Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.2002, Síða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 15. JÚNÍ 2002 7
Sem friðarbogi’ í skýjum skín
hér skartar Íslands fáni.
Þitt geislar útlit – ásýnd þín,
eins og sól og máni.
Fáninn blár sem himinn – haf
með hvítt og rautt kross-
merkið.
En jöklum með og eldum af
vort eyland skóp Guðsverkið.
Þjóðartákn er það til sanns
– að því vér skulum hyggja –
á kristnum gildum Guðs og
manns
er gott að mega byggja.
Ein er fánans ferð ei löng
en fer þó hugsvið þegna
í hálfa eða heila stöng
er hafinn upp þess vegna.
Íslands fáni Alþingis
þar æðst með ráð er vandi,
forsjón þings til fulltingis
fyrir þjóð og landi
Í musterum og menntasal,
á miðum – landsbyggð yfir,
yst við strönd og innst í dal
eins þar fáninn lifir.
Hér á þökk Jón Sigurðsson,
sómi landsins er hann.
Frelsið kom, hans
framtak – von
– er fánans mótar viljann.
Ó, vernda Drottinn borg og
byggð,
bæði loft og sæinn.
Þín eilíf varir elska’ og tryggð,
þú Alfaðir gafst daginn.
PÉTUR
SIGURGEIRSSON
Höfundur er biskup.
TIL
ÞJÓÐ-
FÁNANS
TÓNLISTARHÁTÍÐIN í Reykholti verður
haldin í sjötta sinn dagana 26.–28. júlí
næstkomandi í Reykholtskirkju. Finnland
verður í forgrunni þetta árið og sérstakur
gestur hátíðarinnar verður Petteri Salo-
maa bariton frá Finnlandi. Hann er eftir-
sóttur söngvari og syngur óperuhlutverk
og ljóðatónleika jöfnum höndum. Hann
hefur komið fram víða um heim og hljóð-
ritað geislaplötur fyrir Decca og EMI.
Meðal hlutverka sem hann hefur sungið
eru Papageno, Don Giovanni, Fígaró o.fl.
Hann hefur komið fram í Covent Garden í
London og vinnur um þessar mundir að
uppfærslu við óperuna í Helsinki sem Dar-
io Fo leikstýrir. Annar erlendur gestur há-
tíðarinnar verður píanóleikarinn Love
Derwinger frá Svíþjóð sem er íslenskum
tónleikagestum að góðu kunnur og hefur
komið fram sem einleikari ásamt Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Hann hefur haldið tón-
leika um alla Evrópu, í Suður-Ameríku,
Bandaríkjunum og í Rússlandi og m.a.
komið fram sem einleikari með öllum
helstu hljómsveitum á Norðurlöndum og
Fílharmóníuhljómsveitinni í London.
Aðrir flytjendur hátíðarinnar verða
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari, Bryndís
Halla Gylfadóttir sellóleikari, Hávarður
Tryggvason bassaleikari, Sif Tulinius
fiðluleikari, Steinunn Birna Ragnarsdóttir
píanóleikari og stjórnandi hátíðarinnar og
Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleikari. Á
fyrstu tónleikum hátíðarinnar föstudaginn
26. júlí verður eingöngu flutt tónlist eftir
W.A. Mozart, þ.á m. píanókvartett í Es-dúr
KV 493. Laugardaginn 27. júlí verða
tvennir tónleikar, þeir fyrri kl. 15.00 þar
sem Petteri Salomaa barítón og Steinunn
Birna Ragnarsdóttir flytja ljóðadagskrá
með verkum eftir Schubert, Schumann,
Sibelius o.fl. og þeir síðari um kvöldið kl.
21.00. Þá verða m.a. flutt einleiks- og tví-
leiksverk eftir ýmsa höfunda og mun Love
Derwinger m.a. flytja prelúdíur eftir
Chopin og Debussy. Lokatónleikar hátíðar-
innar verða svo sunnudaginn 28. júlí og
verða þar flutt m.a. Elegíutríóið eftir
Rachmaninov og Silungakvintettinn eftir
Schubert.
Erlendir gestir á tónlistarhátíð
Love Derwinger
Sagnadaga, þing um sagnalistina sem haldið
var í byrjun júní. Bergur Þorgeirsson, for-
stöðumaður Snorrastofu, ræðir við blaða-
mann um þingið. „Hér voru í fyrsta lagi tvö
sagnakvöld, þar sem menn og konur, Íslend-
ingar sem erlendir gestir, komu og sögðu sög-
ur. Síðan var tvískipt námskeið sem fólst í því
að kenna fólki að segja sögur. Auk þess vorum
við með málþing um sagnahefð, bæði um eðli
sagnahefðar en einnig um notagildi hennar
fyrir skóla, ferðaþjónustu og svo framvegis,“
segir Bergur. Sagnadagar í Reykholti hafa að
hans sögn ekki síður rannsóknarhlutverk en
skemmtanagildi. Til dæmis voru sagnakvöldin
tekin upp á segulbönd, sem verða varðveitt í
Árnastofnun. Bergur segir að meginhlutverk
Sagnadaga felist einkum í því að viðhalda
hefðinni, rannsaka hana og virkja ungt fólk.
„Þess vegna var þátttaka kennara í þessu
þingi mikilvæg. Og á fyrra sagnakvöldinu var
til dæmis þrettán ára stelpa þátttakandi,
þannig að það að segja sögur er ekkert sér-
viskuáhugamál eldra fólks,“ segir hann.
Húsfyllir var bæði sagnakvöldin og þátt-
taka á Sagnadögum almennt góð. Bergur seg-
ir fólk hafa komið hvaðanæva að og margir
gist á hótelinu í Reykholti sem nú sé orðið
heilsárshótel. Öll dagskráratriði á Sagnadög-
um voru hins vegar haldin í gamla skólahús-
inu, sem nýverið hefur verið gert upp, en
kennslu lauk þar árið 1997. „Þar eru bæði ráð-
stefnusalir og fundarsalir og aðstaða öll mjög
góð til þings sem þessa,“ segir Bergur. „Fólk
og fyrirtæki eru smám saman að uppgötva
Reykholt og alla þá möguleika sem það hefur
upp á að bjóða.“ Að lokum vindur blaðamaður
sér út og að fornleifauppgreftrinum, sem líkt
og síðustu ár fer fram á svæðinu milli skóla-
hússins og gömlu kirkjunnar. Dr. Guðrún
Sveinbjarnardóttir fornleifafræðingur, sem
hefur annast rannsóknina í Reykholti hvert
sumar síðan hún hófst árið 1998, útskýrir
gang mála í ár. „Við hófum framkvæmdir ný-
lega og erum því enn sem komið er bara kom-
in niður á það sem við uppgötvuðum í fyrra,“
segir hún, en eftir hvern uppgröft er nauðsyn-
legt að tyrfa yfir fornleifarnar, til þess að
verja þær ágangi vetrarmánaðanna. Í fyrra
kom í ljós leiðsla gerð úr steinum á bæjar-
stæðinu, sem enn er óljóst til hvers var notuð.
„Það sem við ætlum að einbeita okkur að í
sumar er að fylgja þessari leiðslu í báðar áttir.
Annars vegar munum við athuga hvernig hún
tengist húsunum á bæjarstæðinu og hvaða til-
gangi hún hefur þjónað þar, hins vegar hver
upptök hennar eru. Einnig munum við kanna
mörk bæjarstæðisins til austurs. Elsta byggð-
in var austar en síðasti bærinn á staðnum. Þar
höfum við meðal annars fundið nokkur hús
sem tilheyra líklega tíma Snorra hér í Reyk-
holti. Við ætlum að kanna hvort fleiri bygg-
ingar frá sama tíma er að finna á svæðinu.“
Guðrún segist vera farin að sjá fyrir endann
á rannsókninni á bæjarstæðinu, en þá muni
uppgröftur í gamla kirkjugarðinum taka við.
„Það sem við ætlum að kanna er meðal annars
hversu margar kirkjur hafa staðið þar. Við
vitum að það var kirkja sunnan við gömlu
kirkjuna sem nú stendur og var reist 1886–7.
Spurningin er hvort upphaflega kirkjan stóð
þar einnig,“ segir Guðrún. „Við munum at-
huga hvort unnt sé að greina á milli mismun-
andi kirkjubygginga. Það er heilmikið til af
rituðum heimildum um kirkjuhald hérna og
kirkjan var endurgerð nokkrum sinnum.
Sagnfræðingur á okkar vegum er að rannsaka
heimildirnar, og við munum svo athuga hvort
þeim ber saman við það sem við finnum.“ Guð-
rún bætir við að ýmislegt annað megi að öllum
líkindum finna í kring um kirkjustæðið, þar
sem að þegar grafir hafi verið teknar í kirkju-
garðinum hafi ýmsar byggðaleifar komið í
ljós. Hún segist þó ekki gera sér vonir um að
finna heilleg mannabein, sökum lélegra varð-
veisluskilyrða í jarðvegi Reykholts. „Það er
þó aldrei að vita hvað kemur í ljós,“ segir hún.
„Jarðsjárkönnun var gerð í kirkjugarðinum í
fyrrasumar og fundust þá útlínur á húsi, sem
líklega er kirkjan, og merki um ýmsar aðrar
minjar sem fróðlegt væri að kanna nánar.“
Ekki hefur verið ákveðið enn hvernig geng-
ið verður frá fornleifunum þegar rannsóknum
lýkur að sögn Guðrúnar, en áætlað er að upp-
gröftur standi í minnst tvö sumur í viðbót.
„Það standa vonir til þess að hægt verði að
hafa eitthvað af þeim til sýnis,“ segir Guðrún.
„En hvernig það verður framkvæmt er nokk-
uð sem þarf að taka ákvörðun um.“ Þar til sú
ákvörðun verður tekin, gefst ferðamönnum
kostur á að skoða svæðið þar sem fornleifa-
uppgröfturinn fer fram í fylgd leiðsögumanns,
þar til aftur verður tyrft yfir.
Morgunblaðið/Golli
Skólabörnum leiðbeint um sýninguna Snorri Sturluson og samtíð hans.