Vísir Sunnudagsblað - 27.08.1939, Side 5

Vísir Sunnudagsblað - 27.08.1939, Side 5
VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ 5 ÞEGAR IIITLER TALAR. — Myndin tekin, i Willielmshaven, er Ilitler flutti þar ræðu. — I fremstu röð sitja þeir Heinrich Himmler, yfirmaður Gestapolög- reglunnar, og Rader aðmíráll. margbrotnar og dabrnir eru margir, en þrátt i'yrir það. er öllum Svisslendingum sameig- Jíilegt, að þola livorki Ik.'fðingja- vald né einveldi, en fylkja sér þétt um viðhald lýðræðisins. Þetta er bjargið sení þeir liafa bygt á, og það hefir reynst þeim traustur grunnur. Sundurleit öfl í einni heild. Það sem er allra eftirtektar- verðast í fari Svissleudingsins er einingartilfinning þeirra inn- byrðis, þvi að nú vantar mörg skilyrði til ])ess, að þessi eining megi takast. Fyrst og fremst er það, að Sviss er ríkjasamband 25 sjálfstæðra ríkja, er kantón- ur nefnast, og sem ráða málum sínum að mestu leyti sjálfar. Manni gæti því auðvekllega komið til hugar, að sérdrægni og eigingirni yrði nokkurs um ráðandi í stjórn rikjasambands- ins og að liver kantona vildi draga sér þau hlunnindi sem sambandið veitir. í öðru lagi eru þar tveir andstæðir trúarbragða- flokkar: mótmælendur og ka- þólskir, auk ýmsra smærri trú- flokka t. d. gyðinga. I þriðja lagi eru fjögur ólík tungumál: þýska, franska, ítalska og rát- rómanska töluð í landinu; og í fjórða lagi hinir margþættu kynflokkar. En þrátt fyrir alt þelta, mynda Svisslendingar eina heild, eina þjóð, og með- vitundin um það liefir eflst og þróast gegnum aldirnar, i sam- eiginlegri banáttu þeirra fyrir sjálfstæði sínu við erlenda und- irokun og kúgun. Enda þótt kantónupólitíkin og trúar- bragðadeilur hafi áður fyr, og vegna sérdrægni, skilið eftir dökka bletti, — meira að segja blóðug spor í sögu landsins, þá liefir altaf tekist aftur að ná sáttum og að treysta þjóðar- heildina nýjum og sterkari böndum á eftir. Og kantónu- pólitíkin befir jafnframt orðið til góðs, hún hefir altaf staðið á verði gegn því, að eiginleikar og séreðli hverrar kantónu yrði brotið á bak aftur fyrir heildarpólitík ríkisins. Kantón- urnar standa sem kjarnmikhr einstaklingar í þjóðarheildinni, gefa lienni nýtt afl og nýjar hugsjónir, en fórna ekki öðru en því sem fórna þarf til að lialda við einingu ríkisins. Og þetta er sennilega meginkjarni svissneskra stjórnmála, megin- þáttur liins frábæra stjórnarfyr- irkomulags, sem þar ríkir. Mikill þáttur i stjórnarsam- einingu þjóðarinnar er hinn lilli stéttamunur í landinu, sem er minni í Sviss, en jafnvel flestum öðrum löndum álfunn- ar. Ekki svo að skilja, að þar sé ekki lil fátækt og auðæfi, en fá- tæktin er ckki örbirgð og auð- æfin ekki kúgun, því þar eru allir jafn réttháir, alþýðument- un i besta lagi, kaupgjald bátt og atvinnuleysi mjög lítið fram á allra síðustu ár. Þess vegna skiftasl Svisslendingar ekki í aðrar eins stétta andstæður og átt hefir sér stað meðal ná- grannaþjóða þeirra. Hitt er skiljariiégt, að í lýð- frjálsu landi sem Sviss, þar sem skoðana- og rit-frelsi ríkir, eigi skoðanamunur í stjórnmálum og flokkapólitík sér stað, engu síður en annarstaðar. En flokka- pólitíkin skiftist hvorki eftir þjóðflokkum né tungumálum, heldur eftir atvinnugreinum og frjálslyndi í hugsun; og hvað utanríkismálin snertir, stendur þjóðin um þau sem einn maður. 1 ófriðnum mikla þurfti reyndar talsverð átök til að lialda þess- ari einingu við, því að þýska Sviss fylgdi Þjóverjum að mál- um, en rómanska Sviss var bandamanna megin. En með framúrskarandi lagni, samtök- um og einingu hélt Sviss sér utan við styrjöldina, og reyndist í henni allra vinur án þess að talca eina þjóð á nokkurn hátt fram yfir aðra. „Sviss umfram alt“ varð ]>á að kjörorði allra flokka í landinu, og sameining þeirra um að halda frelsi og vel- ferð þjóðarinanr í lengstu lög var nógu sterk til þess, að eng- inn tviskinnungur né æsing gat stofnað þjóðarheildinni i voða. I skauti sínu geymir fjalla- þjóðin svissneska minjar um frábæra hreysti og hugprýði, sagnir um dularfulla viðburði og hörmuleg slys, fastheldna siði, gamla hjátrú og fornar málvenjur, áralangt aftan úr öldum. En þjóðin hefir gert annað og meira, hún hefir rist rúnir hins liðna og hins verð- andi tíma í landið sjálft, hún hefir lagt vegi og járnbrautir, bygt brýr og aflstöðvar sem vart eiga sinn líka í veröldinni og hún hefir reisl mannvirki sem bera merki fádæma dugn- aðar og stórfeldrar menningar. Rúnir liinnar andlegu menning- ar eru ristar djúpt í sálarlíf þjóðarinnar sjálfrar og þaðan munu þær aldrei mást. Nú getur svissneska þjóðiri verið stolt vf- ir því, að stórveldin hafa trúað henni fyrir óskabarni sínu: Þjóðabandalaginu. Allra augu mæna til litla liáfjallalandsins Sviss þegar einhver stórvið- burður gcrist í lieiminum, því að í skauti þess verða deilumál- in til lykta leidd og örlög lieimsfriðarins ákveðin. Þannig er lilutskifti þessarar. lierskáu bardagaþ j óðar miðaldanna breytt i það, að vernda heims- frið 20. aldarinnar, og væri bet- ur ef henni tækist það. Tortrygni og lífhræðsla. Svo er sagt, að fjölmargir vel- megandi Múhameðstrúarmenn i Asíu og Afríku norðanvérðri sé svo tortrygnir og liræddir um líf sitt, að þeir þori livorki að rieita matar né drykkjar, án þess að láta aðra smakka matinn og drykkinn á undan sér og ganga þannig úr skugga um, að alt sé óeitrað og eins og það á að vera. — Eru sérstakir menn liafðir til þessa og er talið, að þe'ir liafi gott kaup og þurfi eklcert annað að gera, fremur en þeir vilja. Leiðrétting. Misritun hefir vilst inn i sið- asta Sunnudagsblað Vísis. Birt- ist þar lcvæðið „Línur og litir“, sem er eftir Sigurð Ingimar Helgason, en elcki L. G. eins og þar stóð. HNEF ALEIKSKAPP ARNIR Maxie Bael- og Lou Nova, frá Californiu. Eru þeir báðir kunnir hnefaleikakappar.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.