Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.2002, Síða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 15. JÚNÍ 2002
ER ÞETTA HVERGI?- MELRAKKASLÉTTA, 1992: Kannski, en þetta Hvergi hefur rýrn-
að og færst í áttina að skilgreiningunni á einhversstaðar fyrir tilstilli leifa af því sem dembt
er í sjóinn. (Sést ekki á þessari mynd.) Á þessum stað flæðir ruslið upp á ströndina og safn-
ast saman í því hlutfalli sem staðhættir leyfa, en án þess að hafa margbreytileika og sáttfýsi
staðháttanna til að bera. Þrátt fyrir það finnur maður fyrir hinni stórkostlegu auðlegð Mel-
rakkasléttu. Hún birtist manni í nærandi, margslungnu sjónrænu og efnislegu tómi. Tómi
sem virðist flatt, opið, tært og óendanlegt. Af þessum þáttum er hér gnótt en tilvist þeirra
veltur á gnægðinni og hreinleikanum. Til viðbótar við þennan ríkuleika hvíla einkenni
heimsenda yfir Melrakkasléttu, bæði efnislega og sálrænt. Andrúmloftið er þrungið þögulli
eftirvæntingu. Ef til vill vegna hafsins, sem aðeins einum eða tveimur þumlungum neðar
býr yfir hótun um enn meira ríkjandi viðveru. Eða kannski er það tilfinning fyrir eitrinu,
óljós sem hún er, sem truflar tilfinninguna fyrir staðnum; eituráhrif sem verða til er hið
upphafna blandast við áberandi hlutföll polypropylens, polyethylens og annarra efnisþátta
grískra goðsagna.
Þetta er tíundi hluti flokks sem í heild ber heitið: Iceland’s Difference (Sérkenni Íslands). © fyrir ljós-
mynd, 2002, hönnun og texta, 2002, Roni Horn. Fríða Björk Ingvarsdóttir þýddi.