða stundir en eins og
staðan er á þessu augnabliki þá tel ég
að ekki sé um stórvandamál að ræða,“
segir Júlíus sem hrífst ekki af þeirri
hugmynd að fá Julian Róbert Dura-
nona inn í landsliðshópinn fyrir HM.
Of seint að fá Duranona
„Mér finnst einfaldlega oft seint að
kalla Julian til leiks núna og setja
hann í leik landsliðsins. Í öðru lagi þá
er ég ekkert endilega viss um að hann
sé í svo góðri leikæfingu þótt hann
hafi staðið sig vel í tveimur leikjum
með Wetzlar í þýsku deildinni um jól-
in,“ segir Júlíus og reiknar með að
Dagur, Sigurður og Patrekur beri
hitann og þungann af skyttustöðunni
vinstramegin á meðan heimsmeist-
aramótið stendur yfir.
Júlíus telur ennfremur að mark-
varslan verði ekki íslenska landslið-
inu fjötur um fót þegar komið verður
til Portúgals. Hún batni með bættri
vörn. „Það voru tiltölulega einföld at-
riði að bregðast í vörninni sem ég
held að ekki eigi að vera mikið mál að
laga. Um leið þá batnar markvarslan
og ég sé ekki að hún eigi að verða
vandamál þegar á hólminn verður
komið.“
Hægra hornið hefur lítið verið nýtt
í tveimur fyrstu landsleikjunum, nær
því ekkert hefur verið leikið upp á
Einar Örn Jónsson sem virðist ætla
að verða aðalkostur Guðmundur Þ.
Guðmundssonar, landsliðsþjálfara, í
þeirri stöðu líkt og á EM í fyrra. Júl-
íus tekur undir þá skoðun að Ólafur
hafi leikið of mikið inn á miðjuna og
því hafi Einar fengið úr of litlu að
moða. „Ólafur hefur hins vegar sýnt
það að hann á afar auðvelt með að
spila upp hægri hornamanninn og því
á ekkert að vera því til fyrirstöðu að
hann haldi því áfram þótt svo hafi
ekki verið til þessa,“ sagði Júlíus Jón-
asson, þjálfari ÍR.
Ef marka má tvo fyrstu leikina þá
sagðist Júlíus ekki sjá nein sérstök
atriði í leik landsliðsins sem hann
teldi ástæður til að hafa áhyggjur af.
Það sem miður hafi farið væri hægt
að bæta með markvissri vinnu á
næstu vikum. „Hið jákvæða er hins
vegar það hversu vel liðið getur leikið
gegn framliggjandi vörn en það hefur
á stundum reynst erfitt.“
JÚLÍUS JÓNASSON
Engin stór vanda-
mál í augsýn
„MÉR líst nokkuð vel á það sem ég hef séð í leikjunum við Slóvena.
Það er þó greinilegt að eitt og annað vantar ennþá vegna meiðsla
nokkurra leikmann,“ sagði Júlíus Jónasson, þjálfari ÍR og þraut-
reyndur landsliðsmaður í handknattleik, er hann var spurður að því
hvernig honum litist á það sem hann hefði séð í tveimur fyrstu æf-
ingaleikjum íslenska landsliðsins fyrir HM gegn Slóveníu á laug-
ardag og sunnudag.
Eftir
Ívar
Benediktsson
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 B 3
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samvinnu við
Biskupsstofu, býður til opins málþings um
Íþróttir og gildismat
Miðvikudaginn 8. janúar kl. 17:00 á Grand Hótel Reykjavík
Fyrir íþróttafólk, þjálfara, íþróttakennara, foreldra og aðra sem áhuga hafa
Dagskrá
Setning málþings
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ.
Íþróttir – Að vinna sigur á sjálfum
sér eða öðrum?
Halldór Reynisson, prestur
og verkefnisstjóri á Biskupsstofu.
Þjálfarar og gildismat,
Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálfari og kennari.
Áherslur og gildismat í íþróttum
Olav Ballisager, háskólakennari í Danmörku.
Hvað hafa íþróttir gefið mér sem
einstaklingi?
Ólafur Stefánsson,
atvinnumaður í handknattleik.
Pallborðsumræður
undir stjórn Ellerts B. Schram
Áætluð lok eru um kl. 19:30.
Nánari upplýsingar og skráning fer fram á skrifstofu ÍSÍ
sími 514 4000, netfang: andri@isisport.is
Ólympíufjölskyldan – öflugur stuðningur við íþróttastarf
JASON Prior, 23 ára körfuknatt-leiksmaður frá Bandaríkjunum,
er væntanlegur til Valsmanna í dag
og verður að öllu óbreyttu í liði
þeirra gegn Grindavík í úrvalsdeild-
inni í kvöld. Prior leysir af hólmi
Laverne Smith sem lék með Vals-
mönnum fram að jólum en þeir
ákváðu að hann kæmi ekki aftur þeg-
ar í ljós kom að hann vildi ekki æfa
með liðinu í jólafríinu.
„Prior er skotbakvörður sem hef-
ur samkvæmt öllum tölum staðið sig
mjög vel með Clemson- og Longwo-
od-háskólunum, og gerði 28 stig í
leik fyrir hinn síðarnefnda. Hann er
sterkur á pappírunum en það á síðan
eftir að koma í ljós hvernig hann nýt-
ist okkur,“ sagði Ágúst Björgvins-
son, þjálfari Vals, við Morgunblaðið í
gær.
Valsmenn eru einnig í sambandi
við Evaldas Priudokas, 31 árs fram-
herja frá Litháen, sem gæti komið til
þeirra eftir nokkrar vikur. „Hann er
kominn með atvinnuleyfi en við eig-
um eftir að fá undirskrift frá félaginu
hans í Litháen. Ef það vill háar
greiðslur fyrir hann verður ekkert af
þessu,“ sagði Ágúst.
Pétur Stefánsson, formaður
körfuknattleiksdeildar Vals, sagði að
félagið gerði allt sem hægt væri til að
forðast fall úr úrvalsdeildinni en þar
er liðið sem stendur í neðsta sæti
með aðeins tvö stig. „Það er dýrt að
falla í 1. deildina og reyna að reka
þar alvöru körfuboltalið og það ætl-
um við að koma í veg fyrir,“ sagði
Pétur.
Jason
Prior
með Val
SPÆNSKA deildarkeppnin í
knattspyrnu er sú sterkasta í heim-
inum ef marka má niðurstöður sam-
taka alþjóða talnafræðinga og sagn-
fræðinga á knattspyrnusviðinu.
Spænska 1. deildin er þar í efsta sæti
eins og tvö undanfarin ár, enska úr-
valsdeildin kemur í öðru sæti, ítalska
A-deildin í þriðja sæti, þýska Bund-
esligan kemur í fjórða sæti og í
fimmta sæti yfir sterkustu deildir í
heimi er argentínska 1. deildin.
FRANSKI miðvallarleikmaðurinn
Oliver Dacourt gengur að öllum lík-
indum til liðs við ítalska liðið Roma í
vikunni. Leeds keypti Dacourt frá
Lens fyrir þremur árum á 7,2 millj-
ónir punda en líklegt er að Roma
greiði 6 milljónir punda fyrir Frakk-
ann, sem er 27 ára gamall.
ALEX Ferguson, stjóri Manchest-
er United, reiknar með að geta teflt
fram Juan Sebastian Veron og Ole
Gunnar Solskjær í fyrri undanúr-
slitaleiknum á móti Blackburn í
ensku deildabikarkeppninni á Old
Trafford í kvöld.
VERON og Solskjær hafa átt við
meiðsl að stríða en eru að braggast.
Roy Keane verður líklega ekki með
en hann tognaði lítils háttar í leikn-
um við Portsmouth á laugardaginn.
ÞÓRÐUR Guðjónsson og félagar
hans í þýska úrvalsdeildarliðinu
Bochum fá góðan liðsstyrk á næst-
unni en nígeríski landsliðsmaðurinn
Sunday Oliseh er á leið til Bochum
frá meisturum Dortmund.
SEX Afríkuþjóðir hafa lýst yfir
áhuga á að fá að halda heimsmeist-
arakeppnina í knattspyrnu árið 2010.
Þjóðirnar sem um ræðir eru:
Egyptaland, Líbýa, Marokkó, Níg-
ería, S-Afríka og Túnis. Á miðju
næsta ári mun Alþjóða knattspyrnu-
sambandið ákveða hvar keppnis-
haldið verður og er fastlega búist við
því að Afríka verði fyrir valinu en
HM hefur aldrei farið fram í Afríku.
FÓLK
r
m
u
-
,
m
u
-
f
-
-
l
m
ð
r
ú
m
i
-
i
-
.
n
-
um hraða, djúpum „fintum“ og alls kon-
ar skotum og það væri fróðlegt að sjá
hvað hann gæti gert gegn sterkum lið-
um.“
Áhætta að kalla á Duranona
Hann er ekki viss um hvort rétt sé að
kalla Róbert Julian Duranona inn í hóp-
inn. „Ég hef ekki séð Duranona spila í
tvö ár og hann hefur aðeins spilað tvo
leiki í vetur, þar sem hann stóð sig
reyndar mjög vel. En fyrst hann er ekki
kominn, verður stöðugt meiri áhætta að
kalla í hann eftir því sem nær dregur
mótinu.“
Bergsveinn telur að liðið sé vel mann-
að af markvörðum. „Guðmundur var
mjög góður í fyrri hálfleik í Höllinni, en
annars er ekki alveg að marka frammi-
stöðu markvarðanna í þessum leikjum
vegna þess hve varnarleikurinn var mis-
jafn. Miðað við hvernig Roland ver með
Val er hann liðinu mikill styrkur. Það er
þó eftir að reyna betur á hvað hann get-
ur í alþjóðlegri keppni, þar þurfa mark-
verðir að lesa leikinn mjög vel og vera
útsjónarsamir. Roland hefur þá hæfi-
leika, hann er mjög klókur, og ég tel að
við séum í dag með góða blöndu af mark-
vörðum. Við megum heldur ekki gleyma
Birki Ívari sem getur hæglega leyst
hina tvo af hólmi,“ sagði Bergsveinn.
NSSON
kurinn
óvart“