Vísir Sunnudagsblað - 10.04.1937, Síða 4

Vísir Sunnudagsblað - 10.04.1937, Síða 4
4 VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ VISIR DAGBLAÐ Utgefandi: BLÁÐAUTGAFAN VfSIR H.F. Ritstj.: Páll Steingrímsson. Skrifstofa og atgr. Austurstræti 12. S í m a r : Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Prentsmiðjan 4578 Verð 2 kr. á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan. Vjsh)itá. Það verður ekki um þaö deilt, a'ð Islendingar yfirleitt fögnuðu yfir því, er fullkomin útvarps- stöð var tekin til starfa í land- inu, og þótt menn hafi fagnað yfir því af ýmsum ástæðum, mun mega fullyrða, að það hafi ekki síst verið vegna þess, að menn gátu nú fengið veður- fregnir oft á sólarliringi, enda er það alkunnugt, að til þess að hlusta á veðurfregnirnar hlaupa menn frá verkum sínum, ef menn eru úti við, en það gera menn fráleitt til þess að hlýða á neitt annað. Þetta o. m. fl. sýnir Ijóslega, hversu mikinn áhuga menn hafa fyrir veðurfregnun- um og hversu menn telja sér nauðsynlegt/ að fylgjast með í því, sem Veðurstofan tilkynnir um veðurhorfurnar gegnum út- varpið. Veðrið er það, sem allir tala um og allir vilja fræðast um og þurfa fræðslu um, til sjávar og sveita, þeir, sem störfum gegna og þeir, sem hvíldar njóta og geta lyft sér upp. Allir lilýða með athygli á veðurspárnar, og þess vegna þykist Sunnudags- blað Vísis þess fullvist, að menn alment muni lesa með mikilli athygli hina ágætu grein Björns L. Jónssonar veðurfræðings um það, hvernig veðurspáin verður til. Birtist fyrri hluti greinarinn- ar í Sunnudagsblaði Vísis í dag, en niðurlagið í næsta Sunnu- dagsblaði. Skilyrðin. Ung stúlka: Sá maður, sem eg giftist og trúi fyrir lífi minu og væntanlegra harna minna, verður að vera fallegur eins og keisari, sterkur eins og hvíta- björn, hugrakkur sem ljón — og — og — Vinstúlka: Og heimskur eins og múlasni! Hvernig verður veðurspáin til? Eftir Björn L. Jónsson veðurfræðíng. Inngangur. Veöurspár Vei5urstofunnar eru það útvarpsefni, sem almenningur til sjávar og sveita vill síst án vera og einna mesta hagnýta þýSingu hefir fyrir aðal atvinnuvegi lands- ins, sjávarútveg og landbúnað. ÞaS gegnir þvi engri furðu, þótt mikiö þyki undir því komiö,, að treysta megi veöurspánum og aö þær reynist jafnan réttar. Og hitt er þá ekki síöur skiljanlegt, að vonbrigöa gæti og gremju, ef röng veöurspá veröur beint eöa óbeint völd aö tjóni eöa óþægindum á einn e'öa annan veg, hvort sem of mikilli bjartsýní eöa bölsýni er um aö kenna. En eins og aö líkindum lætur, er almenningur lítt fróður um or- sakir þess, að veöurspár bregöast. Ýmsir hafa meira og minna glögg- ar hugmyndir um, aö oft sé þaö vegna ónógra upplýsinga um lægö- asvæði og veðurlag umhverfis landiö eða þá vegna þess, aö ekki séu þekt til hlítar lögmál þau, sem stjórna veðri og vindi á jöröu hér. En aðrir skella allri skuldinni á Veðurstofuna eöa starfsmenn hennar, og þá aö sjálfsögöu fyrst og fremst á höfunda veðurspánna. Stafar það sumpart af eölilegri tilhneigingu manna til að kenna einhverjum sérstökum það, sem af- laga fer, og til að láta reiði sína þá bitna á honum, en sumpart af skilningsskorti og ókunnugleik. Þannig halda sumir — eg þekki sjálfur dæmi þess — að veðurspárn- ar séu reiknaðar út eftir föstum og nákvæmum reglum eða formúl- um, og röng spá stafi því einung- is af skökkum útreikningi, svo sem að vitlaust hafi verið lagt saman eða margfaldað. Sannleikurinn er sá, að veður- fræðin á engin nákvæm lögmál til hagnýtingar við daglegar veður- spár. Gegnir þar sama máli og um ýmsar aðrar vísindagreinir, og það þótt eldri séu. Læknisfræðin er ein elsta vísindagrein mannkynsins. Og þótt því verði ekki neitað, að afrek hennar nú á dögum séu dá- samleg, þá er hitt eigi síður al- kunna, að mjög oft nær þekking iæknanna helsti skamt. Þeim skjátlast ekki síður en veðurfræðr ingunum. Sjúklingar, sem þeir telja dauðans mat, ná fullum bata. Öðrum hnignar eða þeir hrökkva Björn L. Jónsson. upp af fyrirvaralaust þvert ofan í trú læknisins á skjótan bata. Um veðurspárnar er það að segja, að í þeim löndum„þar sem öll tækni og aðbúnaður eru þau fullkomnustu, sem völ er á, er tal- iö, að af öllum veðurspám reyn- ist þrír fjórðu hlutar alveg réttar, rúmur fimti hluti réttar að hálfu leyti eða meir, en ein af hverjum tuttugu alröng eða því sem næst. Hér á landi eru öll skilyrði muu verri en annarsstaðar, svo að vafa- laust er útkoman lakari hér. En um það hafa engar skýrslur verið gerðar. Hér á eftir skal nú greint frá því, hvernig veðurspáin verður til, svo að mönnum megi skiljast á hverju hún byggist og hversvegna hana skortir það öryggi og lang- drægi, sem ýmsir ætlast til af henni. Veðurathuganir. Um allan hinn mentaða heim eru nú gerðar reglubundnar veður- athuganir oft á dag alt árið um lcring. Að jafnaði eru athuganir • þessar gerðar í borgum eða þorp- um eða á sveitabýlum, þar sem ætla má, að athugunin gefi sem réttasta mynd af veðurlaginu í héraðinu umhverfis og vel hagar til að öðru leyti. T. d. er óheppi- legt að reisa athugunarstöð i þröngum dal eða firði eða við ræt- ur fjalls, því að þar getur vindátt, veðurhæð og úrkoma verið með alt öðru móti en i nágrenninu. En auk þess hafa verið settar upp stöðvar víðsvegar í óbygðum, bæði á eyðieyjum, óbygðum landflæm- um og uppi á regin fjöllum. Má þar til nefna eyjuná Jan Mayen — um 6oo km. til norðausturs frá íslandi — þar sem Norðmenn hafa gert veðurathuganir í fjölda mörg ár. í Evrópu eru margar fjalla- stöðvar, sú hæsta í Jómfrúnni í Sviss í 3450 m. hæð. En hæsta stöð í heimi er í Asíu-hálendinu norðvestanverðu (Turkestan) í 3580 m. hæð. Á sumum þessutr, stöðvum er komið fyrir sjálfvirk- um tækjum, sem ekki þarf að vitja nema endrum og eins, en allvíðast 'nafast þar við að staðaldri menn, sem hafa það hlutverk eitt að ann- ast hinar reglubundnu veðurathug- anir — og ýmsar aðrar vísindaleg- ar athuganir. Algengustu áhöld við veðurat- huganir eru: hitamælar, úrkomu- mælir, loftvog, rakamælir, sjálf- ritandi áhöld (loftvog, hitamælir o. fl.). Ennfremur eru víða notuð- áhöld til að mæla vindátt og veð- urhæð, sólskin o. fl. o. fl. Margar athugunarstöðvar hafa aðeins hita- mæla og regnmæli og sumar alls. tngin áhöld. Er athugunarstöðvum eftir því skiff í X., 2. og 3. floklcs stöðvar. Athugunin fer þannig fram, að lesið er á áhöld þau, sem fyrir hendi eru. Ennfremur áætlar at- hugunarmaðurinn vindátt og veð- urhæð, tegundir skýja, útbreiðslu þeirra í lofti og hæð frá jörðu, úrkomu, skygni, sjávaröldu, snjó- dýpt og jafnvel enn fleira. Um alt þetta fer hann eftir nákvæmum leiðbeiningum, sem honum erit látnar í té, og þarf allmikla að- gætni og æfingu til að þetta megi fara vel úr hendi. Þá hafa færst mjög í vöxt á síðari árum athug- anir í hærri loftlögum á vindi, hita, raka og loftþrýstingu, ýmist með smáum loftbelgjum, flugdrek- um, flugvélum — sbr. rannsóknir hollensku flugmannanna hér í Reykjavík árið 1932—33 — o. fh Athuganir þessar eru gerðar á vissum tímum og á sömu minútu um allan heim. Hinir alþjóðlegu athugunartímar eru: kl. 6, kl. 12, kl. 17 (ísl. tími). Auk þess athuga margar stöðvar kl. 9, kl. 15, kl. 24. Þar sem flugsamgöngur tíðkast, eru gerðar athuganir á 1 eða 2 tima fresti. Aðai athugunartímar íslenskra stöðva eru kl. 8 og 17, og fellur sá síðari saman við al- þjóða-athugunartímann. Hverri athugun raðar athugunarmaðurinn 1 skeyti, sem samsett er af eintóm- um tölustöfum, eftir ákveðnum lykli tKoda). í hverju skeyti eru* venjuiega 4—6 „orð“ og 5 tölu- stafir í hverju „orði“. Áður vom

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.