Morgunblaðið - 15.01.2003, Síða 4
HANS Knauss frá Austurríki sigr-
aði í gær í risasvigi á heimsbikarmóti
sem fram fór í Adelboden í Sviss.
Michael Von Grunigen varð annar
og Norðmaðurinn Kjetil-Andre
Aamodt varð þriðji.
NORSKI landsliðsmaðurinn Erik
Bakke hjá Leeds komst í kast í lögin
í fyrrakvöld en hann var þá stöðv-
aður af lögreglu á bifreið sinni, grun-
aður um ölvun við akstur. Bakke var
færður á lögreglustöðina og í fram-
haldinu var hann ákærður fyrir að
aka undir áhrifum áfengis.
OLIVER Kahn, markvörður
Bayern München og þýska landsliðs-
ins í knattspyrnu, hefur þriðja árið í
röð verið útnefndur besti markvörð-
ur heims fyrir árið 2002 af alþjóða-
samtökum tölfræðinga og spark-
spekinga. Kahn hlaut 316 atkvæði í
fyrsta sæti, Iker Casillas, markvörð-
ur Real Madrid og spænska lands-
liðsins, varð annar í kjörinu með 101
atkvæði og Rustu Recber, mark-
vörður Tyrkja, varð þriðji.
LOGI Gunnarsson skoraði 12 stig
fyrir Ulm í þýsku 1. deildinni í körfu-
knattleik í 99:75 sigri liðsins á TV
Langen. Ulm er í 2. sæti s-riðils 1.
deildarinnar sem er næst efsta deild
í Þýskalandi.
MICHAEL Jordan segir við frétta-
stofu CNN í Bandaríkjunum að hann
hafi hug á því að spila golf í góðu
veðri þegar hin árlega Stjörnuhelgi
NBA-deildarinnar í körfuknattleik
fer fram 7.– 9. febrúar. Jordan segir
að það sé kominn tími á að hann stígi
til hliðar hvað Stjörnuleikinn varðar
en hann varð í 3. sæti í kjöri um
hvaða bakverðir byrja inni á í liði
austurstrandarinnar. „Ég er glaður
að fá stuðning frá aðdáendum NBA-
deildarinnar og hefði ekki skorast
undan ef þeir teldu mig enn hafa
styrk til þess að byrja inni á.“
CARLO Cudini, markvörður
Chelsea, þarf ekki taka út refsingu
fyrir rauða spjaldið sem hann fékk
að líta á í leiknum við Middlesbrough
á dögunum. Chelsea fór fram á við
aganefnd enska knattspyrnusam-
bandsins að fá spjaldið niðurfellt og
varð nefndin við beiðni Chelsea enda
brottreksturinn rangur dómur.
DANSKI kylfingurinn Thomas
Bjørn segir að S-Afríkumaðurinn
Ernie Els sé sá eini sem geti rutt
Bandaríkjamanninum Tiger Woods
úr efsta sæti heimslistans í golfi.
„Ég er hræddur um að Tiger sé að
stinga okkur af, munurinn á honum
og okkur er of mikill. Hann mun ein-
oka efstu sætin á golfmótum í fram-
tíðinni. Það verður gríðarlega erfitt
að ná sömu getu og hann býr yfir í
dag. Það er aðeins Ernie Els sem
getur skákað honum,“ segir Daninn
en faðir Tiger Woods sagði við
bandaríska fjölmiðla á dögunum að
sonur hans væri enn langt frá því
takmarki sem hann hefði sett sér
sem kylfingur og ætti enn eftir að
bæta sig töluvert á mörgum sviðum
íþróttarinnar.
FORRÁÐAMENN evrópsku mót-
araðarinnar í golfi hafa tilkynnt að
Ernie Els frá S-Afríku hafi slegið
besta golfhögg sl. árs og á heimsíðu
þeirra, www.europeantour.com, má
finna nánari útlistun á þessu höggi.
Els notaði 59 gráðu fleygjárn í sand-
glompu fyrir framan 13. flötina á
Murfield vellinum á opna breska
meistaramótinu sl. sumar. Els sigr-
aði á opna breska meistaramótinu
eftir fimm holu umspil fjögurra efstu
manna að loknum 72 holum. „Ég
sagði við kylfusveininn minn að ég
ætlaði að slá af eins miklu afli og ég
gæti með fleygjárninu og ég var
undrandi á því að hafa komið bolt-
anum upp úr glompunni og hvað þá
að hann endaði alveg uppi við hol-
una,“ segir Els þegar hann lýsir
besta golfhöggi sl. árs í Evrópu.
FÓLK
LOKEREN greiðir Stabæk 300.000
evrur fyrir íslenska landsliðsmann-
inn Marel Baldvinsson, sem jafn-
gildir 25 milljónum íslenskra
króna, en gengið var frá sölunni í
gær. Þetta er öllu lægri upphæð en
Stabæk keypti Marel frá Breiða-
bliki í ágústmánuði árið 2000 en
norska liðið greiddi 33 milljónir
fyrir leikmanninn.
Breiðablik hefur staðið í stappi
við forráðamenn Stabæk á undan-
förnum vikum og mánuðum en
Blikarnir hafa ekki fengið loka-
greiðslu frá Stabæk upp á um 5,5
milljónir króna sem þeir áttu að fá í
ágúst síðastliðnum og hafa þeir
Breiðablik hefleitað aðstoðar KSÍ.
Komið til lögfræðings
„Við áttum að fá lokagreiðsluna
um leið og Marel næði tilteknum
fjölda leikja fyrir Stabæk og þeim
fjölda náði hann síðla í ágúst.
Greiðslan hefur enn ekki borist
þrátt fyrir ítrekaðar óskir okkar og
við sáum ekki aðra lausn en að
senda málið til lögfræðings enda
viljum við fylgja okkar rétti fram.
Síðustu svörin sem við fengum frá
Norðmönnunum voru þau að fjár-
hagsleg endurskipulagning væri í
gangi hjá félaginu,“ sagði Magnús
Skúlason, formaður knattspyrnu-
deildar Breiðabliks, við Morgun-
blaðið í gær.
Magnús sagði enn fremur að
Breiðablik fengi 10% hlut af sölu-
verði Stabæk til Lokeren, 2,5 millj-
ónir króna, samkvæmt reglum um
uppeldisbætur fyrir félagaskipti
milli landa. „Við missum hinsvegar
af frekar hlut af sölunni á Marel
þar sem Stabæk selur hann á lægri
upphæð en hann var keyptur á af
okkur. Í samningi okkar við Stabæk
var ákvæði um að við fengjum vissa
prósentu af mismuninum á verðinu
sem við fengum, og því verði sem
Stabæk seldi hann á, ef það væri
hærra,“ sagði Magnús.
Geir Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri KSÍ, sagði við Morgunblaðið
að Breiðablik hefði rætt við KSÍ
varðandi mál félagsins við Stabæk.
„Við höfum ekki beitt okkur af
neinni hörku í þessu máli því það
snýst fyrst og fremst á milli félag-
anna. Við getum sett okkur í sam-
band við norska knattspyrnusam-
bandið en ég vona að málið leysist
áður en til þess kemur. Ef hins veg-
ar gerist ekkert í málinu þá verður
bara að senda það til FIFA.“
Marel seldur á 25 milljónir
Stórmótin eru alls fjögur, opnafranska, opna bandaríska og
Wimbledon-mótið en Serena sigraði
á þessum stórmótum á sl. keppnis-
tímabili og vill nú ná þeim fjórða í
sitt safn.
Emilie Loit frá Frakklandi veitti
henni verðuga mótspyrnu og vann
óvænt fyrsta settið 3:6, en Serena
hafði betur í næstu tveimur settum,
7:6 og 7:5. Loit er í 56. sæti á styrk-
leikalista mótsins og þótti hafa fund-
ið veikan blett á kraftmiklum leik
Serenu, en Loit lét Serenu hlaupa út
um allan völl með hnitmiðuðum
sendingum.
Allra augu beinast að hinum 21 árs
gamla Hewitt og er þess krafist að
hann verði fyrsti heimamaðurinn frá
því árið 1976 sem sigrar á mótinu.
Hewitt átti í miklu basli með Svíann
Magnus Larsson í 1. umferð og
þurfti fimm sett til þess að leggja
Larsson að velli, 6:3, 3:6, 6:1, 6:7 og
6:2.
Gríðarlegur hiti gerir
keppendum erfitt fyrir
Talsmenn mótsins í Ástralíu hafa
lýst yfir áhuga sínum á því að breyta
tímasetningu keppninnar í framtíð-
inni en gríðarlegur sumarhiti er í
Ástralíu á þessum árstíma sem gerir
keppendum erfitt um vik. Auk þess
sem keppnistímabilið er nýhafið hjá
flestum keppendum og telja Ástralar
að gæði keppninnar yrðu meiri ef
mótið færi fram í mars. Viðræður um
breytinguna hafa farið fram að und-
anförnu en nú er ljóst að ekki verður
hægt að breyta einu né neinu fyrr en
árið 2007, þar sem endurskipuleggja
þarf allt skipulag sem tengist móta-
röðum atvinnumanna og kvenna.
Opna ástralska tennismótið
Veðjað á
Hewitt og
Serenu
Reuters
Ástralinn Lleyton Hewitt, sem er efstur á heimslistanum yfir
bestu tennisleikarana, fagnar sigrinum á Svíanum Magnus
Larsson í einliðaleik á opna ástralska meistaramótinu í gær.
SERENA Williams frá Bandaríkjunum og Ástralinn Lleyton Hewitt
eru talin sigurstranglegust á opna ástralska meistaramótinu í tenn-
is af veðbönkum, en þau eru efst á styrkleikalista mótsins í kvenna-
og karlaflokki. Þau áttu hins vegar í miklum erfiðleikum gegn and-
stæðingum sínum í 1. umferð í einliðaleiknum í Melbourne í gær.
HERMANN renndi sér í fyrsta sinn
niður skíðabrekku á heimsbikarmóti
í gær í Adelboden í Sviss eftir 18
mánaða fjarveru vegna fótbrots en
Austurríkismaðurinn náði sér ekki á
strik í risasviginu og komst ekki í
aðra umferð keppninnar. Maier er
aðeins skugginn af sjálfum sér frá
því sem áður var en hann slasaðist
alvarlega í umferðaróhappi og brotn-
aði afar illa á fæti fyrir rétt rúmu 1½
ári. Maier bar sig vel þrátt fyrir að
vera 3 sekúndum á eftir fyrsta manni
að lokinni fyrri umferðinni og fékk
því ekki að keppa í seinni umferð-
inni.
Hann sagði það sigur að fá að
keppa á ný. Brautin í Adelboden var
afar hörð og erfið og margir kepp-
endur féllu úr keppni í fyrri umferð-
inni. „Það var erfiðast að byrja en ég
er ekki ánægður með hvernig ég
skíðaði niður brekkuna. Mistökin
voru of mörg að þessu sinni. Ég er
ekki í keppnisæfingu en ég verð að
keppa meira ef ég á að komast á
þann stall sem ég ætla mér,“ sagði
hinn þrítugi Maier en endurkoma
hans skyggði gjörsamlega á aðra
keppendur í Sviss að þessu sinni.
Maier langt frá sínu besta
Chelsea
stendur
með Eiði
KEN Bates, stjórnarformað-
ur Chelsea, segir í viðtölum
við enska fjölmiðla í gær að
Chelsea muni styðja við bakið
á Eiði Smára Guðjohnsen.
„Eiður er ákaflega hæfileika-
ríkur knattspyrnumaður en
stundum geta ungum mönn-
um orðið á mistök. Við kom-
um til með að styðja vel við
bakið á Eiði og viljum gera
allt til þess að hjálpa honum.“