Morgunblaðið - 01.03.2004, Side 4
FRÉTTIR
4 MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Skógarhlíð 18, sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Mars og apríl
Fimmtudaga og mánudaga
3, 4 eða 7 nætur
Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslend-
inga sem fara nú þangað í þúsundatali á
hverju ári með Heimsferðum. Í mars byrjar
að vora enda er þetta vinsælasti tími ferða-
manna til að heimsækja borgina. Farar-
stjórar Heimsferða gjörþekkja borgina og
kynna þér sögu hennar og heillandi menn-
ingu. Góð hótel í hjarta Prag, frábærir veit-
inga- og skemmtistaðir.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 36.550
Flugsæti til Prag, 11. mars
Verð kr. 39.950
Flug og hótel í 4 nætur, helgarferð 11.
mars M.v. 2 í herbergi á ILF Hotel.
Skattar innifaldir.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Helgarferð til
Prag
11. mars
frá kr. 36.550
LÍKLEGT er að heimsmet hafi ver-
ið slegið á skákhátíð Hróksins á
laugardag þegar Guðmundur
Daðason, fyrrverandi bóndi að Ósi
á Skógarströnd á Snæfellsnesi, og
Alfreð B. Valencia öttu kappi, en
nærri öld skilur þá að. Guðmundur
er 103 ára en Alfreð er 98 árum
yngri, 5 ára gamall.
„Við höfum gert tilkall til þess að
skákin verði skráð sem heimsmet
hjá Guinness sem mesti aldurs-
munur í nokkurri keppnisgrein á
opinberum og skipulögðum við-
burði,“ segir Hrafn Jökulsson, for-
seti Hróksins, en félagið hefur sótt
um það formlega að fá metið skráð
í næstu útgáfu Heimsmetabókar
Guinness.
Guðmundur hefur mikið yndi af
skákinni og teflir flesta daga.
„Hann getur örugglega þakkað
skákinni að einhverju leyti hversu
ótrúlega frjór hugur hans er,“ segir
Hrafn. Hann segir Alfreð hafa lært
að tefla rúmlega fjögurra ára.
„Hann hefur verið í ótrúlega örri
framför, er alveg hugfanginn af
skákinni og hefur sýnt merki um
mikla hæfileika.“
Ætla að hittast mánaðarlega
og reyna með sér
Að sögn Hrafns var skák Guð-
mundar og Alfreðs fjörlega tefld.
„Það urðu harðar sviptingar, báðir
efndu til sóknar en reynsla Guð-
mundar réði úrslitum og hann sigr-
aði í ákaflega snoturri sókn eftir að
hafa, þegar mátið blasti við, gefið
unga manninum kost á því að
tryggja sér jafntefli. Alfreð kaus
heldur að skylmast áfram þótt hann
byði lægri hlut,“ segir Hrafn.
Vinátta tókst með þeim Guð-
mundi og Alfreð í kjölfar hins
snarpa einvígis og hafa þeir ákveð-
ið að hittast mánaðarlega og tefla.
Aldursmunur keppenda var 98 ár
Morgunblaðið/Ómar
Guðmundur Daðason og Alfreð B. Valencia urðu hinir mestu mátar eftir sögulegt skákeinvígi um helgina. Reynsla Guðmundar skilaði honum sigri en
ekki er óhugsandi að Alfreð nái að jafna metin því þeir félagar ætla að hittast mánaðarlega og tefla. Hér má sjá Alfreð leika drottningunni eldsnöggt.
Líklegt að heimsmet hafi verið slegið á skákhátíð Hróksins
ÝSUDAGAR, kynningarátak sem
Grandi hf. stóð fyrir um helgina,
féllu í kramið hjá íbúum höfuð-
borgarinnar og var uppákoman vel
sótt. Hátt í tíu þúsund manns
sóttu hátíðina, sem haldin var á at-
hafnasvæði Granda við Norður-
garð. Þar var boðin til sölu laus-
fryst ýsa í tíu kílóa kössum á
einungis 200 krónur kílóið. Þetta
var kjörið tækifæri fyrir gesti og
gangandi til að lækka matarkostn-
að heimilisins með ódýrum og holl-
um gæðafiski. Líf og fjör var á
Grandanum þar sem boðið var upp
á skipstjórakaffi, harmonikuspil og
kynningu á ýmsum góðum ýsurétt-
um auk þess sem smáfólkið fékk
blöðrur og svaladrykki.
Að sögn Svavars Svavarssonar,
framleiðslustjóra Granda, var tak-
mark Ýsudaganna að stuðla að
aukinni fiskneyslu með því að
glæða áhuga fólks á ýsunni, en
þessa dagana er mikið framboð af
þessari bragðgóðu og þjóðlegu
fisktegund. „Við áttum ekki von á
svona góðum viðtökum, við rennd-
um dálítið blint í sjóinn með þetta.
Síðan seldum við sexþúsund og
fimm hundruð kassa, um sextíu og
fimm tonn,“ segir Svavar, sem
segir viðtökurnar hafa komið
þægilega á óvart.
Eins og vel smurð flæðilína
„Við ætluðum upprunalega að
fara að selja ýsu á Netinu, en sú
hugmynd þróaðist yfir í þetta. Við
erum með svo rosalega góða að-
stöðu hjá okkur fyrir svona uppá-
komur. Við erum með stórt bíla-
stæði sem hefur staðið af sér
umferðarþungann og svo leigðum
við bara stóreflis tjald og komum
upp þessari sölu. Við vorum með
tíu manns í afgreiðslu og þetta var
eins og stórhátíðarinnkaup. Við
höfðum skipulagt þetta mjög vel
fyrirfram með trillur og fleira sem
fólk gat rúllað kössunum með út
að bílunum og þetta gekk eins og á
vel smurðri flæðilínu.“
Svavar segir ljóst á þessum und-
irtektum að ýsan er ekki dauð úr
öllum æðum. „Það er ljóst að Ís-
lendingar kunna vel að meta ýs-
una, en verðið hefur verið að
flækjast fyrir fólki. Það er vissu-
lega hægt að koma til móts við
neytendur í fiskverði hvort sem
um er að ræða ýsu, karfa eða ufsa.
Bæði karfi og ufsi eru líka mjög
góður matfiskur. Fiskneysla hefur
dregist saman um 30% frá 1990.
Nú þarf að snúa blaðinu við og
fara í gegnum allt kostnaðarferlið
til að fiskurinn haldist hér sem
mikilvægur réttur á borðum lands-
manna.“
65 tonn af ýsu seld-
ust á tveimur dögum
Morgunblaðið/Þorkell
Það var handagagangur í öskjunni þegar ýsan rann út.
ÁREKSTUR varð í Ólafsvík í
gærmorgun og var kona flutt
með þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar á Landspítala – háskóla-
sjúkrahús í Fossvogi eftir slysið.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu leikur grunur á að um ölv-
unarakstur hafi verið að ræða.
Þyrlan lagði af stað kl. 7.45 og
sótti konuna á flugvöllinn á Rifi.
Lenti þyrlan í Reykjavík kl.
9.10. Samkvæmt upplýsingum
læknis virðist konan ekki alvar-
lega slösuð en meiðsl hennar eru
þó enn til rannsóknar.
Flutt með
þyrlu á sjúkra-
hús eftir bílslys
ÖKUMAÐUR bifreiðar sem stakk af
eftir árekstur við aðra bifreið á mót-
um Sæbrautar og Dugguvogs á laug-
ardagsmorguninn fannst síðdegis
sama dag og var hann fluttur á lög-
reglustöð til skýrslutöku.
Bíllinn þrengdi sér milli tveggja
bifreiða á Sæbrautinni og snerti aðra
þeirra með þeim afleiðingum að hún
valt þrjár veltur. Ökumaður flýði af
vettvangi. Þrjár stúlkur voru í bíln-
um sem valt og voru þær allar fluttar
á slysadeild en reyndust ekki alvar-
lega meiddar. Er talið að ökumenn-
irnir hafi verið að keppa hvor við
annan í hraðakstri.
Ökumaður gómaður
ALÞJÓÐLEGI meistarinn
Stefán Kristjánsson vann
nokkuð óvæntan en öruggan
sigur á minningarmóti um Jón
Þorsteinsson sem fram fór um
helgina í MH.
Stefán vann mótið með fjór-
tán og hálfum vinningi af tutt-
ugu mögulegum, einu og hálfu
stigi á undan næstu mönnum,
en í öðru til fimmta sæti voru
þeir Hannes Hlífar Stefánsson,
Arnar Gunnarsson, Jan Votava
og Helgi Ólafsson með þrettán
vinninga. Á fætur þeim fylgdu
þeir Þröstur Þórhallsson og
Sigurbjörn Björnsson með tólf
og hálfan vinning, en í áttunda
til níunda sæti voru Björn Þor-
finnsson og Helgi Áss Grétars-
son með tólf vinninga.
Afar góð þátttaka var í þessu
skemmtilega og fjörlega móti,
en sjötíu keppendur komu til
leiks í ýmsum flokkum og þar
af sjö stórmeistarar.
Morgunblaðið/Ómar
Stefán sigr-
ar á minn-
ingarmóti