Pressan - 19.09.1991, Side 30

Pressan - 19.09.1991, Side 30
Steingrímur Hermannsson Jóhannes Zoéga er á leið til Spánar að sjá um framkvæmdir við skála Frakka á Heimssýningunni i Sevilla. Jóhannes Zoéga, fyrrum hitaveitustjóri — Frakkarnir eru ekki sömu nanasirnar og Reykvikingar, — segir Johannes Kristinn Harðarson, bilstjóri utanrik- isráðherra, fór i þyrlutima eftir að hann missti ökuskirteinið. — brúar bilið þar til bílstjórinn fær prófið aftur — verður notað á nýjan tölvu- leik sem ætlað er að bæta minni þeirra sem spila Steingrimur Hermannsson, „Big Red", mun þroska minni banda- riskra ungmenna. 38. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR FIMMTUDAGURINN 19. SEPTEMBER 1991 STOFNAÐ 1990 HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJÓMAR Missti annað nýrað, hálft lunga og hluta úr maga í botnlangauppskurði — lidur í sparnadi, — segir Jörundur Fridriksson, yfirlæknir á Borgarspítala Reykjovjk, 18. september „Auðvitað sé ég eftir þessum iíffærum. Mér líd- ur eins og hálfum manni,“ sagði Karl Ragnarsson, 45 ára gamall sjómaður frá Seyðisfirði, ■ samtali við GULU RPESSUNA, en læknar á Borgarspítalan- um fjarlægðu annað nýr- að, hluta úr maga og hálft lunga úr Karli þegar hann fór í botniangauppskurð á mánudagskvöldið síðasta. „Mér var ekki sagt neitl, Þeir sögðu að þetta yrði bara venjuleg botnlangaaðgerð. Það var ekki fyrr en ég vakn- aði að mér fannst ég hálftóm- ur að innan," sagði Karl. Jörundur Friðriksson yfir- læknir, sem stjórnaði aðgerð- inni, sagði að btín væri liður í nýrri sparnaðaráætlun sem unnið væri eftir. Karl Ragnarsson segist vera aö ná sér eftir aðgerðina en eigi samt erfitt með að sætta sig við að hafa misst líffærin. „Viö höfum reiknað út að með þessum margþættu að- gerðunt spörum við kostnað við svæfingar og sjúkrahús- legu. Kf Karl fær nýrnasjúk- dóm, lungnasjúkdúm eða op- ið magasár í framtíðinni þá höfum við þegar afgreitt það mál. Peir sjúkdómar munu ekki koma við buddu skatt- borgaranua." sagði Jörundur. „Allir í sturtu skuldirnar burtu“ er kjörord átaks til bjargar Hitaveitu Reykjavíkur Reykjovík, 19. september „Við Reykvíkingar verð- um að taka höndum saman og aðstoða Hitaveituna, nú þegar það hefur harnað á dalnum hjá henni. I þeim anda er stofnað til þessa átaks,“ sagði Davíð Odds- son, forsætisráðherra og sérstakur verndari átaks til bjargar Hitaveitunni, á blaðamannafundi í gær. Átakið felst í því að skorað er á fólk að bæta við sig einu steypibaði í viku og hækka með því hitareikninginn. Slagorðið er: „Allir í sturtu — skuldirnar burtu". „Við eigum von á að fólk taki vel við sér. Okkur Reyk- víkingum þykir vænt um Hitaveituna okkar og við nuinum sýna það í verki," stigði Davíð. Slagorðið var valið eftir samkeppni og hlaut höfund- ur þess, Ingimundur Sveins- son arkitekt, 1,4 milljónir í verðlaun. Önnur verðlaun hlaut Jóhannes Zoéga, fyrr- verandi hitaveitustjóri, fyrir slagorðið: „Drekkum vatnið heitt — svo Hitaveitan geti skuldirnar greitt" og fær hann frítt heitt vatn í tvö ár. Þriðju verðlaun fékk Bjarni í Brauðbæ fyrir slagorðið „Borðið fleiri steikur — þá verður reksturinn leikur" og hlaut hann málsverð fyrir tvo í Perlunni. Björgum Hitaveitunni, — segir Davið Oddsson, sérstakur verndari söfnunarinnar. Rakarar vilja áframhaldandi þjódarsátt Klipping til kjarajöfnunar — óeölilegt aö hinir lágt launuöu greiöi sama verö og þeir sem betur mega sín Akureyri, 19. september „Fundurinn samþykkti að rakarar legðu sitt af mörkum til að hægt væri að framlengja þjóðarsátt- ina. Hugmynd okkar er sú að greitt verði fyrir kiipp- ingu og lagningu úr sam- eiginlegum sjóðum lands- manna. Slík ráðstöfun kæmi sér best fyrir barn- margar fjölskyldur og hina lágt launuðu," sagði Pétur Ingjaldsson, formað- ur Rakarafélagsins, í sam- tali við GULU PRESSUNA, eftir aðalfund félagsins, sem að þessu sinni var haldinn á Akureyri. „Það er fullkomlega óeðli- legt að þeir sem minnst bera úr býtum skuli þurfa að greiða það sama fyrir klipp- inguna og þeir sem eru með 300 til 400 þúsund krónur á mánuði. Það sér það hver heilvita maður að slíkt geng- ur ekki til lengdar," sagði Pét- ur. í útreikningum sem fylgja Pétur Ingjaldsson rakari segir að nota eigi klippingar til kjarajöfnunar. tillögum rakaranna kemur fram að klippingar vega mun þyngra í heimilisrekstri hinna lægst launuðu en þeirra sem búa við betri efni. I tillögun- um er gert ráð fyrir að Trygg- ingastofnun greiði allt upp í eina klippingu eða lagningu á mann á mánuði. „Allt umfram það verður fólk að greiða úr eigin vasa. Það er ekki okkar meining að Tryggingastofnun standi und- ir einhverjum flottræfils- hætti." sagði Pétur. Engin fjárlög á leiöinni Tómur misskilningur — segir Friörik Sophusson fjármála- ráöherra Reykjavík, 19. september „Eg kannast ekki við að hér sé verið að semja nein fjárlög. Allar fréttir af slíku eru á ábyrgð þeirra fjölmiðla sem hafa haidið því fram og ef fólk vill ein- hverjar nánari upplýsing- ar ber því að snúa sér til þeirra,“ sagði Friðrik Sop- husson fjármálaráðherra á blaðamannafundi í gær. Til fundarins var boðað vegna frétta um ýmsa þætti sem eiga að vera í fjárlögum næsta árs. Vegna frétta um niðurskurð og þjónustugjöld hafa mörg félagssamtök sent út yfirlýsingar um aðgerðir. ef af slíku verður. „Ég skil hvorki upp né nið- ur í þessu öllu. Við erum ekki einu sinni 'farnir að huga að (járlögum. Við erum að gera allt aðra.„og skemmtilegri hluti," sagði Friðrik. Tölvur, prentarar, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfi, umbrotskerfi og alhliða þjónusta MICROTÖLVAN Suðurlandsbraut 12 - sími 688944

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.