Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.2002, Qupperneq 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 15. JÚNÍ 2002
R
EYKHOLT og öll sú menning-
arstarfsemi sem þar er að
finna er innan frekari seilingar
en marga höfuðborgarbúa og
aðra landsmenn af suðvestur-
horni landsins sennilega grun-
ar. Í sumar er þar boðið upp á
margvíslega starfsemi, sem
margir telja eflaust áhugavert að kynna sér.
Má þar meðal annars nefna fornleifauppgröft-
inn, sem þar hefur staðið undanfarin fjögur
ár, hið nýja orgel í Reykholtskirkju, sem leik-
ið verður á í sérstakri tónleikaröð á hverjum
laugardegi fram í ágúst, sýningin Snorri
Sturluson og samtíð hans í safnaðarsal kirkj-
unnar, sem inniheldur nú í fyrsta sinn muni
frá Þjóðminjasafninu, að ógleymdri Reyk-
holtshátíð, tónlistarhátíð sem haldin er í júlí
ár hvert og hefur fyrir löngu skipað sér í flokk
með metnaðarfyllstu tónlistarhátíðum lands-
ins. Auk þess eru þar nýafstaðnir svonefndir
Sagnadagar, þar sem hin aldna sagnalist var
ígrunduð og iðkuð af fræðimönnum jafnt sem
leikmönnum. Það má því með sanni segja að
sumarið sé viðburðaríkt í Reykholti.
Margvíslegt fræðslustarf
Þegar blaðamann og ljósmyndara ber að
garði í blíðunni í Reykholti er þar staddur
bekkur úr Lækjarskóla í Hafnarfirði, sem
skoðar svæðið. „Hingað koma margir bekkir
árið um kring úr skólum víða að af landinu og
fá ýmsar upplýsingar um Snorra og verk hans
og sögu Reykholts,“ segir Dagný Emilsdóttir,
framkvæmdastjóri Heimskringlu, sem annast
gestamóttöku og tónleikahald í kirkjunni. „Í
dag eigum við von á þremur bekkjum. Þeir
skoða kirkjuna, sýninguna og gamla bæjar-
stæðið þar sem fornleifafræðingar eru við
störf í júní í fylgd starfsmanna okkar.“ Aðrir
ferðamenn sem koma í Reykholt eiga einnig
kost á sambærilegri þjónustu og hefur svo
verið frá árinu 1996. Gestirnir sem heimsækja
Reykholt eru jafnt íslenskir sem erlendir og
eiga Reykhyltingar von á mörgum heimsókn-
um í sumar. „Það er svo margt áhugavert að
gerast hér,“ heldur Dagný áfram. „Nefna má
hið virka tónleikahald í kirkjunni, en þar er
meðal annars fyrirhugað að halda tónleika á
laugardagseftirmiðdögum í sumar, á nýja
orgelið sem biskup Íslands vígði á páskum.
Hljómurinn í þessu hljóðfæri er einstaklega
fallegur og nýtur sín mjög vel í kirkjunni.
Leikið verður á orgelið á Reykholtshátíðinni,
sem haldin verður hér í júlí.“ Hátíðin er ætíð
haldin síðustu helgina í júlí. Steinunn Birna
Ragnarsdóttir píanóleikari er stjórnandi tón-
listarhátíðarinnar en nánar er fjallað um há-
tíðina á blaðsíðunni hér við hliðina. Auk tón-
listarhátíðarinnar er sýningin Snorri
Sturluson og samtíð hans fastur liður í menn-
ingarstarfsemi Reykholts. „ Sýningin var sett
upp á vegum Snorrastofu á árinu 2000 og þyk-
ir mörgum áhugaverð,“ útskýrir Dagný. „Sú
nýjung verður á í ár, að í fyrsta sinn eru hafðir
til sýnis munir sem fengnir eru að láni frá
Þjóðminjasafninu og bætt verður við sýn-
inguna nýju fræðsluefni um fornleifarann-
sóknina sem stendur yfir hér úti.“ Meðal
munanna á sýningunni eru hlutar úr eld-
smiðju sem fannst í Reykholti í vetur. Smiðj-
an verður til sýnis í Finnsstofu, sem er inn af
safnaðarsalnum. „Eldsmiðjan fannst þegar
gömlu kirkjunni var lyft af grunni. Þetta er
stærsta eldsmiðja frá miðöldum sem fundist
hefur hér á landi til þessa, er mér sagt, og gef-
ur ef til vill til kynna að hér hafi verið smíðuð
vopn,“ segir Dagný. Hún leggur áherslu á að
tilgangurinn með sýningunni sé fyrst og
fremst að veita ferðamönnum í Reykholti
upplýsingar. „Hér er ekki safn, en hér er sýn-
ing sem er haldin á vegum Snorrastofu og
Þjóðminjasafns, sem lánar gripina á hana.
Ferðaþjónustufyrirtækið Heimskringla ann-
ast sýninguna.“
Nýafstaðnir Sagnadagar
Ýmislegt fleira hefur verið á döfinni í Reyk-
holti undanfarið. Meðal annars má nefna
BLÓMSTRANDI ÞJÓÐ-
MENNING Í REYKHOLTI
Morgunblaðið/Golli
Sumarið í Reykholti verður viðburðaríkt í ár.
Morgunblaðið/Golli
Dr. Guðrún Sveinbjarnardóttir fornleifafræðingur í bæjarstæðinu þar sem rannsóknin fer fram.
Morgunblaðið/Golli
Hið nýja orgel í Reykholtskirkju.
Morgunblaðið/Golli
Dagný Emilsdóttir, fr.stj. Heimskringlu, og Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu.