Vísir Sunnudagsblað - 26.02.1939, Side 4

Vísir Sunnudagsblað - 26.02.1939, Side 4
4 VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ (Falbdaoiiasa Lavarðurinn i verslunarerindum. „Herra lávarður! Monsieur Lavertaine liað mig að tilkynna yður, að hann væntir yðar kl. 8 í kvöld á skrifstofum sínum lil þess að undirrita samning- ana“, sagði þjónninn og lmeigði sig. „En til klukkan átla, fara tískusýningarnar fram, því miður.“ Hinum unga, glæsilega manni fanst ekkert að þvi, að sýning- arnar tóku þetta langan tíma. Það virtist miklu fremur gleðja Iiann. Hann var búinn að kviða lengi fyrir þessum hundleiðin- lega verslunarsamningi, eins og illa undirbúinn nemandi fyrir prófi, og hann varð því fegnastur að samtalinu var frestað í tvær klukkustundir. Tvær klukkustundir í Paris! Léttur í skapi, með hattinn út í annan vangann, gekk Iiann eftir dúklögðum göngum tískuhallarinnar Lavertaine. Skyndilega nam hann staðar. Nokkurar fagurvaxnar tísku- stúlkur í eftirmiðdagskjólum komu á móti honum. Sú síðasta þótti honum fegurst. Percy hafði notið prýðilegs u])peldis, en nú stóð hann þarna og glápti á stúlkuna eins og þorskur eða fábjáni. „Óskið þér einhvers?" spurði hún vingjarnlega. „Já,“ sagði liann án umhugs- unar, „eg óska að mega vera í návist 3rðar næstu tvær klukku- stundirnar.“ En þegar Iiann sá skelfinguna sem greip hana, bætti hann við með alvöru- svip: „Eg heiti Percival Hunn- ington lávarður.“ f slað þess að svara nokkuru, i-ak hún upp skellihlátur — yndislegan lilátur að honum fanst. Áður en varði voru allar hinar stúlkurnar horfnar — þau stóðu tvö ein á breiðum ganginum. „Eg skal segja yður nokkuð,“ sagði hann, „þér stel- ist burt með mér í tvo tíma. Það er ómögulegt að þér verðið rek- in fyrir það. Eg þarf að tala við húsbónda yðar í kvöld, og þá skal eg sjá um að alt komist aftur i lag.“ Þegar hann sá, að hún var enn þá treg, varð hann ákafari. „Ef hann reiðist og rekur yður, þá komið þér bara með mér í Middleton verslunar- höllina. Þar fáið þér tvöfalt kaup. Eg liefi nefnilega þann lieiður að vera umboðsmaður þeirrar stofnunar," bætti hann alvörufullur við. Þau fengu sér te lijá Gerron, en vegna þess live tíminn var naumur, fóru þau strax á eftir lil Marloque og borðuðu kvöld- verð. Við þriðja staupið sem liann fékk sér var liann orðinn bálskotinn eins og seytján ára sakleysingi. „Jæja,“ sagði Jaqueline. „Þar sem kunningsskapur okkar er orðinn þetta mikill, verð eg að fá einhverjar upplýsingar um yður, ungi maður. Hverjir eruð þér? Segið þér sannleikann og ekkert nema sannleikann!“ „Eg get rakið ættlegg minn,“ lióf hann mál sitt, „heint aftur til William Ö. Hunnington’s þess, sem var í þjónustu Oliver Cromwells og----------“ „Með tilliti til hinnar hrað- fara liynningar okkar, mættuð þér gjarna hlaupa yfir næstu 300 ár“, greip hún fram í. „Takk,“ sagði Percy og dreypti á fjórða staupinu.„Eg er sem sé sem stendur lokaþáttur ættleggs sem rekja má enda- laust aftur í tímann. Faðir minner liertogi og markgreifi af Hunnington. Eg hefi marga góða hæfileika til að bera. Með- al annars er eg stofnandi klúbhs klúbbanna, en í liann fá að eins þeir inngöngu sem geta sannað það, að þeir séu meðlim- ir í heilli tylft af öðrum klúbb- um. Eg kann sex hundruð og fimtán sagnir í bridge og' iðka fjölmargar kjmdugar inniíþrótt- ir: Skautatennis, mótorlijóla- golf og svifflugsknattleik. Gock- tail get eg blandað iá níutíu og fjóra vegu, auk þess er eg frumkvöðull að þeirri nýung, að ganga í dröfnóttum sokkum við ljósblátt vesti. Að eins eitt hefi eg aldrei getað —- það er að vinna. Og einmitt það hefir tilvonandi tengdapabbi minn aldrei getað fyrirgefið mér.“ * „Hver?“ spurð Jaqueline, og það Iiljómaði rétl eins og mað ur liefði stungið logandi kerti niður í ískalt vatn. „Tengdapabhi minn tilvon- andi. Eg trúlofaðist dóttur lians, Jane Middleton, eitt sinn er eg var veikur á svellinu. Það gekk alt svo fljótt fyrir sig, að eg skil það eiginlega ekki sjálfur. Það skeði eina kvöldstund í lystigarðinum heima lijá lienni. Það angaði af blómunum, svo var tunglskin —- — ja nei, það var það nú eiginlega ekki — tunglið var ekki nema hálft —- og hopsa, vopsa, bums. Þér vitið nú, hvernig svona lagað gengur fyrir sig.“ „Hjá yður gengur allt hopsa, bapsa, bums“, sagði Jacqueline. „Eg segi ekki beinlinis að mér geðjist ekki að Jaue. Alt fram að síðustu klukkustund- um hélt eg að hún bæri af öðr- um stúlkum. Eini gallinn við liana var þetta bévítis uppátæki í föður hennar að láta mig vinna. Af þeim ástæðum er eg nú í Paris og bið með lífið í lúkunum yf ir því að liitta þenna skarlskrögg, Lavertanie, til að semja við bann um versl- unarviðskifti fyrir Middleton. Þaðáað vera nokkurskonar próf á mig. Ef að eg snuða Laverta- ine, þá er það sönnun þess að eg er til einhvers liæfur, og þá fæ eg Jane. En ef Lavertaine snuð- ar mig, þá má eg synda veg alhar veraldar og Jane giftist öðrum. Hvernig líst yður á þetta?“ , „Hopsa, bopsa, bums,“ svar- aði stúlkan, en það var greini- legur kuldi í röddinni. „Eg veit hvað eg geri.“ Percy deplaði augunum, greip hönd hennar og þrýsti kossi á fing- urna. ,Eg læt Lavertaine snuða mig.“ „Jacqueline reis á fætur. „Nei, það gerið ])ér ekki! Þér verðið að flytja mig strax til verslunarhússins aftur, það er „MIGHTY WAR ADMIRAL“, einhver frægasli veðlilaupaliestur í Bandaríkjunum. Stúlkan á myndinni er Paula Stone, fræg ame- rísk dansmær, þjálfari liestsins, og Fred Stone, eigandinn. „Aðmírállinn“, eins og hann vanalega er kallaður vestra, hefir unnið glæsilega sigra og eigandinn og fleiri stórhagnast á honum. —

x

Vísir Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.